Helgarpósturinn - 09.06.1983, Side 15

Helgarpósturinn - 09.06.1983, Side 15
^pSsturinn. Fimmtudagur 9. júní 1983 15 Helgarpósturinn hefur það J eftir áreiðanlegum heimild- S um að allir ráðherrar ríkis- stjórnarinnar hafi í hyggju að ráða sér aðstoðarmenn, nema Geir Hall- grímsson utanríkisráðherra. Kemur þetta nokkuð á óvart þar eð Stein- grímur Hermannsson hefur ötull prédikað sparnað í rekstri ráðu- neyta... 5 Við sögðum frá því í síðasta HP að starfslið nýju milli- landaferjunnar m/s Eddu yrði að láta sér nægja að virða fyrir sér erlendu borgirnar sem skipið hefur viðkomu í af þilfarinu vegna þess að það fær ekki landgöngu- leyfi. í okkur hringdi aðstandandi eins skipverja og vildi bæta því við söguna að starfsfólkið verður að láta sér það sama lynda hér í Reykjavík. Þá fjóra klukkutíma sem skipið stendur við í Reykjavík verður fólkið að vera um borð. Skipið hlýtur nefnilega ekki toll- skoðun og því fær enginn að stíga fæti um borð nema farþegar. Þá fylgdi sögunni að starfsfólkið fái ekki að versla í verslunum skipsins og það fær ekki að kaupa tollfrjáls- an varning eins og áhafnir annarra skipa og flugvéla sem eru í förum á milli landa. Félagsleg réttindi þess munu einnig vera af skornum skammti vegna þess að skipið siglir undir pólsku flaggi og þar af leiðir að íslensk stéttarfélög hafa ekkert að segja um kjör fólksins. Hluti áhafnarinnar er pólskur og segir sagan að Pólverjarnir séu nú ýmsu vanir úr sínu heimalandi en að öðru eins lögregluríki og ísland hafi þeir aldrei kynnst.... Stærsta fiskveiðisýning heims Y J á þessu ári „Worldfishing“ y verður haldin í Bellacenter í Danmörku dagana 18r23. júní. Yfir 400 fyrirtæki víðs vegar úr heimi sýna þar framleiðslu sína; veiðar- færi, vélabúnað og fjölbreyttustu vörur á sviði fiskiðnaðar. Alls munu um tíu fyrirtæki íslensk hafa vörur sínar til kynningar í básum á sýningúnni og er sagt að aldrei hafi verið jafn mikið lagt í básaskreyt- ingar á íslenskri vörukynningu. Geysilegur áhugi er meðal ís- lenskra útgerðarmanna, skipstjóra, og innflytjenda veiðarfæra.fiskfram leiðenda svo og annarra áhuga- manna um fiskveiðar á þessari sýn- ingu. Farnar verða þrjár sérstakar hópferðir frá íslandi þann 16.,17. og 18. júní og er fullbókað í allar vélarnar... 'f 'l Fréttir ýmissa erlendra Y I blaða um að allt að þriðj- y ungur íslands legðist undir vatn þegar gosið í Grímsvötnum bræddi Vatnajökul, hafa vakið mikla athygli um Evrópu, eins og aðeins var komið inná í síðusta Helgarpósti. Frétt Magnúsar Guð- mundssonar hjá Norrænu frétta- stofunum á Islandi var reyndar ekki á þá leið, heldur var í henni aðeins skýrt frá jökulhlaupum og eðli þeirra, í tengslum við þetta gos, en fjölmiðlar erlendis gripu fréttina á lofti og lögðu sinn eigin skilning í hana. Nú bölva íslenskar ferða- skrifstofur fréttinni af gosinu í sand og ösku, því fregnin hefur vakið mikinn úlfaþyt meðal ferðamanna erlendis, sem hyggja á íslandsferðir í sumar. Skeytin dynja nú á íslensku ferðaskrifstofunum með spurning- um um goshættuna, og það hefur meira að segja gengið svo langt að ferðaskrifstofurnar hafa þurft að lofa því að hafa tilbúna flugvél á Höfn í Hornafirði ef eitthvað kynni að koma uppá... Ýmsar blikur eru á Lofti þessa Y 1 dagana í málefnum líkama af báðum kynjum. Skemmst er að minnast áminningar Kvenna- framboðsins um að viðhorf í þeim efnum stýrðust af afstöðunni til kynfærisins hverju sinni (sem illar tungur sögðu reyndar vera alveg öf- ugt með farið) og rifjast upp við þau orð sá atburður, er veislugestir í Broadway lögðu sér heilan kven- skrokk til munns - að vísu gerðan úr hveiti og mjólk og bakaðan í ofni, en sagt var, að sá skrokkur hefði flest það til að bera, sem prýddi góða konu. HP hefur eftir góðum heimildum, að matarskríbentar dagblaðanna hafi eftir þann atburð komið sér saman um að bjóða póli- tiskum ritstjórum og fréttamönn- um til álíka herlegrar veislu í tilefni stjórnarskiptanna. Hápunktur veislunnar átti að vera fyrrverandi forsætisráðherra í líkamsstærðar- kökumynd. Fyrrverandi forsætis- ráðherra yrði sjálfum boðið að skera fyrstu sneiðina og afhenda hana þeim hinum nýja með heilla- óskum. HP er hins vegar ekki kunnugt um á hverju þessi hug- mynd strandaði en auðvitað er alls ekki of seint að framkvæma hana KYNNINGARVERÐ 20% ÓDÝRARA Sanitas VIÐ HUGSUÐUM FYRIR ÞÍNUM HAG og bjóðum verðbólgunni og gengisfellingu birginn Viðbjóðum þér INIISSAIM CHERRY Verð eins og það hefði orðið, án okkar fyrirhyggju: 100 cc. 3ja d. 1300 cc. 3ja d. 1500 cc 3ja d. 1500 cc. d. sjálfsk. 1500 cc. d. sjálfsk. kr. 231.000.- kr. 242.000.- kr. 260.000.- kr. 271.000.- kr. 281.000.- IMISSAIM SUNNY 1300 cc. 1500 cc. 1500 cc. 1500 cc. 2ja d. 4ra d. 4ra d. sjálfsk Coupe kr. 252.000.- kr. 272.000.- kr. 283.000.- kr. 291.000.- 1500 cc. sjálfsk. station kr. 300.000.- Okkar verð á NISSAN bílum bankaborguðum fyrir gengisfeílingu: kr. 220.000.-1 bíll eftir kr. 230.000.- kr. 247.000.- kr. 258.000.- kr. 267.000.- kr. 240.000.- kr. 259.000.- kr. 270.000.- kr. 277.000.- Uppseldur kr. 286.000. - Uppseldur IMISSAIM BLUEBIRD Allar gerðir uppseldar IMISSAIM STANZA Allar gerðir uppseldar IMISSAIM CABSTAR Óyfirbyggðir vöru- og sendibílar. Örfáir eftir. IMISSAIM BÍLAR ÁVALLT í FARARBRODDI NÓ BÝÐUR ENGINN BETUR INGVAR HELGASON HF. s,missseo SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.