Helgarpósturinn - 09.06.1983, Blaðsíða 10
Gísli Súrsson
dæmdur af Penthouse
„Útlagar rannsaka eftirsóknarverð híbýli“
Orðréttur myndatexti úr Penthouse.
Bandaríska tímaritio Penthouse fellir dágóðan
dóm á Utlaga Agústs Guðmundssonar. Tímaritið
getur Arnars sérstaklega
líkamningu Errol Fiynn.
„Bíómynd frá íslandi!?!
Ójá vinur og þér er alveg óhætt
aö þurrka glottið framan úr þér.
Útlaginn er mættur!
Satt best að segja þarf ekki síður
sterkar taugar og hraustan maga til
að horfa á Útlagann og á sumar
bandarískar kvjkmyndir. (Þetta
mun meint sem gullhamrar, aths.
þýð.).
og segir hann íslenska
Þegar íslendingar, í það minnsta
gullaldar-íslendingar, fundu hjásér
hvöt til að kála einhverjum, sáu þeir
enga ástæðu til að kalla á sálfræð-
ing, löggu eða einhvern þess háttar
— þeir bara tóku til hendinni og
klufu kauða í herðar niður. Ég
skrifa kauða þvi konur voru að því
r virðist utangarðs í þessum morð-
leikjum og kannski eins gott því
Helstu aðstandendur kvikmyndarinnar Skilaboð til
Söndru stilla sér upp fyrir ljósmyndara HP eftir að tökur
hófust á Naustinu. Annars verður aðallega filmað í sumar-
bústað í Mosfellssveit á næstu vikum. Leikstjóri myndar-
innar er Kristín Pálsdóttir.
Fimmtudagur 9. júní 1983 , loosturinn
A sumri:
Tónleikar,
ópera og ballett
annars væru fáir eftir! íslendingar
eru nógu fáir fyrir og Útlaginn
skýrir hvers vegna.
Holdtekja Errol Flynn
Útlaginn byggir á gamalli sögu
og sveiflast á milli friðsamlegra
dalverpa, bænda og búaliðs annars
vegar og blóð igra hefndarmorða
hlns vegar. Slúður, heyrt á skot-
spónum.veldur mannsdrápi. Tíðar-
andinn fyrirskipar hefnd. Og hefnd
fyrir hefnd fyrir hefnd og svo koll
af kolli.
Vegna þess að allir eru annað
hvort fúlskeggjaðir (karlarnir) eða
ljóshærðir með sítt hár (konurnar),
er dálítið erfitt að átta sig á sögu-
þræðinum fyrsta hálftímann. Hver
er að gera hvað við hvern? Hvað-ið
er einna einfaldast: að stinga ná-
ungann á hol með spjóti, sverði eða
bara einhverju sem liggur hendi
næst. En hvaða náunga og hvers
vegna? Það er verra að vita. En skítt
með það, Gísli (leikinn af íslenskri
holdtekju Erroll Flynn, Arnari
Jónssyni) er ekki fyrr lagður á
flótta undan vondu köllunum en
myndin snýst upp í sverðbeittan
vestra — „norðra“, sem berst fljótar
en nokkur hraðlest. Útlaginn, gerð-
ur af Ágústi Guðmundssyni fyrir
sama sem engan pening, sameinar
hnyttna sögu og frábæra lýsingu á
tilveru víkinganna. Myndin er ein
fárra sagnfræðimynda, sem vekja
upp tilfinningu um að „já, einmitt
svona hlýtur það að hafa verið“.
Útlaganum tekst einnig að láta New
York, morðingjar, nauðgarar og allt
það meðtalið, sýnast saklausa sem
sjávarþorp í barnabók. í lok mynd-
arinnar er Gísli króaður af af misk-
unnarlausum drápsmönnum, hann
kálar hálfri tylft þeirra af mikilli
hugmyndaauðgi en er svo endan-
lega saxaður i spað sjálfur. Sumir
gera hvað sem er til að komast á
spjöld sögunnar"
Lýkurjrar umsögn Penthouse um
Útlaga Agústs.’
Manuela, Sigríður Ella, Gísli
Magnússon, Hafliði Hallgrímsson,
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
Jónas Ingimundarson og Halldór
Haraldsson, „sjö af vönduðustu
tónlistarmönnum þjóðarinnar“
koma fram á tónleikum íslensku
hljómsveitarinnar, sem haldnir
verða á sunnudaginn.
