Alþýðublaðið - 20.04.1938, Side 3
MIÐVIKUD. 20. APRIL 1938.
ALI»f©UBLAfHÐ
R4TSTÍÓBI:
F. R. VALÐRMARSSON.
AFGREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR: 4900—4906.
4900: Afgreiðsia, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (ínnlendar fréttir),
'.902: Ritstjóri.
4903: Vilhj, S.Vilhjálms8on(heima)
4904: F. R. Valdemarsson (heima)
4905: Alpýðuprentsmiðjan.
4996: Afgreiðsla.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
Virðing Héðins fyrir
iðgnm og lýðræði.
ÞA.Ð er næsta neyðarlegt, að
heyra Héðin Valdimars-
son og hina æstustu klíkufé-
laga hans, sem hleyptu upp
fulltrúaráðsfundinum fyrir viku
síðan, kvarta undan því, að
þeir hafi ekki verið látnir njóta
þar laga og lýðræðis. Því að af
hálfu meirihlutans fór þar alt
fram með lögum og lýðræði; en
hins vegar gerðu Héðinn og fé-
lagar hans ekki aðeins tilraun
til þess á fundinum, að brjóta
lög Alþýðusambandsins til þess
að hindra löglega kosinn meiri-
hluta fulltrúaráðsins í því að
gera sig gildandi, heldur gripu
þeir líka til hreins og beins of-
beldis, þegar þeir sáu að þeir
gátu ekki á annan hátt hindrað
meirihlutann í því að gera sínar
samþyktir, og hleyptu fundin-
jim upp með hávaða og óspekt-
um.
Yfirleitt ætti Héðinn sem
allra minst að tala um brot á
lögum og lýðræði í fulltrúaráð-
inu. Því þar hefir enginn haft
slíkt í frammi nema hann sjálf-
ur og þeir, sem honum hafa
fylgt að málum. En það var
að vísu ekki í fyrsta skifti á
íulltrúaráðsfundinum fyrir
viku síðan, að hann og þeir
sýndu sig í slíku ofbeldi.
Öllum er enn í fersku minni
brottrekstur Péturs G. Guð-
mundssonar úr fulltrúaráðinu
fyrir rúmu ári síðan. Það var
Héðinn, sem barði hann í gegn
í fulltrúaráðinu með sínum
venjulega ofsa og ójöfnuði. Pét-
ur var fulltrúi Bókbindarafé-
lagsins og ekki meðlimur í
neinum öðrum stjórnmálaflokki
en Alþýðuflokknum, og fulltrúa
ráðið hafði því enga heimild til
þess að svifta hann fulltrúarétt
indum, nema því aðeins að hon-
um hefði áður verið vikið úr
Alþýðuflokknum. Það er yfir-
leitt ekki hlutverk fulltrúaráðs-
ins að ákveða, hverjir eiga skuli
sæti í röðum þess; það erþvert
á móti hlutverk Alþýðusam-
bandsins, þ. e. a. s. Alþýðusam-
bandsstjórnar á milli Alþýðu-
sambandsþinga. Og ef eitthvert
félag hefir verið tekið inn í Al-
þýðusambandið með fullurn
réttindum, og það hefir á lög-
legan hátt kosið sér fulltrúa á
sambandsþing, sem ekki eru í
neinum öðrum stjórnmála-
flokki en Alþýðuflokknum, þá
eru þeir þar með orðnir lög-
legir meðlimir í fulltrúaráð-
inu, og fulltrúaráðið hefir
hvorki heimild til þess að neita
þeim um sæti og atkvæði þar,
né heldur til þess að víkja þeim
úr fulltrúaráðinu, nema því
aðeins að þeim hafi áður ver-
ið vikið úr Alþýðuflokknum af
Alþýðusambandstjórn eða Al-
þýðusambandsþingi. En Héð-
inn fór í þetta sinn ekki að lög-
um frekar en endranær. Hann
barði það í gegn í fulltrúaráð-
inu, að Pétri G. Guðmunds-
syni var vikið úr því, þvert of-
an í lög og reglur Alþýðusam-
bandsins, og braut beinlínis
með því lög á Bókbindarafélag-
inu.
Að vísu hafði Pétur gert sig
brotlegan við Alþýðuflokkinn
með því að standa að blaðaút-
gáfu á móti honum. En það var
annaðhvort Bókbindarafélags-
ins sjálfs eða Alþýðusambands-
stjórnar og Jafnaðarmannafé-
lagsins að taka afstöðu til þess
brots og svifta hann fulltrúa-
réttindum, en ekki fulltrúaráðs
ins.
