Helgarpósturinn - 09.06.1983, Síða 9
~jpSstUrínn Fimmtudagur 9. júní 1983
9
Skerrnntileg nýbreytni
hjá Stúdentaleikhúsinu
Stúdentaleikhúsið:
Aðeins eitt skrej - samsett dagskrú
Steinaspil. Flytjendur: Elias Davíðs-
son, Kristrún Gunnarsdóttir og Jón
Björgvinsson.
Skýrsla flutt akademíu eftir Franz
Kajka. ~
Flytjandi:Rúnar Guðbrandsson.
Solo un 'paso ejtir Luis de Pablo.
Músikkleikur Jyrir rödd og Jlautu:
Flytjendur: Kolbeinn Bjarnason og Jó-
hanna Þórhallsdóttir.
Stúdentaleikhúsið hóf starf-
semi sína eftir endurlífgun á eftir-
minnilegri sýningu á leikritinu
Bent í Tjarnarbíó í desembersíðast
liðnum. Siðan hefur verið frem-
ur hljótt um starfsemi þess, nema
að í apríl setti leikhúsið á svið
Brechtdagskrá. Lofgjörð um ef-
ann. Nú í júni er blásið í lúðra og
ætlar Stúdentaleikhúsið að
standa fyrir fjölbreyttri listastarf-
semi í Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut. Nefna aðstandendur
Stúdentaleikhússins þessa starf-
semi Listatrimm, nafn sem mér
finnst reyndar alveg laust við að
vera listrænt. Boðið er uppá leik-
þætti, tónlistaruppákomur ýmis-
legar, Ijóðalestur og fleira. Enn-
fremur er gerð hér tilraun til þess
að koma á einskonar „kaffihúsa-
leikhúsi", leikhúsi þar sem veit-
ingar standa til boða meðan á sýn-
ingu stendur eða kannski öfugt -
kaffihúsi eða veitingastað þar
sem boðið er uppá leiksýningar.
Hér er um mjög skemmtilega
tilraun að ræða sem vonandi er að
heppnist, tilraun sem gerir bæjar-
lífið fjölbreyttara og skemmti-
legra, ekki veitir af á þessum síð-
ustu og verstu tímum.
Fyrsta dagskráin sem sett var
upp í félagsstofnun stúdenta var
þríþætt.
Fyrsta atriðið var afar kúnstug-
ur en skemmtilegur konsert þar
sem Elías Davíðsson ásamt Krist-
rúnu Gunnarsdótturog Jóni Björg-
vinssyni spiluðu af hjartans list á
grjót. Og hvernig má það nú vera?
Jú - steinflögur misstórar eru
lamdar með kjuðum og gefinn
hljómbotn með gömlum tréköss-
um sem þær liggja á og þá koma
hinir sérkennilegustu tónar sem
þau þrjú unnu úr bæði af fjöri og
hugmyndaflugi.
Annað atriðið Skýrsla flutt
Akademíu eftir Kafka. Hér er um
að ræða smásögu sem búin er til
flutnings fyrir einn leikara. Eina
persóna þessa verks er api sem
fangaður var eitt sinn í skógum
Afríku en sökum óvenjulegrar
greindar hefur honum tekist að
læra mál, háttu og siðu manna. Er
hann nú að greina lærðri Aka-
demíu frá lífshlaupi sínu, hvernig
honum tókst að yfirvinna apaeðli
sitt, sem þó býr sífelldlega með
honum. Það hefur verið hans leið
til þess að lifa af að semja sig að
siðum manna, siðum sem henta
honum ákaflega illa þegar allt
kemur til alls. Breytni hans er á
móti eðlinu og skapar það honum
angist sem hann kemst ekki yfir.
Rúnar Guðb randsson fór með
hlutverk apans og var gervi hans
ágætlega apalegt og allt látbragð.
Framsögn hans var mjög skýr, en
kannski einum of „leikaraleg",
þ.e.a.s. skýrleikinn var nokkuð á
kostnað eðlilegheita og greinilegt
að leikarinn þarf að þjálfa fram-
sögn sína betur.
Síðasta atriði dagskrárinnar
var einskonar músikkleikur.
