Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 18

Helgarpósturinn - 07.03.1985, Page 18
LEIKLIST Systrauppgjör Alþýduleikhúsid sýnir Klassapíur eftir Caryl Churchill í þýöingu Hákons Leifssonar. Leikstjóri: Inga Bjarnason. Leikmynd og búningar: Gudrún Erla Geirs- dóttir. Lýsing: Árni Baldvinsson. Tónlist: Leifur Pórarinsson. Leikarar: Vorkonur Alþýduleikhússins. Breytt kynhlutverk kvenna og sú tog- streita sem því fylgir er enn einu sinni á dag- skrá hjá Alþýðuleikhúsi, nú í Nýlistasafninu. Pær vorkonur eru með fjandi gott handrit í höndunum, eftir breska konu, sem tekur fyr- ir viðkvæmustu mál kvennaumræðunnar í dag á mjög eftirminnilegan hátt. Mér þótti Petra von Kant á sínum tíma afskaplega á- hugavert verk og það kemur mér á óvart hversu líkar þær eru Petra og Margrét, aðal- persónan í Klassapíum. (Báðar hafa meikað það sem konur í karlaheimi.) Þó verður að viðurkenna, að Margrét og hennar vanga- veltur um stöðu sína og kynsystra sinna aft- an úr öldum jafnt sem í dag, er miklu mergj- aðri úttekt á þeim sálarlega klofningi sem felst í því að vera kona á framabraut. Enda má segja að Klassapíur fjalli meira um það hlutskipti kvenna, en Petra von Kant miklu frekar um þrá okkar allra eftir ást og viður- kenningu. Margrét býður heim til sín 5 konum aftan úr öldum í tilefni þess að hún hefur fengið framkvæmdastjórastöðu í atvinnumiðlun- inni sem hún vinnur í. Konurnar sem mæta til boðsins eru fyrir mér holdi teknar vanga- veltur Margrétar um allar konurnar sem búa í henni sjálfri. Þannig er Jóhanna páfi hin dæmigerða karlmannlega kona, Gréta (úr málverki eftir Breugel) er konan sem flýr inn í geðveikina þegar engin önnur leið reynist fær, búddanunnan Nijo er hin uppreisnar- gjarna sem storkar karlaverki japanska keis- araveldisins, Isabel hin vikoríanska ferða- kona sem flýr á náðir skrifta. Allar hafa þess- ar konur það sameiginlegt að hafa verið öðruvísi konur, bráðgerar og greindar. Mar- grét nútíma framakona er það líka, þótt hún kalli greindina einfaldlega frekju. Síðust í þetta kvennaboð kemur svo Gríshildur hin góða (þekkt þjóðsagnapersóna) allt of sein, enda er hún hin undirgefna kona sem sinnir öðrum á undan sjálfri sér. Gríshildur er sú eina sem er öðruvísi en hinar, þ.e. sú kven- ímynd sem karlaveldið viðurkennir sem hina einu og sönnu. Aliar segja þær sína sögu af kvenlegum örlögum og það sem ein- kennir frásögn þeirra er sérkennilegur frá- sagnarmáti. Þær keppa um orðið, tala ekki saman, heldur samhliða og ofaní hver aðra. Þessi aðferð eða stílbragð höfundarins á ef til vill að undirstrika sérstöðu hverrar um sig og mikilvægi, en jafnframt rennir það sterkum stoðum undir þau átök og uppgjör sem síðar verða þungamiðja verksins, þ.e. uppgjör Margrétar við sjálfa sig og eigið líf. Afneitun Margrétar á eigin kveneðli, móðurhlutverki og tilfinningum nær hámarki þegar hún hitt- ir Elísabetu systur sína, sem er bara venjuleg lágstéttarkona. Elísabet hefur alið upp Ásu (dóttur Margrétar) til þess að hún gæti ó- hindrað náð frama í þjóðfélaginu. Klassapíur verður að lokum óvægin krufning á frama- konunni sem