Alþýðublaðið - 25.07.1935, Page 4
FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ 1935.
r GAMLABlÓ ■
Lifið í veðL
Afar spennandi sakamála-
sjónleikur í 10 þáttum,
eftir belgíska rithöfund-
inn Georges Simenon.
Aðalhlutverkið leikur einn
af frægustu leikurum
Frakka:
HARRY BAUR.
IMyndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
Indlaodslðglo sampjrkt
I efrl málstofunni.
LONDON, 25. júlí. FB.
Lávarðadeildin hefir nú sam-
þykt Indlandslögin til fullnustu
og þar eð neðri málstofan hafði
gert slíkt hið sama ganga lögin
nú til konungs til undirskriftar.
Lögin voru samþykt mótat-
kvæðalaust í lávarðadeildinni.
(United Press).
N.s. Laxfoss
á morgun föstudag 26. júlí.
Burtfarartími frá Reykjavík kl.
8 árdegis.
Burtfarartími frá Borgarnesi kl.
3 síðdegis.
Hraðferð til Akureyrár, Ólafs-
víkur og Stykkishólms.
Kemur við á Akranesi í báðum
leiðum.
Fóðurvðrur
frá J. Rank.
Mixed Corn ,,A“
Mixed Corn ,,X“
Layers Mash
Growers Mash.
Alexandra hveiti seljum
Ivið ódýrt í heilum sekkj-
um
jUUsUZldi,
ITALIA
Frh. af 1. síðu.
kvörðun ítölsku stjórnarinnar,
að leysa Italíubanka undan
þeirri skyldu, að hafa gullforða
handbæran, er nemi 40% af
seðlamagni í umferð, en það er
af mörgum talið benda til, að
horfið verði frá gullinnlausn
seðla í ítalíu, þótt ríkisstjórnin
þar í landi neiti því, að horfið
verði að því ráði.
ROOSEVELT
Frh. af 1. síðu.
á sama um það, hvort ráðstefnan
verði haldin eða ekki, og telja,
að það myndi ef tii vill vera
kostnaðarminna fyrir Japan að
byggja flota eftir þeirra eigin
höfði en samkvæmt þeim samn-
ingum, sem kynnu að vera gerðir.
Ketilsprenging veld
ur stórsiysi í þýzkri
verksmiðju.
LONDON, 24. júlí. FIJ.
Fregnir frá Frankfurt am
Main herma að tveir menn hafi
farist og 14 slasast hættulega,
er eldur kom upp í verksmiðju
sem er eign I. G. Farbenindus-
trie, þar í nágrenninu.
Eldurinn kom upp í sambandi
við ketilsprengingu, sem varð
þar í verksmiðjunni. Sprenging-
in og eldurinn ollu mikilli skelf-
ingu þar í borginni, með því að
mönnum voru enn í minni ægi-
legar sprengingar, sem urðu þar
í vopnaverksmiðju árið 1916.
Þýzku knattspyrimmennirnir
fóru utan með Dettifossi í
gærkvöldi kl. 10. I dag ætla þeir
að keppa við Vestmannaeyinga
meðan Dettifoss stendur þar
við.
Jarðarför
Ólínu Andrésdóttur skáld-
konu fer fram á morgun kl. 3
frá dómkirkjunni.
Prímúla
kom hingað í gærkvöldi. Með
henni komu um 60 enskir ferða-
menn.
Arandora Star,
enskt skemtiferðaskip kom
hingað 1 gærmorgun með um
500 farþega. Fór skipið í morg-
un áleiðis til Akureyrar.
Enn vantar okkur
fjölda kaupakvenna og snúningadrengja á úrvals-
heimili víðsvegar um landið.
Vinnumiðlunarskrifstofan í Reykjavík.
Hafnarstræti 5 (Mjólkurfélagshúsinu) sími 2941
og Þingholtsstræti 18 (Kvennadeildin) sími 4349.
