Helgarpósturinn - 09.06.1983, Síða 16

Helgarpósturinn - 09.06.1983, Síða 16
Meiriháttar — segir Tabítha Snyder er 11 ára og er í vist ísumar. Hún þassarfrcenda stráks sem mamma hennar passar. Tabítha er amerísk í aðra cettina en hefur búið á Islandi síðan hún var tveggja ára. Þetta er annað árið sem hún er í vist og henni finnst það þrœlgaman, svo fær Tabítha hún lika vel borgab, 1400 kr. (það er sama og dagmamma fœr fyrir 1 barn hálfan daginn). Thabítha var í Fella- skóla í vetur og hún frœddi Stuðarann á því að pönkið væri löngu liðið undir lok. Svo biðjum við bara að heilsa. Allt í lagi bless. Islenska bókin í undirbúningi er útgáfa á ís- lenskri poppbók. Til aö bókin geti þjónað sínum tilgangi er nauðsyn á samstarfi við hina ýmsu aðila er tengjast poppinu. Þess vegna eru allar upplýsingar vel þegnar frá eftirtöldum aðilum. — Hljóðritunarver. Þar skal m.a. koma fram upp á hvers konar tækjabúnað og aðstöðu verið býð- ur. — Lagasmiðir sem bjóða lög til sölu. — Textasmiðir sem eru tilbúnir að semja fyrir aðra. — Útsetjarar sem setja út fyrir aðra. Sjálfsagt er að láta þess get- ið ef um einhverja sérhæfingu er að ræða. — ,,Session“ menn sem geta aðstoðað við plötugerð, hljómleika eða annað þ.h. Taka skal fram hvert sérfag ,,session“ mannsins er. — Rótarar sem geta aðstoðað við einstök verkefni. — Bílstjórar sem taka að sér ,,túra“ eða einstakar ferðir út á land eða bara hingað og þangað. — Félagsheimili, veitingahús og önnur fyrirbæri sem bjóða upp á aðstöðu fyrir lifandi músík. — Hljómleikahaldarar. — Dansleikjahaldarar. — Hljómplötuútgáfur. Af sér- stökum ástæðum eru þær beðnar um að senda lista yfir allar plötur sem þær hafa gefið út. Útgáfuár og titill plötunnar og nafn flytjanda verður aö koma fram. Nauðsyn-^ legt er að hlómplötuútgáfur sem' eru hættar störfum láti einnig frá sér heyra. — Hljómplötuinnflytjendur - sendi lista yfir þau fyrirtæki sem þeir eru umboðsaðilar fyrir. — Dreifingaraðilar fyrir ís- lenskar plötur. — Hljómplötuverslanir. Þær þurfa að taka fram hvort um er að ræða sjálfstæða verslun með plöt- ur eða deild innan stærri og víð- tækari verslunar. — Hljómfæraverslanir. Þær þurfa sömuleiðis að taka fram hvort þær eru sjálfstæð hljóðfæra- verslun eða deild innan stærri verslunar. Jafnframt þarf að telja upp hvaða hljóðfæri og merki verslunin einbeitir sér að. — Hljóðfæraumboð/-innflytj- endur. Hvaða hljóðfæri? Hvaða merki? — Hljóðfærasmiðir/-viðgerð- ir. Hvaða hljóðfæri? — Hljóðfærastillingar. Hvaða hljóðfæri? — Tónlistarskólar. Skilyrði fyrir inngöngu? Kennslugreinar? — Einkakennarar. Aðstaða? (Getur kennarinn útvegað hljóð- færi?). Hljóðfæri? Á hvaða hljóð- færi er kennt? Vakin skal athygli á því að allar myndir eru kærkomnar. Þeim verður að fylgja skrifleg heimild til birtingar. Herlegheitin skulu send til: Poppbókin Pósthólf 14 Reykjavík Ólafur Kjartan, Arndís, Anna, Steinunn, Imba og Ásgeir eru á aldrinum 13—15 ára