Helgarpósturinn - 14.03.1985, Qupperneq 7
Mál bœjarfógetans i Eyjum og starfsmanns hans
RANNS0KNARL0GRE6LAN
FÉKK EKKIFRIÐ VEGNA
AFSKIPTA RÁDUNEYTIS
I framhaldi af óformlegum at-
hugasemdum og tilmælum Jóns
Helgasonar dómsmálaráðherra
hafa embættismenn í dómskerfinu
orðið þess valdandi með gjörðum
sínum, að rannsókn á meintu mis-
ferli Kristjáns Torfasonar, bæjarfóg-
eta í Vestmannaeyjum, og Ólafs
Jónssonar, fyrrverandi bókara emb-
ættisins, hefur dregizt á langinn og
á köflum tekið allsérkennilega
stefnu.
Helgarpósturinn hefur fyrir því
áreiðanlegar heimildir, að þeir sem
að rannsókninni stóðu hafi á einn
eða annan hátt fengið athugasemd-
ir vegna yfirgripsmikillar rannsókn-
ar sinnar og þessi afskipti séu ættuð
úr dómsmálaráðuneytinu.
Þá er bent á, að þeir Jón Helga-
son dómsmálaráðherra og
Kristján Torfason bæjarfógeti séu
náfrændur, systkinasynir, og af þess-
um sökum kunni ráðherra að hafa
haft meiri áhuga á framgangi máls-
ins en ella. Þá mun Kristján hafa
haft samband við frænda sinn í
dómsmálaráðuneytinu og kvartað
yfir starfsmönnum RLR og talið þá
ganga of hart fram við rannsókn
málsins.
Allir þeir embættismenn, sem
Helgarpósturinn ræddi við, vildu
sem minnst ræða þetta mál. En allir
viðurkenndu þeir sérstöðu þess, án
þess þó að vilja gera frekari grein
fyrir í hverju sérstaðan væri fólgin.
En sérstaðan er fólgin í þeim
beinu og óbeinu afskiptum af mál-
inu, sem HP hefur heimildir um,
eftir Halldór Halldórsson myndir Jim Smart
— Taliö aö frœndsemi fógetans
og dómsmálaráöherra hafi
sitt aö segja
— Dómsmálaráöuneytiö og
saksóknari vildu ráöa feröinni
— Ráöuneytiö búiö aö gefa
umsögn og saksóknara ekkert
aö vanbúnaöi
— Fyrsta skipti sem RLR fer ofan í
saumana á rekstri opinberrar
stofnunar á íslandi
frændsemi sakborningsins og æðsta
manns dómsmála á fslandi og fyrstu
heildarúttekt RLR og Ríkisendur-
skoðunar á starfsemi opinbers emb-
ættis á íslandi.
Mál þetta snýst um misferli hjá
fógetaembættinu í Vestmannaeyj-
um og eru sakarefni í mörgum lið-
um. Dómsmálaráðuneytið hefur
gefið lögboðna umsögn sína um
málið. Þorsteinn Geirsson ný-
skipaður ráðuneytisstjóri í dóms-
málaráðuneytinu, sagði við Helgar-
póstinn í gær, að hann gæti ekki gef-
ið upp efni umsagnarinnar. Hún
hefði verið send embætti Ríkissak-
sóknara 3. janúar, en embætti Ríkis-
saksóknara óskaði eftir umsögninni
7. nóvember.
Bragi Steinarsson vararíkis-
saksóknari kvaðst ekki geta upplýst
HP um afstöðu dómsmálaráðuneyt-
isins til fógetamálsins í Vestmanna-
eyjum.
Bragi Steinarsson sagði, að starfs-
menn Ríkissaksóknara gætu ekki
tjáð sig um mál af þessu tæi fyrr en
fyrir lægi ákvörðun um hvernig á
málinu yrði tekið, þ.e. hvort gefin
yrði út ákæra eða ekki.
Eftir ýmsar tafir vegna óska um
frekari yfirheyrslur og athugun
sendi RLR öll gögn málsins til Ríkis-
saksóknara 2. október í fyrra. Þá átti
einvörðungu eftir að afla umsagnar
dómsmálaráðuneytisins, þar sem
sakborningarnir heyra undir það
ráðuneyti, og í byrjun ársins lá þessi
umsögn fyrir. Embætti Ríkissak-
sóknara er því ekkert að vanbúnaði
HELGA'ftPÓSTUWINW 7