Alþýðublaðið - 11.08.1935, Side 1
I»að er hagkvæmt
að gera kaupin í
KAUPFÉLAGI
REYKJAVlKUR.
RI fSTJÖRI: F. R. VALDEMARSSON
fJTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XVI. ARGANGUR
SUNNUDAGINN 11. AGÚST 1935
205. TÖLUBLAÐ
ALÞYÐUBLAÐIÐ
kemur næst út
á þriðjudag.
Árangur k|ötsölulaganna:
Bændur hala fenglð 12\—25°|0
meira fyrir kjðtið en áðnr.
Álagning milliliða hefir verið lækkuð um 5—15°|(l
Eftlr Ingimar Jónsson skólastjóra.
EGAR landsmálafundirnir
voru nýafstaðnir í sumar,
var Ölafur Tbors látinn skrifa
nokkur orð í Morgunbl. í pví
skyni að hugga hreldar íhaldssál-
jr hér í bænum, sem höfðu feng-
ið óþægilegar fréttir utan úr
sveitunum.
Huggunarorð flokksforingians
höfðu þó ekki tilætluð áhrif. Það
fer ekki leynt, jafnvel meðal í-
haldsmanna, að framkoma sumra
fioringja þeirra hér í Reykjavík
og helztu flokksblaðanna hefir
mælst mjög illa fyrir úti í sveit-
um. Meira að segja þeir bændur,
sem áður töldust til flokksins,
fara að hugsa sig um, þegar þeih
heyra undirtektir „foringjanna“ í
Reykjavik undir mál, sem bein-
línis snerta lífsafkomu sveita-
fólksins, eins og afurðasölumálin,
sem mikið hafa verið rædd í blöð-
um og útvarpi síðastliðið ár.
Til þess að reyna að leyna
flóttanum, þegar orð foiingjans
dugðu ekki til þess að tala kjark
i liðið, hefir nú Sigurður Krist-
jánsson verið fenginn til þess að
skrifa hverja langlokuna eftir
aðra í Morgunbl. Lýsir hann þar
af mikilli mælsku aumingjaskap
andstæðinganna og yfirburðum
sínum á þeim fundum, sem hann
mætti á. Líklega verður nú blaðið
ekki sent á þá staði, þar sem
hann var. Það væri óþarflega
mikil áhætta. Greinarnar eru ætl-
aðar trúarveikum íhaldssálum í
Reykjavík.
Ég mætti á fimm fundum í
vor, öllumi í sveit. En ég var svo
heppinn, verð ég víst að segja, að
Þýzk-íslenzk orða-
bðk kom úí í gær.
í gær kom á bókamarkaðinn
hér í bænum bók, sem mikil þörf
hefir verið á og Lengi hefir verið
beðið með eftirvæntingu af öll-
um mentamönnum hér á landi.
Það er „Þýzk-íslenzk orðabók"
eftir Jón Ófeigsson yfirkennara
við Mentaskólann.
Höfundurinn hefir árum saman
unnið ’að þessu verki með þeim
áhuga og þeirri samvizkusemi sér-
fræðingsins, sem svo margir hafa
átt kost á að kynnast hjá honum,
þótt ekki liafi verið nema í
kenslutímum í skólanmn, sem
hann hefir unnið við í meira en
aldarfjórðung.
Orðabókin er mikiö rit, um 1100
blaðsíður í stóru broti, og frá-
gangur á henni, fljótt á litið að
minsta kosti, hinn bezti. Hún er
gefin út af Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og kostar 25 kr. í
shirtingsbandi og 29 kr. í skinn*
bandi. Alþýðubl. mun áður langt
líður mihnast nánar á það þýð-
ingarmikla verk, sem hér þefir
verið af hendi leyst fyrir íslenzka
menningu og íslenzkar fræðiiðk-
anir.
vera aldrei með þeim ægilega
manni Sigurði Kristjánssyni, enda
varð ég ekki fyrir þeirri herfi-
legu meðferð, sem Sigurður segist
hafa látið fulltrúa Alþýðuflokks-
ins fá, þar sem hann var. Þó
voru nú fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins á þessum fundum all-
vel frambærilegir menn, sýndist
mér, frá þeirra sjónarmiði, Magn-
ús Jónsson á einum, Magnús Guð-
mundsson á öðrum, sjálfur for-
inginn, Ólafur Thors, á tveimur,
og Garðar Þorsteihsson ásamt Ól-
afi á einum. Á tveimur þessum
fundum var vitað, að þeirra
flokksmenn myndu vera flestir
fyrir fundina, en jafnvel þar fanst
glögt að fylgismenn þeirra ósk-
uðu þess, að þeir befðu betri
málstað.
