Alþýðublaðið - 14.05.1936, Síða 2

Alþýðublaðið - 14.05.1936, Síða 2
FIMTUDAGINN 14. MAI 1936. ALÞYÐUBLAÐIÐ Garðrækt og blómrækt. Garðyrbjustðrfin V. V. Vieðráttan er ieinn þá hálf-rosa- leg og votviðrið bagar mjög garð- ræktinni, því víða er illmögulegt að vinna jörðina. Víðast hvar er klaki þó fíarinn það úr jörðu, að mestu leyíi, en þó mun enn þá grunt á hainn í nýræktarlöndun- um. Matjurtagarðurinn. Þeir, sem ekki eru bánir að endurgróðursetja káljurtasæðl- inga sína, annað hvort í sömu kassana aftur, eða úti í sólar- reit, þyrftu að gera það áður en langt um líðuðr, standi þeir of þétt. Annars er hætt við að þeir verði of langir og renglulegir. Kálgarðana má stinga upp úr þessu, en þá þarf einnig lað sá t. cU gul- rófum strax á eftir. Ef langt líð- ur á milli uppstungu og sán- ingar er hætt við að illgresið nái undireins yfirtökum. Gulrófum er víða farið að sá og mun líklega óhætt úr þessu. Fræinu fer sáð í raðir, grunt (ca. 2 cm.J og 2' til 4 kórn í hverja holu. Þegar fræið spíiar er svo grisjað. Kartöflugarðarnir munu óvíða vera notkunarhæf- ir. Moldin er alls staðar mjög blaut 'Og köld, og fyr en moldin er 4—5 stiga heit þýðir ekkert að setja kartöflurnar niður. Þeir, sem keypt hafa nýtt ó- spírað útsæði ættu því að nota tímann og láta það spíra. tjtsájðiskartöflurnar munu allvíðia orðnar mjög spír- aðar, og við því er ekki neitt að gera. Ráðlegt þykir að hreyfa þær kartöflur eitthvað, láta þær vera í birtunni -og á svölum geymslustöðum. Sumir hafa þann sið að brjóta sirurnar af, og segir gamalt fólk, að slíkt megi gera einu sinni, en ekki tvisvar. Ef kartöflurnar eru mjög spíraðar getur maður gripið til þessa ó- yndisúrræðis, en engum skal ráð- lagt það. Ekki er óhugsanlegt að bétra væri að koma slíku „renglu- útsæði“ í jörðina, þá myndi vöxtur þess stöðvast í bili, en byrja aftur undir eins og hlýnaði. Rabarbarahnausarnir, sem keyptir hafa verið eða sem af einhverjum ástæðum eru enn þá ógróðursetlir, ætti að reyna að setja niður hið fyrsta. Þeir, sem eiga enn ólreypta hnausa þyrftu að gera það nú. Afbrigðið Linnæus er sérstakl. gott. Hreðkum, péturselju, spínati, salati, gulrófuin, næpum o. m. fl. má sá nú á bersvæði. Afrbrigðið Z'nnæus er sérstak- lega gott. Skrúðjurtagarðurinn. Lagning nýira garða er nú í fullum gangi. Því miður virðist ■vera áburðarekla mikil, bæði af húsdýraáburði Og tilbúnum á- Leiðbeiningar eftir Öskar B. Vilhjálnísson. burði. Húsdýraáburður, sérstak- lega hrossatað, er ófáanlegt nema með 'Okurverði. Þökur er einnig Þall erfitt að fá góðar og við gott verð. Þess vegna ættu allir garðeig- endur að tryggja sér slíkt í tíma — helzt snemma á haustin það sem nota þarf að vori. I gömlum görðum er víða búið að laga til alt og undirbúa, enda fer nú bráðum gróðursetning í hönd. Trjáplöntur eru nú á boðstól- um. Bezt er að gróðursetja þær undir eins og þær eru keyptar. Gróðursetningm fer fram á þessa leið: Fyrst er grafin holan — stór og rýmileg. Síðan er mynduð moldarkeila á holubotninum og trénu (runnanum) haldið í hol- unni, þannig, að ræturnar breiðist sem bezt út. Bezt er að tveir menn gróðursetji — annar beldur þá plöntunni, en hinn mokar á. Þegar holan >er hálffull er þjapp- að að og síðan er holan fylt með vatni, ef moldin er ekki því blaut- ari. Þegar vatnið er sigið, má láta mykju eða tað í kringum plöntuna og síðan mold ofan á. Að setja áburð undir plöinturnar kemur að litlu gagni. Að gróðursetningunni lokinni á tréð (runnurinn) að standa beint og ekki standa of djúpt, en þó þaninig, að rætur allar séu þaktar með mold. Standi plantan iof djúpt, má kippa henni dálítið upp, áður en