afneitar kveneðlinu, en gengur ótrauð inn í karlaheiminn á hans forsendum. Knýjandi spurningar vakna um samstöðu og samkennd kvenna, innbyrðis átök þeirra, stéttabaráttu og uppeldi. í ljós kemur að reynsluheimurinn er mismunandi, það er munur á konu og klassapíu. En eru þá til hamingjusamar konur sem hafa meikað það og hvar eru þær? Ég held að þær séu til og þær eru m.a. leikkonurnar í Alþýðuleikhús- inu. Inga Bjarnason hafði rétt fyrir sér þegar hún sagði að þær væru allar að leika aðal- hlutverk. Það var stórkostlegt að sjá þær brillera hverja af annarri í þessari klassa- sýningu. Margrét Ákadóttir lék nöfnu sína og tókst einkar vel að sýna okkur sterku stál- konuna, sem lætur ekkert slá sig út af laginu á framabrautinni, nema ef vera kynni óþægi- Einnar nœtur œvintýri Leikfélag Reykjavíkur sýnir Draum á Jóns- messunótt eftir William Shakespeare, í þýö- ingu Helga Hálfdanarsonar. Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikmynd og búningar: Grétar Reynisson. Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson. Lýsing: Daníel Williamsson. Leikarar: Úr Leikfélagi Reykjavíkur og Nem- endaleikhúsi Leiklistarskóla íslands. Það ánægjulega hefur nú gerst í Iðnó, að Stefáni Baldurssyni og leikflokki hans hefur tekist að skapa stórkostlega leiksýningu, mikið listaverk, sem seint mun gleymast. I draumi Leikfélagsins ríkir hamslaus leikgleði, ást á lífinu jafnt sem leiknum, svo jaðrar við hreina snilld á köflum. Þessa ást og snilld má eflaust rekja til aðalefnis Draumsins sjálfs sem er Ástin og öll sú heilbrigða geðveiki, sem af henni getur hlotist. Talið er að Draumur á Jónsmessunótt sé saminn í tilefni brúðkaups, enda má rekja all- ar ástarflækjur hans til upphafsatriðis leiks- ins, þar sem Þeseifur og Hippolíta (aþenskt par komið af léttasta skeiði) undirbúa brúð- kaup sitt. Inn í þann undirbúning blandast síðan töfraveröld Oberons álfakonungs og Titaníu konu hans, leikflokkur iðnaðar- manna undir stjórn Kvists timbrara, svo og ástarraunir ungu elskendanna Hermíu og Lísanders annars vegar og hinsvegar Deme- tríusar og Helenu, sem ekki ná saman. Aðal- sögusvið leiksins er skógurinn þar sem álf- arnir búa, en þangað flýja elskendur og þangað æðir leikflokkurinn til að æfa lítinn ástarharmleik sinn í friði. f sjálfum skóginum gerast síðan öll hin mögnuðu ævintýri líkt og í draumi á sjálfa Jónsmessunótt. Álfakóngur- inn Oberon ætlaði sér einungis að vekja að nýju ástar- og unaðskenndir með konu sinni, sem var orðin honum fráhverf, en áður en við vitum af hefur honum og þjóni hans Bokka álfi tekist að rugla alla þá sem leitað hafa á náðir skógarins svo rækilega í ástar- málunum, að allt verður öfugsnúið. Þannig breytist einn aðalleikari leikhópsins, Spóli vefari, skyndilega í asna, sem Títanía álfa- drottning fellur fyrir. Lísander hafnar Herm- íu sem hann elskaði og verður bálskotinn í Helenu. Demetríus sem hataði Helenu verður nú allt í einu keppinautur Lísanders um ástir hennar. Og frjórri rugling er vart að hugsa sér, hvað þá farsælli lausn á honum, því allir hljóta þá sem þeir elska að lokum. En frjóast er