Helgarpósturinn - 09.06.1983, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 09.06.1983, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 9. júní 1983 Manuela Wiesler á ferð og flugi: tónleikar á ári í ýmsum þjóðlöndum Manuela: Mun leika mikið af Mozart á næstunni. sÝiiiiif|sirsnlir Listmunahúsiö: Á laugardag verður opnuð sýning á verkum eftir Gunnar Örn Gunnars- son. Hann sýnir m.a. acrylmyndir teikningar, vatnslitamyndir og dú- kristur. Opið kl. 14—18 um helgina, 10—18 á virkum dögum nema mánu- dögum, þá er lokaö. Ásmundarsalur: Samsýning feðganna Sigurbjörns Eldon Logasonar og Loga Eldon Sig- urbjörnssonar. Þeirsýnatæplega 100 málverk sem eru til sölu. Kjarvalsstaðir: Ljósmyndafólagið Hugmynd sýnir Ijósmyndir og Richard Valtingojer er meö grafíksýningu og er þetta síöasta sýningarhelgi. Opið kl. 14—22. Norræna húsiö: Yfirlitssýning á verkum Sven Havsteen Mikkelsen I kjallara. Síð- asta sýningarhelgi. í anddyri eru myndir eftir Karl Erik Ström og bóka- safnið er opið á laugardaginn milli 13—19 og 14—17 á sunnudaginn og á kaffistofunni er hægt að fá hressingu milli 9—19 laugardaginn og 12—19 á sunnudaginn. Mokka: Pétur Stefánsson sýnir oliumyndir á pappa. Opiö virka daga kl. 9.30—23. 30 og sunnudaga kl. 14-23-30. Listasafn Einars Jónssonar: Opiö miövikudaga og sunnudaga kl. 13.30—16. Stórfenglegar höggmynd- ir. Gallerí Langbrók: Langbrókarmunir til sýnis og sölu. Opið virka daga kl. 12-18. Safn Ásmundar Sveinssonar: Yfirlitssýning á höggmyndum meist- arans. Opið alla daga kl. 14-17. Lokað mánudaga. Ókeypis aðgangur. Bogasalur: Myndir úr íslandsleiðöngrum og fleira nýtt. Opið alla daga kl. 13.30-16. Sýningin stendur út ágúst. Listasafn ASÍ: Lokað f júní. Asgrímssafn: Búið aö opna. Opið daglega kl.- 13.30—18 nema mánudaga. Til ágústloka. Strætó 10 frá Hlemmi. Icikhns Félagsstofnun stúdenta: Jökull og við. Sýningar laugardag, sunnudag og mánudag kl. 20.30. Já, listatrimmið heldur áfram og enginn missir af. Allir út aö trimma. Þjóöieikhúsið: Laugardagur: Grasmaökur i síðasta sinn. Sunnudagur: Cavalleria Rusticana og Fröken Júlía. Tvær sýningar eftir. Leikfélag Reykjavíkur: Föstudagur: Guðrún eftir Þórunni Sigurðardóttur. Laugardagur: Skilnaður eftir Kjartan Ragnarsson. Sunnudagur: Úr Iffi ánamaðkanna eftir Enquist. Austurbæjarbíó: Laugardagur kl. 2330 Hasslð henn- ar mömmu eftir Dario Fo. Allra sfðustu sýnlngar á þessu leik- árl. Alþýöuleikhúsið: Neðanjaröarlestin eftir Imamu Amiri Baraki. Slðasta sýning i Félagsstofn- un stúdenta I kvöld kl. 21. (fimmtu- dag). Og nu mætum við ölll — Þessi vinna er mikil og hörð en ofsalega skemmtileg og gefur mér mikið, segir Manuela Wiesler sem komin er hingað til lands sem sólóleikari á áskriftartónleikum Tónlistarfélagsins n.k. mánudags- kvöld í Þjóðleikhúsinu en þar verða flutt verk eftir Leif Þórarinsson. Alls taka 12 hljóðfæraleikarar þátt í tónleikunum. Manuela hefur dvalið erlendis síðan í haust og haldið konserta víða um heim og tekið þátt í marg- breytilegri tónlistarstarfsemi. — Mörg verk Leifs sem þú flytur á tónleikunum eru samin sérstak- lega fyrir þig? — Já, það er mikil ábyrgð að leika verk sem samin eru sérstak- lega fyrir flytjandann. En það er einnig mikil gjöf og krefst þess að hljóðfæraleikarinn leggi sig allan fram. Við Leifur höfum unnið sam- an allt frá árinu 1975 er hann samdi dúó fyrir okkur Snorra Sigfús Birg- isson sem nefnist Per Voi. Við Leif- ur vinnum mjög vel saman, við höf- um mjög svipaðar hugmyndir um tónlist — og trúmál reyndar líka. — Hvað hefur á daga þína drifið í útlandinu? — Á tímabilinu 1. október 1982 til 1. október 1983 hef ég bókað 150 konserta. Af þeim hef ég nú þegar leikið um 130 konserta. Þetta eru tónleikar sem haldnir hafa verið víða um heim; í Bandaríkjunum, Austurríki og í Skandinavíu. Af þessum 150 konsertum eru aðeins tveir bókaðir á íslandi og þessi er annar þeirra. — Þú hefur sem sagt