Helgarpósturinn - 07.03.1985, Side 23

Helgarpósturinn - 07.03.1985, Side 23
ÍÞRÓTTIR Almenningsíþróttasamband: Hentug leið að markmiði? Almenningsíþróttir — keppnis- íþróttir. Þessi tvö hugtök mynda meginuppistöðu íþróttapistils dagsins, hugtök sem margir sjá sem andstæður, enda eru nú uppi hugmyndir um að stofna sérstakt almenningsíþróttasamband innan Íþróttasambands íslands. Við hug- um hér að forsendum fyrir slíkri sambandsstofnun og hugsanleg- um afleiðingum. Segja má að forsendur fyrir íþróttaiðkun í þeirri mynd sem þekkt er í dag hafi myndast um miðja síðustu öld í kjölfar iðnbylt- ingarinnar. Farið var að fjalla um frítíma sem sérstakt fyrirbæri og þá í þeirri merkingu að um væri að ræða þann tíma sólarhringsins þegar fólk var ekki í vinnu. Upp úr þessum jarðvegi spratt t.d. knatt- spyrnan á Englandi. Það sem hins vegar hefur gerst á síðustu áratug- um er að vinnutími fólks hefur minnkað mjög og frítíminn að sama skapi aukist (einnig hérlend- is?). Þátttaka í íþróttum er álitin nauðsynleg til þess að vinna gegn óheillavænlegum áhrifum þjóðfé- lagsgerðarinnar, s.s. óeðlilegri kyrrstöðu í mörgum störfum. Það er í rauninni óþarft að fara mjög náið út í þessa sálma hér enda er ætlunin að það verði gert síðar. En við þessar hugleiðingar má bæta að uppeldishlutverk heimila hefur tekið stórstígum breytingum á þessari öld og nú er svo komið að hinar ýmsu stofnanir, s.s. skólar, dagvistarstofnanir, æskulýðsmið- stöðvar og íþróttafélög, hafa tekið að sér ýmis verkefni sem áð- ur var sinnt innan veggja heimil- anna. Reyndar má segja að fram- boð á slíkum „uppeldistilboðum" hafi aukist verulega síðustu árin og nægir þar að nefna fjölmiðil eins og myndbönd. í kjölfar hins aukna framboðs af afþreyingu í frítíma fólks hafa íþróttirnar fengið marga skæða keppinauta. Sem andsvar við þessu hafa einstök íþróttafélög og -sambönd lagt æ meiri áherslu á afreks- og keppnisíþróttir. íþróttir sem ekki hafa keppni að mark- miði (almenningsíþróttir — trimm) hafa þannig orðið útundan að verulegu leyti. íþróttanefnd Evrópuráðsins í Strassbourg hefur lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessarar þróunar. í drögum að Evrópusáttmála um þetta efni seg- ir m.a.: „Fyrsta markmið íþrótta- stefnu í öllum Evrópulöndum ætti að vera að leitast við að tryggja að öllum almenningi standi til boða að taka þátt í líkamsrækt og koma upp að- stöðu og veita stuðning við allt íþróttafólk á öllum stig- um. Hefðbundin íþrótta- stefna sem nær aðeins yfir keppnisíþróttir er bæði ófull- nægjandi og andstæð kröfum og þörfum nútímaþjóðfé- lags.“ Reyndar má segja, að í ýmsum nágrannalöndum okkar, t.d. á Norðurlöndum, sé unnið mikið starf í sambandi við almennings- íþróttir. í Noregi og Svíþjóð eru sérstök almenningsíþróttasam- bönd, sem eru innan íþróttasam- bands viðkomandi lands. í Noregi er einnig mjög öflugt starf á veg- um íþróttasambands fyrirtækja og eru keppnisíþróttir einn stærsti liðurinn í starfsemi þess. Ég þekki íslendinga sem eru búsettir í Osló og hafa tekið þátt í fjórðu eða fimmtu deild Oslóarsvæðis í hand- knattleiksmóti fyrirtækja. Ég reikna með því að þessu sé svipað farið í hinum Skandinavíulöndun- um. í Danmörku er sjálfstætt íþróttasamband fyrir almennings- íþróttir, sem ekki er innan Iþrótta- sambands Danmerkur. Hér á landi beindust umræður um almenningsíþróttir í ákveðinn farveg áárunum eftir 1970. Haldin var fjölmenn trimmráðstefna og í framhaldi af henni stofnuð sérstök trimmnefnd, ráðinn starfsmaður og óteljandi fundir haldnir. Ég held að fullyrða megi að árangur þessarar herferðar hafi ekki orðið sá sem vonast var til í upphafi, en bramboltið hefur vafalítið verið nytsamt fyrir þá sem ætluðu sér að fá „alþýðuna" á hreyfingu. Ég hef reyndar borið þetta huglæga mat mitt undir marga forystu- menn í íþróttahreyfingunni og hafa þeir flestir verið á sama máli. Hvað um það, þá hefur trimm- nefnd ÍSÍ verið við lýði allar götur síðan og færst mjög í aukana á síð- ustu árum. Haldin