þó skáldið sjálft, hugmynda- auðgi þess virðast engin takmörk sett. Shake- speare hefur fullkomið vald yfir persónum sínum, tilfinningum þeirra og gerðum og hinum mörgu sögum leiksins. Snilldarlegast af öllu er þó hliðstæðan sem felst í leik leik- flokksins, sem er Ieikur í leiknum. I honum birtist háðskt uppgjör og óvægin ádeila skáldsins sjálfs á eigið viðfangsefni, sem og ástina sjálfa. Draumur á Jónsmessunótt er síður en svo einfalt verk, hvorki að gerð né heldur í upp- setningu. Það þarf mikið til að sögur hans all- ar skili sér í eina skýra heild, enda hlýtur leikritið að vera óskaverkefni hvers metnað- arfulls leikstjóra. Eins og Shakespeare hefur tekist meistaralega vel upp í skáldskap sín- um, hefur þeim Stefáni og Grétari tekist í úr- vinnslu sinni á verkinu. í allri uppsetning- unni er lögð áhersla á einfaldar og skýrar sviðslausnir, sem glata þó aldrei þeim ævin- týrablæ sem verkið býr yfir. Leikmynd og búningar eru sannkölluð veisla fyrir augáð, en jafnframt skýrandi fyrir athafnir og hegð- un persónanna. Leikmyndin er gerð úr ein- földum efnum, rauður litur lífsins og ástar- innar yfirgnæfir salarkynni leikhússins og undirstrikar töframátt skógarins og nætur- innar. Á sjálfu sviðinu er aðeins eitt tré, sterkt tákn um lostakúst leiksins og lífsins. Lýsing öll nákvæm og falleg, breytir veru- leika skyndilega í draum, mannheimum í álf- heima. Álfar voru fáklæddar kynjaverur, eins og á öðru tilverustigi, elskendur klæddir tildurslega í stíl við ungæðislegt atferli sitt í ástinni, eldri elskendur aftur á móti klæddir legar áminningar systurinnar um fortíðina. Systirin var leikin af Kristínu Bjarnadóttur, sem skapaði hrikalega andstæðu við Mar- gréti. Kristín dró upp sterka mynd af konu sem þjáist af vonleysi og uppgjöf hinna lágt settu, deyfð hennar og doði tók þó skyndi- lega á sig aðra mynd í átökum hennar og Margrétar. í því uppgjöri reis leikurinn og sýningin í ómældar hæðir. Sigrún Edda Björnsdóttir lék Jóhönnu páfa og Ásu (dóttur Margrétar) og tókst meistaralega upp við að skapa þessar persónur. Karlmannlegur hroki hennar í páfahlutverkinu var ógnvekjandi og á vissan hátt átti sá leikur margt sameig- inlegt með sadistískum tilhneigingum Ásu. Ása varð þó í meðförum hennar vandaðri persónusköpun, þar sem næm skapbrigði þessa allt að því þroskahefta stúlkubarns urðu mjög áþreifanleg og sársaukafull. Sól- veig Halldórsdóttir lék búddanunnuna af fágun og Iéttleika og Kötu vinkonu Ásu. Hún varð mjög eftirminnileg í því hlutverki og túlkaði sjálfstæði hennar og kjark af ein- stakri einlægni og festu. Samleikur hennar og Sigrúnar Eddu var ein af sterkustu senum sýningarinnar og sýndi afar vel það misk- unnarleysi, sem lífsaðstæður þeirra og upp- /eldi höfðu skapað þeim. Ása Svavarsdóttir var hin djöfullega Gréta og sýndi nýja hlið á sér sem leikkona. Loka- sena hennar í 1. þætti tók af öll tvímæli um að hér er á ferð ein af okkar efnilegustu yngri leikkonum. Sem Didda á skrifstofunni sýndi hún vel konuna sem ekki þolir vel- gengni annarrar í starfi. Sigurjóna Sverrisdóttir kom mér á óvart, bæði í hlutverki