Helgarpósturinn - 07.03.1985, Side 12
krataleiðtogar:
Hvað
finnst
þeim
um Jón
Baldvin?
eftir ómar Friðriksson
Hinn nýi formaður Alþýöuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, hef-
ur undanfariö haldið fram skoðunum í utanríkis- og öryggismálum sem
virðast að mörgu leyti stangast á viö sameiginlega afstööu annarra nor-
rænna jafnaöarmannaflokka, s.s. meö andstööu sinni viö þá stefnu sem
jafnaðarmenn á Norðurlöndum hafa mótað um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd. Ýmsum atvikum hefur skotið upp í blöðum sem bera með
sér ágreining Jóns Baldvins og koilega hans á Norðurlöndum, s.s. við
Anker Jorgensen, formann danskra jafnaðarmanna. Nú síöast hafa um-
mæli Jóns í grein sem birtist í dag í dagblöðum vakið mikla athygli víða
á Norðurlöndum. Helgarpósturinn leitaöi álits forystumanna og ann-
arra talsmanna jafnaðarmannaflokkanna í Noregi, Danmörku, Svíþjóð
og Finnlandi á hinum nýja forystumanni íslenskra krata og afstööu
hans til utanríkis- og öryggismála.
Anker Jorgensen:
Tel ad Alþýdu-
flokkurínn hafi
adra skodun en
Jón Baldvin
Erkki Liikanen:
Jón Baldvin
átelur sjónarmid
annarra þvert á
grónar hefdir
Anker Jergensen, hinn gamaireyndi for-
ystumaður danskra jafnaðarmanna, tók þá
afstöðu í síðustu viku að koma ekki á stofn-
fund samtaka um kjarnorkuvopnalaust ís-
land á Hótel Borg sl. sunnudag vegna mót-
mæla og gagnrýni af Alþýðuflokksins hálfu
um að það væri í hans óþökk og afskiptasemi
af íslenskum málum. Hann kvaðst ekki vilja
valda deilum hér á landi og samkvæmt
fregnum fjölmiðla andar kalt í milli hans og
formanns Alþýðuflokksins um þessar mund-
ir. í samtali við Helgarpóstinn sagði hann sig
og sinn flokk ekki hafa neina sérstaka skoð-
un á Jóni persónulega sem formanni ís-
lenskra jafnaðarmanna:
„Við höfum hinsvegar skoðun á málefnum,
allra Norðurlandanna og á kjarnorkuvopna-
lausu svæði og við erum því hlynntir. Jafnað-
armannaflokkar allra landanna hafa komið
saman og gert samþykkt um að vinna að því
að halda ráðstefnu í Kaupmannahöfn 27. og
28. október á þessu ári. Þar munu þingmenn
jafnaðarmannaflokkanna koma saman."
— Telurðu að afstaða Jóns Baldvins til
hugmyndarinnar um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd hafi skaövænleg áhrif á
samstarf flokkanna um þetta mál?
„Nei, ég tel, fram að þessu, að Alþýðu-
flokkurinn á íslandi muni einnig taka já-
kvæða afstöðu til þessa, en það verður að
vera hans mál en ekki mitt, því ég er sann-
færður um að skoðun Jóns á þessu máli sé
aðeins hans sjónarmið en ég tel að flokkur-
inn hafi aðra skoðun. Jafnaðarmenn í Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru án
nokkurs vafa hlynntir kjarnorkuvopnalaus-
um Norðurlöndum og við munum vinna að
því rnáli."
— Jón Baldvin hefur lýst því yfir að
hann fylgi sömu stefnu og fyrirrennarar
hans...
„Já, þessa hluti þarf að ræða í góðu tómi
og smáatriðum. Hann getur auðvitað sagt
þetta, en það er enginn vafi á að ég hef unnið
að hugmyndinni um kjarnorkuvopnalaust
svæði í mörg ár, einnig á meðan ég var for-
sætisráðherra, en hann veit ekki mikið um
það."
Erkki Liikanen er aðalritari finnska jafn-
aðarmannaflokksins og formaður utanríkis-
málanefndar finnska þingsins. Hann sagði
það vera ríkjandi reglu í norrænu samstarfi
að hvert land og flokkar virði þá almennu
línu sem flokkar annarra landa draga í ör-
yggismálum.
„Við gagnrýnum ekki meginsjónarmið
annarra landa," sagði Erkki Liikanen. „Þessa
stundina virðist þó mega ráða af
yfirlýsingum Jóns Baldvins Hannibalssonar
að þessi hefð sé að einhverju leyti fyrir borð
borin. Það er því best að hann sjálfur skýri
hvað hann á við. Við reynum hinsvegar að
haga störfum okkar þannig að við virðum
hvern annan og pólitísk sjónarmið flokka
annarra landa og látum þá sjálfa um að
ákveða sín mál. Þessar yfirlýsingar eru af
öðrum toga spunnar."