Sambland af leikþætti og kons-
ert. Fóru þau Jóhanna Þórhalls-
dóttir og Kolbeinn Bjarnason á
kostum í þessu atriði sem hlaðið
var fjöri og margbreytileik. Verk-
ið sem reyndar er mjög erfitt að
lýsaer mjög táknrænt, fjallar með
fjölbreyttum hætti um átök valds
og þess kúgaða, þar sem beitt er
saman söngrödd, flautuleik og
látbragði. Var þetta atriði einna
eftirminnilegast frá þessar dag-
skrá.
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að starfsemi Stúdentaleik-
hússins hafi farið vel af stað og er
full ástæða til þess að hvetja
áhugafólk um fjölbreytt listalíf og
nýbreytni í bæjarlífinu til að fylgj-
ast vel með þvi sem þarna er að
gerast.
G.Ást.
„Hlaðið fjöri og margbreytileik“, segir Gunnlaugur Ástgeirsson
um verkið sem Jóhanna Þórhallsdóttir og Kolbeinn Bjarnason fluttu
á sýningu Stúdentaleikhússins.
Lille du — hva’ nu?
Þjóðleikhúsið:
Lille du - Hva’nu?
Gestaleikur Jri Folketeatret í Kaup-
mannahöjn.
— Kveðja til Jramtíðarinnar Jri Jjórum
leikurum og einum pianóleikara - byggt ú
verkum Kurt Tucholsky.
Leikstjóri: Preben Harris.
Leikendur: Troels Munk, Holger Perjort,
Bende Harris, Ole Möllegaard og Poul
Erik Christiansen.
Um síðustu helgi komu gestir frá
Folketeatret i Kaupmannahöfn og
sýndu hér í Þjóðleikhúsinu kaba-
rettsýningu sem hlotið hefur miklar
vinsældir í Danmörku og verið
sýnd á öllum Norðurlöndum. Þessi
sýning er einn liður í hátíðahöldum
vegna 125 ára afmælis Folkete-
atrets, en það er næst elsta leikhús
i Danaveldi. Var þetta fyrsta upp-
setningin á nýju sviði leikhússins,
Ung scene, sem tekið var í notkun
í tilefni afmælisins.
Kurt Túcholsky er höfundur sem
átti sitt blómaskeið og er reyndar
afsprengi þeirrar öflugu listastarf-
semi sem reis í Mið-Evrópu og ekki
síst í Þýskalandi á árunum fyrir
valdatöku nasista þar. Verk hans
eru fyrst og fremst ádeilugreinar,
gamanþættir, viðtöl, ljóð og gagn-
rýni að ógleymdum fjölmörgum
söngtextum. Hann var frjálslyndur
í skoðunum og varaði mjög við
uppgangi nasistanna, einkanlega
með háðinu, enda voru bækur hans
með því fyrsta sem fór á bannlista
og var brennt í opinberum bóka-
brennum Göbbels.
Upp úr verkum Tucholskys hefur
leikstjórinn, Preben Harris, unnið
þessa sýningu og er hún eins og
áður er getið í formi hinna vinsælu
kabarettsýninga sem tiðkuðust
mjög í Þýskalandi og víðar og fræg-
ar eru t.d. í kvikmyndum.
Kabarettsýningar samanstanda
af mörgum atriðum, stuttum leik-
þáttum, eintölum, söngvum,
gamanvísum og þessháttar.
Nú fjallar efni þessarar sýningar
að mestu leyti um ástand mála í
Þýskalandi kringum 1930 eða svo
og er þá von að maður spyrji hvaða
erindi hún eigi við okkur hér og nú.
Nú ber að hafa það í huga að þessi
sýning er sett saman fyrir danska
áhorfendur og gefur að skilja að
þeir fá meira kikk en við útúr gríni
um Þjóðverja og nasista en við hér,
liggja til þess augljósar sögulegar
ástæður. En það þarf ekki sérlega
mikið hugmyndaflug til þess að sjá
að þó að efnið sé á yfirborðinu
bundið við tiltekinn sögulegan tíma
þá hefur það margar og ótvíræðar
skirskotanir til nútimans, því þarna
er verið að fjalla um þjóðfélag í
kreppu og upplausn þar sem marg-
ar válegar blikur eru á lofti. Það er
því ekki að undra þó að margt af því
gríni og háði sem borið er á borð í
þessari sýningu hitti í mark í nútím-
anum.