verið á ferð og flugi? — Já, það er víst óhætt að segja það! Éghefbúiðáhótelherbergjum frá því á jólum og ekki haft annað með mér en eina ferðatösku og flautuna mina. En það er mjög þroskandi að bjarga sér með lítið og kunna að skammta sér. Þessi tími hefur einnig verið mjög gefandi fyr- ir list mína. — Þú hefur einnig dvalið um tíma í Svíþjóð? — Jú, það er rétt. Ég var ráðin hjá tónlistarsamtökum ríkisins — Rikskonsertei' — og ferðaðist um Svíþjóð þvera og endilanga. Starf mitt fólst í að leika fyrir unglinga í skólum og kynna þeim tónlist. Það var mjög heillandi og skemmtileg vinna. Þetta eru unglingar á gelgju- skeiði, yfirfullir af vandamálum og vannærð tónlistarlega; eru músík- soltin án þess að vita það. Það er spennandi að vekja upp tónlistará- huga hjá ungu fólki sem aldrei hef- ur átt tækifæri til að kynnast henni. En slíkt starf krefst töluverðrar ein- beitni og það þarf að fara rétt að krökkunum. Því þau eru full for- dóma og tortryggni þegar maður kemur til þeirra með flautuna í hendinni. Ég er eins konar ljóna- temjari. — Þú réðst í að leika inn á fjórar plötur í haust? — Já, ég stóð að þessu alveg sjálf — og lék inn á fjórar breiðskífur. Ég hef ekki haft neinn umboðs- mann en séð um söluna sjálf. Hins vegar hef ég verið svo mikið erlend- is undanfarið að ég hef því miður ekki haft tíma til að selja hana sem skyldi. En vonandi stendur þetta allt til bóta. Ég komst reyndar niður á Torg að selja plöturnar um dag- inn. Það var voða skemmtilegt. — Og hvað er framundan? — Ég á enn um 33 konserta ó- spilaða til 1. október. Síðan mun ég ferðast aftur um Svíþjóð á vegum Rikskonserter í haust. Og síðan tekur við nýtt konsertár eftir 1. okt- óber, en í þetta sinn ætla ég að minnka við mig; tónleikarnir verða ekki fleiri en eitt hundrað á næsta tónleikaári. Ég mun leika mikið af Mozart á næstunni; hlakka óskap- Um þessar mundir heldur Gallerí Austurstræti 8 upp á 1 árs afmæli sitt. Gallerí Austurstræti 8? Jú, það er útstillingarglugginn við hliðina á Bókaverslun ísafoldar. Galieriið hefur í tilefni afmælisins gefið út plötu sem nefnist „Tvöfalt siðgæði" og eru lögin flutt af grúppu er heitir BIG NÓS BAND. Galleríð var opnað 5. júní 1982 og sagði einn aðstandenda þess, Halldór Bragason, að þar hefðu verið sýndar myndir jafnt og þétt. Tilgangurinn væri m.a. að auðga líf þeirrar götu sem meistari Kjarval dvaldi svo lengi við. Halldór sagði að aðstandendur Gallerísins viidu vekja athygli á lega mikið til þess! Og við sem fáum að njóta þess að hlusta á Manuelu, hlökkum einnig til að hlýða á flutning hennar. Hún verður bara betri og betri. — IM þeim orðum Mondreianis, að í framtíðinni væri myndlist óþörf eins og hún' væri iðkuð nú, vegna breyttra aðstæðna, þeas. myndlist verði hluti af tilverunni sem endur- speglist m.a. í arkitektúr og fleiri þáttum þjóðfélagsins. Þetta leiðir til breytinga á fegurðarskyni al- mennings. Nú stendur yfir sýning Pjeturs Stefánssonar í sýningarkassanum og ber hún yfirskriftina „Díter að drekka bóndabæ“. Þá má geta þess að plata Big Nós Bandsins er til- einkuð kosmískum vísindum lífs- ins og hljóðfæraleikarar og flytj- endur tugur manns,þar af flestir þekktir popparar. Dreifingu annast Grammið. SúNíunda ogNýja Húsið Það var svolítið merkilegt að heyra loks Þá Níundu í hljóm- leikasal á íslandi, eftir að hafa sungið í henni opinberlegá, lík- lega 9 sinnum og ugglaust 99 sinn- um á æfingum. Það þótti i mikið ráðist fyrir 17 árum, þegar Róbert A. Ottóson og Fílharmónía bjuggust til fyrstu átaka við þetta verk. Getum við þetta „fáir, fátækir, smáir“? hugsuðu sumir. „Þið vitið hvað til stendur: Níunda Beethoven", sagði Róbert á fyrstu æfingunni. Og menn drúptu höfði og fannst þeir vera að leggja upp í heilaga krossferð. Og aðsóknin var slík, að endurtaka þurfti verkið fjór- um sinnum og sjálfsagt oftar, hefði einn einsöngvarinn ekki orðið að fara til útlanda að