Yfirskrift konsertsins er „Tón-
leikar á sumri“ og er hann haldinn
til styrktar hljómsveitinni og á-
nægju tónleikagestanna. Nú er að
tryggja bæði styrk og ánægju og
treysta áframhaldandi starf sveitar-
innar næsta vetur. Efnisskráin er
fjölbreytt - hún spannar allt frá vin-
sælum smáverkum til stærri tón-
verka. Tónleikarnir verða í Gamla
bíói og byrja kl 16.00. Forsala miða
er í Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar, í ístóni við Freyjugötu
og svo í miðasölu bíósins. Miðarnir
kosta kr. 250r
...og áfram meö tónsprot-
ann:
Erlingur Vigfússon er kominn
heim til að syngja hlutverk Turidd-
ús í óperunni Cavalleria Rusticana
hjá Þjóðleikhúsinu en nú eru ekki
nema þrjár sýningar eftir og hver að
verða síðust að njóta Mascagni og
músikkur hans.
Erlingur Vigfússon hefur verið
fastráðinn einsöngvari við óperuna
í Köln í Vestur-Þýskalandi í nær 20
ár og farið þar með fjölda hlut-
verka, m.a. söng hann aðalhlut-
verkið í Leðurblökunni á síðasta
vetri. Erlingur hefur ekki sungið
hérlendis á sviði í mörg ár og mun
mörgum þykja fengur að heyra til
hans í.eigin persónu í hlutverki Tur-
iddus. Eins og áður sagði eru nú að-
eins þrjár sýningar eftir á Cavall-
eria Rusticanaog verða þær á sunnu-
daginn kemur, fimmtudag 16. júní
og laugardaginn 18. júní. Óperan
hefur fengið hina prýðilegustu
dóma og góðar viðtökur áhorfenda
enda besta skemmtun. Með önnur
hlutverk faram.a. Ingibjörg Hjalte-
sted, Sólveig Björling, Sigríður Ella
Magnúsdóttir og Halldór Vilhelms-
son.
Nýr þjónn Júlíu
Þá er ekki síður að geta balletts-
ins Fröken Júlía, sem óhætt mun að
telja með meiriháttar afrekum ís-
lenskradansara til þessa. Einkum
hefur frammistaða Ásdísar Magn-
úsdóttur í titilhlutverkinu verið
rómuð. Á þeim sýningum sem eftir
eru ballettsins tekur Niklas Ek aft-
ur við hlutverki þjónsins sem fíflar
Júlíu - eða hún hann. Niklas er með
snjallari karl-dönsurum sem hér
hafa komið fram og vakti aðdáun
gesta á fyrstu sýningum ballettsins í
vor. Gagnrýnandi sagði um
frammistöðu hans: „Tæknirj. og
hraðinn og líkamlegur þróttur eru á
sínum stað - og allt er þetta vel virkt
í magnaðasta ástarleik, sem hér
hefur sést á ballettsýningu“. Fröken
Júlía er sýnd sömu kvöld og óperan
og eru því aðeins þrjár sýningar eft-
ir á henni líka. Ms.
Aðutanpóstur....
Aðdáendur Williams Faulkner
eiga á góðu von: saga sem hann
skrifaði árið 1926 en aldrei hefur
verið gefin út, er á leiðinni. Sagan
heitir Faðir Abraham og fræði-
mönnum hefur verið kunnugt um
tilveru handritsins um árabil án
þess að nokkur legði í að hreinrita
smágerða og ólæsilega rithönd
Faulkners.
En sem sagt, útgáfufyrirtækið
Red Ozier Press er að koma tak-
mörkuðu upplagi frá sér. Fullyrt er
að töfin á því að sagan kæmi út eigi
engar rætur að rekja til gæðanna,
„Faulkner brillerar í þessari sögu“
fullyrðir bókmenntaprófessor
Kaliforniuháskóla..Súpermann
þriðji mættur. Að sögn kvikmynda-
gagnrýnanda Times hefur hann
aldrei verið betri, sætari, þokka-
fyllri og skemmtilegri en nú....
Mstislaw Rostropowitsch celloleik-
ari kann vel að spila á cello en hann
er ekki jafnvel að sér í nútímahug-
myndum kvenna segir dóttir hans,
Olga Rostropowitsch. Að sögn vildi
karl að dóttirin yrði sonur og neit-
aði dóttur sinni um að læra á cello
vegna þess að það væri ekki kven-
legt hljóðfæri. Sú stutta beið þar til
hún varð eldri og hafði lært að tala
um fyrir pabba, dreif sig þá í Juill-
ardtónlistarskólann, lauk námi og
getur sér nú góðs orðs sem celloleik-
ari bæði vestan hafs og austan. Til
að fullnægja kröfum gamla manns-
ins um heppilegt framferði kvenna,
notar hún þó frístundir sínar til að
sýna föt í tískuhúsi Lanvin í Paris
og telur Rostropowitsch ekki eftir
sér að sitja þar á fremsta bekk og
klappa fyrir Olgu sinni....
