Alþýðublaðið - 08.09.1935, Qupperneq 1
ALÞÝÐTJBLAÐIÐ
KEMUR
EKKI ÚT
Á MORGUN
RirSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
XVI. ÁRGANGUR.
SUNNUDAGINN 8. SEPT. 1935.
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
228. TÖLUBLAÐ
Kornnppskeran á Islandl í ár
verðnr 50—60 tonn al hðfrnm og byggl.
Kon hefir veríð ræktai ð 200 stöðam víðs vegar & landinn.
Kornpæktim getur valdið byltingu i Isienzkiim
iandbúnaði á næstn áruna og sparaö stórfé9
sem ná fer út ' ár landinn til
kornvðmkaupa.
CÍÐAN kornrækt iag^ist niður hér á landi fyrir
^ 5—600' árum, hefir almenningur haldið fram á
allra síðustu ár, að á íslandi séu engin skilyrði fyrir
kornrækt.
En á þessu ári er þój svo komið, að korn er rækt-
að á um 200 stöðum víðsvegar um landið, og upp-
skeran verður eftir því, sem næst verður komist, um
5—600 tunnur eða 50—60 tonn af höfrum og hyggi.
Og á næsta ári getur svo farið, að uppskeran verði svo
miklu meiri, að það verði vandamál, hvað gera eigi við
kornið, ef menn gera sér það ekki ljóst, að íslenzkt
korn getur fullkomlega komið í staðinn fyrir erlent,
og sparað okkur mikinn
hluta af þeim 3 miljónum ' ' *
króna, sem nú fara út úr
landinu til kornvöru-
kaupa.
Þetta er árangurinn áf-
tólf ára tilraunastarfsemi
élns manns, Klemenzar
KristjánssGiiar ái Sáms-
stöðum í Fljótshlíð.
Klemenz Kristjánsson, sem er
ættaður norðan úr Jökulfjörð-
um við ísafjarðardjúp, byrjaði
tilraunir sínar í Aldamótagarð-
inum í Reykjavík árið 1923,
þegar hann kom heim, eftir
margra ára búfræðinám í Dan-
mörku og Noregi.
Þær tilraunir rak hann í 4 ár,
meðan hann var aðstoðarmaður
í Gróðrarstöðinni í Reykjavík,
KLEMENZ KRISTJÁNSSON.
&LÞYÐDBLAÐIÐ
Neðanmálsgreinin í dag:
AKRARNIR Á
en árið 1927 fluttist hann að
Sámsstöðum í Fijótshlíð, sem
Búnaðarfélag Islands hafði þá
tekið á leigu til þess að láta
hann halda þar áfram tilraun-
unum.
Á Sámssföðum hefir Klemenz
komið upp fullkominni tilrauna-
stöð fyrir kornrækt, túnrækt og
frærækt og er hún eign Búnað-
arfélagsins, sem hefir styrkt
Klemenz mjög drengilega, enda
er hann í þjónustu félagsins.
Tilraunirnar á Sámsstöðum
liafa frá upphafi verið reknar
með svo vísindalegu sniði, und-
ir stjórn Klemenzar, að það er
til stór sóma, bæði honum og
Búnaðarfélaginu, og þess vegna
eru þær niðurstöður, sem feng-
ist hafa fullkomlega áreiðan-
legar og hægt að byggja á þeim.
SÁMSSTÖÐUM.
Kornrækt getur borið
jafngóðan árangur
á íslandi og víða í Noregi
og Svíþjóð.
Tilraunirnar hafa í stuttu
máli sagt, sýnt, að hægt er að
rækta korn á íslandi með jafn-
góðum árangri og. all-víða í
Noregi og Svíþjóð. Kornið nær
hér jafn miklum þroska afrakst-
ur sáðlandsins er eins mikill
eða meiri og gæði kornsins fylli-
lega jafn mikil.
Ennfremur hafa tilraunirnar
sýnt, að íslenzkt korn er fylli-
lega samkeppnisfært við erlent
korn, með því verði, sem verið
hefir á því, þannig, að sé ís-
lenzkt korn selt hér sama verði
og erlent korn ómalað í heild-
sölu, þá fær framleiðandinn
meira en framleiðsluverð svo að
(Frh. á 4. siðu.)
RAGNAR E. KVARAN.
Ragnar E. Kvaran skrifar neð-
pnmálsgrein í Alþýðubliaðið' í t»a;g
um síðustu bók Þórbergs Þórð-
arsomar, „Rauða hættan“, sem
kom á bókamarka'ðinn fyrir rúm-
um hálfum mánuði. Ragnar E.
Kvaran viðurkennir ritsnilli höf-
undaiins, en álasaí honum fyrir
það, að hann hafi ekki litið aug-
um gagnrýnandans á þá merki-
legu og lærdómsríiku þróun, sem
fram er að fara austur á Sovét-
Rússlandi, heldur séð hana gegn
um „rómantískia glýju“, sem svifti
bókina því gildi, sem hún annars
hefðil getað fengið.