Kaupum flðskur
til laugardags. — Líterflöskur, hálfflöskur og heilflösk-
ur með sléttum botni.
Móttaka í Nýborg allan daginn.
Afengisverzlun ríkisins.
AIÞtBUB
I DAG
Fréttir frá ísafirði.
Bátahöfninni er nú lokib að
mestu. Dýpið er 4,1 metrar um
hálffállinn sjó. Eftir er enn að
leggja slitlag á uppfyllinguna.
Á bæjarstjórnarfundi á isafirði
17. þ. m. var samþykt, að veita
Alþýðuhúsinu leyfi til kvikmynda-
sýninga í 20 ár, gegn 10 hund-
raðshlutum af brúttóandvirði
seldra aðgöngumiða. Ætlast er
til, að Alþýðuhúsið kaupi sýning-
arvélar bæjarins, og að gamal-
menni og rólfærir sjúklingar
sjúkrahússins fái ókeypis aðgang
að tilraunasýningum, svo sem
verið hefir.
íþróttanámskeiði í Reykjanesi
lauk með héraðsmóti sl. sunnud.
Var veður gott og fjölmenni á
mótinu.
Lokið er aðgerð á íþróttavell-
inum á ísafirði og hann tekinn
til afnota.
Fyrir forgöngu bæjarstjóra var
vinnudagur almennur í rnemenda-
skála Gagnfræðaskólans, Birki-
hlíð, þann 14. þ. m. Vinna hófst
kl. 10 og var henni lokið kl. 5.
Veður vax hagstætt og unnið mik-
ið. Skálinn er nú opinn til afnota
meðlimum íslenzkra skóla- og
æsku-félaga, gegn 50 aura nætur-
gjaldi. Samvinna er hafin milli
Birkihlíðar og hliðstæðra erlendra
stofnana.
Átta skátar og félagar þeirra
eru nýtoomnir til ísafjarðar úr
viku ferðalagi um Hiornstrandir.
Voru fjórir þiltanna úr Reykjavík,
en 4 frá isafirði. Hreptu þeir ill-
viðri, en láta vel af gestrisni
Strandamanna. Peir höfðu tjaid
og allan útbúnað annan til úti-
legu með sér, en urðu að gista á
bæjum vegna sífeldra rigninga.
Allmikið er um ferðalög um
þessar slóðir í sumar.
Útsvör á Eskifirði.
Nýlega hefir farið fram nið-
urjöfnun útsvara á Eskifirði.
Alls var jafnað niður kr. 22.050.
Hæst útsvar bera: Markús Jen-
sen, fyrrum kaupmaður, kr.
5000; Magnús Gíslason sýslu-
maður, og Útgerðarsamvinnu-
félagið Kakali, 1600; Jón Gríms-
son útibússtjóri og Jón Þor-
steinsson bakari, 1200 kr.; Guð-
ný Þorsteinsdóttir, kr. 875;
Olíuverzlun Islands og Shell, kr.
600.
Farþegar
með Dettifossi til útlanda 24.
júlí: Mr. og Mrs. Stuart, Gróa
Hubner, Mrs. Midleton, Miss
E. F. Morres, Miss W. Water-
man, Mr. J. D. Pemberthy, Mr.
Fuller, Colonel Hilton Green,
Kári V. Jóhannesson, Mr. Chap-
lin, Mr. Griffiths, Mr. J. W.
Shenton, Herr Koppel, flokkur
þýzkra knattspyrnumanna, 21
alls.
Leiðrétting.
1 lok greinarinnar um Rauð- J
hólaskála, eftir Þuríði Friðriks-
dóttur, sem birtist í blaðinu í
gær, hafði misprentast. Stóð
22. apríl 1935, en átti að standa
22. júlí 1935.
Warwickshire,
enskur togari kom hingað í
gær til þess að sækja fiskieftir-
litsmann sinn, Markús Gríms-
son.