• Það má vel vera, að Sigurður
sé þessum mönnum miklu snjall-
ari að verja óheillastefnu íhalds-
ins. Um það getur hann átt við
pá. Hann sýnir þá vonandi „fram-
tak einstaklingsins" í því, að
ryðja þeim til hliðar og setjast
sjálfur í foringjastólinn.
Ánnars var það ekki grobb og
sjálfhælni' Sigurðar, sem kom mér
til að stinga niður penna, heldur
þvaður hans um kjötsölulögin og
framkvæmd þeirra og þann ár-
angur, sem þar hefir náðst. Þar
þykist ég vita betur en hann, eða
þá að hann fer illa með það, sem
hann kann að vita.
♦
Skýrsla kjötverðlags-
nefndar.
Nú vill svo vel til, að kjötverð-
lagsnefndin hefir sent skýrslu um
þetta til útvarpsins og blaðanna.
Er þar hlutlaust skýrt frá öllum
staðreyndum um alt þetta mál.
Allir nefndarmenn hafa skrifað
undir skýrsluna athugasemda-
laust, einnig sá, sem telst til
Sjálfstæðisflokksins. Verður nú
fróðlegt að sjá, hvort Mgbl. birtir
skýrslu þessa, og hvað blaðið seg-
ir svo, þegar „bannsettar stað-
reyndirnar“ tala sínu máli þvert
ofan í allar þær fáránlegu full-
yrðingar, sem það hefir áður
flutt.
Skýrslan var birt í Alþýðublað-
ihu í gær.
Sigurður slær fram nokkrum
fyllyrðingum um árangur kjöt-
sölulaganna í Morgunbl. 3. þ.
m. Eru þær yfirleitt hinar sömu
og íhaldsblöðin og kommúnist-
ar hafa verið að staglast á í
heilt ár. Má því svara öllum í
einu.
Þetta eru helztu fullyrðing-
arnar:
1. Að kjötneyzlan í landinu
hafi minkað.
2. Að verðið til neytenda
hafi hækkað.
3. Að nettóverð til bænda
hafi lækkað.
Neyzlan innanlands.
Engar skýrslur eru til um
það, hversu mikið kjöt hefir
! verið selt í landinu undanfarin
! ár. Nokkuð má þó ráða af líkum
um það, hvort salan hefir auk-
ist eða minkað.
Á síðustu 8—9 árum hefir
sauðfé í landinu f jölgað um rúmf
100 þúsund. Af því leiðir að
kjötframleiðslan hefir aukist
mjög ört. Móts við þá f jártölu,
sem talin er fram í fardögum,
kemur til slátrunar á haustin
frá 60 til 80 af hundraði. Á fá-
um árum hefir því sláturfé
fjölgað um 60 til 80 þúsund. Á
sama tíma hefir útflutningur
minkað. Útflutningur saltkjöts
hefir minkað úr nærri 21 þús.
tn. árið 1929 niður í 9 þús. tn.,
og útflutningur á frosnu kjöti
til Englands var takmarkaður
nokkuð með samningunum
1933. Hvað hefir orðið um mun-
inn og svo alla viðbótina af auk-
inni f ramleiðslu ? Það er alt seit
í landinu sjálfu.
Það þarf annaðhvort drjúgan
skerf af ósvífni eða ódæma fá-
fræði, nema hvorttveggja sé, til
þess að slá því fram, að neyzl-
an innanlands hafi minkað, þeg-
ar tölurnar tala svona skýrt um
hið gagnstæða. Enginn er hissa,
þótt kommarnir slái þessu fram.
Það er nú einu sinni þeirra
(Frh. á 4. síðu.)
IÐJA, félag verkafóiks í
verksmiðjum hefir, með
stuðningi Alþýðusambands Is-
lands, unnið undanfarið mikið
að skipulagsmálum. sínum.
Telur félagið nú um 100 með-
limi og hefir meðlimum þess
fjölgað mjög mikið síðustu
daga.
1 gær voru undirritaðir samn-
ingar milli Iðju annars vegar og
þriggja smjörlíkisgerðanna í(bæn-
um.
Starfsfólk í smjörlíkisgerðum
hefir aldrei haft neinn samning
fyr um kaup sitt og kjör.
