Helgarpósturinn - 07.03.1985, Síða 20
leg verðlaun er nefnast Internation-
al Trophy of Quality og verða þau af-
hent í Madrid á Spáni þ. 11; mars.
Það er Steinar Berg sjálfur ísleifs-
son sem tekur við verðlaununum
en þau munu fyrst og fremst veitt
fyrir dugnað hans að koma Mezzo-
forte á framfæri erlendis. Mezzo-
forte er annars að leggja upp í gífur-
lega Evrópuferð í vor og stendur
túrinn í fjóra mánuði. Þar á meðal
verður komið við á heimsfrægum
jazzfestivölum eins og í Turku, Finn-
landi, Tívolí, Kaupmannahöfn og í
Amsterdam. . .
J
Vóni Baldvini Hannibalssyni
hefur sannarlega tekist að vekja at-
hygli á sér eina ferðina enn. Þessa
dagana súpa norrænir kratar hvelj-
ur í Þjóðleikhúsinu og víðar þar sem
þeir koma saman á dögum nor-
rænnar samvinnu. Ummæli Jóns
Baldvins um stefnu systraflokka
hans á Norðurlöndum hafa gert það
að verkum að tveir formenn, Sorsa
í Finnlandi og Anker Jargensen í
Danmörku, vilja varla ræða við Jón
Baldvin eða taka í höndina á hon-
um. Sænskir kratar eru einnig óðir
vegna ummæla Jóns Baldvins um
sovéska kafbáta í sænskri landhelgi
og norskir kratar stynja þungan
þegar minnst er á ummæli íslenska
krataforingjans um niðurgreiðslur
Norðmanna til sjávarútvegsins. Nor-
rænir fréttamenn sem hér eru
staddir hafa sannarlega rekið upp
stór augu yfir litrikum ummælum
Jóns Baldvins og varla trúað sínum
eigin eyrum, sérstaklega þegar for-
maðurinn kallaði Finnland norrænt
Afganistan. Jón Baldvin, sem er
flínkur við að nota sér allar uppá-
komur til að auglýsa sjálfan sig, not-
aði að sjálfsögðu tækifærið þegar
þing Norðurlandaráðs var haldið
hér. Með því að leika á gamalt Dana-
hatur, tókst honum fyrstum allra ís-
lenskra stjórnmálamanna að slá
sjálfan sig til riddara með því að
níða niður Anker Jorgensen, svo og
aðra norræna kratahöfðingja. Og ef-
laust er Jón Baldvin fyrsti formaður
krata sem tekst að fá formenn
systraflokka Alþýðuflokksins á
Norðurlöndum á móti sér. En Jón
Baldvin er vanur að beita óhefð-
bundnum aðferðum þegar hann er í
söfnunarherferð atkvæða. Og hann
hefur einnig lag á íslenskum blaða-
mönnum og lagni á að koma sér í
pressuna. Hins vegar króaði nor-
ræna pressan Jón Baldvin af í gær,
miðvikudag, og spurði hann út úr, og
þá einkum út í óbirta blaðagrein
sem komist hefur á kreik. Hugðist
Jón Baldvin nota sömu taktík og við
íslenska blaðamenn. En þarna of-
mat formaðurinn sjálfan sig. Nor-
rænu blaðamennirnir sem hér eru
staddir eru nefnilega þeir hörðustu
og klárustu í norrænni pressu, allt
sérfræðingar í pólitískri og efna-
hagslegri blaðamennsku. Jón fékk
þvílíka spurningahríð frá velmennt-
uðum og beinskeyttum blaðamönn-
um Norðurlanda að formanninum
íslenska fataðist gjörsamlega flugið
og átti erfitt með mál sitt og tókst
illa að setja frá sér skýringar varð-
andi fyrri ummæli sín. Hins vegar
munu flestöll blöð Norðurlanda í
dag, fimmtudag, vera yfirfull af
fréttum um Jón Baldvin og kynn-
ingin á málflutningi hans og per-
sónu vera heldur nöturleg, að því er
norrænir fréttamenn tjá HP. ..