Héðinn mætti vel minnast
þessa framferðis síns í fulltrúa-
ráðinu gagn vart Pétri G. Guð-
mundssyni með kinnroða. Því
hversu lítið var ekki það brot,
sem Pétur hafði gert sig sekan
um, í samanburði við það, sem
Héðinn sjálfur hefir gert á
móti sínum gamla flokki. En
það var auðséð á síðasta full-
trúaráðsfundi, að Héðinn hefir
ekkert lært. Þar ætlaði hann,
að vísu nú af alt öðrum ástæð-
um, að leika sama leikinn gagn-
vart fulltrúum Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur og Kvenfé-
lags Alþýðuflokksins, sem hann
lék fyrir ári síðan gagnvart
þessum fulltrúa Bókbindarafé-
lagsins. Bæði þessi félög hafa
verið tekin inn í Alþýðusam-
bandið með fullum réttindum.
Þau hafa á löglegan hátt kosið
fulltrúa á sambandsþing og
þeir skrifað undir stefnuskrá
Alþýðuflokksins og gefið yfir-
lýsingu um það, að þeir séu
ekki í neinum öðrum stjórn-
málaflokki en Alþýðuflokknum.
Þeir eru þar með, samkvæmt
lögum Alþýðusambandsins,
orðnir löglegir meðlimir full-
trúaráðsins og eiga fullan rétt á
sæti og atkvæði þar.
En Héðinn sá, að sá augna-
bliksmeirihluti, sem hann und-
anfarið hefir haft í fulltrúaráð-
inu, var íapaður um leið og
þessir fulltrúar tóku þar sæti.
Þess vegna heimtaði hann, þvert
ofan í lög Alþýðusambandsins
og reglur fulltrúaráðsins at-
kvæðagreiðslu um það í full-
trúaráðinu, hvort hinir nýju
fulltrúar skyldu fá þar sæti.
Hann ætlaði með sínum fyrri
augnabliksmeirihluta að loka
fulltrúaráðinu fyrir nýjum, lög
legum meðlimum, af því að
þeir voru ekki hans fylgis-
menn. Og þegar hann komst
ekki upp með slíka lögleysu, lét
hann hina æstustu fylgismenn
sína hleypa upp fundinum til
þess að hindra löglegan meiri-
hluta fulltrúaráðsins í því að
gera nokkrar samþyktir.
Þannig er virðing Héðins
Valdimarssonar fyrir lögum og
lýðræði!
ALÞÝeUBUVOIÐ
Stórfeldar skipulaos-
knytiiin i Neiiki.
LONDON í morgun. FÚ.
CARDENAS forseti í Mexi-
kó hefir sent frumvarp til
Þingins, þar sem gert er ráð fyr
ir, að mexikanska járnbrauta-
samhandið taki að sér rekstur
allra járnbrauta í landinu í
næsta mánuði.
Ennfremur er sagt, að stjórn
in í Mexikó ætli að koma á fót
sykursölusambandi, er hafi um-
ráð yfir allri sykurhreinsun og
ákveði verð á sykri.
Nú eiga Reykvíkingar að
lána féð til hitaveitunnar!
Sjálfstæðisnokkurlnn virðist hafa al-
gerlega gefizt upp i pessu nauðsynjamáli
Hafa útreikningar Helga Sig-
urðssonar ekki verið haldgóðir?
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
Félagsskírteini (æfigjald) kosta
10 kr. Skírteini, sem tryggja
bálför, kosta 100 kr., og má
greiða þau í fernu lagi á einu
ári. Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu félagsins. Sími 4658.
‘O' ITAVEITUMÁLIÐ
■“•■S- virðist ætla að verða
erfitt mál í höndum Sjálf-
stæðisílokksins enda hefir
framkoma flokksins og öll
meðferð hans á þessu mikla
nauðsynjamáli Reykjavíkur
sýnt takmarkalaust fálm og
fáfræði. Eftir heimkomu
borgarstjórans nú, og eftir
að hann hefir skýrt bæjar-
búum frá því að allar
bollaleggingarnar um lán-
töku í Englandi hafi verið
út í loftið, virðist flokkurinn
hvorki vita í þennan heim
né annan. Er þetta ofur
skiljanlegt, þegar loforðin
og fullyrðingar blaða hans
frá því fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar eru hafðar í
huga.
