Alþýðublaðið - 05.02.1938, Síða 3

Alþýðublaðið - 05.02.1938, Síða 3
LÁUGÁlDAGINN S. FEBB. Í938. ALÞÝÖUBLAÐIÐ íSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON AFGEE508LAÍ! ADOYBUHDSINU (ImiRO.apcr trá HverÐagðtui. SÍMAKt 4600—4303. 4900: Afgreiöna, auglýsmgat. 4001: Ritstjórn (inniendar iréttir). 4902: Ritstjóri. u03: Vilhj. S.Viihjálmsson(heima) 4004: F. R. Valdemarsson (heima) 4005: Aipýðuprent&miðjan. 4006: Aígreiðsla. ALÞVÐUPBENTSMOéAII LeplsamninpriM og nefndarkosning- arnar í bæjarstjérn Reykjavíknr. M ÐALVOPN komimú'ni'sía til psss að afla flokki símisn aiildns fy'gis á ms&al alþýðunn- ar hefir frá upphafi ve:ið að rægja alla þá msnn, sem gegnt ha a trú :a2a s.örfu n í verkalýðs- samtöku'rmim. Enginin af forLngj- usn A’þýðuflokksi'ns hefir faxið vaihlu'.a af hógi koounúni'sta. — Msð því að sá óá'naegju inniain flokksins hafa kommúnis :ar reynt að egna einn hóp iinnain Alþýðu- flokksins á móti öðruim í því skyni að eyðileggja samheldni fiokksma'nna og sundra þeim. — Þessi s:ai"fsemi kommúnisla hefir fynst og fnemst komið íhiaLdimi að gagni, en sjálfir vonast þeir allíaf efdr þvi að uppskera að lokum ávöxt iðju sinnar. Kommúnistar hiafa nú hafið etoa af heierðum simiim gegn fu.itrúum Alþýðuflokksins í bæj- arstjó.-n og alveg sérstaklega gegn efsta manni A-listans, Stef- ámi Jóih. Síefánssyni. Er honum brigslað uoi' „pólitíska sliga- mensku," „svik," .fiyldýpi ó- drengskapar'* og >,óhe;lindí,“ svo va’.in séu helztu kjiarnyxðin úr lýsingu Þjóðviljans á Stefáni Jóhanni. Rökstuðningurinn fyrir þessum fúkyrðum1 kommúnista er sá, að Síefán Jöih. Sléfánsson elins iDg hirir fulltrúar Alþýðuflokkisins í bæjarstjórn, nsitaði að uppfylla leyrisamninginm, sem kommúnist- ar og kosmnganefnd fulltrúaráðs- ins hðfðu gert með sér nokkrum dögum' fyrir kosningar. Þegar hið sameigin'.ega fram- boð Alþýðuflokksins og kom- únista var ákveðið í fulltrúaráð- inu, lá enginn slíkur samningur fyiir. Efstu menn Alþýðuflokks- ins á A-listanum. lýstu því þegair yfir, að þau tækju sæti á hionum til þess að merki AJþýðuflokks- ims yrði haldið uppi í bæjarstjórn inni og til þess að fraanfylgja stefnuskrá hans í bæjarmálum. Nokkium dögum fyiir kosning- amar, eftir að i framboðsfrestu'r er útru'nnfnn, er kallaður sænan fu'ndur í fulltrúaráðinu til þess að samþykkja leynisamninginn. Auk þess, sem j honum fóist skerðfng á athafnafrelsi flakks- ins, sem enginn sjálfslæður flokk- ur gat sætt sig við, hafði samn- rngu inn inni að halda ákvæði sem voru skýlaus brat á lögum og lýðræði, ef til framkveemda kæmu. Það 'hefðu því verið hrein og bsin svik við síefnu Alþýðu- flokkiiins, ef, bæjarstjórnarfulltrú- af hans hefðu teltið nokkurt til- lit til slíks samningisu Þannig leit og yli gnæiandi meirihluti stjóm- ar Alþýðusambands Íslands á, en til hennar höfðu bæjarfulltriúar Alþýðuflokksinis skolið múli sínu. Þeir geia því tátið sár í léttu rrúmi Jiggja, þótt kommúnistar geri nú hróp að þeim og kalli þá svikara. En það er rétt, jið málstaður alþýðunnar var svikinn i bæjarstjóm Reykjavikur í fyrra- alþýðublaðis P ráfaf 1. sfðii, liöið sumar gert Kommún- istaflokki Noregs tilboð um það, að taka upp samningaumleitan- ir um sameininguna á þeim grundvelli, sem samþykktur hafði verið á síðasta þingi Al- þýðuflokksins: að flokkarnir sameinuðust í einiun flokkí, sem ekki hefði neinar skipu- lagðar klíkur innan sinna vé- banda, og starfaði á þeim grundvelli, sem lagður væri í stefnuskrá og pólitík