Verkanusnœabfistaðir á Siginfirði.
Eltt stórhýsl nielt 8 IbúOnm.
Húsið er bygt eftir teikningu
húsameistara ríkisins, en Guð-
mundur Jóakimsson bygginga-
meistari hefir bygt það fyrir
37 000 krónur. En hann innréttar
það ekki.
Stærð hússins er 34 sinnum 8
metrar og ier tvílyft með kjall-
ara.
Það er mjög vel til bústað-
anna vandað, og verður nú hald-
ið áfram með innréttingu o. s.
frv.
Stjórn Byggiugarfélags verka-
manna skipa nú: Jóhann F. Guð-
mundsson, Kristján Dýrfjörð og
Amþór Jóhannsson Fréttaritari.
ElNKASKEYTl TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
SIGLUFIRÐI í gærkveldi.
C1 YRSTU verkamannabústaðirn-
ir hér á Siglufirði eru nú
fullreistir og 'eru reisugjöld höfð
í kvöld, og sækja þau um 70
manns.
Verkamiannabústaðirnir eru eitt
stórhýsi, mesta og glæsilegasta
stórhýsið hér. Eru, í því 8 íbúðir
og er hver íbúð þrjár stofar,
eldhús og bað, en í kjallara húss-
ins er geymsla og snyrtiherbergi,
en auk þess eru þvottahús og
þurkhús sameiginleg fyrir hverjar
fjórar fjölskyldur.
Mnssolini á udanhaldi i Abessiiindeiinnni.
^armm i ■■■-■ ■-■■■! ——
Frakkland og Sovét-Rússland fylgja Englandi.
Sendir Þjóðabandalagið alpjöðaiögregla !il Abessinío?
EINKASKEYTl TIL '
ALÞÝÐU BLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gærkveldi.
FULLTKtARMIÍ á ráðs-
fundi Þjóðabandalagsins í
Genf gera sér nú góðar vonir
um það, að þeim muni takast
að koma í veg fyrir ófrið milli
Italíu og Abessiníu. Stefna Eng-
lands virðist vera að sigra.
Frakkland hefir ekki þorað ann-
að en að fylgja henni í þessu
máli til þess, að tapa ekki stuðn-
ingi Englands í Evrópu á móti
Þýzkalandi. Og Sovét-Rússland
styður hana einnig, því að það
vill ógjarnan að ítalia, sem er
í bandaiagi við Frakkland, bindi
hendur sínar í langvarandi
styrjöld utan Evrópu, og geri
Nazistastjórninni þýzku á þann
hátt léttara fyrir um að fram-
kvæma landvinningastefnu sína
í Mið- og Austur-Evrópu. Það
var af þessum ástæðum, að
Laval og Litvinoff beittu öllum
sínum áhrifum á ítölsku full-
trúana í Genf til þess að fá þá
til að fallast á skipun fimm
ríkja nefndarinnar og fara sam-
komuiagsleiðina.
Mussolini virðist nú loksins
vera farinn að átta sig á því,
að hann verði að sætta sig við
eitthvað töluvert mikið minna
heldur en yfirráðin yfir allri
Abessiníu. Því að hann hefir nú,
eftir að fimm ríkja nefndin var
skipuð í Genf, gefið út opinbera
yfirlýsingu þess efnis, að hann
muni ekki hefja ófrið meðan á
sáttatilraununum stendur, og
að það sé yfirleitt engan veginn
óhugsandi, að friðsamleg lausn
fáist á málinu, ef ítalía fái
vefhdarrétt yfir nokkrum hluta
Abessiníu og þær ívilnanir um
atvinnurekstur og verzlun þar
í landi, sem hún þarfnast og eigi
heimtingu á.
Þetta eru töluvert mýkri tón-
ar, en heimurinn hefir átt að
Síidartorfur út
af Skagastrond
og Siglufirði.
EINKASKEYTl TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
IMOKGUN þóttust fiskunenn
frá Skagaströnd hafa séð
síld vaða þar framundan. Er
betur var að gáð voru þarna
miklar síldartorfur.
Línuveiðarinn Bjarki er hér
var staddur, er þessar fréttir
bárust hingað, fór þegar vestúr,
eh hann er enn ekki kominn.
Fréttir hafa borist um það
hingað, að norskur línuveiðari,
sem var hér fyrir utan síðdeg-
is 1 dag hafi séð stórar síldar-
breiður hér út af og hafi hann
kastað netadræsum og fengið
20 tonn. En þessi fregn er ó-
staðfest.
FRÉTTARITARI.
ANTHONY EDEN
venjast úr munni Mussolinis
undanfarna mánuði. Og jafnvel
þótt engin ástæða sé að ætla, að
Mussolini hafi óneyddur gefið
út þessa yfirlýsingu, þá gefur
hún þó góðar vonir um það, að
ófriðarhættan sé að líða hjá í
bili.