En hér er einnig á ferðinni mjög
vönduð og vel gerð sýning í alla
staði, áskipuð leikurum sem greini-
lega kunna sitt fag til hlítar - gott
sjó svo gripið sé til innanhússtungu-
taks leikhússins.
En hvað um það, það var gaman
að horfa á þessa sýningu, þó hún
væri ekki eins skemmtileg og ég átti
von á,og það er alltaf forvitnilegt að
sjá hvað verið er að gera í löndunum
í kringum okkur.
G.Ást.
Ilíóill ★ ★ ★ ★ framúrskarandl
★ ★ ★ ág»t
★ ★ (66
★ þolanleg
0 léleg
Háskólabíó:
Móðir óskast (Paternity). Banda-
rfsk, árgerð 1981. Lelkendur: Burt
Reynolds, Beverly D'Angelo, Nor-
man Fell. Leikstjóri: Davld Stein-
berg.
Burt kallinn leikur piparsvóin I góðri
stöðu, sem áttar sig á þvl, að hann
verður aö eignast erfingja til þess að
honum verði ekki gleymt þegar kistu-
lokið skellur aftur. Hann fer þvi að leita
sér aö konu. En margt fer öðruvlsi en
ætlað var og til stóö...
Bíóhöllin:
Svartskeggur (Blackbeard's Ghost)
Bandarisk. Aðalhlutverk: Peter
Ustlnov, Dean Jones, Suzanne
Pleshette, Elsa Lanchester.
Grínmynd um sjóræningjann Svart-
skegg, sem skýtur upp kollinum eftir
200 ára dvala.
Félagarnlr frá Max bar. Aðalhlut-
verk: John Savage. Lelkstjórl: Rlc-
hard Donner.
Myndin er endursýnd en Donner
þessi er sá hinn sami og leikstýrði
Superman og Omen.
Ungu læknanemarnlr (Young
Doctors in Love). Bandarfsk kvlk-
mynd, árgerð 1982. Lelkendur:
Mlchael McKean, Sean Young,
Hector Lizondo. Lelkstjórl: Gary
Marshall.
Þessi mynd er hættuleg heilsunni:
áhorfendurfáóstöðvandi hláturskast.
Læknanemar bralla margt á Borgó.
Atlantlc Clty. Bandarlsk kvlkmynd,
árgerð 1981. Lelkendur: Burt
Lancaster, Susan Sarandon. Lelk-
stjórl: Louis Malle. ***
Húsið - Trúnaðarmál. Islensk kvik-
mynd, árgerð 1983. Leikendur: Lllja
Þórlsdóttlr, Jóhann Slgurösson.
Lelkstjórl: Egili Eövarðsson. «• »
Vel gerður íslenskur sækóþriller.
Regnboginn:
Lokapróf. Bandarlsk. Lelkstjórl:
Jlmmy Huston. Aðalhlutverk:
Ceclle Bagdadl og Joel Rice.
Oft eru lokapróf hryllilega hrollvekj-
andi en fá sennilega eins svakaleg og
þessl sem myndin greinir frá. Verið til-
búin aö beygja ykkur undir stólana.
Ungl meistarinn (The Young Mast-
er). Hong Kong, árgerð 1982. Leik-
endur: Jackie Chan og flelrl. Leik-
stjórl: Jackie Chan.
Arftaki Bruce Lee. Slagsmál á milli
karateskóla. Mikiö glens I blantí.
Brennlmerktur (Stralght Time)
Bandarlsk kvlkmynd. Leikendur:
Dustln Hotfmann og flelrl.
Hoffmann leikur síbrotamann sem á
erfitt með að festa þröngt einstigi hins
heiöarlega llfs. Spenna og mannleg
átök.
I greipum dauðans (Flrst Blood).
Bandarlsk, árgerö 1982. Handrlt:
Stallone, o.fl. Lelkendur: Sylvester
Stallone, Brlan Dennehy, Rlchard
Crenna, Jack Starrett. Lelkstjóri:
Ted Kotcheff.