Virðist nú helst mega skilja
á Morgunblaðinu, að hin eina
færa leið til að framkvæma
hitaveituna sé sú, að Reykvík-
ingar leggi sjálfir fram þær
milljónir króna, sem til þess
þurfa.
Ef innanbæjarlán gæti tryggt
framkvæmd þessa nauðsynja-
máls, þá er ekki nema gott eitt
um það að segja, en það er ekki
nema von, þó að margir telji
það meira en vafasamt — af
mörgum ástæðum, sem að vísu
liggja í augum uppi, en ekki
skulu raktar hér að þessu sinni,
að hitaveitan komizt nokkru
sinni í . framkvæmd, . meðan
Sjálfstæðisflokkurinn fer með
völd í bænum. ,
Og gefur það óneitanlega
hugmynd um, að þær fullyrð-
ingar, sem borgarstjóri nú hef-
ir borið á borð fyrir bæjarhúa
um möguleika fyrir láni í Sví-
þjóð hafi við lítið að styðjast,
að þessi nýja hugmynd, um að
Reykvíkingar leggi fram féð, er
yfirleitt sett fram.
Borgarstjóri gep ihalds-
Möðnnum.
—0—
Morgunblaðið mótmælir því
á páskadaginn, að borgarstjóri
hafi skýrt blaðamönnum frá
því, að neitun brezku stjórnar-
innar hafi legið fyrir hjá
brezka fjármálafirmanu í des-
ember. Borgarstjóri skýrði
blaðamönnum frá því mjög
greinilega, að nefnd sú, sem er
brezku stjórninni til aðstoðar
í þessum málum hefði þegar í
desember lagt á móti því að
lánið væri veitt, hann sagðist
hafa þá þegar vitað um það, að
„einhverjar hömlur“ væru
komnar á lánveitinguna, en
ekki vitað í hverju þær lægju
fyr en hann kom til London í
febrúar! Þessi neitun nefndar-
innar þýddi vitanlega neitun
stjórnarinnar, en síðari neitun-
' in ,sem kom meðan borgarstjóri
dvaldi í London, kom að gefnu
tilefni, sem borgarstjóri og
fjármálafirmað höfðu gefið
með því að reyna að lækka
lánsfjárupphæðina svo að þess
meira af fénu færi til efnis-
kaupa í Englandi. Brezka
stjórnin staðfesti aðeins með
síðari neitun sinni neitun sína
frá því í desember, sem fjár-
málafirmað hafði þá fengið og
borgarstjóri vissi þá þegar um,
þó að hann segi nú að hann
hafi ekki vitað hvernig hún var
orðuð fyr en hann kom til
London.
Á þessa leið hafa þrjú blöð
þegar skýrt frá samtalinu við
borgarstjóra, og því skal ekki
trúað að óreyndu að borgar-
stjóri viðurkenni ekki þessi
ummæli sín.
Hvers vegna neitaði
brezka stjórnii?
Morgunblaðið segir að síðar
gefist ef til vil tækifæri til að
ræða það, hvers vegna brezka
stjórnin hafi neitað um lánið.
Borgarstjóri hefir þegar gef-
ið á því þá skýringu, sem að
minsta kosti ætti að nægja
Morgunblaðinu, en hún var sú
samkvæmt neitun stjórnarinn-
ar í desember, að ekki nógu
mikill hluíi fjárhæðarinnar
færi fyrir efniskaup í Englandi.
Eftir því sem borgarstjóri
sagði þýddi þó ekki að lækka
lánsupphæðina í þessum til-
gangi, og gefur það til kynna,
að eitthvað annað geti legið til
grundvallar fyrir neituninni.
Morgunblaðið er auðsjáanlega
hrætt við að umræður hefjist
um það atriði. Alþýðuflokkur-
inn og Alþýðublaðið hafa hvað
eftir annað á undanförnum ár-
um fundið að því, hve allur
undirbúningur þessa stórmáls
væri í miklum handaskolum og
að líklegt væri, að þegar ætti
að fara að útvega lán til virkj-
unarinnar, myndi verða krafist
nákvæmari rannsókna og út-
reikninga en fyrir hafa legið.
Virðist þetta nú komið á daginn
og alt virðist óneitanlega benda
til þess að þetta hafi ekki valdið
litlu um þær slæmu undirtekt-
ir, sem borgarstjóri fékk í Lon-
don. Nú hefir borgarstjóri
skýrt frá möguleikum, sem séu
fyrir lánveitingu í Svíþjóð.