Með stuðningi Alþýðusam-
bandsins hefir Iðja eflst mjög upp
á síðkastið, og mun hún þó eflast
enn meir í nánustu framtíð, því
að takmark hennar er að skipu-
leggja innan sinna vébanda alt
verkafólk, sem vinnur að iðnaði
hér í bænum.
Aðalatriði samninganna fara
hér á eftir:
Hámark almenns vinnutíma í
verksmiðjum og vinnustöðvum
skal vera 8 tímar á dag, 48
stunda vinnuvika, eða frá kl. 8
árd. til kl. 5 síðd., þar af skal
einn tími vera til matar og dregst
frá vinnutíma, en 30 minútur
skulu á tímabili þessu látnar til
kaffidrykkju án frádráttar.
Lágmarkskaup í almennri dag-
Jarðarfðr Tryggva
Þórhallssonar fór
fram i gœr.
Jarðarför Tryggva Þórhallssion-
ar fór fram í gær að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Húskveðjan hófst að heimili
hins látna, Laufási, kl. U/2- Ás-
mundur Guðmundsson prófessor
flutti hana.
Nokkrir af nánustu vinum
Tryggva sál. báru kistuna út frá
heimili hans.
Numið var staðar við hús Bún-
aðarfélagsins, og flutti Metúsalem
Stefánssion fyrverandi búnaðar-
málastjóri þar kveðjuorð af hálfu
bænda og Búnaðarfélagsins.
Kistan var borin frá Laufási í
þrem áföngum að dyrum dóm-
kirkjunnar.
Báru bændur víðs vegar að af
landinu og stjórnendur og starfs-
menn Búnaðarfélagsins hana
fyrsta áfangann.
Inn í dómkirkjuna báru hana
stjórnendur og starfsmenn Bún-
aðarbankans og Kreppulánasjóðs.
Bjarni Jónsson dómkirkjuprest-
ur flutti líkræðuna.
Úr kirkju báru kistuna prestar
í prestsskrúða, þá tóku við al-
þingismenn og báru hana inn í
forsal Alþingishússins.
Þar flutti Jón Baldvinsson for-
seti sameinaðs þings kveðju AI-
þiugis, en Þorsteinn Briem flutti
kveðju Bændaflokksins. Bænda-
flokksmenn búru kistuna úr þing-
húsinu.
Greftrun fór fram í kirkjugarð-
ihum ‘ við Suðurgötu, og báru
bændur kistuna í þremur áföng-
um að gröfinni.
vinnu skal vera: Fyrir karlmenn
xr. 330,00 á mánuði. Fyrir konur
kr. 180,00 á mánuði'. Eftir-, næt-
ur- og helgidaga-vinnu skal forð-
ast af fremsta rnegni, en sé hún
unnin, telst effirvinna frá kl. 5
síðd. til kl. 8 síðd. og skal greidd
með: Fyrir karlmenn kr. 2,00 fyr-
ir klst. Fyrir konur kr. 1,00 fyrir
klst. Næturvinna telst frá kl. 8
síðd. til kl. 8 árdegis og skal
greidd með: Fyrir karlmenn kr.
2.50 fyrir klst. Fyrir konur kr.
1.50 fyrir klst. Helgidagavinna
greiðist með sama kaupi og næt-
urv-inna. Starfsfólk það, er kann
að hafa hærri laun en samning-
ur þessi inniheldur, haldi þeim.
Fagmenn (þeir, sem beinlínis
vinna að tilbúningi smjörlíkis,
strokka o. s. frv.) skulu hafa lág-
markslaun kr. 350,00 fyrir karl-
menn og kr. 250,00 fyrir konur.
Hlunnindi: I. Alt starfsfólk,
sem um ræðir í samningi þessum,
skal fá sumarleyfi sem hér segir:
Þeir, sem unnið hafa 6 mánuði
og lengur, 12 virka daga. Þeir,
sem unnið hafa 3—6 mánuði, 6
virka daga. Þeir, sem unnið hafa
3 mánuði, 3 virka daga. II. Smjör-
líkisgerðirnar gera innkaup á
sloppum handa starfsfólkinu og
skuldbinda sig til að selja þá á-
lagningarlaust lægsta heildsölu-
(Frh. á 4. síðu.)
Fjrrstu Siiinningar nm kaup og kjðr
verbalölks i smjðrlíkisgerðsnnm.
FélagÍO IOJa eflist nú daglega.
Laval lætur undan!