norska Al- þýðuflokksins. Kommúnistaflokkurinn svar- aði þessu tilboði þ. 30. júní á þá leið, að hann væri reiðubú- inn til þess að taka upp samn- ingaumleitanir á þeim grund- velli. Eftir það héldu fulltrúar flokkanna með sér undirbún- ingsfund þ. 8. júlí, en urðu á- sáttir um það, að fresta frekari fundahöldum fram yfir, bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar, sem fram fófu í Noregi þ; 18. október í háust. En áður en fundahöldin hóf- ust á ný höfðu kommúnistar þ. 22. september lagt fram sex skilyrði fyrir sameiningunni af sinni hálfu, sem brutu alger- lega í bága við það svar, sem þeir höfðu gefið þ. 3ÓV juní: að þeir féllust á þann samnings- grundvöll, sem síðasta þing Al- þýðuflokksins hafði samþykkt. Þessi skilyrði voru: 1. Hinn sameinaði flokkur er marxistiskur flokkur, óháður borgarastéttinni, og rekur á- kveðna stéttarpólitík í þágu alls hins vinnandi fjölda. 2. Hinn sameinaði flokkur vill fylkja öllum lýðræðissinn- uðum öflum þjóðarinnar til bar- áttu gegn afturhaldi og fas- isma. 3. Hinn sameinaði flokkur tekur skilyrðislausa afstöðu með Sovét-Rússlandi, landi sósíalismans, og leyfir enga fjandsamlega afstöðu til þess í blöðum flokksins eða af hálfu starfsmanna hans. 4. Hinn sameinaði flokkur berst ákveðið á móti hinum gagnbyltingarsinnaða trot- zkisma og lætur ekki viðgang- ast að trotzkistar hafi aðgang að blöðum flokksins eða séu í trúnaðarstöðum fyrir hann. 5. Hinn sameinaði flokkur tryggir lýðræði innan flokksins og rétt allra til þess að láta skoð anir sínar í ljós í því skyni að styrkja flokkinn í fræðilegu, pólitísku og skipulagslegu til- liti. 6. Hinn sameinaði flokkur styður viðleitni Alþjóðasam- dag, og það vom kommúnistar, sem sviku ha'nn. Undir því yfir- skyni að Alþýðufloltikurinn nsi.i- aði að bsygja sig í eínu og öllu fy ir koiningafölsunarsamr.iagn- um, lélu þeir það viðgangaist, að íhaldiö fen,gi 4 menn af 5 í bæj- ar.áð, en fe'du fulltrúa Alþýðu- f’okkiins, Soffíu Ingvarsdóttur, — og komu þannig í veg fyrir að konurnar í Reykjavíik fengju í fynsta sinn sérstakan fulltrúa í tæjarráð. Kom'immistarnir kusu heldur að hafa íhaldsmann i þes'su sæti, og stóð þeim þó til toða að fá 4 fulltmia í aðrar nefndir með tilstyrk Alþýðu- flokfesins. Það er þessi framkoma kom- múnista, sem er .Jhnefahögg í andlit kjós-enda A-listans“, það er þessi þjónusta kommúnista við íhaldið, sem er svik jafnt við kjósendur kommúnista og alla al- (þýðu í bænum. bands kommúnista tíl þess að sfeapa samfylkingu verkalýðs- ins og þjóðfylki-ngu gegn fas- ismanum í hverju landi fyrir sig, og alþjóðlega einingu verka lýðshreyfingarinnar, og leyfir engan fjandskap við Alþjóða- samband kommúnista. Þessi sex skilyrði setti Kom- múnistaflokkurinn í Noregi fyrir sameiningu verkalýðsins þar í landi. En það fer ekki hjá því, að þáu komi einhig mörgum verkamannium hér á landi kunnuglega fyrir sjónir. Því þarna eru orði til orðs sömu skilyrðin og sömu slagorðin, sem Kommúnistaflokkurinn lét sameininguna strarida á hjá okkur bæði í haust og í vetur: „Marxistiskur flokkur“, ,,óháð- ur borgarastéttinni", „skilyrð- islaus afstaða með Sovét-Rúss- landi“, „leyfir enga fjandsam- lega afstöðu til þess í blöðum flokksins", „berst ákveðið gegn hinum gagnbyltingarsinnaða trotzkisma", „lætur ekki við- gangast að trotzkistar hafi að- gang að blöðum flokksins“, „styður viðleitni Alþjóðasam- bands kommúnista“, „leyfir engan fjandskap við Alþjóða- samband kommúnista“ — þetta eru áhugamálin, sem kommún- istaflokkarnir á íslandi og í Noregi setja ofar eiriingu og velferð verkalýðsins, hvor í sínu landi. . Og nú ætti ekki lengur mik- ilL vafi að leika á því fyrir þá, sem á annað borð einhverntíma skyldu hafa efast um það, hvað- an þessi skilyrði eru runniu. Þau hafa hvorki verið fundin upp á íslandi né í Noregi, enda eiga þau sér engar rætur og engan rétt á sér í íslenzkri eða norskri verkalýðshreyfingu. Báðir kommúnistaflokkarnir hafa fengið þau fyrirskipuð frá sínum sameiginlega yfirboðara: Alþjóðasambandi kommúnista austur í Moskva. Norski Alþýðúflokkurinn svaraði þessum skilyrðum éftir að samningafundir voru byrj- aðir á ný fyrri part vetrarins. Hann skírskotaði til þess, að Kommúnistaflokkurinn hefði þegar í upphafi fallist á ákveð- inn sameiningargrundvöll og um hann ætti því ekki lengur neinn ágreiningur að vera, enda hefði miðstjórn Alþýðuflokks- ins ekkert umboð til þess að semja á öðrum grundvelli. Hún vísaði því til stefnuskrár norska Alþýðuflokksins, sem kommúnistar höfðu viðurkent sem sameiningargrundvöll, um öll þau atriði, sem voru innifal- in í skilyrðum þeirra,. önnur en trotzkismann, sem er nýtt fyr- irbrigði í verkalýðshreyfing- unni úti um heim og því ekki nefndur þar á nafn. Hún lýsti því yfir sem sinni skoðun, að stefna hans og pólitik væri ó- samrýmanleg skoðunum norska Alþýðuflokksins og því óleyfi- legt að vera hvorttveggja í senn: meðlimur í norska Al- þýðuflokknum og meðlimur í félagsskap trotzkista. En hún bætti því við, að Alþýðuflokk- urinn stæði á grundvelli lýð- ræðisins o og berðist gegri éin- ræði. í hverri mynd, sem þáð birtist. Jafnframt tilkynti hún Kom- múnistaflokknum þá fyrirætl- un sína, að beita sér fyrir því, að norski Alþýðuflokkurinn gengi í Alþjóðasamband jafnað- armanna, og það eins, þótt sam- einingin yrði að veruleika. Kommúnistaflokkurinn hafði á því 'stigi málsins ekkert við það að athuga, „ef samkomulag næðist um annað“. En þ. 30. desember sl., hálfu ári eftir að samningaumleitan- ir höfust, leggur Kommúnista- flokkurinn fram nýja yfirlýs- ingu. — Þar er talað um þá „gleðilegu staðreynd, að flokk- arnir skulu hafa náð samkomu- lagi um það, að skapa einingu í norsku verkalýðshreyfingunni1, farið fögrum orðum um þann þátt, sem Kommúnistaflokkur- inn hafi átt í því samkomulagi með því að „fallast á stefnuskrá norska Alþýðuflokksins sem grundvöll fyrir stefnuskrá sam- einaðs verkamannaflokks“, en jafnframt. lögð áherzla á það, að Kommúnistaflokkurinn hafi í yfirlýsingu sinni þ. 22. sept- ember „með hliðsjón af þeim grundvelli“ lagt fram „tillögu um umræður um sameiningar- grundvöll“(!). Þá er í fyrsta skifti farið fram á „náið sam- starf“ milli flokkanna meðan umræður um sameininguna standi yfir; og að endingu er ilykt út með eftirfarandi yfir- lýsingu um það, hvernig kom- múnistar hugsi sér sameining- una í framkvæmd í hinum fyr- irhugaða sameinaða flokki: „Ef hinn sameinaði verka- mannaflokkur skyldi ákvarða með meirihlutasamþykt að ganga í Alþjóðasamband jafn- aðarmanna, lýsum við því yfir, að við erum reiðubúir að taka sem einlægir flokksmenn tillit til slíkrar samþyktar. En við munum innan hins sameinaða verkamannaflokks berjast fyrir því, að hann styðji viðleitni Al- þjóðasambands kommúnista til þess að skapa samfylkingu verkalýðsins og þjóðfylkingu gegn f asismanum í hverju landi fyrir sig og alþjóðlega einingu verkalýðshreyfingarinnar.. Og við munum berjast fyrir því, að hinn sameinaði verkamanna- flokkur leyfi ekki neinn fjand- skap við Alþjóðasamband kom- múnista.