Stjörnubíó:
Tootsle. Bandarisk kvikmynd, ár-
gerð 1983. Leikendur: Dustin Hoff-
man, Jesslca Lange, Terry Garr,
Charles Durnlng. Leikstjóri: Sldney
Pollack. Dustin Hoffman fer á kostum
I aðalhlutverkinu og sýnir afburða-
takta sem gamanleikari. Tootsie er ó-
svikin skemmtimynd. Maður hlær oft
og hefur lltiö gleðitár I auga þegar
upp er staðið. * * *
— LÝÓ
Nýja bíó: ***
Stjörnustrlð I (Star Wárs). Banda-
rlsk kvlkmynd, árgerö 1977. Lelk-
endur: Mark Hamlll, Alec Guinness,
Carrle Flsher. Leikstjóri: George
Lucas.
Kúrekar geimferöaaldarinnar þjóta
um á fararskjótum sínum og reyna að
ráða niðurlögum hins illa. Frábær
skemmtun fyrir alla aldurshópa. Á
sunnudag kl. 3, 5 og 7.
Allir eru aö gera það... (Maklng
Love) * *
Bandarisk. Árgerð 1982. Handrlt:
Barry Sandler. Leikstjórl: Arthur
Hlller. Aöalhlutverk: Michael Ont-
kean, Kate Jackson, Harry Hamlln.
Alltaf vantar herslumun þegar
Hollywood hyggst taka á svokölluðum
„viökvæmum vandamálum'' að ár-
angurinn verði fullnægjandi. Making
Love snýst um klasslskan þrlhyrning
nema hvaö maðurinn I miðjunni hittir
ekki aðra konu heldur annan mann;
þetta er saga um uppgjör manns við
eigin kynhneigð. En þótt margt sé
heiöarlegt við handrit Barry Sand-
lers, sem sjálfur mun vera hommi, þá
vantar nægilega skýrar sálfræöilegar
forsendur I persónurnar þrjár. Áhorf-
andi nær ekki að taka þátt í tilfinning-
um þeirra að neinu marki. _
Pink Floyd The Wall. Bresk kvlk-
mynd. Handrit: Roger Waters. Lelk-
endur: BobGeldofi Lelkstjóri: Alan
Parker. Hressileg ádeilutónlistar-
mynd með múslk eftir þessa frægu
sveit. * *
Laugarásbíó: **
Kattarfólklð (Cat People). Banda-
rlsk, árgerð 1982. Lelkendur: Nast-
assla Klnski, Malcolm McDowell,
John Heard. Lelkstjóri: Paul Schra-
der.
Systkini: sambland af mannfólki og
svörtum hlébörðum. Ef þau elska
mannfólkiö, breytast þau I hlébarða
við samfarir og drepa rekkjunautinn.
Þokkaleg afþreying og aðdáendur
Nastössiu Kinski eiga tvímælalaust
erindi.
Tónabíó:
Rocky III. Bandarfsk, árgerð 1982.
Lelkstjóri: Sylvester Stallone. Aðal-
hlutverk: Sylvester Stallone, Talla
Shlre, Burt Young, Mr. T.
Þetta er þriðja myndin um hnefaleika-
kappann og hefur hún átt geypilegum
vinsældum að fagna I Bandarlkjun-
um.
Austurbæjarbíó:
Shining. Bandarlsk. Árgerð 1981.
Aðalhlutverk: Jack Nicholson,
Shelley Duvall. Leikstjórn: Stanley
Kubrick. Meistari Kubrick gllmir hér
viö hrollvekjuformiö, og tekur efnið
meistaratökum, einsog viövar aöbú-
ast. Byggö á bók Staphen King um
hjón með barn sem taka að sér hús-
vörslu I auðu fjallahóteli yfir vetrar-
tlma. Mynd sem engin kvikmyndaá-
hugamaður getur sleppt. Endursýnd.
viéliuréir
BSÍ:
Klukkan 10 á laugardagsmorgun
hefst rútubllasýning I kringum hús
BSl og veröur mikið glens og gaman.
M.a. verður boðið upp á margs konar
skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna I
rútunum. Býður einhver betur? Allir I
rúg rútubllana. Þaö má jafnvel rifja
upp rútubllasöngvana...