S.IOSVAKI*
Föstudagur
10. júní
20.50 Steini og Olli. Mér liöur alltaf
svo ofboðslega vel þegar ég
horfi á þessa. Ekki það að þeir
séu eitthvað sérlega skemmti-
legir heldur bara aö vita að ég
fer ekki á mis við einhverja liti.
Skrýtiöl
21.15 Þróun kjarnorkuvígbúnaðar.
Þetta er heimildarmynd um
kjarnorkuvopnaframleiðslu,
vigbúnaðarkapphlaup stór-
veldanna, styrjaldarhættu og
fleira ógeðslegt. Mál er að linni.
22.15 Barnabrek. (To Find a Man).
Bandarisk biómynd frá árinu
71 og í þessu tilfelli allrar at-
hygli verð. Ung stúlka verður ó-
frísk og veltir þvi rækilega fyrir
sér hvort hún eigi aö láta eyöa
. fóstrinu eða ekki. Það verður
spennandi að sjá hvernig tekið
verður á málum. (Ég lofa engu.)
Laugardagur
11. júní
20.35 Óstaöfestar fregnlr herma. -
Ekki meir um það.
21.05 Benny Goodman. Hann var
lipur á listahátiðinni um árið.
Bragi staðfestir þaö. Nú
skemmtir kappinn knái i Kaup-
mannahöfn ásamt Don Haas,
P. Witte, Harry Pepl og Charlie-
Autolini og hver veit nema
Svend Asmussen taki lagið og
viö heima tökum undir og dill-
um okkur. O je.
22.00 Bíladella, heitir Traffic á is-
lensku en þetta er hin rómaða
franska mynd Jacques Tati.
Meistarastykki mundi Gulli
segja og svei mér ef ég tek ekki
undir með honum. Ég ætla sko
ekki aö missa af henni.
Sunnudagur
12.júní
18.00 Sunnudagshugvekja. Það er
Margrét Hróbjartsdóttir sem
flytur. Kannski talar hún um
kvennaguöfræði. Jú. Alveg
satt. Kvennaguðfræði er til.
Lest’ekki Veru?
18.10 ída litla. Dönsk mynd fyrir okk-
ur smábörnin.
18.25 Daglegt lif í Dúfubæ. Lika fyrir
okkur.
18.40 Pósturinn Páll, pósturinn Páll,
pósturinn Páll og kötturinn
Njjjjaaaáll.
18.55 Sú kemur tíð. jájájájáhá
20.35 Þaö hefur oft reynst vel að
kveikja á sjónvarpinu á þessum
tima, þá er maður laus viö að
horfa á það sem eftir er vikunn-
ar.
20.50 Hófaspil. Vindheimamelar
sumarið 1982. Kvikmynd sem
Landssamband íslenskra
hestamanna lét gera um lands-
mótið. Hott hott á hesti.
21.40 Þróunin. Splúnkunýr danskur
framhaldsþáttur. Loksins er
hægt að halda dönskunni við.
Fyrsti þáttur heitir Aðkoman.
Þetta er um danska sérfræð-
inga.Det lyder spændende. Je.
ÚTVAKI1
Föstudagur
10. júní
10.35 Það er svo margt að minnast
á. Já, Torfi, við getum öll tekið
undir það.
11.05 „Ég man þá tíö“ O, jú, jú, Her-
mann, ég líka. Manstu t.d. þeg-
ar ég tók bronsiö hjá þér um ár-
iö.
11.35 „Maya-heimspekin“ Þetta er
arminnilegt. Knútur R. Magn-
ússon les úr bókinni Indversk
heimspeki eftir Gunnar Dal.
14.30 Sigrún er mætt og kynnir óska-
^ lög sjómanna. Það mun vera
Halastjarnan sem sér um und-
irleikinn.
17.15 Upptaktur. Að þesu sinni i hálf-
tima en Guðmundur Bene-
diktsson gefur inri. Að öllum lík-
indum tónlistarþáttur.
19.50 Við stokkinn. Guðni, viltu
segja okkur sögu? „Krakkar
mínir, krakkar minir, þegar ég
var sjómaöur”
20.40 Sumarið mitt. Það er Oddrún
Vala Jónsdóttir sem sér um
þáttinn og við biðum spennt...
23.00 Náttfari en ekki nátthúfan sem
gekk þarna um árið sem Nátt-
fari var upp á sitt besta. Þessi
kemur frá RÚVAK og það er
Gestur Einar Jónasson sem
stjórnar honum.