og finnst meiriháttar geðveiki af saksókn- ara að taka Spegilinn alvarlega. Það er ekki kvalarlaust þetta líf! Ég var aldeilis ótrúlega hress að byrja á Stuðaranum eftir langt og YNDISLEGT frí og kýldi niðrá torg. Ég gekk nefnilega að því sem vísu að þar væru pönkarar bæjarins að hrækja á veggi og svona, eitt- hvað ógeðslegt. Eitthvað ógeðslega fúlt. Nema hvað að í þrjá daga sam- fleytt gekk ég og gekk en ekkert gekk. Ekki einn einasti pönkari. Því spyr ég: Hvar eru pönkararnir? Eru þeir búnir að syngja sitt síðasta? Hvað er „inni“ þessa dagana? Eru það kannski einhverjir streitarar í jogging galla, eða eru diskófríkin allsráðandi? Þið fyrirgefið forvitn- ina, ég er nú einu sinni búin að vera í frii. — Upp með símtólið, segið mér fréttir. Símanúmerið er 81866. JRlUda Umsjón: Jóhanna V. Þórhallsdóttir Öðru vísi Pönkið liðið undir lok áður brá!!! geðveiki Það hefur vart farið framhjá fólki, a.m.k. ekki því sem las seinasta Helgarpóst (svo ekki sé nú meira sagt) að Spegillinn, samviska þjóðarinnar var gerð- ur upptækur fyrir aulafyndni, klám og fleira ógeðslegt. Nema hvað, að Stuðarinn var í mesta sakleysi niðri í bæ á föstudag- inn, nánar tiltekið niðrá torgi, þegar allt í einu, Úlfar þessi (rit- stjóri sóðablaðsins), rýkur upp á hús Karnabæjar með kalltæki að auglýsa blaðið í gríð og erg, og ekki nóg með það því um leið eru tugir manna farnir að selja endurútgefið sóðablað í, að visu, öðru broti. En hvílík hneysa! Oj barasta. Ég get vart lýst tilfinningum mínum þessa stundina og hugsiði ykkur, Lækjartorg troðfullt óþrosk- aðra unglinga. Og talandi um unglinga, vatt Stuðarinn sér að nokkrum og tók tali. — Hvað finnst ykkur um Speg- ilsmálið? — Það er meiriháttar geðveiki að taka svona blað alvarlega. Það er ekkert sjálfsagðara en að Spegillinn sé seldur. Hann er sko ekkert verri en sjoppuklámið. Það er sko virki- lega ógeðslegt." — Já, Stuðarinn tekur undir það. — En finnst ykkur þá í lagi að sjoppuklámið sé selt? „Ja, það er nú það.“ Þau eru greinilega ekki sammála um þetta atriði. Einn segir: „Það gæti kannski dregið úr kynferðisafbrot- um...“ Ein segir: „Nei, ætli það stuðli ekki frekar að kynferðisaf- brotum." Stuðaranum finnst þetta gott atriði til nánari umhugsunar. Og spyr: Hafa fleiri skoðun á þessu????? “Póstur og sími atvinnuleysi meðal ungllnganna eins og annarra) þá fyrst er skemmtilegt að setjast niöur með penna I hönd og skrifa Ijðð eða smásögu eða bara bréf... eða er það ekki? Hvernig væri nú að setjast niður og skrifa Stuðaranum þótt ekki væri nema örfáar, ég endurtek, örfáar llnur um eitt- hvað sem ykkur liggur á hjarta. opnar aðnýju Jæja elskurnar mfnar! Þá er sumarið komið yf- ir sæinn. Allir eru auðvitað tryllingslega hressir. Enginn skóli, ekkert stress, bara vinna - eða þannig. Já og þegar fólk er farið að vinna nú ell- egar slæpast (því að sjálfsögðu hlýtur að vera

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.