Helgarpósturinn - 07.03.1985, Qupperneq 21
■ lokkur mannsins er í miklum
ham þessa dagana, enda undirbúa
stjórnmálaflokkarnir sig nú óðum
fyrir hugsanlegar alþingiskosningar
á næsta ári. Flokkur mannsins hefur
nú verið í mikilli herferð um land
allt og komið á fót kjördæmisráðum
og sýsluráðum í öllum landsfjórð-
ungum. Forráðamenn flokksins
kalla þessi ráð „mannlega upplýs-
ingavél" og hyggjast með sellum
þessum ná til landsmanna eftir for-
múlunni „maður á mann“, í stað
þess að beita sér fyrir öflugri áróð-
urs- og dreifingarherferð í formi
blaðaútgáfu. Flokkurinn hyggst
bjóða bæði fram til alþingis- og
sveitarstjórnakosninga í öllum kjör-
dæmum landsins. Að sjálfsögðu er
undirbúningsvinnan mikil og þar eð
allt flokksstarfið er unnið í sjálf-
boðaliðastarfi og þá einkum á kvöld-
in og um nætur, loga ljós víða þegar
myrkva tekur í flokksskrifstofum
flokksins um borgina. En það hefur
vakið töluverða athygli og áhyggjur
samvinnumanna að ákveðnir kont-
órar SÍS í Reykjavík hafa verið upp-
ljómaðir sumar nætur og símalínur
ýmsar glóandi utan hefðbundins
starfstíma Sambandsins. Við nánari
eftirgrennslan yfirmanna SÍS kom í
ljós að þarna sat einn yfirmanna SÍS
tíðum að næturvinnu með herskara
óþekktra samstarfsmanna sér við
hlið. Við enn nánari athugun kom í
ljós að yfirmaðurinn atorkusami var
enginn annar en Júlíus Kr. Valdi-
marsson, framkvæmdastjóri
vinnumálasambands SÍS. Júlíus er
hins vegar ennfremur formaður
Flokks mannsins og hinir áköfu
næturhrafnar og aðstoðarmenn
engir aðrir en meðlimir í Flokki
mannsins. Munu yfirmenn SÍS vera
tvístígandi þessa dagana hvað gera
skuli í máli þessu. Það er að sjálf-
sögðu óþægilegt ef aðalskrifstofa
SÍS breytist að næturlagi í kosninga-
skrifstofu Flokks mannsins. Og allt-
af heitt á könnunni...
T^^ésmiðir í Vestmannaeyjum
hafa fengið snöggan og mikinn bú-
hnykk, að því er við heyrum. Tré-
smiðja Þórðar í Eyjum hefur nefni-
lega hafið framleiðslu á trébrettum,
svonefndum verkpöllum sem notuð
eru við útflutning á fiski. Eru pall-
arnir einnota, en engu að síður úr
verðmætu efni, portúgölskum við
sem Víkurskip hafa flutt til Vest-
mannaeyja. Eru þessar pallsmíðar
hið mesta framtíðarverk og er af-
kastageta trésmiðjunnar um 500
pallar á dag og krefjast smíðarnar
margra og duglegra trésmiða. Smið-
ir í Eyjum eru því hinir hressustu
þessa dagana...
H
I ■ in miklu ummæli Jóns
Baldvins Hannibalssonar um
öryggis- og varnarmál á Norður-
löndum hafa ekki aðeins vakið reiði
og undrun meðal Skandínava. ís-
lenskir kratar eru nefnilega fleiri en
alþýðuffokksmenn. Bandalag jafn-
aðarmanna telur að þarna hafi Jón
Baldvin farið yfir strikið, þegar
hann telur sig tala fyrir hönd ís-
lenskra jafnaðarmanna. Eina grein
af jafnaðarstefnu sé að finna í BJ og
þar í flokki séu menn aldeilis ósam-
mála niðurstöðum Jóns Baldvins.
Ekki munu forráðamenn BJ ætla að
sitja auðum höndum í máli þessu og
munu vera í undirbúningi harðorð
mótmæli og önnur viðbrögð Banda-
lagsins við málflutningi formanns
Alþýðuflokksins. . .
v
V aka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, hélt upp á fimmtíu ára af-
mæli sitt á Hótel Borg á dögunum.
Eins og vænta mátti gerði hægri
pressan sér mat úr þessari sam-
kundu, DV lagði heila síðu undir frá-
sögn og myndir af afmælishófinu og
Mogginn annað eins. Af „fréttum"
þessara blaða af atburðinum mátti
ráða að mannmargt hefði verið í
salnum, hátíðin tekist hið besta und-
ir dúndrandi dansi og húllumhæi.