Hið breytta viðhorf má einnig
sjá á því, að Laval og Eden hafa
álitið sér óhætt að hvíla sig
örlítið frá hinum stöðugu
fundahöldum í Genf. Laval
hefir skroppið til Parísar, og
Eden ætlar upp í f jöll til þess
að vera þar um helgina.
STAMPEN.
Frönsku blöðin ánægð yfir
úttitinu í Genf.
LONDON 7. sept. F.Ú.
Frönsku blöðin láta í ljósi
mikla ánægju yfir því í dag,
hvernig málin horfa við í Genf.
Eitt stjórnarblaðið telur það
vott um vaxandi samvinnu milli
Englands og Frakklands, og
minnir Italíu á það, með nokkr-
um varnaðarorðum, að allir aðr-
ir meðlimir jpjóðabandalags-
ráðsins séu einhuga um það, að
ná friðsamlegri lausn deilimnar.
ítalía ætti að gera sér það Ijóst,
segir þetta blað, að Þjóðabanda-
lagið er býsna vel lifandi — og
meira að segja betur lifandi en
nokkru sinni áður. Allar aðrar
þjóðir, sem teljast til Þjóða-
bandalagsins, hafi ákveðið að
vernda alþjóðalög, hvað sem
það kostar.
Franska blaðið L’Oeuvre seg-
ir, að Þjóðabandalagið sé ákveð-
ið í því, að framfylgja banda-
lagssáttmálanum, og að spurs-
málslahst muni ákvæðum hans
verða fullnægt, ef ófriði sé lýst
yfir af einhverri þjóð.
Alþjóðalögregla i Abessiniu?
GENF, 7. sept.
Nýja fimm manna nefndin.
sem heíir Abiessiniudeilumálin til
meðferðar, hefir rætt ýmsar til-
lögur, sem verða von bráðara
lagðar fyrir báða deiluaðila, It-
ali og Abessiníumenn, til athug-
unar.
Meðal þess, sem stungið hefir
verið upp á, er það, að tekið
verði fyrir að nýju hversu haga
skuli sérleyfum í Abessinfu til
hagnýtingar náttúruauðæfa þar í
landi, en þegar þetta er símað
hefir ekki verið gerð nánari grein
fyrir því, hversu nefndin hngsar
sér framkvæmdir í þessum efn-
um, en fullvíst er, að þessil mál
eru til athugunar í nefndimni.
Enn fremur ræðir hún um
hvaða ráðstafanir sé nauðsynlegt
að gera til aukins öryggis ný-
lendna Itala í Austur-Afríku og
loks, að stofnað verði alþjóða-
lögreglulið, til þess að halda uppi
fiiði og reglu í Abessiniu, aðal-
lega á landamæruntim. Gert er
ráð fyrir, að af hverjum 100
inönnum x liði þessu verði 60 ít-
alskir.
Opinberar " tilkynningar hafa
enn ekki verið gefnar út um störf
nefndarinnar, enda eru þau öll
á byrjunarstigi enn.
(United Pness. — FB.)
Fáfinn hefir verið bæn-
heyrður!
LONDON 7. sept. F.Ú.
Páfinn hefir í dag opinberlega
látið í ljós álit sitt á þessum
málum. Hann sagði, að svo
Frh. á 4. síðu.
Norski bœndadokknrlnii
vilf áframhaldandi sam-
vlnnn vlð Alþýðuflokkinn.
Nokkur síldveiði
hefir verið í reknet í Hrísey
undanfarið, en fer heldur þverr-
andi.
OSLO í gærkveldi. (FB.)
MIÐSTJÓRN bændaflokks-
ins í Noregi hefir sam-
þykkt ályktun, þar sem m. a.
er svo að orði komist, að mið-
stjórnin sé algerlega sammála
þeirri stefnu, sem þingflokkur
bændaflokksins hafi fylgt. Enn-
fremur ,að þegar fyrverandi
ríkisstjórn hefði snúist á móti
mikilvægum atriðum, sem
bændaflokkurinn taldi nauðsyn-
iegt að hefðist fram, svo að
hægt væri að vinna gegn
kreppunni svo að gagni kæmi,
hefði ekki getað verið um aðra
stefnu að ræða fyrir þingmenn
bændafiokksins, en raun varð á.
I ályktuninni er rætt um nauð-
synina á að hjálpa atvinnuveg-
unum og leggja grundvöll að heil-
brigðri þjóðlífsþróun, og þing-
menn flokksins muni framvegis
sem hingað til halda fast frarn
kröfum um öflugar varnir til
verndar frelsi þjóðarinnar út á við.
Hér eftir sem hingað til verð-
ur bændaflokkurinn, segir í til-
kynningunini, að halda fast á rétti
hænda og bera fram skoðanir
þeirra einarðlega og án afslátt-
,ar, í öllum mikilvægum málum,
sem þjóðina varða, stjórnarskrá
hennar, trúmál, nnenningar- og fé-
lags-mál.