Helgarpósturinn - 18.08.1983, Síða 11
^posturinn. Fimmtudagur 18. ágúst 1983
Borgar-
stjórnin og
íbúarnir 21
yngstu börnin frá neðri hluta
hverfisins upp í Austurbæjarskóla
og eru með hugmyndir um að fá
hluta af gamla Miðbæjarskólanum
undir kennslu.
Hverfin fyrir austan Snorrabraut
láta litið yfir sér, þar virðist fátt
hafa borið við sem megnaði að
koma af stað íbúasamtökum. Það
er ekki fyrr en kemur inn á Sogaveg
að dregur til tíðinda. Þar hafa íbúar
við þá götu svo og foreldrafélag
Breiöagerðisskóla látið í sér heyra.
Þar eins og annars staðar eru það
börnin og umferðin sem komu fólki
af stað.
Undanfarið hefur verið deilt um
fyrirtæki sem átti að staðsetja við
Sogaveginn. Ibúarnir sem hafa beitt
sér gegn ákvörðunum skipulags-
yfirvalda telja að fyrirtækin dragi
að sér aukna umferð, sem þeim
finnst nóg af fyrir.
Að hugsa fyrir horn
Eygló Stefánsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, formaður foreldrafélags
Breiðagerðisskóla, sagði að þau í
félaginu hefðu mikið rætt um
umferðarmálin því þeim fyndist
vera í sínum verkahring að reyna að
tryggja að börnin kæmust í og úr
skólanum án þess að vera í lífs-
hættu. Þau hefðu látið telja umferð
um vissar götur í hverfinu og það
væri augljóst að mjög margir styttu
sér leið gegnum hverfið á leiðinni
upp í Breiðholt, oft á miklum
hraða. Hún sagði að erindum þeirra
hefði verið tekið af heldur litlum
skilningi yfirvalda, þau óttuðust að
búast mætti við enn meiri umferð
þegar nýi miðbærinn kæmist í
gagnið, því það væri eins og menn
hugsuðu aldrei fyrir horn, og því
þyrfti að vera að glíma við afleið-
ingar fyrirhyggjuleysisins löngu
síðar.
Þá er bara Breiðholt III eftir
(Árbærinn verður að bíða að sinni).
Þar starfar Framfarafélag sem
hefur látið mörg mál til sín taka.
Þar má nefna þrengingar á götum
þar sem börn eiga leið um, en Sam-
tökin voru upphaflega stofnuð út
af íþróttamálum hverfisins. Breið-
holtið hefur þá sérstöðu að það hef-
ur verið að byggjast (eins ög
Árbæjarhverfið) upp og því hafa
menn lagt áherslu á að ýta á eftir
framkvæmdum. Þar vantar heilsu-
gæslustöðvar, pósthús, lögreglu-
stöð o.fl.
Opin svæði eru óskipulögð enn-
þá, gangstéttar vantar, gras í
umferðareyjar og þannig mætti
lengi telja. Gísli Sváfnisson -
kennari, formaður Framfarafélags-
ins sagði að eitt af því sem félagið
hygðist beita sér fyrir á næstunni
væri að flýta því að bókasafn yrði
opnað í félagsmiðstöðinni Gerðu-
bergi, en þar stendur mikið hús-
næði autt og býður eftir innrétting-
um og bókum.
Niðurstaða af yfirreið Helgar-
póstsins um Reykjavík og fjölda
samtala við fólk sem tekið hefur
þátt í starfi íbúa- og foreldrafélaga
er sú að umferðarmálin eru Iang-
samlega efst á baugi. Eins og einn
viðmælenda orðaði það, hefur orð-
ið hugarfarsbreyting, fólk vill vera
öruggt um börnin sín.
Um samskipti borgaryfirvalda
og íbúasamtakanna bar öllum sam-
an um að þau færu batnandi. Það
hefði oft borið við að bréfum væri
ekki svarað, og ekkert tillit verið
tekið til skoðana íbúanna, nánast
engum breytingum hefði verið hægt
að koma í gegnum borgarkerfið.
Nú væri hins vegar hlustað og
borgarfulltrúar kæmu gjarnan á
fundi og ræddu málin, hvað sem
yrði svo af efndum.
Flestum bar saman um að allt of
fáir væru virkir í íbúasamtökunum.
Það væri einkum ef sérstök mál
kæmu upp að fólk léti til sín taka.
Einn íbúi Þingholtanna sagði að
það yrði ekki fyrr en íbúasamtök
fengju umsagnarrétt um áform og
tillögur borgarstjórnar að raun-
verulegt íbúalýðræði yrði að^veru
leika. Þá fyrst yrði tryggt að hlustað
væri á borgarbúa og tillit tekið til
vilja þeirra og skoðana.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Bílaleiga
VJ Ij I ul II Car rental
BORGARTÚNI 24 - 10S REYKJAVÍK. ICELAND - T£l. 11015
Leigjum út nýja Opel Kadett, Mazda 323 og Daihatsu-bíla.
Sækjumog sendum. Símsvari allan sólarhringinn, kredit-
kortaþjónusta.
FLJÓT OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
BÍLATORG
BORGARTÚNI 24
(HORNI NÓATÚNS)
SÍMI13630
500 m2 sýningarsalur.
Ekkert innigjald.
Malbikaö útisvæöi.
Bónstöö á staönum.
Hreyfill
Flugþjónusta
Ert þú á leið til útlanda?
Kynntu þér þá nýju
ferðamannaþjónustu Hreyfils í síma 85522.
Hún eykur þægindi og sparar tíma.
Góða ferð.
Hreyfill sími 85522
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^N
cc
Ævintýrafero
á ótrúlegu verði
Brottför 27. ágúst
Gisting á Hótel Montpamasse Park
Vero:
í tvíbýti
í einbýli
4 dagar 6 dagar 8dagar
10.800 12.100 14.400
11.900 13.600 16.400
Inmfalið: Flug Keflavik-Paris og Luxemborg-Keflavik.
Akstur frá Oriy flugvelli að hóteli við komu.
Lestarferð milli Parísar og Luxemborgar.
Skoðunarferð um París og auk þess skoðunarferð um
Versali í 8 daga ferð.
Bom 2-11 ára fá kr. 3.500 í afslátt
URVAL
vio Austurvöll @26900
Umbo&smenn um allt land