Helgarpósturinn - 07.03.1985, Side 28

Helgarpósturinn - 07.03.1985, Side 28
fræðingur BSRB og alþýðubanda- lagsmaður mikill, hefur sagt sig úr Alþýðubandalaginu vegna óánægju með forystu flokksins, en þó eink- um vegna afstöðu hennar og Þjóð- viljans til verkalýðsmála. Fyrir nokkru sendi Björn úrsagnarbréf sitt til flokksins og hefur hann jafn- framt látið Þjóðviljann fá til birting- ar stutta skýringu á því hvers vegna hann, sem áður var með róttækari mönnum í forystusveit f lokksins, sér sig knúinn til þess að hverfa úr röð- um fyrri félaga sinna. Það sem réði úrslitum er að Þjóðviljinn hefur énn ekki séð ástæðu til að birta stjórn- málaályktun verkamálaráðs Al- þýðubandalagsins, sennilega vegna þess að þar er að finna samþykktir sem ganga þvert á opinbera stefnu flokksins. Þessi samþykkt fjallar um það að stefna beri að því að nýta orku landsins, huga beri að stóriðju með viðeigandi fyrirvara um meng- un, og efla beri atvinnustarfsemi í landinu. Þá kemur fram gagnrýni á forystu flokksins fyrir „bónorðið" fræga til félagshyggjuflokkanna svo- kölluðu og rétt er talið að málefni ráði ferðinni í slíkum umræðum en ekki nöfn á flokkum. Er haft eftir Birni að vera kynni að einhverju hafi ráðið um þá afstöðu Þjóðviljans að birta ekki stjórnmálaályktunina, að formaður verkamálaráðs AI- þýðubandalagsins er kvenmaður, Bjarnfriður Leósdóttir. Hingað til hafa þarna setið karlar og ályktanir ráðsins alltaf verið birtar í Þjóðvilj- anum. Þess má geta að ályktunin var samþykkt með öllum atkvæð- um nema tveimur. Annar tveggja sem var á móti, var Vilborg Harð- ardóttir, varaformaður flokksins, sem í raun kvaðst vera sammála á- lyktuninni, en stöðu sinnar vegna gæti hún ekki samþykkt hana, þar sem hún gengi þá þvert á opinbera stefnu Alþýðubandalagsins. í bréfi Björns kveðst hann hafa lært af reynslunni, að það væri tímasóun að vinna að framgangi góðra mála í Alþýðubandalaginu, enda þótt sá flokkur stæði sér næst í íslenskum stjórnmálum. Þá fær Svavar Gests- son og forysta flokksins það óþveg- ið og lýsir Björn því yfir að Alþýðu- bandalaginu sé stjórnað af fólki sem virðist hafa þekkingu á flestu öðru en innviðum og uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar. Björn minnist ennfremur á það sem hann kallar „tortímandi sjálfseyðingar- hjal“ forystunnar og Þjóðviljans, og telur flokkinn undir forystu Svavars eitt „allsherjarkraðak... “ ■ yrir dyrum stendur aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Er búist við talsverðum væringum á þeim fundi og stendur m.a. til að bera upp tillögu um skipulagsbreyt- ingar innan fyrirtækisins. Þessar breytingar munu fela í sér meiri valddreifingu en verið hefur innan fyrirtækisins og nýir menn koma í ýmsa stóla. Það hefur bprist okkur til eyrna að Eyjólfur ísfeld Eyj- ólfsson forstjóri SH muni hætta á árinu. Og við heyrum ennfremur að við fjármálum fyrirtækisins taki enginn annar en Brynjólfur Bjarnason, núverandi forstjóri BÚR. Hafa margir talið að þegar Brynjólfur hætti sem framkvæmda- stjóri Almenna bókafélagsins og kom til starfa hjá Bæjarútgerðinni, hafi alltaf vakað fyrir honum og vel- unnurum hans, að hann tæki við SH með timanum... Bananas 'J^Í^PPLESAU’CE Gerber barnamatur gæðanna vegna Fimmtíu ára reynsla og 70% markaðshlutfall í USA segir meira en mörg orð um Qerber barnamat- inn. Venjuleg fæða er of bragðmikil eða skortir næringarefni, sem ungbörn þurfa á að halda til að dafna og þroskast eðlilega. Eftir áratuga rannsóknir færustu sérfræðinga hefur Qerber tekist að framleiða, úr bestu hráefn- um, mikið úrval afauðmeltanlegum og bragð- góðum barnamat, með réttum næringar- efnahlutföllum. Qerber gæðanna vegna það geta 30 milljón mæður staðfest. Einkaumboð . i CvWteridfeíl F simi 82700 verslunin Við bjóðum ýmiskonar tómstundavörur fyrir skóla, leik- skóla og aðra tómstundaunnendur. Verðum með eftirtalin námskeið ef nœg þátttaka fœst: 1. Glermálun frá og með 5. mars nk. á þriðjudögum frá kl. 19.30-22.30. 2. Taumálun frá 7. mars nk. á fimmtudögum frá kl. 19.30-22.30. 3. Sokkablómagerð frá 9. mars nk. á laugardögum frá kl. 14.00-17.00. Rýmingarsala Vegna rýmingar fyrir nýjum vörum, bjóöum við verulegan afslátt á ýmsum vörum verslunarinnar. Nýir eigendur. Rauðarárstíg 16 Sími 29595 Opið virka daga kl. 9-18 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.