Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 10

Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 10
HP HO-GARPÓSTURINN Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Blaðamenn: Jóhanna Sveinsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Halldór Halldórsson og Edda Andrésdóttir Útlit: Elln Edda Ljósmyndir: Jim Smart Handrit og prófarkir: Magnea Matthíasdóttir Útgefandi: Goðgá h/f Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson Auglýsingar: Steinþór Ólafsson Innheimta: Garðar Jensson Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík, sími 8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36. Sími 8-15-11 Setning og umbrot: Leturval s/f Prentun: Blaðaprent h/f Dularfullu mannshvörfin Ekki ósjaldan heyrum við fréttir af mönnum hérlendis sem hafa týnst — eru horfnir af yfirborði jarðar. Viðkomandi er síðan lýst og hvernig hann var klæddur þegar síðast sást til hans. Oft kemur þetta fólk í leit- irnar, stundum heilt á húfi, en stundum finnast lík þess þótt ekki liggi harmsagan alltaf Ijós fyrir. En það kemur einnig fyrir að horfið fólk kemur aldrei fram á sjónarsviðið á ný, hvorki lífs né liðið. Það eru þeir islendingar sem hverfa sporlaust. Á undan- förnum 40 árum hafa 22 menn horfið á þennan hátt og er þá átt við starfssvæði Rannsókn- arlögreglu ríkisins í Reykjanes- umdæmi. Sé talað um allt land- ið er talan enn hærri. I dag fjallar Helgarpósturinn um horfna Íslendinga og leitast við að finna skýringar á hvarfi þeirra og greinir jafnframt frá viðbrögðum og möguleikum hins opinbera við leit að horfn- um mönnum og hvernig kerfið afgreiðir hina týndu. Lög frá ár- inu 1981 kveða á um horfinn mann, að hann teljist látinn þegar þrjú ár eru liðin frá hvarfi hans. Látið er ákveðið með dómi en á undan hefur farið opinber stefna sem gefin hefur verið út og borin upp við hér- aðsdómara eða borgardómara í Reykjavík. Stefnan hafi verið birt I Lögbirtingablaðinu. Um afdrif þessara sporlaust horfnu manna er að sjálfsögðu ekkert vitað. Var hér um slys að ræða? Eða sjálfsvíg? Eða skipu- lagt eða tilviljunarkennt morð? I Helgarpóstinum er fjallað ítar- lega um alla þessa möguleika og leitað svara hjá þeim emb- ættismönnum lögreglunnar sem með þessi mál fara. Þegar viðkomandi maður hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla leit, bregða ættingjar, skyldmenni eða vinir hins horfna oft á það ráð að leita til einstaklinga sem sagðir eru búa yfir dulargáfum. Draumspár eru ekki óalgengar í þessum tilvikum þótt sjaldan hafi þær leitt til þess að hinn horfni hafi fundist. En að sjálf- sögðu er örvæntingarfullur að- standandi reiðubúinn að reyna allt þegar ástvinur hverfur spor- laust af yfirborði jarðar. Ýmsar spurningar vakna varðandi afgreiðslu þessara mála hérlendis. Eru hvörfin til- kynnt nógu snemma? Er leitin nógu vel skipulögð? Er lögregl- an nógu vel mönnuð og þjálfuð til að fylgja mannshvörfum eft- ir? Og erum við of fljót að stimpla hina horfnu sem látna? LAUSN Á SPILAÞRAUT LEIÐRÉTTING Valur varó fimmtugur í síðasta tölublaði HP birtist lítil fréttaklausa um Val Arnþórsson, kaupfélagsstjóra KEIA. Var þar sagt frá myndarlegri afmælisgjöf til Vals sem sagður var eiga sextugsafmæli þann 1. mars. Blaðamanni óx þarna greinilega í augum virðuleiki og þroski kaupfélagsstjórans um tíu ár. Valur varð nefnilega fimmtugur um- ræddan dag. Er Valur beðinn vel- virðingar á þessum aukaárum sem bætt var á hann að ástæðulausu. -Ritstj. a) Vestur á að láta hjartaníuna. Vinni norður, þá skapast tvær inn- komur sem vestur vantar til þess að hirða trompin. Þetta mistekst aðeins ef norður á einspil í tígli og hjarta. b) Enn á vestur að spila níunni og er nú 100% öruggur að vinna spilið, þar sem hann á tvær hjarta- innkomur til þess að svína spaðan- um og getur kastað tíguldrottning- unni í fimmta hjartað. lezzoforte er á góðri leið með að slá í gegn í Evrópu með nýju lagi — sem er sungið! Er það reynd- ar gamalt lag þeirra félaga sem heitir „Taking Off" og hafa þeir fengið blökkumanninn Chris Cameron (Hot Chocolade) í slagtog með sér og syngur hann texta við undirleik Mezzoforte. Lagið hefur þegar vak- ið athygli víða í Evrópu og kemur það út á sérstakri, lítilli plötu í Bret- landi síðar í mánuðinum og gera þeir Mezzoforte-menn sér miklar vonir um að sú plata þjóti upp vin- sældalistann. .. urlandaráðsþingi: Sænskur fulltrúi segir við norskan fulltrúa: ,,Ár det riktig att den islándska statminist- ern Hermannsson inte ár ved fulla fem?" Sá norski svarar: „Nej, han er ved halve fem" — og réttir upp höndina og beygir alla fingurna til hálfs... V Þ ennan heyrðum við á Norð- mir okkar á NT gáfu út myndarlegt aukablað um daginn sem fjallaði um hús og byggingar- mál. Var aukablaðið prentað í hvorki meira né minna en 60 þús- und eintökum. Eftir prentun var öll- um bunkanum ekið niður á Póst og síma því senda átti aukablöðin með póstinum. En þá kom babb í bátinn, pósturinn neitaði einfaldlega að taka við blöðum sem ekki væru brotin í tvennt. Nú þurftu NT-menn að keyra allan bunkann á nýjan leik upp í Blaðaprent þar sem blaðið var prentað og brjóta 60 þúsund eintök í tvennt. Og síðan aftur niður á póst. En þá var kominn nýr dagur og dreifingin því með höppum og glöppum. Þetta ævintýri mun hafa kostað NT um 400 þúsund krónur. En ekki gáfust þeir upp og næstu helgi gáfu þeir út annað aukablað um sams konar efni en áttuðu sig í tæka tíð og brutu blaðið í Blaða- prenti áður en það fór í póstinn. Hins vegar munu fjármálamenn blaðsins hafa velt nokkuð mikið vöngum yfir þessu dæmi og spurt sjálfa sig og aðra hvort útgáfan laun- aði sig... V<# -ríamwmcL Tryggvagötu 22 SfffilKT HÁRSNYRTISTOFA SmmíT Nýbýlavegi 22 Sími: 46422 - Kópavogi - srmniT Veitum alla hársnyrtiþjónustu DÖMU-, HERRA- OG BARNAKLIPPINGAR DÖMU- OG HERRA PERMANENT LITANIR - STRÍPULITANIR - NÆRINGARKÚRAR NÆG BÍLASTÆÐI 10 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.