Gríshildar og Dúddu á skrif- stofunni. Hún var yndislega blíð og fögur Gríshildur og ógeðslega lostafull og frama- gjörn Dúdda. Anna S. Einarsdóttir lék Isabellu og Rósu, eiginkonuna sem verður að þola að Margrét, konan, hafi farið upp fyrir eiginmann henn- ar í starfi. Sem Isabella var hún jarðbundin og siðprúð, en í hlutverki Rósu var hún aum- þyngri búningum, sem gáfu til kynna ráðsett yfirbragð og ákveðið sjálfsvald í ástarmál- um. Búningar leikflokksins litla gáfu vel í skyn sérstöðu hans í leiknum. Litskrúðug og skræpótt föt þeirra minntu á farandleik- ara og trúða. í sjálfri leiktúlkuninni hefur Stefán lagt áherslu á gáskann og ærslin og þá bullandi lífsnautn, sem er svo ríkjandi í verkinu. Það er oft talað um tvö óskahlutverk í þessum leik. Er það annars vegar Bokki álfur en hins- vegar Spóli vefari. Pór H. Tulinius leikur Bokka og hef ég sjaldan séð glæsilegri frum- raun ungs leikara. Þór nýtti bókstaflega alla sína tjáningarmöguleika til þess að gera Bokka að þeim stríðnispúka og áhrifavaldi sem hann er. Öll túlkun hans bar vott um skýr og sterk tengsl við hlutverkið og var hvergi veikleika að finna í ærslum hans og fimi. Gísli Halldórsson var Spóli vefari og kom á óvart. Gísli hefur ekki um langt skeið leikið gamanhlutverk þar sem hann hefur fengið jafn gott tækifæri til að sýna nýjar hliðar á leik sínum. Honum tókst að vera yf- irlætislaus Spóli, sem sífellt spáir í leikinn um Pyramus og Thisbe og einnig að leika Pyr- amus í leiknum á óviðjafnanlega grátbrosleg- an hátt. Þarna var á ferðinni einlægni gagn- vart hlutverkinu, sem stundum vill skolast til hjá eldri og reyndari leikurum. Þá var sam- leikur hans og Bríetar Hédinsdóttur í hlut- verki Títaníu með fyndnari senum sem sést hafa lengi. Pröstur Gunnarsson lék Lísander og Jakob Einarsson Demetríus og gerðu þeir hlutverkum sínum einnig glæsileg skil. Báðir búa þeir yfir góðri líkams- og raddbeitingu og túlkuðu þessa ungu elskhuga af hita og næmri tilfinningu. Þresti tókst sérlega vel upp við að sýna skiiin milli ástar og haturs, blíðu og heiftar. Kolbrún Pétursdóttir var Hermía og túlkaði afbragðs vel heift hennar og barnaskap. Enn skortir þó töluvert á radd- styrk hennar. Rósa Pórsdóttir var Helena og varð ótrúlega spaugileg í vonlausri ástarvið- leitni sinni. Framsögn hennar var ef til vill of kunnarverð. Átök hennar og Margrétar sýndu afar glöggt hranalega og truntulega framkomu kvenna í garð hverrar annarrar, þegar frami einnar er í veði. Gudný Helgadóttir lék þögla þjónustu- stúlku í boðinu og fannst mér hún minna ein- um of mikið á Marlene í Petru von Kant. Hinsvegar gerði hún stórkostlega hluti sem miðaldra alkóhólíseruð kona í atvinnuleit. Leikmynd sýningarinnar var salarkynni Nýlistasafnsins, næstum eins og þau eru, en Gerla og Árni Ijósamaður studdu hana með einföldum og látlausum lausnum í efni og lýsingu, sem aldrei stálu athygli frá leiknum og urðu órjúfanlegur þáttur hans, sérstak- lega í seinni hlutanum. Búningar voru vel hugsaðir og undirstrikuðu vel persónugerð hvers hlutverks. Það sem helst truflaði mig voru tengingar milli atriða og