Alþýðublaðið - 07.06.1938, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGINN 7. JÚNÍ 1938
ALÞÝÐU BLAÐIÐ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI:
F. R. VASjBEMARSSON.
AFGREIÐSLA:
ALÞÝÐUHÚSINU
(Inngangur frá Hverfisgötu).
SÍMAR: 4S00—4906.
4900: Afgreiðsia, auglýsingar.
4901: Ritstjórn (innlendar fréttir),
4902: Ritstjóri.
4903: Viihj. S.Vilhjálmsson(heima)
4904: F. R. Valdemarsson (heima)
4905: Alpýðuprentsmiðjan.
490S: Afgreiðsla.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
NorflRnblaðið 09
f or sætisr áðtierr ann.
MORGUNBLAÐIÐ birti um
daginn mjög uppskafn-
ingslega grein, er var áskorun
til forsætisráðherra um að tak-
marka málfrelsi blaðanna og
sérstaklega útvarpsins gagn-
vart erlendum þjóðum. Var því
haldið fram, að sjálfstæði lands-
ins gæti stafað hætta af gagn-
rýni íslenzku blaðanna og út-
varpsins á framkvæmdum og
stefnu erlendra valdhafa.
Þessa umhyggju Mgbl. fyrir
heiðri og sjálfstæði landsins og
vandlætingu þess gagnvart öðr-
um blöðum og útvarpinu virtist
harla lítil ástæða til að taka há-
tíðlega þegar litið er á fortíð
þessa blaðs.
Mgbl. hefir margoft skrifað
þannig um fjárhag og stjórnar-
far íslenzku þjóðarinnar, að ef
nokkurt mark væri tekið á skrif-
um þess, væri alt traust er-
lendra ríkja á þjóð okkar og
sjálfstæðisbaráttu horfið fyrir
löngu, enginn hefði viljað lána
okkur eyrisvirði og því síður
telja okkur til menningarþjóða.
Blaðamaður við Mgbl. sendi
skeyti til erlendra blaða þess
efnis, að álitið væri að íslenzka
stjórnin væri á svo lágu siðferð
isstigi, að hún myndi láta tog-
aranjósnamálið niður falla, af
því einhverjir flokksmenn henn
ar kynnu að vera viðriðnir það.
Og Mgbl. hefir haldið því
fram um núverandi forsætis-
ráðherra, að hann hafi vitandi
vits ætlað að láta drepa eða
limlesta bæjarfulltrúa íhalds-
ins í Reykjavík 1932.
Allir vita hvernig fréttaburð-
ur Mgbl. frá útlöndum hefir
verið t. d. síðan Franco hóf
uppreisn sína á Spáni. Hin lög-
lega lýðræðisstjórn á Spáni hef-
ir verið uppnefnd og svívirt af
Mgbl., en stuðningsmenn Fran-
cos fengið nafnbótina „þjóðern-
issinnar“, enda þótt her hans
samanstandi aðallega af blökku
mönnum, ítölum og Þjóðverj-
um, sem gert hafa innrás í
landið.
Það virðist því svo sem for-
sætisráðherra hefði getað látið
sér í léttu rúmi liggja hinar
föðurlegu áminningar Mgbl. til
ríkisstjórnarinnar um að hafa
eftirlit með því, „að þeir, sem
töluðu til þjóðarinnar“, gættu
hinnar fylstu varúðar gagnvart
öðrum þjóðum í ræðu og riti.
En forsætisráðherra hefir
brugðið við, eins og hann væri
auðmjúkur þjónn Mgbl., og
skrifað dagblöðum bæjarins há-
tíðlegt bréf í íilefni af þessari
kröfu Mgbl. Hvort forsætisráð-
herra einnig hefir skrifað út-
varpinu, er Alþýðublaðinu ekki
kunnugt.
Það er að vísu ekki vel ljóst,
hver er meining forsætisráð-
herra með því, að við verðum
að sýna hlutleysi okkar „í verki,
orðum og athöfnum gagnvart
öðrum þjóðum“.
Allur þorri íslendinga mun
Frh af 1 siðu.
Fylkingarnar komu nú að
styttunni og skipuðu sér um-
hverfis hana. Framundan henni
skipaði heiðursvörð fjöldi
manna með fána. Þarna foru
fram aðal hátíðahöld dagsins.