holan er fylt alveg. Oft eru trén gróðursett í sér- stakar rennur, það er fljótlegast, ef um mörg tré er að ræða og oft frambúðarbetri frágangurinn. Laukabeðin ætti að þrifa úr þiessu, en gætilega, svo að engar jurtir eyðileggist. Innijurtirnar. Flestar innijurtir þurfa nú öll lífsskilyrði — vatn, næringu, loft og Ijós í fullu máli. Áburðarvatn öðu hvoru sakar ekki hinar gróskumeiri og kröft- ugu innijuríir, en það má að eins vera þunt (1 :12 eða 1 :15). Nú — 14 maí — þegar flytja þarf víða, getur verið að inni- jurtunum „líki það miður“, ef svo mætti að orði komast. Þær þurfa nefnilega alveg eins og við að venjast nýju húsakynnunum, og það kemur oft afturkippur í inn:' jurtirnar við smöggan flutning og þar af leiðandi snöggar breyt- ingar á lífsskilyrðum. Veð þessu er lítið hægt að géra, og ná flest- ar jurtirnar sér fljótt aftur eftir viðbrigðin. IJm ýmsar nytjajurtir. Salat er gömul nytjajurt, sem nú er ræktuð alls staðar þar, sem hit- inin er ekki of mikill, því mjög mikinm hita þolir salat ekki. Ef salat á að verða notkunar- hæft snemma hér á landi, verður að sá til þess í april i reit og gróðursetja jurtina á tersvæði undineims og hægt er. Salat sáb á hersvæði í mai verður þó einn- ig hæfilega þroskað, en ekki fyr en seint á sumri. Fræinu ier sáð í ráðir eða dreif- sáð, Gróðursetning á bersvæði um miðjan júní eða fyr, ef tíðin leyf- ir, mieð 15x20 sm. millibili. Af- brigðið Maikönig er sérstaklega gott. Þetta gildir um höfuðsalat. Blaðsalat er einnig allmikið not- að, en er grófara. Því er sáð á bersvæði. Saliatblöðin eru borðuð hrá með sykri og rjóma. Spínat er eins og salatið einær nytja- jiurt, sem þrífst hér ágætlega. Því er sáð á bersvæði með svo sem viku millibili. Bezt er að dreifsá. Blöðin, sem eru borðuð soðin, eru notkunarfær 6—8 vik- ur eftir sáninguna. Afbrigðin Die Gaudry og Bloomsdale eru góð. Erta einær klifurjurt, skift í þrjá að- alflokkia: sykurertur, húðertur og mergertur, sem allar lánast hér sæmilega, sérstaklega þó sykur- erturnar. Erturnar þurfa góða, mæringar- efnaríkia, dálítið sendna mold. Þær eru ekki áburðarfrekar. Þær þarfnast góðs skjóls, og þar sem það vantar er bezt að rækta að- eins lágvaxin afbrigði. Sykur- og húðertum er sáð snemma í maí. Mergertum' fyrst um eða eftir miðjan mai. Bezt er að sá í raðir með 25—30 sm. millibili ef sáð er í beð. Há- vöxnum ertum er sáð í raðir með 30 sm. millibili, 3—4 sm. í röð- inini, og með. 50—60 sm. milli- bili milli hverra raðpara. Ekki má sá mjög djúpt, um 3—4 sm. er hæfilegt. Þegar sáðjurtirnar >eru orðnar 15 sm. háar, er hreykt upp að þeim moldinini, þannig að ert- urnar standi upp úr miðjum hryggjunum. Hávöxnu afbrigðin þurfa stuðn- ing, t. d. gamalt hrís. Sykurertubelgirnir eru borðað- ir áður en erturnar (fræin) eru farniaí að þroskast. Belgir af húð- og sykurertum ekki fyr en ert- urnar eru orðnar nærri þroskaðar. Islenzkar skrúðjurtir — Eitt af því, sem ekki má vanta í neinn skrúðjurtagarð, eru ís- lenzkar skrúðjurtir. Af þeim er til fjöldinn allur, og munu nokkrar hinar helztu verða nefndar hér í blaðinu smátt og smátt efiir því siem rúmið leyfir. Það er mest gaman að hafa sem flestar tegundir blómjurta í skrúð'görðunum, og það er því mjög líklegt að íslenzku jurtirn- ar geti tekið drjúgan þátt í að gera garðana fjölskrúðugri — sér- staklega þar sem imnflutningur er- lendra jurtia er nú allerfiður. Jurtunum má safna þar sem þær vaxa, en þess ber að gæta að skemma ekki eða eyðileggja meir en nauðsynlegt er. Með lægni og umhugsun má fara þannig að, að engin sjáist merkin. Aronsvöndur (Erysimum hieracifol.), hávaxin, tilkomumikil