þátta. Þar var einhver brotalöm, annaðhvort í verkinu eða uppsetningunni. Þannig tengdist fyrri hlut- inn ekki nægilega sterkt við seinni hlutann og sýningin brotnaði því dálítið á viðkvæm- um samskeytum. Konurnar frá fyrri öldum urðu ekki nægilega lifandi þættir í því upp- gjöri sem síðar fór fram. Viðleitni leikstjór- ans til að bjarga því í lokasenunni, þar sem þær birtust allar aftur sem ógnvekjandi sýn mögnuð upp með galdratónlist Leifs Þórár- inssonar, náði ekki tilskildum áhrifum. Fyrir mér var lokasena Margrétar og dóttur henn- ar alveg nógu dramatísk. Tónlist Leifs Þórar- inssonar átti vel við í fyrri hluta verksins, en tengdist ekki nógu vel inn í seinni hluta þess. Þýðing Hákons Leifssonar var ekki hnökr- ótt, heldur skilaði sér alveg ljómandi. Inga Bjarnason hefur ásamt leikkonunum unnið mikið þrekvirki með þessari sýningu og sýnt okkur enn eitt dæmið um gott lífs- mark Alþýðuleikhússins á 10 ára afmæli þess. Klassapíur er athyglisvert og þarft inn- legg í kynjaumræðuna, þarna eru konur að gera upp við konur á sama hátt og Ólafur Haukur lét karla gera upp við karla í leikriti sínu Milli skinns og hörunds. kraftmikil á köflum, hana skorti fleiri blæ- brigði í röddina. Gudmundur Pálsson lék Kvist timbrara og fórst það vel úr hendi. Aðr- ir í leikflokknum voru Kjartan Ragnarsson, Jón Sigurbjörnsson, Karl Guðmundsson og Einar Jón Briem. Voru þeir allir yndislega fyndnir og skemmtilegir, sérstaklega þegar kom að litlu leiksýningunni þeirra. Álfarnir voru leiknir af Aðalsteini Bergdal, Hönnu Maríu Karlsdóttur, Öldu Arnardóttur og Barða Guðmundssyni. Túlkun álfanna ein- kenndist fyrst og fremst af stílfærðum hreyf- ingum, sem þjónuðu vel þeim tilgangi að gera álfaveröldina ósýnilega mönnum. Por- steinn Gunnarsson var myndarlegur og röggsamur Oberon, Bríet Héðinsdóttir yndis- leg og þokkafull Títanía. Soffía Jakobsdóttir og Siguröur Karlsson léku Hippolítu og Þe- seif og sómdu sér bæði vel í hlutverkum sín- um. Jón Hjartarson var Eigefur aðalsmaður, faðir Hermíu. Jóhann G. Jóhannsson samdi og stjórnaði tónlistinni í verkinu. Tónlist hans var í stíl við uppfærsluna, einföld en eftirminnileg. Ég vil vekja sérstaka athygli á því að Jóhann er nú eitt helsta leikhústónskáld okkar og tekst honum sérlega vel að ljá tónlist sinni sterkan leikrænan blæ, sem er nokkuð sjaldgæft hér. Leikarar LR eru annálaðir söngmenn og tókst söngur þeirra vel. Það var kannski helst í upphafssöngnum sem skorti nokkuð öryggi. Draumur á Jónsmessunótt er án efa einn vinsælasti gamanleikur skáldjöfursins enska, enda er texti verksins kraftmikill og leikræn kynngi þess ögrandi. Leikfélag Reykjavíkur og Nemendaleikhúsið hafa sannað með þessari sýningu að samstarf eldri og yngri leikarakynslóða getur borið frjóan ávöxt. Auðvitað er Draumurinn kjörið leikrit fyrir slíka samvinnu. Það breytir þó ekki þeirri skoðun minni að samstarf af þessu tæi. ætti að vera stærri þáttur í mennt- un og þjálfun leikara hérlendis. Ég er einnig viss um að Shakespeare tæki undir það, ef hann hefur ekki þegar gert það. 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.