T ölvusýning
anddyri Laugardalshallar
7. —10. mars.
í dag 7. mars verður opnuð í anddyri
Laugardalshallar ein stærsta tölvu-
sýning á íslandi til þessa. Sýningar-
svæðið er á yfir 1000 fermetrum á
tveimur hæðum. Sýndar verða allar
helstu nýjungar í vélbúnaði og hugbún-
aði frá fjölda fyrirtækja.
Félag tölvunarfræðinema Sími-25411.
Hugbúnaöur Vélbúnaður * Fjöldi nýrra tölva
* Bókhaldsforrit * Viðskiptakerfi
* Samskiptaforrit * Hitaprentarar
* Teikniforrit CAD * Ferðatölvur
* Hönnunarforrit * LASER-prentarar
* Reiknilíkön * Nettengingar
* Kennsluforrit * Setningartölvur
* Ritvinnsla * Modem-tengingar * Sérhannaður tölvubúnaður
* 20forritunarmál fyrir hreyfihamlaða * Snertiskjáir
Mikið af hugbúnaðinum er íslenskur og sýnir vel gróskuna i hugbúnaðargerð hér á landi.
Örtölvuver
Á sýningunni verður komið upp örtölvuveri.
Örtölvuverið er stofa með um 15 tölvum eingöngu til afnota
fyrir áhorfendur. Þetta er nýjung á tölvusýningum, sem
gefur áhorfendum tækifæri til að kynnast af eigin raun
tölvum og hugbúnaði af ýmsum tegundum. Þjálfaðir leið-
beinendur veita aðstoð eftir því sem þörf krefur.
Skákmót
Haldið verður skákmót með nokkuð óvenjulegu sniði.
Áhorfendur geta skorað á öflugustu skákforritin á
markaðinum í dag. Þeir sem vinna skákforritið WHITE
KNIGHT 1 eiga möguleika á Electron tölvu í verðlaun.
Fyrirlestrar
Kunnáttumenn fjalla á almennan hátt um málefni tengd
tölvum og notkun þeirra.
Hver sýningardagur hefur ákveðna yfirskrift og eru nokkrir
fyrirlestrar undir hverri. Á eftir eru almennar umræður og
fyrirspurnir.
Yfirskriftirnar verða:
Fimmtudagur 7. marskl. 17.00
Netkerfi
Föstudagur8. marskl. 14.00
Tölvur og löggjöf
Laugardagur 9. mars kl. 14.00
Íslenskur hugbúnaðariðnaður
Einkatölvan
Sunnudagur 10. mars kl. 14.00
Staða tölvufræðslu á islandi.
Sýningin verður opin:
fimmtudag 7. mars
kl. 14.30-22.00,
föstudag 8. mars
kl. 10.00-22.00,
laugardag 9. mars
kl. 13.00-22.00,
sunnudag 10. mars
kl. 13.00—22.00.
Miðaverð:
Fullorðnir 150 kr.
Börn, 7 —12 ára, 50 kr.
Börn 6 ára og yngri fé frítt inn á sýninguna.
Börn fá ekki aðgang nema í fylgd með fullorðnum.
t’85
Kanntu táknmál næturirfsins ?
östud.
Gl,
*sile,
DlsKÓ'
ttló
Vlnum
Sda.
oru
Ha
°8
nssýn
°Skr,
Vand,
mg
apPyHoZaLatakk*ðir.
aniön
með
niim.
°P‘ð frá kl °nd &a
~23
frákJ- 18—ofU' °Pið
eð
Stórkosúeg t^. nnig verða
Moseo^íráVd- '
skemortaf Gíslasoo
srrrttd- íanó. Oprð r
hádegroo °S_________
YPSÍLON Smiðjuvegi 14d,° Kópavogi. Við hliðina á Smiðjukaffi. Býður nokkur betur?
Djel]y‘s Edc
vercSa * 0
Oísh ^ Síaðí
i fh£°nspiI*'
8‘nu 0g j
20 HELGARPÓSTURINN