Helgarpósturinn - 09.06.1983, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 09.06.1983, Blaðsíða 20
20 Fimmtudagur 9. jú'ní 1983 fp'Ssturinn „Ég geng öruggur til hvílu eftir að ud varð forseti <6 að klæða sig fyrir tónleikana og tók það nokkurn tíma, en hvað gerir til að bíða einn vesælan hálf- tíma eftir meistara sem menn hafa beðið eftir í áratugi! Klukkan var hálfellefu og. allt var tilbúið. Stór mynd af Hamp hafði verið strengd yfir sviðið og hljómsveitin gekk inn. „Látum þá hita aðeins upp áður en þú kynnir mig“, mælti meistarinn og hló við. Hann brosti stöðugt og augun leiftruðu. Hann hnippti í mig! „Núna“, hvíslaði hann og ég gekk inná sviðið að kynna hinn goðumlíka Hampton. Síðan skaust ég í sæti mitt til að sam- einast öllum hinum djassgeggjur- unum og að njóta heitrar sveifl- unnar. Þessir tónleikar voru engum líkir. Ég hafði sagt fólki að það ætti eftir að finna blóðið sjóða en samt hafði mér ekki dottið í hug að karlinn væri svona hress. Fjandakornið að ~ hann hefði nokkuð látið á sjá þegar á sviðið var komið síðan ég barði hann fyrst augum niðrá Ríveru fyrir rúmum áratug. Bandið var frá- bært. Krafturinn og sveiflan með ólíkinum. Samt sátu þarna piltar sem höfðu verið með Clark Terry á sama stað fyrir tveimur árum án þess að blómstra. Útgeislun hljómsveitarstjórans er það sem máli skiptir og það geislaði af Hampton. Það var blandað sam- an gömlu og nýju. Air Mail Special, Flying Home, Advent eft- ir trompetleikarann Johnny Walker, Stardust, Moonglow, I Got Rythm og Midnight Sun, til- einkuð íslensku þjóðinni. Svo var sjóvið á fullu. Bandið stóð upp og lyfti lúðrum til himins í brattri sveiflu In the Mood. Og gamli maðurinn fékk alla til að klappa og syngja með sér Hey ba-ba-re- bop og Amen með Down by the Riverside innskoti. Svo settist hann við trommurnar og lék sér að kjuðunum fjórum, tveir í höndum og hinir ýmist í armkrika eða munni. Víbrafónsólóar þar sem önnur hver nóta var slegin í loftið og svo stökk hann framaf sviðinu með alla hljómsveitina og marseraði um salin: When the Saints Go Marching in. Það ætl- aði allt um koll að keyra. Kraftur gamla mannsins smitaði allt og alla! Stundum var þó slegið á alvarlegri strengi og beygði hann sig þá yfir víbrafóninn og hamr- arnir dönsuðu á nótnaborðinu í mögnuðum sólóum eða bandið blés í framúrstefnu eins og í japönsku þjóðvísunni semsaxa- fónleikarinn Yoshi Malta útsetti fyrir Hampton. Þrátt fyrir að hinn klassíska sveifla sé allsráð- andi er alltaf eitthvað nýtt og ferskt að finna á öllum Hampton tónleikum! í hléinu beið meistarinn í hlið- arvængnum. Hann fór ekki niðrí búningsherbergið sitt heldur hall- aði sér upp að synfóníuflýglinum og drakk appelsínusafa. „Eigum við ekki að fara að byrja drengir“, segir hann fljótlega. Honum er greinilega ekkert um of löng hlé gefin. Það mátti líka heyra á tón- leikunum. Varla var síðasta nóta lagsins þögnuð og klappið hafið áðuren hann upphóf næsta ópus. „Hvað helurðu að hann leiki lengi eftir hlé“? spyr ég Tom Chapin, saxafónstjóra. „Tæpan klukkutíma í mesta lagi“, svarar hann. Reynin varð önnur. Meist- arinn var í ham og íslendingarnir líka. Salurinn var einsog töfrum sleginn og galdramaðurinn dans- aði um sviðið. Það yfirgaf margur maðurinn Háskólabíó þessa nótt með rauða og þrútna lófa eftir rúmlega þriggjatíma tónleika. Klukkan var að verða tvö þegar Hampton var ferðafær. Það var farið að rigna svo ég bakkaði bíln- Sólarhringur meö Hampton eftir Vernharö Linnet 1. júni. I dag er von á einum helsta meistara sveifl- unnar til landsins: Lionel Hampton ásamt sextán hljóðfœraleikur- um, tveimur róturum, hjúkrunarkonu, umboðsmanni sínum og konu hans. Umboðsmaður Hamptons í Evrópu, Hollendingurinn Wim Wigt, cetlaði að koma líka en komst ekki. Hann kemur á morgun, skýst í land til að taka við peningum og heldur síðan til New York með Hampton ogfélögum. Hann þarf að rœða viðskipti á leiðinniyfir hafið; síðanflýgurhann beint til Evrópu. Fundastað- ir eru margvíslegir! Það er búið að vinna að þessum tónleikum mánuðum saman. Kauþkröfurnar voru háar, en þegar öll sund virtust lokur hlupu Flugleiðir undir bagga og gáfu flutninginn yfir hafið. Allt féll i Ijúfa löð og það þurfti bara troðfullt Háskólabíó til að endarnir nœðu saman. Enginn var í vafa um að það tcekist; ef ekki vœri eins gott að breyta Jazzvakningu íferðaklúbb