Erkki Liikanen var þá spurður um álit á af-
stöðu Jóns Baldvins til hugmyndar jafnaðar-
manna um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum. Hvort hún gangi þvert á
stefnu hinna flokkanna?
„Já, hann virðist hafa nokkuð aðrar skoð-
anir en ég gagnrýni hann ekki fyrir það, því
það er hans skoðun, en vandamálið er það,
að samkvæmt áliti annarra er
kjarnorkuvopnalaust svæði í þágu
hagsmuna allra Norðurlandanna," sagði
hann og taldi það markast af sjónarmiði
hvers lands um hvað hentaði best þess eigin
öryggisstefnu. „Við áteljum ekki sjónarmið
annarra eins og Jón Baldvin Hannibalsson
gerir."
— Kalevi Sorsa, forsætisráðherra
Finnlands og formaður finnska
jafnadarmannaflokksins, vildi ekki taka
þátt í kvöidverðarboði Jóns Baldvins
hér um kvöldið vegna ummæla Jóns um
„finnlandíseringu" og meint pólitískt
ósjálfstæði Finna. Hver er skoðun þín á
því?
„Eg skil afstöðu Sorsa vegna þess að við
erum ekki vanir svona yfirlýsingum í nor-
rænu samstarfi, en mér skilst þó að Jón Bald-
vin hafi sagt í gær að hann sé annarrar skoð-
unar núna. Ef rétt er, gleður það mig," sagði
Liikanen að lokum.
Talsmenn sænskra jafnaðarmanna:
Fordast ad taka afstödu til ummæla Jóns Baldvins
Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar og
formaður sænskra jafnaðarmanna og Lenn-
art Bodström utanríkisráðherra fóru af
Norðurlandaráðsþinginu til síns heima fyrir
tveimur dögum og Helgarpóstinum tókst
ekki að fá aðra talsmenn sænskra krata til að
segja álit sitt á skoðunum nýs*formanns jafn-
aðarmanna á íslandi.
Svante Lundkvist ráðherra í stjórn Palme
um norræna samvinnu kvaðst hafa heyrt um
skoðanir Jóns Baldvins Hannibalssonar en
kvaðst ekki nægilega kunnugur málinu til að
láta uppi álit sitt á því. Gunnar Nilsson
þingmaður sænskra jafnaðarmanna forðað-
ist einnig að taka afstöðu til þess sem hann
hafði heyrt haft eftir hinum nýja formanni á
íslandi og taldi sig þess ekki umkominn að
svara því fyrir hönd sænskra jafnaðar-
manna. Fleiri sænskir þingmenn á þingi
Norðurlandaráðs tóku í sama streng. Jan O.
Karlsson sem er úr hópi aðstoðarmanna
Olofs Paime taldi útilokað að gera athuga-
semdir við skoðanir Jóns Baldvins Hanni-
balssonar í öryggismálum. „Hver flokkur
starfar innan síns lands og mótar sína örygg-
ismálastefnu. Við blöndum því ekki saman,"
sagði Jan O. Karlsson. Hann sagði ennfrem-
ur að Palme hefði skýrt sjónarmið Svía til ör-
yggismála á Norðurlöndum, m.a. hér á landi,
í desember sl. og afstaðan lægi því skýrt fyr-
ir. „Mér skilst að Erkki Liikanen, formaður
utanríkismálanefndar finnska þingsins, hafi
sagt álit sitt á ummælum Jóns Baldvins. Við
hinir ætlum ekki að segja neitt um það. Því
minna sem sagt er um þetta, því betra," sagði
hann, en skaut því inn að lokum að sem jafn-
aðarmaður væri hann að sjálfsögðu mjög
ánægður með uppgang íslenska jafnaðar-
mannaflokksins samkvæmt skoðanakönn-
unum uppá síðkastið.
Gro Harlem Brundtland:
Breyting ordid á
Islandi —
ekki hjá hinum
jafnadarmanna-
flokkunum
Gro Harlem Brundtland, formaður
norska Verkamannaflokksins, kvaðst að-
spurð um mat sitt á hinum nýja formanni jafn-
aðarmanna á íslandi, Jóni Baldvini
Hannibalssyni formanni Alþýðuflokksins,
aldrei vilja ræða um persónuleg einkenni
annarra stjórnmálamanna. Hún vildi heldur
ekki leggja mat á þróun mála hjá hinum ís-
lenska jafnaðarmannaflokki, eða uppgang
hans meða) kjósenda undir nýrri forystu, ef
marka má skoðanakannanir.
