Alþýðublaðið - 19.05.1936, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGINN 19. MAl 1936
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Og enn er manninum
frá Melgavatnl svarað.
ALÞÍÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMARSSON
RITSTJÖRN:
Alþýð'uhúsinu.
(Inngangur frá Ingólfsstræti).
AFGREIÐSLA:
Alþýðuhúsinu.
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SIMAR:
4900—4906.
4900: Afgreiosla, auglýsingar.
4901: Ritstjóm (innlendar fréttir)
4902: Ritstjóri.
4903: Vilhj. S. Vilhjálmss. (heima)
4904: F. R. Valdemarsson (heima)
4905: Ritstjóm.
4906: AfgreiSsla.
STEINDÓRSPRENT H.F.
Tveir foriDgjar.
STJÖRN síldarverksmiðj-
anna er nú fullskipuð, og
trygt að innan hennar verður
góð samvinna og fullkominn
starfsfriður á komandi síldar-
vertíð. Næsta þing mun svo taka
þessi mál til meðferðar, og verð-
ur þar úr því skorið hvort
stjórnin skuli skipuð þremur
eða fleiri mönnum framvegis.
Eitt af fyrstu verkum hinnar
nýskipuðu verksmiðjustjórnar,
verður að ákveða verð bræðslu-
síldar og er vissa fyrir því að
það verð mun verða hærra en
í fyrra.
I sambandi við þeta mál, hef-
ir Sjálfstæðisflokkurinn eða
öllu heldur Ólafur Thors, hinn
svo kallaði formaður hans, enn
á ný gert sig beran að frámuna-
legu ábyrgðarleysi og glópsku.
Formaður flokksins bannar
liðsmönnum sínum, að taka þátt
í því merkilega starfi að
tryggja frið og góða samvinnu
um síldarverksmiðjur ríkisins,
sem eru stærstu atvinnufyrir-
tæki landsins, og þau sem mestu
varða, eins og sakir standa, fyr-
ir alla þá, sem að sjávarútveg
vinna.
Til hvers munu kjósendur
Sjálfstæðisflokksins við sjávar-
síðuna fremur ætlast af liðs-
mönnum sínum en þess, að
þeir vinni eftir beztu getu að
því að síldarverksmiðjur ríkis-
ins séu sem bezt reknar?
En Kvöldúlfur á sínar verk-
smiðjur á Hesteyri. Ef til vill
er það þess vegna, að Ölafur
Thors hefir engan áhuga fyrir
því að flokksmenn hans vinni að
friðsarnlegu samstarfi um síld-
arverksmiðjur ríkisins.
Kjósendur Sjálfstæðisflokks-
ins ætlast líka til þess, að leið-
togar þeirra taki þátt í störfum
utanrikismálanefndar. Þeir ætl-
ast til þess að þeir leggi þar
fram sín ráð, og fylgist með
því hvað andstæðingar þeirra
gera.
Ólafur Thors kallaði sína
flokksmenn burt úr þessari
nefnd, hann þóttist ekki geta
unnið þar með Jónasi Jónssyni.
En Ólafur Thors hefir kosið
sér sæti við hlið Jónasar Jóns-
souar á öðrum bekk. Það er í
bankaráði Landsbankans.
Ugglaust ætlast kjósendur
Sjálfstæðisflokksins til þess, að
flokkurinn eigi fulltrúa í banka-
ráðinu, en ekki fremur en í ut-
anríkismálanefnd eða í stjórn
síldarverksmiðjanna.
En Ólafur Thors er skuldug-
asti maðurinn við skuldugasta
fyrirtæki landsins.
Voru það ef til vill hagsmun-
ir skuldugasta mannsins við
skuldugasta fyrirtækið, sem
gerðu Ólafi Thors kleift af
setjast á bekk með Jónasi Jóns-
syni í bankaráði; sömuleiðis er
Jónas í bankaráði og utanríkis-
málanefnd, sem er krafa kjós-
endanna um að flokkur þeirra
eigi fulltrúa á báð.um þessum
stöðum.
