Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 2

Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 2
fREJTAPOSlUR Sjómannasamningar felldir — verkfall áfram Sjómenn felldu nýgerða kjarasamninga með miklum meirihluta atkvæða, laust fyrir miðnætti á miðvikudags- j kvöld. Verkfall hefur því tekið gildi á ný. Óvíst er um fram- hald samningaviðræðna. Mikill urgur er í sjómönnum. Þeir I eru fyrst og fremst óánægðir með lítinn árangur við lækkun ' kostnaðarhlutdeildar og benda á, að sú 2% lækkun sem , samið var um, skili aðeins 0,52% beint til sjómanna. Mjög I hefur einnig verið gagnrýnt á fundum sjómanna úthlaup yf- irmanna úr samfylkingunni og segjast sjómenn hafa verið 1 illa sviknir. Framhaldsskólakerfið lamað | Kennarar sem höfðu sagt starfi sínu lausu frá og með 1. mars gengu út þann sama dag, og hefur framhaldsskóla- | kerfið verið meira og minna lamað síðan. Nemendur hafa * lýst yfir einhuga stuðningi við kennara sina í þessari kjara- i deilu. Lítið miðar í samkomulagsátt milli samninganefndar I rikisins og launamálaráðs BHM. Að áliti fulltrúa síðar- . nefndra felur tilboð samninganefndar ríkisins í sér launa- J lækkun fyrir suma hópa vegna útfærslu nefndarinnar á röðun í launaflokka. Launamálaráð BHM heldur fast við i kröfu sína um leiðréttingu launa til jafns við starfsmenn I með sömu menntun á almennum markaði. Langstærsta Norðurlandaráðsþing til þessa I Síðastliðinn mánudag var 33. þing Norðurlandaráðs sett í Þjóðleikhúsinu sem jafnframt er þingstaður. Þetta er lang- | stærsta þing ráðsins til þessa, og munu þátttakendur vera um 730 manns, þar af 200 blaðamenn, sem hafa aldrei verið j svo margir áður. Norræn framkvæmdaáætlun um efna- hagsþróun og fulla atvinnu er talin stærsta mál Norður- i landaráðs að þessu sinni. 1 Kratar með næstmest fylgi t Alþýðuflokkurinn hefur nú næstmest fylgi íslenskra • stjórnmálaflokka, kemur næstur á eftir Sjálfstæðisflokkn- . um, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Hagvangur hf. j hefur látið gera á fylgi stjórnmálaflokkanna. Ef miðað er við síðustu könnun Hagvangs, sem gerð var í september og j október á síðasta ári, hefur Alþýðuflokkurinn aukið fylgi 1 sitt úr 7,0% í 20,5% og Kvennalisti hefur aukið fylgi sitt úr I 8,9% frá síðustu Hagvangskönnun í 11,2% nú. Samkvæmt I könnuninni hefur Sjálfstæðisflokkur nú 40,4% fylgi kjós- , enda en var með 45,7% í síðustu könnun Hagvangs. ( Ummæli formanns Alþýðuflokksins vekja athygli i Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar, formanns Al- l þýðuflokksins í óbirtri blaðagrein (birtist í DV í dag, fimmtudag) um stefnu sósíaldemókratískra flokka á Norð- | urlöndum í varnar- og öryggismálum hafa vakið mikla at- hygli í Skandinavíu. M.a. hefur Jón Baldvin líkt Finnlandi | við norrænt Afganistan, sagt Eystrasalt fullt af sovéskum kafbátum hlöðnum kjarnorkusprengjum og þeir séu einnig i í sænskri landhelgi, en sænski utanríkisráðherrann I þættist hvorki sjá þetta né heyra. Það hefur ennfremur vakið athygli að formaður Alþýðuflokksins kom í veg fyrir | að Anker Jorgensen, fyrrv. forsætisráðherra Danmerkur, mætti sem aðalræðumaður á fundi um kjarnorkulaust I ísland sem haldinn var í Reykjavík sl. helgi. Þá afþakkaði Kalevi Sorsa, forsætisráðherra Finnlands og formaður I finnska jafnaðarmannaflokksins, kvöldverðarboð • Alþýðuflokksins fyrir norræna jafnaðarmenn sl. ■ þriðjudagskvöld. I Fréttapunktar: • Forráðamenn