Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 4
Valur og flugið
★Valur Arnþórsson er ekki
minnstur áhrifamanna innan
Sambandsins. Hann er stjórnar-
formaður þess og stýrir svo
stærsta kaupfélagi á landinu,
Kaupfélagi Eyfirðinga á Akur-
eyri (sem mun vera skammstaf-
að KEA). Meðal annars af þess-
um sökum þarf Valur að ferðast
oft í mánuði milli Byggðavegar-
ins í höfuðstað Norðurlands
(þar sem hann býr á númer
118) og Sölvhólsgötu fjögur í
Reykjavík (þar sem höfuðstöðv-
ar SÍS eru).
Nú skyldu menn ætla að Val-
ur nýtti sér farkosti Flugleiða í
þessum skottúrum sínum, en
það fyrirtæki heldur uppi, sem
menn vita, mörgum áætlunar-
ferðum milli þessara staða á
dag. En raunin er aldeilis önnur.
Þar kemur til sögunnar forkunn-
arlipur rella sem Kennedy-bræð-
ur á Akureyri eiga og reka, en
sú er níu manna. Flugstjóri
hennar er Húnn Snædal, vel
þekktur ævintýramaður úr ís-
lenskri flugsögu. Alla jafna er
vél þessi í ferðum fyrir Bílaleigu
Akureyrar sem Kennedy-bræður
reka og hafa gert að þeirri lang-
stærstu hérlendis, en vel að
merkja, inn á milli þeirra verk-
efna, skýtur hún kaupfélags-
stjóranum og stjórnarformanni
SÍS milli höfuðstaðanna. í þeim
tilvikum er Valur alltaf eini far-
þeginn og því nægt plássið fyr-
ir hann að rétta úr löppunum.
Ferðir Húns og Vals vilja oft
verða margar í hverri viku enda
er kaupfélagsstjórinn maður
heimakær og vill komast norður
milli sunnanfunda. Til að
mynda þurfti hann að skreppa
á fund I Sölvhólsgötunni fyrir
skemmstu og reyndar annan
fund í sama húsi næsta dag. i
millitíðinni var hinsvegar frímúr-
arafundur fyrir norðan og þar
vildi Valur ekki láta sig vanta,
þannig að á tveimur dögum
flugu Valur og Húnn fjórum
sinnum á milli. Þetta ku ekki
vera einsdæmi í viðskiptum
kaupfélagsstjórans við Kenne-
dy-bræður og getur því hver
ímyndað sér hversu myndarleg-
ur reikningurinn er sem SÍS
þarf að gera upp við þá í hverj-
um mánuði, að ekki sé nú talað
um ársgrundvöllinn góða. ☆
-k Kollegarnir Helgi Skúlason
og Borgar Garðarsson hlýða
hér á gamansögur Sigurðar A.
Magnússonar rithöfundar af
Grikklandsferðum fyrr og nú.
Myndin er tekin í þann mund
þegar þessir menn
• annað hundrað
til viðbótar var
að stofna Grikklandsvinafélag í
næstliðinni viku uppi í risi á
Hverfisgötu 105. Sigurður var
einmitt kosinn formaður þessa
félagsskapar sem hyggst í fram-
tíðinni rækta samstarf á sviði
menningar og lista milli Grikkja
PIZZA
HtJSIÐ
Grensásvegi 7 - Sími 38833
þú hrinmr áundan....
OG PIZZAN Ék TILBÚIN ÞEGAR ÞÚ KEMUR
39933
Viljir þú taka með þér ilmandi pizzu heim, þá nægir að hringja
í Pizzahúsið í síma 39933 og velja um þær tegundir sem
við höfum á matseðli okkar. Við lögum síðan pizzuna
eftir þínum óskum, og hún verður tilbúin
þegar þú kemur. Nýjung til hagrœðingar!
3?
Sólbaðsstofan
Borgartúni 29,
Áróra
sfmi 621320.
Minnsta B geislun í góðum bekkjum.
Ávallt góðar perur . M ,
Hjá okkur þarf ekki að panta tíma.
Góðar sturtur og eim gufubað
Líkams-
Hinar geysivinsælu
teygjuæfingar byrjuðu
aftur í janúar.
Komdu þér í gott
form fyrir vorið.
Góðar sturtur og
eimgufubað.
Komið ykkur í form
fyrir sumarið.
Notið veturinn
til að æfa.
Æfingaform við
allra hæfi.
Nuddari á
staðnum alla daga.
Alltaf heittá
könnunni.
öllu má ofgera
en það er sannað
mál að
hæfilegur
skammtur
af Ijósum
gerir
öllum
gott.
Gefum
okkur sjálfum
tíma og lífgum
i upp á útlitið.
Rekum
burt streitu og
stress í góð-
um bekkjum
með nýjum
\ og viður-
% kenndum
| perum.
lx'
og
heilsuræktin
Borgartúni 29, simi 28449
Jæjar
þá eru það aukakílóin.
Þau hverfa ótrúlega fljótt
með góðri líkamsþjálfun.
Hjá okkur eru öll tæki
sem til þarf og ávallt
leiðbeinandi ástaðnum.
4 HELGARPÓSTURINN