á djassfestívöl heimsins! Klukkan er þrjú og bílalest Jazzvakningar heldur af stað til að ná í meistarann og liðsmenn hans. sendiferðabíll. Allt í eir.u er flugvélin lent og ég stend við landgöngubrúna og bíð þess að meistarinn stigi fæti á íslenska grund. Sonur minn fjögurra ára er með stóran blóm- vönd til að færa honum. Vonandi verður hann jafn elskur að sveifl- unni og faðir hans sem skírði fyrsta köttinn sinn Lionel Hamp- ton. Þá var hann ellefu áraóg vissi ekkert skemmtilegra en að hlusta á Hampton berja Chasin the Chase. Meistarinn birtist og geng- ur hægt niður landganginn. Lág- vaxinn, farinn að fitna og er stirt um gang. TVær konur fylgja hon- um - hjúkrunakonan og kona umba. Drengurinn réttir fram- blómin og það er heilsast og hleg- ið. „Mikið er hann sætur“, segja leydíarnar og svo er gengið til vegabréfsskoðunar. „Víða hefur þetta vegabréf ratað“, segir toll- vörðurinn er hann handleikur snjáðan passa Hamptons, stimplaðan með öllum heimsins stimplum. Eftir örfáar mínútur Tveirfólksbílar, ein rúta og stór erum við sest uppí bíl. Mitt hlut- verk er að koma Hampton og leydíunum í bæinn því fjöl- miðlarnir bíða. Félagar mínir sjá um hina tuttugu og farangurs- tonnin. Lionel vill fá að vita allt um tungu íslenskra og spyr svo: „Er þetta hafið“? - Atlandshafið“, svara ég að bragði og síðan ber gufustrókana frá Svartsengi við himinn; Keilir og alltí kring er hraunið. -i.Þetta er einsog á tungl- inu“, segir kona umba og hjú- krunarkonan spyr um nóttina. - „Hér ríkir dagurinn allar sumar- nætur“, svara ég og Lionel bætir við: - „Þetta er land miðnætur- sólarinnar". Vegurinn liggur hjá Hafnarfirði og meistarinn segir: Mikið byggja þeir hér“, - og allt þar til við renndum að Hótel Sögu undraðist hann öll þessi hús í borg þar sem svo fáir bjuggu. - Er háskóli hér“? spurði hann og ég benti til vinstri þar sem Háskólinn kúrir undir fargi Hótel Sögu. Hampton og stórsveitin í ham. Gamli maðurinn situr við trommurnar, en þegar mest á gekk var hann með fimm kjuða í takinu Blabamanna- fundur Útvarpsmenn biðu meistarans fyrir utan Sögu og hann bauð þeim uppí svítu sína og sagðist ekkert vera hræddur um að eiga í erfiðleikum með að bræða ís- hjörtun. Hann hefði lengi langað til að koma hingað og það yrði rosafjör á tónleikunum Svo langaði gamla manninn í brauð, en það tók sinn tíma að af- greiða það og niðrá Mímisbar beið Sjónvarpið og pressan og svo var ólga í bandinu - drengirnir neituðu að leyfa sjónvarpinu að taka upp tónleikana nema fá greitt fyrirfram. Hampton varð af brauðinu, róaði piltana og gekk hress í bragði inn á barinn. Hann lék As Times Goes By og It Don’t Mean A Thing á víbrafóninn og settist síðan við hliðina á píanist- anum sínum og sló 12th Street Rag með tveimur fingrum á flýgil- inn. - „Ég ætla að leika sitt af hverju tagi í kvöld, en allt með sveiflu“, sagði hann og hló. Það var dálítið gaman að virða fyrir sér hvernig hann gjörbreyttist í fasi og útliti þessi fáu skref sem voru milli fundarhaldanna með hljómsveitinni í anddyrinu og inná Mímisbar. En það var sama á hverju gekk ávallt var hlýleikinn í fyrirrúmi. Gary Burton hafði rétt að mæla er hann sagði: „Hampton er einhver þelbesti maður sem ég hef kynnst“. Klukkan var orðin sjö og Hampton hvarf á braut til að hvíl- ast. Tónleikarnir áttu að hefjast klukkan 10 og vinurinn ætlaði að mæta klukkan niu í bíóið. Þegar ég kom í bíóið klukkan hálf níu mætti ég manni sem sagði: „Þú ert of seinn, þar er allt uppselt". Það voru orð að sönnu og ábyggilega hefði mátt selja hvern miða tvisvar, svo mikil var ásóknin. Það voru greinilega margir sem höfðu ekki áttað sig fyrren i dag hvað var á seyði. Eng- inn hverdagsviðburður. Lionel Hampton in town! í bíóinu var handagangur í öskjunni. Karlakór Reykjavíkur var með tónleika klukkan sjö svo þar var ekki hægt að fara að gera klárt fyrir stórsveitina fyrren rétt fyrir níu. Þó voru pallar, stólar, nótnagrindur og trommur að ó- gleymdum flýglinum á réttum stað þegar bandið birtist uppúr níu. Hljóðmeistarinn Magnús Kjartansson stillti tól sín í óða- önn, bandið blés og Hampton sló víbrafón og trommur. Eins gott fyrir Magnús að allt gengi vel því hann var að halda úr landi um miðnættið. Sjónvarpið var með vélar sínar á réttum stöðum og svo var hleypt inn. Hampton átti eftir

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.