Helgarpósturinn - 15.05.1985, Side 24
ullvíst er talið, að Valur Arn-
þórsson muni ekki sækjast eftir
forstjóratign hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. HP hefur áreiðan-
legar heimildir fyrir því, að Valur
muni gera þetta heyrinkunnugt áð-
ur en langt um líður enda þótt hann
njóti stuðnings góðs meirihluta í
stjórn SÍS. í stjórninni var gerð
könnun á afstöðu manna til þeirra
Vals og Guðjóns B. Ólafssonar og
varð niðurstaðan sú, að Valur hlaut
eindreginn stuðning fimm af níu
stjórnarmönnum, tveir lýstu yfir
stuðningi við Guðjón, en tveir sátu
hjá. Af þessum tveimur, er annar
þeirra eindreginn stuðningsmaður
Vals. Þannig hefur Valur 6 at-
kvæði, Guðjón tvö og einn er
óráðinn. í langri grein í Morgun-
blaðinu á þriðjudag var því haldið
fram, að Valur hafi stuðning fimm
stjórnarmanna, en Guðjón fjögurra.
Þetta er rangt.
Þá kom ekki fram í umræddri
Morgunblaðsgrein, að Erlendur
Einarsson forstjóri hefur skipt um
skoðun varðandi tímasetningu þess
hvenær hann hættir. En það sem
vantaði sárlega í þessa grein um
„forstjóraslaginn" hjá SÍS var, að
það er Valur stjórnarformaður sem
hefur í hendi sér hvernig veður
munu skipast á lofti. Þannig er hugs-
anlegt, að hann óski frestunar á af-
greiðslu málsins vegna ákvörðunar
Erlends um áframhaldandi störf, og
er líklegt, að frestun verði ofan á. Þá
er hugsanlegt, að hann höggvi á
hnútinn oggeri hreinlega tillögu um
Guðjón B. Olafsson sem forstjóra og
útiloki þannig sjálfan sig um leiö.
Þannig ræður Valur í raun hver
verður forstjóri. Og enn einn mögu-
leiki er sá, að hann telji rétt að
stjórnin kanni frekar aðra kandídata
í starfið, svo sem Axel Gíslason,
Þorstein Ólafsson og Sigurð
Markússon, sem allir eru taldir vel
hæfir í forstjórastarfið. Hvað svo
sem verður ofan á, er ólíklegt að
gengið verði frá forstjóraráðning-
unni mánudaginn 20. maí, eins og
margir halda. . .
N
■ ú eru ævisagnaritarar ým-
ist að setja sig í stellingar eða byrjað-
ir á því að vinna að bókum um
þekkta menn. HP hefur fregnað, að
Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur sé búinn að taka að sér að
skrifa sögu Hermanns Jónasson-
BILALEIGA
REYKJAVIK:
AKUREYRl:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRDUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN HORNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
ar fyrrverandi forsætisráðherra,
föður Steingríms núverandi for-
sætisráðherra. Þá mun Jón Ormur
Halldórsson fyrrverandi aðstoðar-
maður Gunnars heitins Thorodd-
sens vera byrjaður á því að afla
gagna í bók um Vilmund Gylfa-
>son, þar sem augum verður einkum
beint að pólitískri hugmyndafræði
Vilmundar, ferli hans og áhrifum á
íslenskt þjóðlíf.. .
SEinda þótt flokksbroddarnir hjá
Sjálfstæðisflokknum séu fæstir tald-
ir vilja kosningar í haust eru menn
nú samt farnir að velta fyrir sér
væntanlegum sætum á framboðs-
listum. Þannig er altalað, að Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, sem er þing-
maður Norðurlands vestra, ætli eða
vilji að minnsta kosti fara fram í
Reykjavík, og þar ætli hann að róa
á mið Alberts Guðmundssonar. I
þessu ljósi ber að skoða málflutning
Eykons gegn Seðlabankanum og
Sambandinu í vetur. Annars mun
e.t.v. aðalástæðan vera sú, að Eykon
fór illa út úr prófkjöri sjálfstæðis-
manna fyrir norðan síðast, þegar
Pálmi Jónsson frá Akri fór létt
með hann enda þótt hann væri í
hópi „liðhlaupanna" í stjórn
Gunnars Thoroddsens. ..
^Ekkert lát er á flótta ungra
menntamanna úr forystuliði Al-
þýðubandalagsins. Nú hefur HP
fregnað, að Margrét Björnsdóttir
endurmenntunarstjóri Háskóla ís-
lands hyggist segja sig úr flokknum
og stafar óánægja hennar einkum af
hinu svokallaða „félagshyggjusam-
ráði“ bandalagsins og ekki síður
óánægju með fulltrúa flokksins í
borgarstjórn, þau Sigurjón Péturs-
son, Öddu Báru Sigfúsdóttur og
raunar einnig Guðmund Þ. Jóns-
son. Þá heyrum við, að oddvitinn af
Suðurlandi, Margrét Frímanns-
dóttir varaþingmaður, sé í súru
skapi og heldur ósátt við forystu Al-
þýðubandalagsins...
A
^^^^mánudaginn er fyrirhugað
að stjórn SÍS og varamenn stjórnar
taki ákvörðun um eftirmann Er-
lends Einarssonar forstjóra Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga.
Hins vegar hafa borist óskir um
frestun á þessari ákvörðun og eru
það KRON og nokkrar deildir
Kaupfélags Hafnfirðinga, sem
hafa óskað eftir frestinum. Ástæðan
er sú, að þesir aðilar vilja láta end-
urskoða þær aðferðir, sem eru við-
hafðar við ráðningu forstjóra Sam-
bandsins og hefur m.a. verið brydd-
að upp á þeirri hugmynd, sem hefur
fallið í góðan jarðveg, að forstjóri
verði ekki ráðinn nema til fimm ára
til að byrja með. Þá skiptir einnig
miklu sú ákvörðun Erlends, að ætla
ekki að hætta í bráð heldur í árslok
1986, sem þýðir raunverulega setu
til júnímánaðar 1987...
HAGKAUF GEHGUfí I LIÐ MEÐ Í5LEH5KUM IÐHAÐI
Það er góð stemmning
á Í5LEN5KUM DÖCöUM í HAGKAUP:
VÖRUKYIWItXjffi - TÍ5HU5ÝHIH(jm - 5KEMMTIATRIÐI
NÚ
ER
BOLT/NN
HJÁ
ÞÉR
24 HELGARPÖSTURINN