Hún var þá spurð um álit sitt á öryggis-
málastefnu norrænna jafnaðarmannaflokka
í ljósi skoðana Jóns Baldvins, sem virtust
stangast á við stefnu þeirra, m.a. með and-
stöðu hans við hugmyndir um kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd.
„Það eina sem ég get sagt um þetta er að
norrænu jafnaðarmannaflokkarnir hafa
síðastliðin fjögur, fimm ár rætt um stefnu í
öryggismálum á sameiginlegum ráðstefnum
og um alþjóðleg málefni," sagði Gro Harlem
Brundtland. „Þar á meðal um hvaða grund-
völl skuli leggja að hugmyndinni um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. ís-
lenski jafnaðarmannaflokkurinn hefur átt
fulltrúa í þessum viðræðum og þeir hafa átt
hlut að þeim almennu niðurstöðum sem
samkomulag hefur orðið um milli allra flokk-
anna. Það hefur því ekki verið um neitt
ósamkomulag að ræða um grundvallaratriði
þessa máls. Það var því ný þróun sem birtist
gagnvart hinum jafnaðarmannaflokkunum
þegar hinn nýi formaður tók að halda fram
annarskonar sjónarmiðum en fyrirrennarar
hans höfðu gert.
Svona hlutir geta auðvitað gerst en við
höfðum þó ástæðu til að ætla að samskonar
hugmyndir væru hjá öllum flokkunum um
meginatriði þessa máls."
— Nú hefur Jón Baldvin haldið því
fram hér að hann hafi ekki breytt um
stefnu síns flokks í öryggismálum. Það
sé frekar spurning hvort hinir hafi
breytt sinni stefnu, og hann nefndi sér-
staklega hvort Anker Jorgensen, for-
maður danskra jafnaðarmanna, hefði
ekki e.t.v. breytt um sína stefnu...
„Það eru auðvitað margir þættir utanríkis-
mála sem hafa ekki verið ræddir á vettvangi
norrænu jafnaðarmannaflokkanna sameig-
inlega og ekki verið gerðar samþykktir um,
en það hefur verið gert varðandi kjarnorku-
vopnalaust svæði. A þingi sumarið 1982 var
fullkomin samstaða um þá stefnuskrá sem
þar var mótuð í þessu máli. ísiand var þar
með, svo mér virðist ljóst að ef á þá stefnu er
ekki Iengur litið sem stefnu íslenskra jafnað-
armanna þá hlýtur breytingin að hafa orðið
hér í íslenska flokknum, því þarna var um að
ræða stefnuskrá í þessu máli sem við öll sam-
þykktum. Við getum bara borið þetta saman
við stefnuskrána."
Gro Harlem Brundtland var að lokum
spurð hvort stefnubreyting íslenskra jafnað-
armanna í þessu máli ylli henni vonbrigðum.
„Nei, menn verða auðvitað að sætta sig
við þá staðreynd að fólk hefur mismunandi
skoðanir. Það er ekkert nýtt og við munum
halda samstarfi áfram, hver svo sem sjónar-
mið íslenska flokksins eru. Við munum
halda áfram að skiptast á skoðunum og þetta
mun ekki breyta afstöðu hinna Norðurland-
anna því við höfum rætt þetta í mörg ár og
höfum vel mótaða stefnu í málinu. Eg er hér
að tala um kjarnorkuvopnalaust svæði sem
hluta af samkomulagi austurs og vesturs,"
sagði Gro Harlem Brundtland og bætti því
við að slíkt samkomulag yrði að byggjast á
sameiginlegum viðmiðunum um jafnvægi.
„Þetta er ekki einhliða aðgerð, svo að ef ver-
ið er að gagnrýna stefnu sem er raunveru-
lega ekki stefna norskra, sænskra, danskra
eða finnskra jafnaðarmanna er auðvitað
hægt að koma af stað rangri umræðu sem
byggist á misskilningi. Ég hef það á tilfinn-
ingunni að þetta sé hluti skýringarinnar. Ég
veit ekki hvort Jón Baldvin hefur séð stefnu-
skrána frá 1982. Hann var ekki staddur þar
og tók því ekki þátt í umræðunum sem áttu
sér stað. Maður þarf auðvitað að setja sig inn
í svona umræður, en ég tel ekki að það muni
breyta sjónarmiðum innan hinna Norður-
landanna í málinu."
12 HELGARPÓSTURINN