jurt með guluim blómum í júl|. Sáir sér sjálfur. Baldursbrá (Matrioazic inodora), fögur og blómsæl jurt, sem hafa má í beði með fjölærum jurtum, eða eina Wýlar leiðir; Sildarm|ðl til áburðar. Eftir Gunnar Björnsson. A ÞEIM TÍMUM, sem við- skiftalíf þjóðanna mætir meiri og fleiri örðugleikum leit- ast þær, hver um sig, við að fullnægja sjálfri sér sem mest. — Höfum við íslendingar hvarflað að nokkru til þessa ráðs, þó enn megi meir gera. Eins og kunnugt er hefir á undanförnum árum verið flutt- ur inn erlendur áburður, er nemur um hálfri miljón króna á ári, og með aukinni ræktun mun áburðarþörf landsins stór- c^ukast. Þó í ráði sé að koma upp áburðarverksmiðju mun þó ekki úr vegi að benda á aðra leið, er stórum gæti tekið hönd- um saman við slíka framleiðslu, og einmitt að nokkru leyti bætt skort hennar, sérstaklega hvað snertir lífræn efni. Á ég hér við síldarmjöl til áburðar. Til þessa tíma hefir síldar- mjöl lítið verið notað til áburð- ar, en flestir þeir, er það hafa reynt Ijúka miklu lofsorði á gildi þess. Tilraunir hafa verið sér í stóð. Verður aiiðveldl'egia ill- gresi. Biákolla (Brunella vulgaris), steinhæöajurt, með blómuin. fyrirtaks bláleitum Blálilja (Mertensia maritima), einkennileg strandajurt, með bláleitum blæ og bláum blómum. Þrífst vel i steinhæðum á sendinni jörð. Um þessar og fleiri jurtir gefur Flóra Islands Stef. Stefánssonar ágætar upplýsingar. Um áburð. Til þess að auka næringarefni mioldarinnar, berum við áburð í hania. Moldim er mjög misjafnlega áburðarfnek, alt eftir eðli. Leir- og melamiold t. d. er mjög áburð- arfrek. Á Inýræktarlöind er bezt að notia húsdýraáburð miestmegnis tlil að byrja með. Með kartöflu- ræk’un fyrir augum eru 3—5 hlöss af húsdýraáburði á 100 fermetra hæfilegt. Anmað árið má notia 2 hlöss húsdýraáburð og 5—6 kg. af nitrophoska á 100 fermetia, og seinina má notast við tilbúinn á- burð leingöngu, t. d. 7—8 kg. af nitrophoska á 100 fermetria. Víða er siður að gefa húsdýraáburð þriðja hvert ár og tilbúinn áburð hin árin. Þessar tölur gilda að meðaltiali fyrir kartöflur og róf- ur, fyrir káljurtir þarf helmingi meira áburðarmagn. Af öðrum áburðartegundum má niefrna 'slor og fiskúrgang, sem er góður áburður, ef látinm er í for til gerjunar áður en motiaður | er. Þang er nothæft i kálgarða, ien ekki borgar sig að flytja það langan veg. Alifuglaáburður er sterkur og góður með öðru. Sal- Srnaáburður er ágætur, en erfið- ur að fá og oft óþrifalegur viður- eignar. Á ræktað land er oft handhæg- ast að nota tilbúinn áburð, og er þá nitrophoska einna bezt. Einhlítur áburður spillir venju- lega gæðum uppskierunnar. Óskar B. Vilhjálmsson. gerðar á Akureyri og Sámstöð- um 1933 og 1934 og sýna þær ótvírætt að síldarmjöl er góð- ur áburður. En með þáverandi verði á síldarmjöli reyndist það þó ekki geta keppt við útlenda áburðinn. Erindi þessarar greinar er að sýna fram á, að auðvelt sé að framleiða síldar- mjöl til áburðar svo ódýrt, að hverjum bónda ætti að vera kleift að afla sér þess. Á hverju sumri berst á tím- um svo mikið að af síld, að verksmiðjurnar anna ekki að taka á móti. Jafnvel í slíku síld- arleysisári sem í fyrrasumar kom þetta fyrir. Á þetta sér einkum stað áður en söltun al- ment hefst og allur flotinn er farinn til veiða, verður ekki með tölum talið tjón það, sem hlýst af þessu. Allir sjómenn þekkja það, að þeir koma stundum með skip sitt drekkhlaðið og geta ekki fengið að losa. — Verða þeir oft dögum saman að liggja þannig við bryggjur á meðan nógur afli er úti fyrir, og er von að vöskum drengjum sárni að vera sviftir þannig afla- möguleikum. Stundum fer svo, að þegar