Esja
fer austur um næstkomandi
laugardag kl. 9 síðdegis. Tekið
á móti vörum til hádegis á
morgun.
Lyra
fer héðan í dag kl. 6 síðd. til
Bergen um Vestmannaeyjar og
Thorshavn.
Næturlæknir er í nótt Sveinn
Pétursson, Freyjugötu 28. Sími
3066.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Iðunnar-Apoteki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 10
stig. Yfirlit: Lægð við austur-
strönd Islands og önnur yfir
Grænlandi. Báðar á hreyfingu
austur eftir. Útlit: Norðvestan
og vestan kaldi. Smáskúrir, en
bjart á milli.
ÚTVARPIÐ:
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Lesin dagskrá næstu
viku.
19.30 Tónleikar: Skemtilög
(plötur). ,
20,00 Erindi: Frá útlöndum
(síra Sigurður Einars-
son).
20.30 Fréttir.
21,00 Tónleikar: a) Útvarps-
hl jómsveitin; b) Ein-
söngur (frú Björg
Guðnadóttir); c) Dans-
lög.
Skipaf réttir:
Gullfoss er á Siglufirði. Goða-
foss er á leið til Vestmannaeyja
frá Hull. Dettifoss er á leið til
Hull frá Vestmanna'eyjum. Brú-
arfoss er í Kaupmannahöfn. Lag-
arfioss er á Siglufirði. Selfoss er
á leið til Hamborgar. Dronning
Alexandrine er væntanleg hingað
í nótt. ísland er væntanlegt til
Hafnar á morgun. Esja kom í
nótt.
Höf nin:
Laxfoss fór í morgun. Skelj-
ungur kom í morgun að taka
olíu. Togarinn Hafsteinn fór í fisk-
flutnihga í morgun. Skaftfelling-
ur fór austur í gær.
Ferðafélag fslands
efnir til hringferðar, sem mörg-
um mun hugleikið að fara, um
næstu helgi. Verður lagt upp kl.
5 síðdegis frá Steindórsstöð >og
ekið fyrir Hvalfjarðarbotn, um
Ferstiklu, Dragháls, Skorradal,
Hvítárbrú að Reykbolti um kvöld-
ið og gist þar um nóttina á hin-
um fræga stað. Árla á sunnu-
dagsmorgun verður haldið upp
Keykholtsdal og Hálsasveit að
Húsafelli og dvalið þar um sinn.
Þar bjó séra Snorri hinn sterki,
og eru steinatök hans enn við
réttarvegg. Á Húsafelli er nátt-
úrufegurð mikil. Lengd viðstöð-
unnar á Húsafelli verður hagað
eftir veðurútlitinu, því að verði
það gott, verður ferðinni flýtt
upp á Kaldadal og gengið þaðan
á Ok. Er það hæg ganga á fjór-
um tímum fram og aftur. En
sú gönguferð verður aðeins farin
að von sé um gott útsýni. Af
Kaldadal verður haldið suður á
Pingvelli og staðið þar við, ef
ekki verður úr Ok-göngunni og
síðan til Reykjavíkur um kvöldið.
Farmiðar fást í Bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar tii kl. 7 á
föstudagskvöld.
Rauðhólar.
Fjölbreytt skemtun verður í
Rauðhólum á sunnudaginn kem-
ur. Mikið verður vandað til
skemtiskrárinnar.
Lincolnshire.
. Undanfama daga hefir verið
unnið að því að ná upp björg-
unartækjum, sem sukku ásamt
Lincolnshire um daginn utan
við Skarfaklett. Hefir Þórður
Stefánsson kafari hjá Slippn-
um unnið að björguninni. Þrjár
dælur hafa náðst upp og er ver-
ið að reyna að ná prammanum.
Nýjar kvöldvökur.