Lannalækhanirnac* teknar aftnr og
herinn kallaðnr af óeirðasvœðinn.
Vinna var tekfn npp aftnr f Brest og Tool-
on I gær.
EINKASKEYTI TIL ALÞÝÐUBL.
KAUPMANNAHÖFN f gærkveldi.
T\J YKOMIN símskeyti
1 ^ frá London segja, að
samkomulag hafi náðst í
dag milli Lavals og full-
trúa allsherjarsambands
frönsku verkalýðsfélag-
anna. Alt hefir verið með
kyrrum kjörum á Frakk-
landi í dag, og er því tal-
ið líklegt, að óeirðunum
sé lokið í bili.
Samkomulag Lavals og
verkalýðsfélaganna, er á þá leið
að vinna skuli aftur tekin upp
á skipasmíðastöðvum flotans í
Brest og Toulon og á farþega-
og flutningaskipunum í öðrum
hafnarbæjum Frakklands gegn
því, að stjórnin veiti öllum
starfsmönnum ríkisins, launa-
uppbót, sem ekki aðeins vegur
upp á móti þeirri 3% launa- |
lækkun, sem síðast var ákveðin,
heldur felur í sér raunverulega
launahækkun — og ennfremur,
að hún kalli alt herhð tafarlaust
burt úr hafnarhverfum þeirra
bæja, þar sem barist hefir verið.
Jafnframt lofaði Laval, að
launakjör sjómanna og hafnar-
verkamanna skyldu yfirleitt
tekin til endurskoðunar og bætt
frá því sem nú er.
Herinn kaOaður burt.
Friður í Brest og Toulon.
Samkvæmt þessu samkomú-
lagi hafa verkalýðsfélögin í dag
ákveðið, að vinna skuli alstaðar
tekin upp aftur og hafa verka-
menn allir sem einn maður fylgt
þeirri ákvörðun. Jafnframt hef-
ir herinn þegar alstaðar verið
kallaður burt úr hafnarhverf-
unum.
í Brest og Toulon hefir alt
farið fram með friði og spekt í
dag.
STAMPEN.
Thor Solberg leggur af stað
en verður að snúa við vegna pokn.
*T1 HOR SOLBERG, norski flug-
maöurinn, sem dvalið hefir
hér undanfarna daga, flaug héð-
an í gær kl. 41/2 og ætlaði til
Hornafjarðar.
Á Höfn í Hornafirð
hann að bíða tækifæris
þaðan i einum áfanga til Bergen
í Noregi.
Tók hann hér áður en hann
lagði af stað benzín, sem hefði
nægt hionum alla leiðina til Ber-
gen.
Solberg flaug suður með land-
inu, en hrepti mikla þoku er hann
kiom á móts við Vestmannaeyjar
og sá sér ekki fært að halda
lengra.
Var hann þá búinn að vera í
lofti rúma klukkustund.
Kom hann hingað aftur kl. um
7 og lagði flugvélinni inn í Sund.
Var hann þar enn seint í gær-
THOR SOLBERG.
kveldi, svo að Alþýðublaðið gat *
ekki náð tali af honum.
Verkfall í atvinnubóta-
vinnn í New Yorb.
NEW YORK, 10- ágúst. (FB.)
ERKFALL er hafið við
ýmiskonar verklegar fram-
kvæmdir, sem stjórnarvöldin í
New York hafa hrundið í fram-
kvæmd, vegna óánægju meðal
þeirra, sem vinnunnar njóta.
Þátttakan í verkfallinu er vax-
andi, þótt ríkisstjórnin hafi til-
kynt, að menn geti valið um það
tvent, að „svelta eða vinna“. Eins
og stendur taka 2000 menn þátt
í verkfallinu, en 15 000 aðrir hafa
lýst yfir því, að þeir sé reiðu-
búnir til þess að leggja niður
vinnu á mánudag, ef stjórnar-
völdin taki ekki tillit til frarn-
bominna krafa verkamanna.
Alls vinna við framkvæmdir
þær, sem hér er um að ræða, um
100 000 manns. (United Press.)
Lðgskipaðar elli-
tryfjglngap I
Bandapik|anam.
OSLÓ, 10. ágúst. FB.
Öldungadeild þjóðþings Banda-
ríkjanna hefir samþykt laga-
frumvarp um skyldu-ellitrygg-
ingar.
Frumvarpið er framkomið til
þess að bæta hag gamalmenna,
mæðra og barna, og yfirleitt til
öryggis velferð almennings.