Valtýr Stefánsson heldur
áfram sinni fyrri iðju í Morg-
unblaðinu. Þykist hann nú góð-
ur með rökin og dregur upp úr
pússi sínum 6 ára gamla slef-
sögu úr Verklýðsblaðinu, og
birtir mynd, lánaða hjá sama
blaði og væntanlega með góðu
leyfi og fullu samþykki eigenda
blaðsins. Sýnir þessi „samfylk-
ing“ Valtýs við nefnda menn,
,,að náið er nef augum“, og
prýðilega fallið, að Brynjólfur
og félagar hans smíði skarn-
prikin, en lofi svo Valtý að
berja með þeim.
Ég svaraði þessari slefsögu
Verklýðsblaðsins á sínum tíma
í blaði, sem ég ásamt fleiri
áhugasömum ungum jafnaðar-
mönnum gaf út, blaðinu Kyndli,
og vísa ég hér með til þeirrar
greinar, þeim, sem kynnu að
hafa áhuga fyrir slíkum málum.
En alveg sérstaklega vil ég
benda félögum mínum í verka-
mannafélögunum á það tímanna
tákn, að þegar íhaldsblað eins
og Morgunblaðið er í andarslitr-
unum í pólitískri rógsherferð
gegn saklausum manni, þá er
það málgagn kommúnistanna,
er reynir eftir beztu getu að láta
rógberunum í té lífsnæringu,
og gengur jafnvel svo langt, að
það lánar myndamót, til að
spara Morgunbl. fé við sína
þokkalegu iðju. Ég leyfi mér að
spyrja: Er þetta það, sem koma
skal. Er það með þessum að-
ferðum, sem á að reyna að kúga
alþýðuflokksmenn undir herra-
dæmi ,samfylkingarmannanna‘?
Nú hefst þáttur Ölafs Thors.
Af einhverjum undarlegum
ástæðum virðist þennan mann
langa til að knésetja mig. Hann
hefir tvisvar sinnum innan
þinghelginnar látið sér sæma að
lítilsvirða mig persónulega, vit-
andi það, að mér var ekki unt
að ná til hans með málssókn
fyrir ummæli, sem hann við-
hafði á þeim stað. Ungur sjálf-
stæðismaður, sem er í félaginu
Ileimdalli, sagði mér, að fyrir
nokkrum dögum síðan hefði
hann verið á sameiginlegri sam-
komu sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, og hefði Ólafur þar
getið mín í ræðu undir borðum,
á þann hátt, að sér og fleiri
sjálfstæðismönnum hefði hrosið
hugur við að foringi þeirra
skyldi leyfa sér að höggva í
bert höfuð fjarstadds manns
með auðvirðilegum dylgjum.
En, sagði þessi maður, það er
ekki hægt að ætlast til þess að
við sjálfstæðismenn séum það
óvitrari rottunum, að við yfir-
gefum ekki skipið áður en það
sekkur. Því ef það er ætlun
Ó. Th. að bæta hag þjóðarinn-
ar með því að taka danskan
vinnukraft að Korpúlfsstöðum,
en láta okkur labba iðjulausa á
götunum, og halda okkur svo
uppi á snakki um símanjósnir
og önnur álíka þýðingarlítil mál,
fyrir lífsafkomu okkar, þá
heldur hann okkur alt annað
fólk en við erum í raun og veru.
Þannig fórust honum orð, þess-
um unga sjálfstæðismanni, og
það eru vafalaust margir fleiri,
sem hugsa þessu líkt.