Hann þorir hins vegar ekkert
um það að fullyrða. Hvers
vegna? Blaðið Vísir sagði frá
því sama daginn, sem borgar-
stjóri kallaði blaðamennina á
sinn fund, að hingað myndi
koma sænskur verkfræðingur
til að rannsaka málið. Þetta
sagði borgarstjóri blaðamönn-
unum EKKI, og þegar eitt
blaðið spurði hann um kvöldið
hvort þetta væri rétt frá skýrt,
þá mótmælti borgarstjóri því
ekki, en tók það ákveðið fram,
AÐ ÞETTA VÆRI EKKI EFT-
IR SÉR HAFT. Hvers vegna er
reynt að leyna þessu? Menn
vita að þetta er rétt. Borgar-
stjóri hefir skýrt Jakob Möller
frá þessu óg hann síðan hlaupið
með það í Vísi, án þes að at-
huga, að það gæti verið óþægi-
legt fyrir borgarstjóra.
Hin ósvífnu loforð og fullyrð-
ingar borgarstj. og Sjálfstæðis-
flokksins fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar hafa skapað
megnustu vantrú hjá bæjarbú-
um á einlægni flokksins í þessu
„Pétur Mulausr leit-
aöi langt jrfir skamt!
PÉTUR HALLDÓRS-
SON er nú almennt
nefndur „Pétur lánlausi."
í desember kom hann
heim eftir alllanga dvöl í
London og skýrði frá því,
að hann hefði fengið lán
til hitaveitunnar, í London.
Nokkrum dögum seinna
fékk hann að vita, að lán-
ið væri ekki fengið. Þrátt
fyrir þetta fullyrti hann og
blöð hans, að lánið væri
fengið og vann bæjar-
stjórnarkosningarnar á
þessum ósannindum.
í febrúar fór hann aftur
utan og dvaldi lengi í
London, og fékk ekkert
nema fullvissu um það, að
neitunin, sem lá fyrir í des-
ember stæði enn. Þaðan fór
hann til Amsterdam, Rott-
erdam, Kaupmannahafnar
og Stokkhólms — og fann
þar með loksins Svíþjóð!
En ekki virðist trú hans
á að lánið fáist þar, vera
mikil, því að á páskadag-
inn flytur blað hans Rvík-
ingum þann gleðiboðskap,
að þeir eigi sjálfir að lána
féð til hitaveitunnar! Eftir
alla þessa leit, hefir borg-
arstjórinn því, eftir blaði
hans að dæma, komizt á
þá skoðun, að hann hafi
leitað langt yfir skammt
og Reykvíkingar geti sjálf
ir lánað milljónirnar til
hitaveitunnar!
Virðast Reykvíkingar
því heldur en ekki þurfa
að opna buddur sínar, ef
nokkuð á að verða úr fram
kvæmdum þessa kosn-
ingamáls íhaldsins frá í
vetur! En hversvegna
benti Pétur ekki bæjar-
I mönnum á þennan nær-
; tæka möguleika fyrir bæj-
; arstjórnarkosningarnar, og
; hversvegna bauð hann sig
; ekki fram upp á það, að
; Reykvíkingar legðu sjálfir
! fram lánið?
t
máli. Flokkurinn ætti því að
sjá sóma sinn í því, að hætta
skollaleiknum, en koma hreint
fram og skýra frá málunum eins
og þau standa í raun og veru
Frekari launráð við bæjar-
búa en orðið er bæta sízt fyrir
þær skyssur, sem flokkurinn
hefir þegar gerst sekur um, og
hinar nýju hugmyndir íhalds
blaðanna um að Reykvíkingar
leggi féð fram, vekja enn meiri
athygli á fullyrðingum flokkS'
ins fyrir bæjarstjórnarkosning
arnar og hinum ótrúlegu svik
um hans við bæjarbúa.
HÉÐINN OG ALÞÝÐUHÚS
REYKJAVÍKUR.
(Frh. af 1. síðu.)