Stundvíslega kl. 2 talaði Skúli
Guðmundsson atvinnumálaráð-
herra nokkur orð og tilkynti að
á þeirri stundu legði lítil stúlka
blómsveig á leiði óþekts sjó-
manns í kirkjugarðinum í Foss-
vogi. „Við minnumst hinna
föllnu stríðsmanna okkar, eins
og útlendar þjóðir minnast
sinna látnu, óþektu hermanna,“
sagði atvinnumálaráðherra.
Síðan varð mínútu þögn, og
var það áhrifaríkt augnablik,
er hinn miki mannfjöldi draup
höfði í minningu um hinar látnu
hetjur, er fallið hafa í barátt-
unni við Ægi. Að þessu loknu
söng flokkur sjómanna „Þrútið
var loft.“ Nú afhenti Ólafur
Thors sjómannadeginum að
gjöf vandaðan bikar til að keppa
um í björgunarsundi frá Félagi
ísl. botnvörpuskipaeigenda, en
því hafði verið falinn hann til
ráðstöfunar af brezkum útgerð-
armönnum 1930. Friðrik Ólafs-
son skólastjóri þakkaði gjöfina.
Nú talaði atvinnumálaráð-
herra og flutti snjalt erindi um
sjómanninn og baráttu hans
fyrir alla þjóðina.
Hann sagði m. a., og átti það
vel við:
„Það er ekki nóg að minnast
sjómannastéttarinnar eina
stund úr einum degi. ... Þá
er ranglæti framið ef málsverð-
ur hennar er gerður minni en
annara stétta.“
Væri vel ef þeir tveir stjórn-
málamenn, sem þarna töluðu,
hefðu þetta lengur í huga.
Að erindi atvinnumálaráð-
herra loknu lék Lúðrasveitin
„Ó, guð vors lands.“
Þegar gangan hófst frá Stýri-
mannaskólanum var hvast og
kalt, en meðan hátíðahöldin fóru
fram við Leifsstyttuna, gerði
hlýindi. Munu þar hafa verið
ekki telja að við eigum sökótt
við neina erlenda þjóð, og óska
eftir vinsamlegri samvinnu við
sem flestar þeirra. En sem borg-
arar í lýðfrjálsu landi þykjast
þeir eiga rétt á að hafa sína
skoðun á þeim stefnum, sem
ríkjandi eru með öðrum þjóð-
um, og þeim viðburðum, sem
þar gerast, og að láta þá skoðun
sína í ljós bæði um menn og
málefni og það eins þótt um
gerðir ríkisstjórna eða þjóð-
höfðingja sé að ræða. Það hefir
oft komið fyrir í sögu þjóðanna,
að misendismenn hafa komist
til valda bæði á löglegan og ó-
löglegan hátt, og það jafnvel
meðal menningarþjóða; sagan
geymir ótal frásagnir um ill-
virki og glæpsamlegar athafnir
harðstjóranna. Gagnrýni á gerð
um slíkra manna þarf ekki að
sýna neina óvild í garð þjóðar
þeirra og þarf á engan hátt að
vera brot á hlutleysi gagnvart
henni.
Vitanlega væri það æskilegt
að íslenzk blöð temdu sér á því
eins og öðrum sviðum fágaðra
orðbragð og forðuðust stóryrði
og formælingar. Sé það tilætl-
un forsætisráðherra að stuðla
að því, er ekki nema gott eitt
um það að segja, en það þarf
varla við því að búast, að Mgbl.
verði öðrum blöðum til fyrir-
myndar, eða að skipanir ofan
frá og refsiaðgerðir reynist sér-
staklega áhrifamiklar.
saman komin um 10 þúsundir
manna, eftir því sem lögreglan
álítur. Var holtið þakið áf fólki
og flestar nærliggjandi götur.
Við Reykjavíkurhöfn.
Mawnfjöldinin hélt nú niönr aið
Reykjavíkusrhöfn og fór þar fram
'kepni í kappróðri og stalkkasundi
Fór kappróðurinn fram tmilli
skipshafna' á togumm. öll skip
við hafnairbiakkiana vom þakin
af fólkl, öll húsapök í nágrienn-
inu og öli uppfyliingin. Var
þaiiua gífurlegur mannfjöldi.
Vegaleugdim, sem róið var, var
740 metnar, frá Örfirsey og upp
í hornið við gömlu uppfyllinguma.