Ég þarf í raun og veru ekki
að eyða mörgum orðum við Val-
tý Stefánsson. Maðurinn er svo
Jónas Jónsson skuli í verk-
smiðjumálunum hafa komið
fram af álíka miklu óviti eins
og Ólafur Thors, en hitt gleði-
efni að hinir gætnari menn
Framsóknarflokksins, láta hjal
hans sem vind um eyru þjóta,
og þeir hafa völdin í flokknum.
vel kunnur í sínum eigin flokki,
að það væri aðeins til þess fallið
að angra flokksmenn hans, ef
einhver yrði til þess að rif ja það
upp, að þessi maður er til. Þó
mun hann vera. einstakt fyrir-
brigði í íslenzkum stjórnmálum,
hvað kjark snertir. Hann er
slæmur ræðumaður, klaufi sem
stílisti, og er þess vegna lítið
lesinn og fær oftast slæmt hljóð
á fundum sjálfstæðismanna. Til
þess að bæta úr þessu, var hann
á tímabili búinn að hóa saman
nokkrum hóp af börnum frá 6
—14 ára aldri. Þetta félag
nefndi hann „Félag sjálfstæðra
drengja." I þessum félagsskap
hafði hann enga keppinauta að
glíma við, og á þessum barna-
samkomum gat hann útausið
sínu marg-þjáða hjarta .með illu
umtali um pólitíska andstæð-
inga, þar sem enginn keppinaut-
ur var og enginn til andsvara,
og þar gat hann fyrirskipað
lófaklapp eftir því sem andinn
innblés honum og hans særða
hégómagirnd hafði alt af farið
á mis við í opinberu lífi. Þar
gat hann látið samþykkja, að
Morgunblaðið væri bezta blað
landsins og hann sjálfur mikill
og voldugur ritstjóri. En nú
upp á síðkastið hefir ekkert
heyrst frá þessu félagi og mun
ástæðan vera sú, að þeir sem
börnin áttu, hafi aftekið það
með öllu, að láta V. St. annast
pólitískt uppeldi þeirra.
Andatrúarmenn segja, að
dauðir menn, einkum þeir, sem
hafa haft sterkan hug á jarð-
neskum gæðum, eigi erfitt með
að átta sig á nýrri tilveru og
skilji lengi vel ekki, að skift
hafi um hagi þeirra. Mér finst
V. St. líkt farið eins og þess-
um mönnum. Hann furðar sig
á því, að ég skuli lögsækja hann
fyrir árásir hans í Mgbl. Hann
er orðinn svo vanur því, að vera
einn til frásagna um pólitíska
andstæðinga, að hann gætir sín
ekki og er farinn að villast inní
Mgbl. með uppeldisaðferðir sín-
ar, og er jafnvel orðinn svo
kjarkaður, að hann skrifar und-
ir nafni. En ógæfa hans ríður
ekki við einteyming; flokks-
bræður hans taka börn sín af
honum, þegar þeim ofbýður
heimska hans og frekja, og ég
stefni honum. Það er hlálegt,
hvað allir eru á móti þessum
manni.
Guðm. Pétursson.
Krönuvelta
„Hringsins“
i Hafnarfirði.
Frú Sigurveig Steingrímsdóttir:
Fi’ú Katrínu Hallgrímsd., Hverfisg.
Frú Sveinlaugu Halldórsd.
Frk. Huldu Ingvarsd.
Árni Mathiesen, verzlunarstj.:
Ámunda Eyjólfsson, bílstj. Harmars-
braut 12.
Ingimund Guðmundsson, bílstj. Aust-
urg. 19.
Þorgils G. Einarsson, forstj.:
Gunnlaug Guðmundsson, tollg.m.
Hauk Jónsson, húsasm.m.
Tryggva Stefánsson, húsasm.m.
Frú Anna Jónsdóttir, Merkurg.:
Frú Ingileifu Sigurðard., Merkurg. 2.
Frú Maríu Jónsd., Skúlaskeið 6.
Frú Þóru Magnúsd., Garðaveg 2.
Jón Gíslason, framkv.stj.:
Kristján Kristjánsson, skipstj., Sól-
vallag. 13, Rvík.
Geir Sigurðsson, skipstj. Vesturgötu
26 A, Rvík.
Steindór Ámason, skipstj., Öldugötu
53. Rvík.
Jens Davíðsson:
Jónas Sveinsson, Dverg.
Guðm. Einarsson, framkv.stj. Dverg.
Sigurð Þorateinsson, bilstj.