hafa verið tvö leiðbeinendanámskeið með góð- um árangri, farið hefur verið á vinnustaði og þannig mætti lengi telja. í framhaldi af þessu öfluga starfi hafa komið fram hugmyndir um stofnun sérsambands innan ISI til þess að annast þessi mál. Þær hugmyndir eru til komnar vegna þess að öll sérsamböndin, með fá- um undantekningum, hafa lítinn sem engan áhuga sýnt á trimmi í viðkomandi greinum. A síðasta sambandsstjórnar- fundi ÍSÍ var skipuð nefnd til þess að fjalla um skipulag almennings- íþrótta. Athygli nefndarinnar hef- ur einkum beinst að eftirfarandi atriðum: • íþróttastarfi á vegum stofnana og fyrirtækja. • Trimmstarfsemi innan íþrótta- og ungmennafélaga. • Trimmstarfsemi hverfa- og safn- aðarfélaga. • íþróttastarfi skóla. Nefndin leggur til að stofnað verði sérstakt almenningsíþrótta- samband og verkefni þess verði m.a. námskeiðahald, útbreiðslu- mál, aðstoð við áhugahópa, lands- keppnir í trimmi, keppni í ýmsum greinum milli fyrirtækja og nor- ræn samskipti. Ég er ekki viss um að þær for- sendur sem liggja að baki stofnun almenningsíþróttasambands séu réttar, einfaldlega vegna þess að keppnisíþróttir geta verið og eru almenningsíþróttir. í Kópavogi eru árlega á annað þúsund æfingar á knattspyrnuvöllum bæjarins. Hér er auðvitað um almennings- íþróttastarf að ræða þó að þátt- taka í keppni sé eitt markmið- anna. Heillavænlegast er að trimmstarf sé skipulagt innan við- komandi sérsambanda. Slíkt þarf ekki að hindra starf trimmnefndar ÍSÍ, þvert á móti. En vegna þess hve sérsamböndin hafa verið áhugalítil í þessu efni er hugmynd- in um almenningsíþróttasam- bandið fram komin. Það er skiljan- legt. Verði af stofnun almennings- íþróttasambandsins er hætt við að árekstrar verði tíðir við einstök sérsambönd vegna þess að verk- sviðið er óglöggt. Hins vegar velt- ur þetta nokkuð á forystumönn- um sérsambandanna, hvað þeir i eru áhugasamir um málefnið og liprir til samkomulags. Þá er ekki i síður mikilvægt að þessir sömu* i forystumenn líti á almennings- i íþróttasambandið sem góðan • stuðning við viðkomandi íþrótta- I greinar. ' Á það hefur verið bent að ekki i sé ástæða til jjess að auka það „bákn“ sem Iþróttasamband ís- i lands er þegar orðið með því að í stofna almenningsíþróttasam- band, núverandi skipulag sé nægi- - lega gott. Ég hygg að þessi skoðun sé á rökum reist og að mínu viti væri önnur leið heillavænlegri. Hún er sú að efla núverandi trimmnefnd, einkum hvað varðar fjármagn. Nefndin gæti tekið að sér flest þeirra verkefna sem al- menningsíþróttasambandinu eru ætluð, að mótahaldi undanskildu. Þá er vænlegt til árangurs að stuðla að stofnun samstarfsnefnda íþrótta- og ungmennafélaga í bæj- um og sveitarfélögum. Slíkar 1 nefndir gætu m.a. haft skipulagn- ingu almenningsíþrótta á stefnu- i skrá sinni. Reyndar hefur þegar - myndast hreyfing í þessa átt í Kópavogi. i Það er um margar leiðir að velja - þegar efling almenningsíþrótta er annars vegar og því mikilvægt að - greiðfærasta leiðin sé valin. Meg- 1 inmarkmiðið hlýtur að vera að fá i sem flesta til þess að hreyfa sig 5 sem oftast á skynsamlegan og i skipulegan hátt. Érgo: Mens sana J in corpore sano. Sól Saloon Sólbaðstofan Laugavegi 99 , Sími 22580 ' a\ } . Harnai ideo '/ 'J og ekla t>ufubad. Laugavegi 52 Simi24610 Slendertone grennmgaj og vodvaþjaljunartteki. brabd'.Jt vtd \tadbundmni f'itu og vodvabólgu. bAðar bjóða breiða, nýja bekki Mj professtonel og l1U 7' studio hne Dömur og hcrrar, vcnð vclkomin . . t i)u i Opið alla daga öll kvöld kl. 11.30—14.30 og 18—01 föstu- dags- og laugardagskvöld kl. 18—03, sunnudagskvöld kl. 18—01. Heitir og kaldir réttír. Sannkölluð kráarstemmning. STEINGRÍMUR BJÖRNSSON SF. SUÐURLANDSBRAUT 12, RVÍK. SÍMAR 32210 - 38365. Eiðfaxí er mánaðarblaö um hesta og hestamennsku Áskriftarsíminn er 685316 FIAT EIGENDUR. NÝKOMIÐ FRAM- OG AFTUR- LJÓS FYRIR EIAT UNO 127 FIAT128 FIAT131 FIAT132 FIAT RITMO FIAT ARGENTA HELGARPÓSTURINN 23.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.