Staðreyndin mun hinsvegar vera sú
að einungis níutíu lýðræðissinnaðir
stúdentar sáu sér fært að mæta í
hófið og eru þá meðtaldir allmargir
gestir, svo og makar frammámanna í
Vöku sem að afmælinu stóðu. Sakir
þessa fámennis var síðan ákveðið
að slíta hófinu um tólfleytið, en það
átti upphaflega að standa til klukk-
an þrjú um nóttina, væntanlega
með viðeigandi fjöldafjöri...
wm ið greinum örlítið frá skot-
túrum Vals Arnþórssonar kaupfé-
lagsstjóra KEA í góðri einkarellu
Kennedy-bræðra hér á öðrum
stað í blaðinu. HP er kunnugt um að
þessi flugvél, sem tekur níu farþega,
er nú til sölu, en bræðurnir hafa not-
að hana undanfarin misseri til að
flytja um landið varahluti milli úti-
búa fyrirtækis síns, Bílaleigu Akur-
eyrar. Kennedy-bræðurnir, þeir
Vilhebn, Skúli og Birgir Agústs-
synir, munu nú alvarlega vera farn-
ir að huga að þotukaupum í stað
þessarar níu manna vélar, en arftak-
inn sá yrði af minni gerðinni Qjó það
nú væri!), ekki ósvipaður forstjóra-
þotunum frægu sem helstu bissness-
jöfrar vestan hafs og austan státa af
á ferðum sínum milli stórfunda og
lcixveiditúra. Ef af þessum merku
kaupum Kennedy-bræðra verður,
yrði þetta í fyrsta skipti sem þota
kæmist í eigu fyrirtækis á íslandi,
sem ótengt er flugrekstri. . .
D
ókaforlögin eru nú sem óð-
ast að gera upp reikninga sína frá
góðærinu í fyrra. Ljóst má vera að
langsamlega flest þeirra hafa komið
út með hagnaði, enda var síðasta ár
mesta bóksöluár í langan tíma.
Þetta sést kannski best á því, að eitt
vandaðasta forlagið í landinu, Svart
á hvítu sem aðeins gaf út eina bók
fyrir síðustu jól, skilaði rúmri millj-
ón króna í rekstrarhagnað árið 1984
að þvi er HP hefur fregnað. Þessi
eina bók félagsins í fyrra var reynd-
ar „Nafn rósarinnar", heimsmet-
sölubók ítalans Umberto Eco í
snjallri þýðingu Thors Vilhjálms-
sonar. Hún á vafalítið eftir að kom-
ast í hóp sígildra skáldverka frá
þessari öld, og bæta þannig hag
þeirra hjá Svörtu og hvítu enn meir
en hún gerði síðasta ár. ..
HJ
■ Hiýlega var auglýst eftir laus-
ráðnum dagskrárgerðarmönnum
við RÚVAK á Akureyri. 20 manns
sóttu um og hefur HP hlerað nokkur
nöfn: Reynir Antonsson (leiklist-
argagnrýnandi HP á Akureyri), Sig-
urður Kristinsson (sonur Kristins
G. Jóhannssonar myndlistarmanns,
kennara og fyrrv. ritstjóra íslend-
ings), Viöar Gardarsson (ljósamað-
ur hjá Leikfélagi Akureyrar) og
þjóðsagnapersónan Bimbó, öðru
nafni Pálmi Guðmundsson sem
m.a. er frægur fyrir að hafa rekið ó-
löglega útvarpsstöð á Akureyri...
||
helgina birtist auglýsing í
Morgunblaðinu þess efnis að fast-
eignasala væri til sölu. í auglýsing-
unni stóð orðrétt að fasteignasalan
væri „löglega rekin“. Það þykir
nefnilega vera orðin ástæða að taka
slíkt fram eftir greinaflokk HP um
fasteignamálin. Og greinaflokkur-
inn hefur greinilega haft enn meiri
áhrif, því Gudrún Helgadóttir tók
upp fyrirspurn í dag, fimmtudag, á
þingi Norðurlandaráðs í Þjóðleik-
húsinu um fasteignamál á Norður-
löndum...
||
I rafninn flýgur víða. Nýjustu
fréttir af erlendum sigrum Hrafns
Gunnlaugssonar og kvikmynd
hans eru þær að Hrafninn verður
sýnd á American Film Institute í
Kennedy Center, New York, í maí-
mánuði. Það þykir hin mesta upp-
hefð...
Njótió
góðra
veitinga í notalegu
umhveifi
Okkar er ánœgjan að bjóða yður til
borðs í sérstæðu umhverfi í hjarta
borgarinnar, þar sem þér njótið
þjónustu og góðra veitinga.
Sérstakur morgunverðarseðill er
frá kl. 8:30 -11:00 og síðdegis eru á
boðstólum kaffiveitingar auk smá-
rétta. í hádegi og á kvöldin bjóðum
við Ijúffengar máltíðir, þ.á.m. fjöl-
breytta sjávarrétti sem eru okkar
HELGARPÓSTURINN 21