01.10 Á næturvaktinni. Sennilega
hressari en áöur, eöa þannig —
Ásgeir Tómasson.
Laugardagur
11. júní
8.20 Nokkuö léttir morguntónleikar
en alltof snemma fyrir minn
smekk. Þaðværi helst efveðrið
væri gott að maður myndi
vakna, en það er alls ekki víst.
10.25 Óskalög sjúklinga. Lóa farin,
hún sem er rétt nýkomin en
Helga Þ. komin I staðinn.
11.20 Sumarsnældan. Já. Hún er
byrjuð aftur. Og það er Sverrir
sem er mættur hress að vanda.
15.00 Um nónbil I garðinum. Haf-
steinn Hafliöa er orðinn geysi
fyndinn. Og maður veit aldrei
hvenær von er á honum næst.
15.10 Listapopp. Nei, nei, detta úr
mér allar dauöar. En Gunn Sal
er ekki af baki dottinn.
16.20 Sigmar er í sólskinsskapl og
ég lika. Halló Sigmar.
17.15 Síðdegistónleikar. Þetta er sko
flott. I fyrsta lagi leikur Gunnar
Kvaran Svítu í G-dúr eftir J.S.
Bach og D-Serenöðu fyrir ein-
leiksselló eftir H.W. Henze og i
öðru lagi leikur Sveinbjörg Vil-
hjálmsdóttir Fimm stykki fyrir
píanó eftir John Speight. Sko
ég mæli með þessu.
19.35 „Allt er ömurlegt f útvarpinu"
Úmsjón: Loftur Bylgjan Jóns-
son. Ónei, Loftur minn. Eftir
svona síðdegistónleika er allt
gott og hafðu þaðl
21.30 A sveitalínunni I umsjón Hildu
Torfadóttur. Mér dettur nú helst
i hug að hér sé einhvers konar
kvennaþáttur á leiöinni. Máliö
er að biöa og vona.
23.00 Danslög. Og allir upp með
teppin.
24.00 Listapoppið hans Gunna Sal
endurtekið og svo er bara að
halla sér.
Sunnudagur
12. júní
8.35 Létt morgunlög. Damm dar-
amm damm. Jæja. Heppin var
ég að taka lærið út í gær. Stilla
á lágan hita og skella þvi inn.
Ekki gleyma aö krydda. Og svo
bara að leggja sig aftur.
10.25 Út og suöur með Friöriki Páii.
Ætli vinurinn frá Skaganum
mæti aftur? Hér er gotr ráð aö
skella sér í baö meö útvarpió
auðvitað. Þ.e. þeir sem ekki
hafa tök á að fara I sund.
11.00 Messan er frá Seljasókn. Það
er sóknin mín. Skylduþeir vera
búnir að ráöa organista. Fróö-
legt.
13.30 Sþlúnkunýr þáttur frá RUVAKI
heitir Sporbrautin og er I um-
sjón þeirra Ólafs H. Torfasonar
og Arnar Inga. Flott.
15.15 Söngvaseiður i sjötta sinn frá
þremenningunum þriefldu.
Jibbljei.
16.25 Bláhviturinn Islands Falk. Var
einhver að tala um fána. Sturla
ætlar aö sjá um það.
1700 Tónskáldakynning. Guð-
mundur Emilsson kynnir Jón
Ásgeirsson i fjórða og síöasta
sinn. Eru ekkiallir meö á nótun-
um?Við erum ekkert að gagn-
rýna þetta.
18.00 Þráinn er úr um hvippinn og
hvappinn I þætti sínum Það var
og. Þráinn erum við vinir?
19.35 Myndir Jónasar Guömunds-
sonar eru hér á þessum stað og
Smetana er undir aö mig minn-
ir.
20.00 Útvarp unga fólksins. Um-
sjón: Guðrún Birgisdóttir og
Eðvarö Ingólfs. Hann er ungl-
ingavinur. Og hún lika.
21.00 Eitt og annað um vorið hjá
Þórdisi Mósesdótturog Simoni
Jóhannssyni. Springtime for
Hitler.
21.40 Merkar eldri hljóðritanir. Verk
eftir Mozart,Mendelsohn og
Ravel. Getur verið fróðlegt.
23.00 Jón Múli sá aldjassgeggjaðasti
af þeim öllum er meö nýjan þétt
sem heitir einfaldlega JASS
eða DJASS (ekki viss),Og þessi
fyrsti þáttur heitir Úpphafið.
Óg þar með getum við farið aö
leggja okkur eftir útvarp helgar-
innar.