Helgarpósturinn - 18.08.1983, Side 16
Fyrir nokkrum árum þótti ekki við
hæfi að stelpur væru í fótbolta. -
Manni datt það ekki einu sinni í hug.
Strákarnir voru í fótbolta en við stelp-
urnar fórum bara í snú snú eða teygju-
tvist - og að sjálfsögðu voru strák-
arnir ekki með í því. - En nú er önnur
tíö. (Púff!! Sem betur fer). Stuðaran-
um þótti ekki úr vegi að spjalla við
stelpu úr einu besta fótboltaliðinu,
Breiðabliki, og spyrja hana spjörunum
úr. Margrét Sigurðardóttir heitir hún,
alveg að verða 18 ára, og spilar oftast
vinstri bakvörð, var alveg til í Stuðara-
viðtal á sunnudaginn var. Þetta var
ekkert venjulegur sunnudagur því
stelpurnar höfðu orðið bikarmeistarar
þann daginn.
„Spilaði
fótbolta við strákana
í hverfinu
segir Mar-
grét Sigurð-
ardóttir
vinstri bak-
vörður í
Breiðabliki
og við eru bæði harðari líkamlega
og sterkari og yfirleitt stærri. Það
yrði svo mikill mismunur á okkur.“
— Hafiði þá ekki áhuga á því að
keppa á móti því?
„Ég held bara að það komi ekki
til greina"
Engir sauma-
klúbbar
— Pæliði mikið í fótboltanum?
„Jú, það er mikið spekúlerað í
fótbolta og íþróttum yfirhöfuð"
— Engir saumaklúbbar í gangi?
Þetta er greinilega fáránleg
spurning Jdví Margrét tryllist af
hlátri. „Eg sæi okkur í anda
prjónandi...“
— Hvað með kvenréttindamál-
in...?
„Jú við pælum i kvenréttinda-
málum á þessu sviði. Það er margt
sem þeir fá en við ekki. Það er t.d.
eftirtektin hjá fjölmiðlunum, en
eins og ég sagði þá er aðbúnaðurinn
hjá Breiðabliki góður. Önnur félög
hafa reyndar ekki eins góðan að-
búnað fyrir kvennaknattspyrnuna“
Um að gera að
drífa sig
— Hvað er mesta kikkið við fót-
boltann?
„Það er nú það. Að hlaupa alltaf
á eftir einhverri boltatuðru það er
von þú spyrjir Ætli það sé ekki
aðallega að vera í góðum hóp“
— Og svona í lokin.
— Hvað ráðleggurðu stelpu sem
hefur áhuga á fótbolta?
Að drífa sig á æfingu. Ég byrjaði
frekar seint að æfa en það er um að
gera að drífa sig“ segir Margrét að
lokum og ég þakka kærlega fyrir
spjallið.
Bæði fyrsta og
önnur deild
Ég byrjaði á að spyrja Margréti
hvenær áhugi hennar á knattspyrnu
hafi vaknað.
„Ég hef alltaf haft gaman af
knattspyrnu. Ég spilaði fótbolta við
strákana í hverfinu. Það var stutt að
skreppa út á skólalóð og þar voru
allir i fótbolta"
— En hvenær byrjaði Breiðablik
með kvennaknattspyrnuna? (Eins
og það heitir á fagmálinu.)
„Það er nú langt síðan, alltaf 10
ár held ég. í fyrstu var hörgull á
kvenfólki. Þegar ég hóf æfingar
fyrir fjórum sumrum voru bara
þrjú lið sem kepptu og kvenna-
knattspyrnan datt niður á tímabili.
En síðustu tvö-þrjú ár hafa margar
stelpur bæst við í hópinn og nú er
bæði fyrsta og önnur deild.“
Sjónvarpið að
kippa við sér
— Maður hefur ekki mikið heyrt af
kvennaknattspyrnunni?
„Nei, það hefur frekar lítið frést
af henni. Sjónvarpið hefur t.d. ekki
verið nógu duglegt við að sýna
myndir frá henni. Það er helst að
það hafi greint frá úrslitum. Það er
kannski núna fyrst að sjónvarpið
virðist vera að kippa við sér. I
Breiðabliki er mikið stuðlað að
kvennafótboltanum, örugglega
vegna þess hve vel hefur gengið hjá
okkur. í dag var t.d. úrslitaleikur
bikarmótsins við Akranes sem við
unnum 3-1. Nu, svo er íslandsmótið
í gangi. Síðustu leikirnir verða í
september. Við erum efstar núna en
eigum eftir að keppa við K.R. og
Víði“
— Eru ekki strangar æfingar hjá
ykkur?
„Ja, það eru æfingar þrisvar í
viku. Æfingar hefjast í janúar og þá
á þrekæfingum. í apríl og maí hefj-
ast snerpuæfingar og á sumrin eru
svo blandaðar æfingar og svo auð-
vitað bolta- og spilaæfingar.11
— Hver æfir ykkur?
„Róbert Jónsson heitir hann“
— Eruði ekki alveg búnar eftir
æfingarnar?
„Nei, nei, ekki þegar maður er í
þjálfun. Þetta kemst upp í vanaí*
Framtíðin
óákveðin
— Það kemst kannski ekki meira
að hjá þér en fótboltinn?
„A,m.k. ekki á sumrin" segir
Margrét sannfærandi.
— En hvernig er með skólamálin
hjá þér?
„Eg fer í vetur í Ármúlaskóla í
uppeldisbraut. Ég var í Víghóla-
skóla í vetur“
— Hvaða möguleika gefur upp-
eldisbraut?
„Hún gefur möguleika til fóstru-
-náms eða þroskaþjálfanáms. Ég var
að spá í fóstruna en núna er ég mjög
óákveðin í hvað ég geri“
— Við hvað vinnurðu?
„Ég vinn á leikvelli við Efsta-
hjalla"
— Þú hefur sem sagt gaman af
börnum?
„Jú annars væri ég sjálfsagt ekki
að þessu. Það er mjög gaman að
vinna á leikvellinum"
Strákarnir
harðari,sterkari
og stærri...
—En vindum okkur aftur að
Breiðabliki
— Eruði allar úr Kópavoginum?
„Já flestar erum við það. Ein-
hverjar eru reyndar fluttar til
Reykjavíkur en flestar eru a.m.k.
upprunnar úr Kópavoginum."
— Og haldiði hópinn utan
æfinga?
„Já, já, við hittumst og förum
saman á böll. Oft förum við í
Hollywood og svona eitthvað að
djamma eins og gerist og gengurí*
— Keppiði aldrei við strákana?
„Nei, við keppum aldrei við þá,
en kvennalandsliðið spilar æfingar-
leiki við þá“
— Er mikill munur á ykkur?
„Já, það er kannski jafnvægi á
milli stráka úr 3. flokki og okkar en
það er alveg aðgreint á milli stráka
og stelpna því strákar á sama aldri
—Póstur og sími
KISS aðdáandi hafði samband við Stuðarann og vildi bæta því við i fram-
haldi á lesendabréfi sem birtist i síðasta blaði að það ætti að fá KISS
á Listahátíð. KISS væri alveg frábær hljómsveit og margir aðjjáendur
hennar hér á landi.
Stuðarinn kemur þessu hér með á framfæri.