Elín Sæmundsdóttir:
Frú Marsilínu Nielsen, Tjamargötu
10 B, Rvík.
Frú Þórdís Bridle, Bárug. 8, Rvík.
Frk. Gíslínu Sæmundsd., Gunnarss.
Ásthildur Pálsdóttir:
Elinu Hallgrímsd., Kirkjuveg 15.
Björney Hallgrímsd., Mjósundi 3.
Guðrúnu Hindriksd., Áusturg. 26.
Kristín Kristjánsdóttir:
Frú Marínu Jónsd., Merkurg.
Frú Ragnhildur Egilsd., Merkurg.
Frú Margréti Sigurgeirsd., Lækjarg.
Guðfinna Jónsdóttir:
Guðrúnu Gunnarsd., Hverfisg. 35.
Lárus Vigfússon, Skúlaskeiði 4.
Jón Jónsson, Vesturbraut 8.
Jóh. Þorsteinsson:
Óskar L. Steinsson, öldug. 18.
Vilhjálm Björnsson, Njálsg. 10. Rvík.
Friðrik Bjamason, Hverfisg. 52.
Jóhann Ól. Jónsson:
Stefán Jónsson, c.o. Vélsmiðja Hf.
Víglund Guðmundsson, c.o. Vélsm.Hf.
Guðmund Jónsson, c.o. Vélsm. Hf.
María Jónsdóttir:
Frk. Margréti Jónsd., Skúlaskeiði 6.
Frk. Þorbjörgu Guðnad., Hellisg.
Frk. Unnur Erlendsd., Hverfisg. 17.
Sóiveig Björnsdóttir:
Frú Sólveig Gunnlaugsd., Suðurg. 25.
Frk. Ingibjörg H. Stefánsd., Suður-
götu 25.
Frk. Eygerður Björnsd., Merkurg. 4.
Sólveig- Asgeirsdóttir:
Geirlaug Sigurðard., Brekkug. 22.
Pétur Snæland, Brekkug. 20.
Anton Viggó Björnss., Brekkug. 24.
Elísabet Egilson:
Frú Helga Jónasd., Hvoli.
Frú Sigurlaug Einarsdóttir.
Skúla Guðmundss. form. gjaldeyrisn.
Finnb. J. Arndal:
Ámi Sigurðsson, Hverfisg. 38.
Sigurjón Jóhannsson, Kirkjuv. 18.
Böðvar Grímss., Hörðuvöllum.
Ólafía Þorláksdóttir:
Frú Júlía Sigurjónsd., Hverfisg. 10.
Frú Sesselja Sigurjónsd., Hverfisg.10
Frú Dorothea Ólafsd., Austurg. 19.
Svava Ingvarsdóttir:
Ágústa Jóhannsd., Laugav. 130, Rvk.
Guðm. Halldórss., Laugav. 130, Rvk.
Helgi Guðmundss., vélstj. Hf.
Einar Long:
Hallgrímur Árnason, Jófríðarst.v. 8.
Guðmundur, Árnason, Hverfisg. 38.
Þóroddur Hreinsson, húsasm., Suð-
urg. 19.
Eygerður Bjömsdóttir:
Frk. Elín Davíðsson, Krosseyrarv.
Frk. Margrét Pétursd., Vörðust. 5.
Frk. Ólöf Eiríksd., Suðurg. 7.
Guðm. Guðmundsson:
Steinar Stefánsson, Mölnisv. 50. Rvk.
Jón Thordarson, framkv.stj. Sjó-
klæðagerð íslands.
Einar Sigurðsson, Sjóklæðag. Islands
Ragnhiidur Egllsdóttir:
Frú Hallgerður Torfad., Merkurv. 2,
Dagbjört Björnsdóttir:
Frú Matthildur Guðmundsd., Merk-
urveg 3.
Frk. Vilborg Björnsd., Austurg.
Frk. Hrefna Eggertsd., Selvogsg.
Friðrik Bjarnason:
Ingvar Gunnarsson, Hverfisg. 32.
Magnús Kjartansson, Lækjarg.
Bjarni Aðalbjarnars., Tjamarbr. 11.