loksins er hægt að taka á móti, er síldin, sem leg- ið hefir í skipinu saltlaus, orðin svo skemd að varla er hægt að fá úr henni góða markaðsvöru og dæmi eru til þess, að skip hafa orðið að moka afla sín- um fyrir borð. Verksmiðjurnar geta ekki tekið á móti meiri síld, því að bæði er að mjöl það, sem fram- leitt er til erlends markaðar, má ekki vera nema örlítið salt og hafa kröfur erlendra kaup- enda vaxið hvað þetta snertir á síðustu árum, og eins hitt, að mjöl það, sem ætlað er til inn- anlandssölu, til fóðurs, má held- ur ekki hafa mikið seltumagn. — Af þessu leiðir að verksmiðj- urnar geta ekki, ef þær eiga að fá góða markaðsvöru, haft síld liggjandi í gryfjum nema stuttan tíma, en skilyrðið fyrir því að síldin geti geymst nokk- uð að ráði er það, að hún sé söltuð vel. Nú mætti undir slíkum kring- umstæðum og með það fyrir augum að framleiða síldarmjöl til áburðar, taka á móti síld í gryf jur og salta nægilega. Væri til slíks heppilegastar yfirbygð- ar gryfjur og þannig útbúnar, að síldin gæti haldist að mestu þur. Þegar nú framleiðslu til inn- anlands og erlends markaðar væri lokið yrði horfið að því að vinna upp síld þessa til áburð- ar. Þótt mjölið verði salt skað- ar þáð ekki mjölið sem áburð að neinu ráði. — Eins kemur það oft fyrir að veiði er mis- jöfn, svo verksmiðjurnar yfir reksturstímann eru á köflum síldarlausar. Er þá lítið sem ekkert að gera og mannahald og kostnaður næstum sá sami, nema hvað snertir kolaeyðslu og eftirvinnu. — Væri þegar svo stendur á mjög hægt að grípa til áburðarframleíðslu og geta þannig að fullu notað af- köst verksmiðjanna. Frá sjónarmiði verksmiðj- anna yrði engin aukinn kostn- aður annar er stækkun gryfj- anna, og þær fengju hér betra tækifæri til að nota fullkomlega orku sína. Það er beinlínis skylda verksmiðjanna að geta tekið á móti sem mestu, þegar söltun ekki er byrjuð og ekk- ert hægt að gera annað við veiðina. Þær myndu þannig full- nægja betur kröfum sjómanna en áður. Á þennan hátt væri hægt að lengja að nokkru rekst- urstíma þeirra og með því yrði hlutfallslegur kostnaður þeirra yfir reksturstímann lægri og þær hæfari til samkeppni á markaðinum. Má gera ráð fyrir þegar tekið er tillit til lýsis þess er úr síldinni myndi fást, sem nú á tímum er mikils virði, væri hægt að framleiða áburð, sem fullkomlega gæti keppt við þann erlenda,’og hverjum bónda fært að afla hans. Það virðist einnig sanngjarnt, að ríkið styrkti þessa fram- leiðslu, sérstaklega með kaup á hráefnum. Þar sem þetta væri tilraun þyrfti í fyrstunni þessi framleiðsla ekki að taka þátt í föstum kostnaði verksmiðjanna, heldur aðeins þeirri vinnu og hráefnum er til þurfa. Væri þá hægt fyrir verksmiðjurnar að framleiða síldarmjöl til áburðar fyrir mjög lágt verð. Frá hálfu sjómanna myndi það verða vel þegið að geta alt af verið nokkurn veginn vissir um að mega strax leggja upp afla sinn. Oft vill það líka verða svo, að skip, sem ekki fá hleðslu í fyrsta kasti, hverfa ekki til hafnar, sökum þess, að þau vita að lengi verður að bíða eftir losun. þau freistast því til að fylla sig áður en þau halda til lands í röðina sem bíður, og oft er afleiðingin sú, að þegar þau á endanum leggja upp aflann, Frh. á 4. síðu. Aðvorun til bænda. Þar sem gera má ráð fyrir að innflutningur á erlendu kúafóðri verði ekki leyfður framvegis, er athygli bænda hér með vakin á því, að þeir þurfa að afla sér innlends fóðurs á þessu sumri, handa þeim nautgripum, sem þeir ætla að setja á næsta haust. Gjaldeyris- og innflBtDiDgs-nefnd. »:♦:♦»:♦»»:♦»»»»:♦:♦:♦»»:♦»:♦»»»»»»:♦»»»:♦:♦>:

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.