“ Einnig þessar tilvitnanir munu koma íslenzkum lesend- um kunnuglega fyrir sjónir. Það er nákvæmlega sama mærðin og sömu málaflækj- urnar og kommúnistar höfðu í frammi hér heima: hinn síund- irstrikaði fögnuður yfit því hvað sameiningunni miði á- fram, enda þótt því séjafnharð- an slegið föstu, að enginn sam- einingargrundvöllur sé furid'- inn, heldur aðeins „umræðu- grundvöllúr um saméininguna1; krafan um „samstarf" milli flokkanna á méðan á urnræðum um sameininguna stand'i, og fyrirvarinn um það að komm- únistar muni halda áfram að vinna fyrir sínar sérskQðanir eirinig innan hins saméinaða flokks, hvað sem meirihluti hans ákvarðar; í Noregi átti.að berjast fyrir stuðningi við Al- þjóðasamband kommúnista á móti Alþjóðasambandi jafnað- armanna, enda þótt flokkurinn væri meðlimur í því; ;á íslandi var gert ráð fyrir því að hinn sameinaði flokkur stæði utan við alþjóðasamböndin, þess vegna varð klíkubaráttan hér að byggjast á einhverju öðru og það var ekki lengi verið að finna það. Hjá okkur ætluðu kommúnistar að berjast fyrir „sinni skoðun á byltingunni“ gegn þeim Alþýðuflokksmönn- um, sem væru fylgjandi lýð- ræði og þingræði. Á báðum stöðum var viðurkent, að sundr ungin ætti að halda áfram, hvort heldur í tveimur eða ein- um sameinuðum flokki. Með yfirlýsingu norska Kom- múnistaflokksins þ. 30. desem- ber var raunverulega alt tekið aftur, sem áður var búið að við- urkenna, samfylking heimtuð í stað sameiningar, en samein- ingunni skotið á frest um ófyr- irsjáanlegan tíma. Sameiningin átti nákvæmlega eins langt í land eins og fyrir hálfu ári síð- an, þegar samningaumleitanir hófust. Mælirinn var fullur. Mið- stjórn norska Alþýðuflokksins dró aðeins rökrétta ályktun af staðreyndunum, þegar hún lýsti því yfir þ. 9. janúar, eftir að hafa fengið þessa yfirlýs- ingu, að sameiningartilraun- irnar væru strandaðar á afstöðu kommúnista. Vmmæii Oscar Torp, for- seta norsba Alpýðuflokks ins. Þ. 10. janúar sl„ eða strax daginn eftir að miðstjórn norska Alþýðuflokksins sló því föstu í ályktun sinni um sam- einingarmálið, að allar samn- ingatilraunir væru strandaðar, þar sem kommúnistar neituðu að fallast á þann samnings- grundvöll, sem síðasta þing Al- þýðuflokksins hefði samþykt, átti „Arbeiderbladet“ í Oslo viðtal við Oscar Torp, forseta norska Alþýðuflokksins, um ár- angur og lærdóma sameiningar- tilraunanna. Torp byrjaði á því að benda á, að Kommúnistaflokknum hefði, samkvæmt samþykt síð- asta flokksþings, verið gert til- boð um að taka upp samninga- umleitanir um sameiningu í ein Um flökki, sem hefði engar skipulagðar klíkur innan sinna vébanda og starfaði á þeim grundvelli, sem lagður væri í stefnuskrá og pólitík norska Al- þýðuflokksins. „Kommúnistaflokkurinn tjáði sig í upphafi reiðubúinn til þess að hefja samningaum- leitanir á þessum gruridvélli. — Maður skyldi því ætla, að það hefði átt að ganga tiltölulega greiðlega að gera þær praktisku ráðstafanir, sem nauðsynlegar voru til þess að sameiningin yrði að veruleika. Þar sem Kommúnistaflokkurinn hafði í upphafi fallist á þann samein- ingargrundvöll, sem síðasta flokksþing okkar hafði sam- þykt, gengum við út frá því, að hann myndi ekki gera neitt það, sem gæti orðið til þess að skapa nýjar hindranir á vegi sameiningarinnar, og það hefði áreiðanlega ekki þurft að taka meira en hálfan mánuð, að koma sér saman um hina