Halldór M. Sigurgeirsson:
Baldvin Einarsson, fulltr., Hf.
Kristján Sigurðsson, stýrim., Hf.
Kristján Steingrímsson, bílstj. Hf.
María Guðnadóttir:
Gestur Gamalíelsson, trésmiður.
Frú Valgerður Guðnad., Austurg. 42.
Frú Elín Jóhannsd., Reykjav.v.
Áskorandi:
Soffía Mathiesen:
Skorar á:
Didó Þorvaldsd., Þórsmörk.
Hrafnhildur Halldórsd., Ásbyrgi.
Guðbjörg Benediktsd., Brekkug. 14.
Jón Mathiesen:
Júlíus Nikuláss., c.o. Jón Mathiesen.
Páll Guðjónsson, c.o. Jón Mathiesen.
Valberg Gíslason, c.o. Jón Mathiesen.
Gísli Sigurgeirsson:
Einar . Egilsson, Sjafnarg. 2, Rvík.
Guðjón Sigurðss., Pálshúsi, Garðahr.
Ari Þorgilsson:
Ólafur Gíslason, Áusturg. 21.
Eyjólfur Kristjánss.-, verzl.m., H.f.
Stefán Gunnlaugsson, Austurg. 25.
María Ólafsdóttir:
Frk. Ásdís Reykdal, Þórsbergi.
Ögm. Haukur Guðmundss., Austurg.
Frk. Helga Zoega, Tjarnarbraut.
Guðjón Gunnarsson:
Þórður B. Þórðarson, Reykjav.v. 6.
Jón ólafsson, Nönnug. 1.
Kristinn Guðmundsson, Kirkjuv. 12.
Anna Erlendsdóttir:
Margréti Halldórs., Hverfisg.
Helgu Halldórsd., Hverfisg.
Friðrik Halldórss., Hverfisg.
Ketill Gíslason:
Guðlaugu Gislad., Gunnarssundi 8.
Guðjón Benediktss., vélstj.,Gunnarss.
Sigurð Guðmundss.,kaupm., Hverfisg.
Guðrún Eiríksdóttir:
Margréti Ivarsd., Austurg. 26.
Jónhann Isleifss., Reykjav.v. 8.
Eirík Ketilsson, Vesturg. 2.
2|a tima slagsmál I Kefla-
vík mllii Iðgreglc|ijónslns
og drnkklnna manna.
Ráðist á stöðvarstjórann og honum hótað
öllu illu ef hann opnisímann til Reykjavíkur
Ijiiir verstn érðasess-
frnír vorn fiuttir til
Rejfkjaviknr oo settir i
gæzluvarðiiald.
ALAUGARDAGSKVÖLDH)
urðu einhver verstu slags-
mál í Keflavík, sem menn muna
þar. Æstir og drukknir menn
réðust á lögregluþjóninn Lárus
Salómonsson og börðu hann,
rifu af honum fötin, slitu kyif-
una af honmn og eltu hann
heim til hans og börðu hann
þar, eftir að hann hafði símað
til Reykjavíkur og kvatt lög-
regluþjóna þaðan til aðstoðar.
Alþýðublaðið hafði í gær-
kvöldi tal af Lárusi Salómons-
syni lögregluþjóni í Keflavík og
skýrði hann þannig frá þessari
viðureign:
„Á laugardagskvöldið hafði
ungmennadeild Slysavarnafé-
lags íslands skemtun í sam-
komuhúsinu, en það er gamalt
hús og stendur skamt frá Edin-
borg. Ég hafði staðið í flutning-
um í vikunni, því ég er að flytja
til Reykjavíkur og var auk þess
hálf lasinn svo að ég fór þess á
leit við forstöðumann skemtun-
arinnar að hún stæði ekki nema
til kl. iy2 og samþykti hann það
undir eins.
Ég kom á skemtunina kl.