Til þess að hin tatmiiliaiusia
friekja iog ósvífni í f’ullyföingtum
H. V. uimi yfiirráð Alþýðnhússins
verði enn axigljó'sari er niú rétt
að setja dæmlið uipp á þann vqg,
a'ð gera ráð fyrir að hans föksku
tölUr og löglausu krðfur hefðU
verið teknair til greina, sitím vit-
anlega var nú ekki hægt að gera
nernia gera alla stjónn fyrirtækis-
ins ólöglega. Þá verður útkom-
an þes.si:
Innboigað hlutafé um síðustu
áramót var 132 750 kr.; þar af frá
Fulltrúaráðinu 36000 hr„ semi er
meira en 1/5 hlutafjár. Atkvæða-
tala fyrir alt hlutiaféð' vax1 5309
atkv. Af því mátti Fuilltrúiaráðíð
að þessu sinni fiara með 1062
(itkv. í iStað 1440 atkv., siem þiað
fær, þegalr' alt hlutafé er inn-
biorgáð. Nothæf atkvæði gáfU því
orðið alls 4932 á þesisuim fundi
Á fumdinum komu alls frarn 4618
atkv. og V'Oru stjórniendur kiosnir
með þiessUm atkvæðafjölda:
Fyrsti fékk 4618 atkvæðl
Annar — 3889 —
— 3547 —
Ullarprjónatuskur alls kanar
keyptar gegn peningagrmðfllu
út í hönd, enn fremur kopar eg
aluminium. Vesturgötu 22, —
sími 3565.
Sá maðíuir, sem Héðinn vildi
sérstakliqga koma að> Jékk 731
atkv. Þetta er hinn löglqgi gang-
Uir máilsinis.
Nú skUlUmi við takia lögleysur
Héðins og drajgla frá 1600 atkV.
fyrir þvi stem hann kallar „niýtt
hlutafé", enidia þótt ekfci værí'
mætt fyrir þaö ialt á fiundinum.
Þá er hámarkið 3709 atkv. Af
því má FuHtrúaráðið hafa 1/5 eða
pða 742 atkv. Og 2/3 af þVi eðá
495 atkv.. ásiamt 90 atkv. frá Al«
þýðubrau ðgerðin'ni éðia tíUls' 585'
atkív. er þá það, sem Heðiam
gat hiaft upp úr lögleysum sín-
Umii. Þessi 585 atfcv. til viðbótar
þeim: 731 atkv., sem frambjóð-
anidi Héöiiras hafðii, ©ða1 Biaimlticcls
1316 atkv., er alira hæisltía lat-
kvæðatálan, sem mögulegt var
fyrir Héðann að fá, þó að alliar
hanis lögieysur hefðu verið tefcn-
ar ril gredna. Ilann hefði verið i
grriinilegittm xniimihluía þrátt fyr-
ir þaið.
Með þessu ©r sýnt og sanlniað,
að alt gteip Héðins og siemi-
kioinmannia lutm það, lað „hægiii“
mennimir hafi verið að niá uimdir
sig ráðUim yfi'r Alþýðuhúsiinu er
eintóm þvæla 'Og vísvi'ta'nidi ó-
sanniinidi. Sjá'lfur höfuðpajuirdnni,
siern er hagfræðiinguir að mentun
og 'hiefir ilíifaði og hræirstt í hlluitiafé-
föguim í in'ærri 20 ár, siteniduir í
nokkuð ei'nikenniiliegu ljó'si. Hann
virðist fara mieö tölur eftir því
siem honiuim hezt henitar, og haam
læzt ekki þiekkja liaind'slög iu|mi
hlutafélög og uimi sitöii frarn-
kvæmida'stjóna, og hefir han-n1 þó
stýrt ýmsum stórfyrirtækjum.
Hefir hanu orðið stwonja í |s|atmbúð
siinníi Við komm&inia uipp á siíð-
ka'stíð' eðia er þesjsi veMieiki
eldri? Það væri nainnsófcniarefni.
Eingan furðiair á þvi, þótt litlia
skinnáð Siigfúis fimhuilfamíbi aills-
konar vitleysuir umi þiettia mál.
Hann hefir enn iekki komist
liengra en þiað að finima lyktina
af OlíUveTzIuniarhlutalbréfumi, en
eflaUst bíðia hamlS' „trúrria þjóna
laUn“.
Héðiinn hiefir í þe'sisu eims og
öðrui sem: hann hiefir tekið síér
fyrir henld'uir í þivi skyni að skiaðai
ATþýðUflokkinn, verið ginlmingar-
fífl kommúnistannia. Og það> er
eftirtektarvert hvaði þeir ern þö
að' skömminná til vitmeiri en
luinn. Þeir hlupu að vfsu sjmöggV-
ást á stað' me'ð lygárniaTi í blaði
sínU, en siáu brátt að málsteðUT-
inn var svo tæpur, að frefcairi um-
ræður hliutu að gera þeim skiaiðia,
og hafa 'steinþagniað,. Ætlla nú
hálfbræður þeirria lað gerást jafn-
skynsamir, eð!a langar þá í enh
frekari hi'rtingú?