syngja þar. Fyrrum bókmenntaprófessor minn fór i öll fimm skiptin. „Þetta er svo mikill skáldskapur“, sagði hann. Það er ekki lengdin, sem vex mönnum í augum við Níundu Sinfóníuna. Kórkaflinn er ekki nema um það bil stundarfjórð- ungur. En þetta var erfitt kortér. Beethoven var ekki vanur að auð- velda mönnum hlutina. Um að gera að hafa þetta nógu harðsvír- að og erfitt, því að menn vaxa af erfiðleikunum. Þeir hugsuðu.víst eitthvað í svipuðum dúr hann og Bjarni Thorarensen. Og menn sigruðust á erfiðleik- unum og uxu af þeim, svo að nú geta þeir sagt með nokkru yfir- læti: Var þetta allt og sumt? Hvað er annars svo merkilegt við þennan kórþátt, að hann hef- ur Ieyst ófáar milliríkjadeilur? Þrásinnis hefur það komið fyrir, þegar menn gátu ekki komið sér saman um, hvaða þjóðsöng skyldi leika við opnun alþjóðahátíða eða hvernig opnunarlagið mætti vera ættað, þá hafa þeir að lokum sæst á aðalstefið úr 4. þætti 9. sin- fóníu Beethovens. Þessi laglína er nauðaeinföld og af íslenskum textum passar hún langbest við „Bráðum koma blessuð jólin“. Kvæði Schillers „Til gleðinnar“ (eða „frelsisins" eins og það hét víst í frumgerð) er langt frá því að vera meðal bestu ljóða hans. En úr þessu tvennu spinnur Beethoven þetta óhemju- magnaða verk, sem er eitthvert skýrasta dæmi þess, að úrvinnsla efnisins er aðalatriðið, þótt frum- efnin verði að vísu að vera þokka- leg. Hér er ekki ástæða til að fjöl- yrða um þennan tiltekna flutning Níundu Sinfóníunnar. Svo er margt sinnið sem skinnið hvað varðar æskilegan hraða, áherslur o.s.frv. Það mun fremur verða í minnum haft, að í lok seinni flutnings hennar laugardaginn 4. júní 1983 voru stofnuð Samtök um Tónlistarhús. Þegar við „fáir, fátækir, smáir“ verðum búnir að láta reisa þetta hús eftir nokkur ár,þá munum við undrast, hvers vegna ekki var löngu búið að því. Og við munum segja eins og eftir flutning Ní- undu Beethovens: Var þetta allt og sumt? Þetta hús, sem hér um ræðir, kostar nefnilega ekki meira en einn togari. Togarar sýna yfirleitt bókhaidslegt rekstrartap. Samt eru þetta nauðsynleg atvinnu- tæki, sem m.a. skapa efnahags- legan grundvöll að menningarlífi. Þetta hús mun líka áreiðanlega sýna bókhaldslegt tap. Samt er það menningarleg nauðsyn á sama hátt og skóli eða sundhöll, sem allt verkar hvetjandi á efna- hagslífið, hversu undarlega sem það kann að hljóma. Það er stað- reynd, að stórhugur í menningar- málum eykur bjartsýni og dugnað í atvinnulífinu. Ein meginástæð- an fyrir stöðnun í efnahagslífi austantjaldsrikja er án efa höml- urnar, sem þar eru lagðar á skap- andi menningarviðleitni. Þótt mörg hús séu til, þar sem gerlegt er að spila margt gott, þá er ekkert hús til, sem beinlínis hef- ur átt að vera tónleikahús. Og enda þótt nokkurs flumbrugangs „Beethoven var ekki vanur að auðvelda mönnum hlutina“, seg- ir Árni Björnsson m.a. í umsögn sinni. og glámskyggni virðist gæta i þessum undirbúningsrokki, t.d. varðandi stærð hússins og rekstr- argrundvöll, þá er fagnaðarefni, að nokkur hundruð manns skuli leyfa sér í yfirvofandi kreppu að hugsa stórt í þessum efnum, jafn- vel þótt það sé ekki nema meðal- stórt. Því sem dæmi um það, hvað þetta er í rauninni lítið fyrirtæki, má nefna að þetta myndi að með- altali kosta hvern skattgreiðanda eittþúsund krónur eða tvær áfyll- ingar af bensíni. Og kannski væri einmitt ekki vitlaust að skatt- leggja fólk og fyrirtæki í þágu tónlistarhúss í hlutfalli við bíla- stærð þeirra og önnur stöðutákn. Og svo annað dæmi sé tekið, þá er þetta ekki nema hluti af því fé, sem Alusuisse hefur svikið undan skatti á síðustu árum, þótt ekki sé minnst á hið smánarlága raforku- verð, sem seint ætlar að fást hrófl- að við. Það er nefnilega af mörgu að taka ef vilji er til. Það er allt og sumt. eftir Arna Ðjörnsson Gallerí Austurstræti 8 gefur út breiöskífu: BIG NÓS BAND

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.