skipu- lagslegu framkvæmd samein- ingarinnar. En í stað þess koma fulltrúar Kommúnistaflokksins með langa, nýja yfirlýsingu, sem hefir inni að halda heilmikla málaflækju um sjálfan samein- ingargrundvöllinn. Hvað orða- lag hennar snertir mætti að vísu segja, að hún hafi verið vinsamleg, en í raun og veru var hún augljós vottur þess, að fulltrúar Kommúnistaflokksins vilja alls ekki sameiningu verkalýðsins í Noregi. Það er bersýnilegt, að þeir vilja draga málið á langinn með árangurs- lausum samningaumleitunum og málaflækjum, en meðan á þeim stóð, var ætlun þeirra að „koma á nánu samstar£i“, eins og þeir segja, með samfylkingu milli beggja flokkanna. ÞAB MEÐ ER SANNAÐ, AÐ ÞEIR VILJA EFTIR SEM ÁÐUR HAFA .SINN . SÉRSTAKA FLOKK OG HALDA KLÍKU- STARFINU ÁFRAM. Þetta kemur greinilega í ljós á öðrum stað í yfirlýsingunni, þar sem sagt er, að þeir séu reiðuhúnir að taka tillit til þess, ef flokkurinh gengur í Alþjóða- samband jafnaðarmanna, „en við munum innan hins samein- aða flokks berjast fyrir því, að hann styðji viðleitni Alþjóða- sambands kommúnista til þess að skapa samfylkingu o. s. frv.“Við getum ekki skilið þetta öðruvísi en að þeir áskilji sér, að halda áfram klíkustarfi sínu eirmig innan sameinaðs flokks, og þáð er algerlega ósamrým- anlegt þeim sameiningargrund- velli, sem flokksþing okkar samþykti og við ekki undir neinum kringumstæðum get- um vikið frá. Innan norska Aiþýðuflokks- ins hafa verið skiftar skoðanir urn það, hvort við ættum yfir-. leitt að reyna þessar sarnnínga- umleitanir við Kommúnisía- flokkinn. En sú skoðun varö of- an á, að við ættum að gera alt, sem hægt væri, til þess að koma sameiningunni á, ef um nokkurn skilning eða ærlegan vilja í því efni væri að ræða hjá hinum aðilanum. En mi sýnir það sig, aS fyrir Komm- únisíaflokknum vakir ekkert annað en herbrögð cg „spe cu- lationir“ eins og áður, og að þátttaka þeirra í samningaum- leitununum hefir ekki haít neitt annað markmið en það, að styrkja sinn eigin fickk og veikja norska Alþýðuflokkinn. Þeir reyna að skapa óvissu og rugling innan Alþýðuflokksins og beita til þess sömu aðferð- um og okkur öllum eru kunnar úr verklýðsfélögunum, þar sem kommúriistar hafa haldið uppi stöðugu klíkustarfi.“ „Það hefir alt af verið styrk- ur norska Alþýðuflokksins," segir Oscar Torp að lokum, „að hann hefir haldið fast við hreinar línur í skipulagslegri uppbyggingu og afstöðu flokks- ins; og við myndum gera okkur seka um stórkostlegt óhappa- verk, ef við slökuðum til í því efni.“ Þannig farast forseta norska Alþýðuflokksins orð um sam- einingartilraunirnar í Noregi. Það er ervitt að sjá, eftir lestur þeirra, með hvaða rétti þeir menn hér hjá okkur, sem við sameiningartilraunirnar í sumar og vetur hafa í öllu tilliti hagað sér öðruvísi en þessi þrautreyndi foringi norska Al- þýðuflokksins og félagar hans — með hvaða rétti þeir, sem hafa virt að vettugi samþyktir Alþýðusambandsþings, rofið einingu Alþýðuflokksins. samið á bak við hann við forsprakka kommúnista, stutt hinar sam- vizkulausu „spekulationir" þeirra í einingarvilja verka- lýðsins og vinna bæði leynt og ljóst með þeim að því að kljúfa Alþýðuflokkinn, — hvernig þeir geta látið sér detta í hug, að bera sig saman við hinn st&fnufasta og heilsteypta bræðraflokk okkar í Noregi. ~fib4oia> “6e,HS Loflur. Geri við saumavélar, alls konar heimilisvélar og skrár. H. Sandholt, Klapparstíg 11, sími 2635.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.