10%. Skemtunin var mjög vel
sótt en mér duldist ekki að
nokkuð margir voru með víni
og þó ekki mjög áberandi á
neinum manni. Kl. 1% tiikynti
ég að skemtuninni ætti nú að
slíta og kom þá mikill kurr upp
meðal sumra og var því mót-
mælt. Ég skeytti því engu.
Þetta hafði verið ákveðið og
ég sagði spilaranum að hætta.
En þá ræðst einn maður á hann
og tókust þeir á. Gat spilarinn
ekki varið sig fyrir honum og
bað mig að koma sér til hjálpar.
Ég sá þá að Skúli nokkur Páls-
son var að lemja spilarann og
ætlaði að koma honum til að-
stoðar, en Skúli sneri þá móti
mér og flaug á mig og samtímis
stökk bróðir hans Ingólfur á
mig að aftan og byrjuðu nú ein
hin verstu slagsmál, sem ég hef
komist í. Þeir eltu mig um alt
húsið, rifu utan af mér fötin og
ætluðu að slíta af mér kylfuna
og ná í handjárnin til þess að
,,járna“ mig, eins og þeir sögðu.
Ýmsir aðrir hjálpuðu þeim og
átti ég mjög erfitt með að verja
hendur mínar af þeim sökum.
Eftir nokkurn tíma barst leik-
urinn út á götuna og héldu
slagsmálin þar áfram. Náðu
þeir bræður þar af mér húfunni
og tók einhver hana og henti
henni upp á þak. 1 þessari við-
ureign tókst mér að koma
höggi á Skúla og slapp við það
undan árásarmönnunum. —
Komst ég heim til mín, en ég
sá að ég var eltur. Undir eins
og ég kom heim hringdi ég á
stöðina og bað stöðvarstjórann
að ná sambandi fyrir mig suður
svo ég gæti kallað á hjálp það-
an. Árásarmennina mun hafa
grunað að ég mundi gera þetta
því að þeir mættu á stöðinni,
þrifu heyrnartólið af stöðvar-
stjóranum og hótuðu að berja
hann ef hann gæfi mér sam-
band, en um leið gaf stöðvar-
stjórinn mér beint samband og
náði ég í lögregluþjóna. Er ég
hafði lokið þessu gekk ég út og
voru þeir bræður þá þar fyrir
og réðust á mig. Tóku þátt í
þeirri árás tveir menn aðrir
Tjörvi Kristjánsson og Sigurð-
ur Kristinsson, en tveir menn
veittu mér hjálp, Valdimar Guð-
jóns og Guðm. Elísson. Þarna
tókust hinar hörðustu svifting-
ar og lömdu árásarmennirnir
Valdimar til óbóta svo hann
liggur í rúminu í dag. I þessari
viðureign tókst mér að koma
járnum á Skúla og sljákkaði
slagsmálunum mikið við það.
Lögregluþjónar fjórir að tölu
úr Reykjavík, komu litlu síðar
og tóku þeir þá Skúla, Ingólf,
Tjörva og Sigurð með sér og
settu í gæzluvarðhald. Var Sig-
urði slept úr varðhaldinu í gær-
kvöldi en hinir eru þar enn.“
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
var allan daginn í gær í réttar-
höldum út af þessu máli og
sagði hann við Alþýðublaðið í
gær að Lárus Salómonsson
hefði ekki gert annað en það,
sem honum bar og nauðsyn
krafði.
er þjóðfrægt fyrir gæði.
Rúllngardinur
beztar og ódýrastar.
HELGÍ SIGUIÍÐSSON,
Grettisgötu 21.
Sími 3930.
»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»>i<
»»»»»»»»»»>»»»»»»»»»»»»»»x«*»x<
í
1
V
$
V
V
$
V
V
Heilsan er fyrir öllu. |
$
Hafið þetta hugfast, og hitt, að heilsufræðmgar telja g
| MJÓLK, SKYR og OSTA með hollustu fæðutegundum, |
® sem völ er á. Þí
v
$
$
V
Notið því nú þegar
!♦, meiri M J ó L K — meira S K Y R — meiri O S T A $
4 5
C<>»l<4»»»»»»»»»»»»»»»»»»>»>»>»»i»