Janúar-marz heftið 1935 er ný-
komið út. Flytur það fróðlegar
ritgerðir, smásögur, kvæði og
framhaldssögu. Efni: Helgi Val-
týsson: I Austfjarðaþokunni.
Bókmentir eftir Benjamín
Kristjánsson. Dóri, kvæði eftir
Jóhann Frímann. Westerman:
Æfintýri úr Ishafinu. Jónas
Rafnar: Pompeji. Einar S. Frí-
mann: Ég gekk hjá glugga þín-
um. Steindór Steindórsson frá
Hlöðum: Nytjajurtir. O. Henry:
Gjafir vitringanna. Skrítlur o.
fl. — Ritstjóri og útgefandi er
Þorsteinn M. Jónsson á Akur-
eyri. Útsölumaður í Reykjavík
er Þórhallur Bjarnason prent-
ari.
mm Ntja biö
Flóttmn
frá byltingunni
Mikilfengleg amerísk tal-
og tónmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Nancy Cafroll og
Douglas Fairbanks
(yngri).
Aukamynd:
Konungur riddaranna.
Spennandi tal- og tón-cow-
boy mynd. Aðalhlutverkið
leikur Cowboyhetjan
John Wayne.
Börn fá ekki aðgang.
Jarðarför konunnar minnar elskulegrar og móður okkar,
Steinunnar Bjarnarson
fer fram laugardaginn, 27. júlí, frá dómkirkjunni, og hefst með
húskveðju að heimili okkar Bragagötu 31, kl. 1 e. h.
Jón Bjarnarson frá Sauðafelli og synir.
TrfejaM^BejkJatftv
fer skemtiferð austur að Sogsfossum sunnudaginn 28. júlí kl. 9 árd.
Farið verður í hinum þekktu Steindórsbílum. Staðnæmst við nýja
Geysi á austurleið og í Þrastalundi á heimleið.
Farmiðar fást hjá Zimsen, Brynju og Birni & Marinó
og kosta 7 krónur báðar leiðir.
Lagt verður af stað frá bifreiðastöð Steindórs.
Harmonikusnillingur verður með í förinni.
Félagar f jölmennið og skoðið landið.
SKEMTINEFNDIN.
Nokkrar dósir af niðursoðnu
nautákjöti í 1 kgr. og y2 kgr. dósum og
kjötkáli í 1 kgr. dósum
seljast næstu daga fyrir mikið lækað verð.
Smásala í útsölum vorum:
Matardeildinni, Hafnarstræti 5, sími 1211,
Matarbúðinni, Laugaveg 42, sími 3812.
Kjötbúðinni, Týsgötu 1, sími 4685,
Kjötbúð Sólvalla, Sólvallagötu 9, sími 4879 og 2303,
Kjötbúð Austurbæjar, Laugaveg 82, sími 1947.
Góðar og óskemdar vörur! Reynið þetta tækifæri.
Siátnrtélag Soðarlaeds.
Vegna náttúruíegurðar við Hreðavatn aukast mjög mikið ferð-
ir þangað. Milli Reykjavíkur og Akureyrar er skemtilegasti
áningastaðurinn við Hreðavatn. I veitingaskálanum fást aUar
algengar veitingar fljótt og vel afgreiddar. — Símstöð er þar
og bensínsala.
Hljómsveit spilar í skálanum á sunnudögum.
Að Hreðavatni fæst fæði með sanngjörnu verði og tjaldstæði
ókeypis. — Þeir, sem vilja njóta sumarfríamia á fegurstu
stöðum landsins, kunna tæplega betur við sig annarsstaðar en
að Hreðavatni. Og ekki sízt ættu þeir að dvelja að Hreðavatni,
sem ferðast vilja í bílum, á hestum eða fótgangandi um hið
fagra Borgarf jarðarhérað. — Skemtiferð með Laxfoss á Iaug-
ardag til Borgarness og tU baka aftur á sunnudagskvöld er
ódýr og ágæt.