og einn blaðamaður Helgarpóstsins hafa verið kærðir af Almennu fasteignasölunni fyrir æru- j meiðandi ummæli í greinum um fasteignasölur sem birtust • í 7. og 8. tölublaði HP á þessu ári. • Hækkun landbúnaðarafurða tók gildi í vikunni. Kinda- | kjöt hækkaðium 5,5% en mjólkurvörur á bilinu 7,2—9,4%. Mjólkurlítrinn kostar því nú 28,60 kr. I • Rektorsprófkjör við Háskólann fór fram í vikunni. Mjótt • var á mununum, Páll Skúlason prófessor hlaut 30,6% at- , kvæða en Sigmundur Quðbjarnason prófessor hlaut 30,5% | • Klofningur varð í samstarfsnefnd kvenna um sameigin- legan fund í Háskólabíói á alþjóðlegum baráttudegi kvenna I 8. mars. í stað eins fundar verða þvi haldnir tveir. • Meirihluti útvarpsráðs samþykkti að gera gangskör að j því að fá til sýninga einhvern af amerísku skemmtiþáttun- ' um Dallas, Dynasty eða Falcon Crest. Sýningarrétturinn er • hins vegar í höndum annarra aðila á íslandi. 1 • PVrsta útsending staðbundins útvarps á Akureyri hófst , kl. 7:30 síðastliðinn laugardag. • Óvart voru höfð skipti á nýfæddum börnum á fæðingar- deild Landspítalans, og var móðir send heim með „vitlaust" | barn. Misskilningurinn fékkst þó leiðréttur. • Kaffibaunamálið er nú komið til Rannsóknarlögreglunn- I ar, sem hefur fengið fyrirmæli frá ríkissaksóknara um að I hefja opinbera rannsókn á málinu. , • Ljóst er að skuttogarinn Kolbeinsey frá Húsavik fer á | uppboð. Menn velta nú fyrir sér hvaða þýðingu það muni hafa á atvinnulífið á staðnum. • Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru afhent síð- astliðið miðvikudagskvöld í Háskólabíói. Finnski skáld- I 8agnahöfundurinnAnttiTuurihlautþauaðþessusinnifyr- • ir skáldsöguna Pohjannaa. , • Greenpeace-samtökin hafa lagt fram tillögur til Norður- | landanna í 6 liðum um umhverfisvernd i tilefni Norður- landaráðsþingsins. Tillögurnar varða losun úrgangsefna og | geislavirkra efna í hafið, hvalveiðibannið og áformin um ol- ' íuflutninga frá Jamesonland á Austur-Grænlandi. • Sjálfsbjörg, Landssamband fatlaðra, efndi síðastliðinn ' sunnudag til hjólastólaralls að viðstöddu fjölmenni. Sigur- i vegari varð Jón Ragnarsson rallökumaður. | • Búnaðarþingi lauk á sunriudag. Fjallað var um 49 mál, 45 voru afgreidd. [ Andlát ’ Guðmundur Jónasson bifreiðastjóri og sérhleyfishafi er * látinn, 75 ára að aldri. | 2 HELGARPÓSTURINN Topparnir í verkamannalöns ★ Sambandið var að opna glæsilega aðstöðu fyrir starfs- menn sína í Sundahöfn þar sem þeir geta matast í hádegi og þvegið sér vel og rækilega að afloknum vinnudegi. Þetta er enginn venjulegur kaffiskúr, heldur einhver fullkomnasta aðstaða sem sköpuð hefur ver- ið fyrir verkamenn að verja pás- um sínum í á Íslandi, og jafnvel á öllum Norðurlöndum, að minnsta kosti var svo að heyra á mönnum við opnun þessa skýlis á þriðjudaginn. Margir helstu forkólfar Sambandsins mættu á staðinn upp úr hádegi og fengu sér að snæða með verkamönnum sínum, auk þess sem einstaka verkalýðs- frömuður lét sjá sig. Á mynd- unum sem hér fylgja sjáum við þá Axel Gíslason aðstoðarfor- stjóra SÍS og Guðmund J. Guðmundsson fyrrverandi verkamann, búna að næla sér í löns.. .☆ BRENNSLUOFNAR Ofnar og hitatæki fyrir rann- sóknarstofur og skóla. Smelti- ofnar og leirofnar. Einnig gas- ofnar fyrir iðnað. HABO SÍMI 26550 Hárgreiðslu- og rakarastofa á heimsmælikvarða! ARISTdKKATlNN Síðumúla 23. Tímapantanir sími 687960.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.