11 togarasikipshafnir tóku þátt í
kappróðrinum og urð<u úrslitin
þessi:
Hilmir 3 tniin 58,3 sek.
E. Skallagrímss. 4 — 0,8 —
Garðar 4 — 1,1 —
Reykjaboig 4 — 3,1 --
Ólafur 4 — 3,1 —
Tryggvi gamli 4 — 3,6 —
Snorri goði 4 — 3,9 —
Kári 4 — 5,1 —
Arinbjörn Hersir 4 — 6,2 —
Haukanes 4 — 6,8 —
Baldur 4 — 11,8 —
Var þetta mjög skemtileg kepni
og fylgdist mannfjöldin með af
miklum! áhuga.
Crrslit í istakkasundinu, sem var
100 stikur og keppendur 9, urðu
þessi:
1. Jóhann Guðmundsson 2
mín. 59,7 sek.
2. Vigfús Sigurjónsson 3
mín. 1,5 sek.
3. Loftur Júlíusson 3 mín.
4,5 sek.
Sá fyrsti er háseti á Hilmi, 2.
á Garðari og 3. á Baldri.
4 íþróttavellinum.
Kl. 5 hófst kepni á ípróttaveil-
inum. Uryalsfliokkur kvenna úr
K. R. sýndi leikfimi af mikilli
Iist. Reykvískir og hafnfixskir
sjóir.enn, beljakar miklir. þiiieyttu
feiptog. Var tvi's-var dregiið iog
sigriðu Rjeykvikiugir í bæði skifti.
1 kinattspyrnukepni, sem einn-
ig fór fram milli reykvískra og
hafnfírskra sjómaninia og sem1
varð mjög s'kemtileg siguuðu
Reykvíkingar með 2 mörkum
giegn 1.
I gærkvöldi flutti Sigurjóm A.
Ólafsson ræðu í útvarpið um til-
gang sjómannadagsins og sjó-
mannastéttina. í gærkvöldi höfðu
sjómenn svo hóf að Hótel Ðorg
og var því sem þar fór frarn
útvarpað og var þaið hin bezta
skemtun. Voru fjölda margar
ræður fiuttar, ávörp flutt, sungið
og spilað. Viið lokin hylti sam-
koman einn togaraháseta, Erling
Klemenssion, sem ímynd hin's
bezta í íslenzkri sjómannastétt.
Hann hafði sýnt elju og dugnaö
í starfsemi dagsins og tekið þátt
í öllum kappmótunum.
Áhrifarik stund var það, er Sig-
urjón Á. Ölafsson las upp kveðju
í bundnu máli M háöldruðUm
sjómanni, siem hefir verið blind-
'pir í 40 ár. t ■
Hófið stóð fram imdir morigun
með gleði og glaumii.
Sjómannadagsblaðið
kom út í gæiimiorgun og var
selt á götunum. Er það myndar-
legt að öllum frágangi. Á forsíðu
er mynd af bjöngun í lendingu,
en efni þess er að öðnu leyti
þetta: Sjómannadiajgurinn, eftir
Ásg. Sigurðsson, Húshaldsfólfclð
eftir Sig. B. Gröndal, Sa'mein-
aðir áfram, kvæði eftir Friðrik
Halldórsson, Loftskeytamennimir
og lífið á sjónurn, eftiir Henry
Hálfdánarson, Vélstjórastéttin, eft
ir Þ. Á. Garnli iog nýi thniinn,
eftir Sveinbj. Eigilsson, Far-
menska og fornar dygðir, efti'r
Jón Axel Pétursson, Minningar-
dagur sjómanna, eftir sjómann,
Loftskeytin í þágu siglingaUna,
eftir Grím Þorkelsson, Myndir úr
lífi sjómanna, James Wátt, eftir
Þ. L. Fyrsta mótorskip heimsins
og hlutdeild vélstjóra í gengi
mótorskipanna, eftir vélstjóira,
Hugleiðiinjgar sjómanna eftir sjó-
hiamn og ýmisjegt fleira.
Þessi fyrsti sjómainnadagur,
sem farið hefir fraim hér í Rieykja-
vík og haldinn var sameiginlegia
bæði af sjómönnum' í Reykjavík
og Hafnarfirði, fór mjög vel
friam. — Nú eigum við enn einn
vegleigan hátíðisdag á hverju ári,
tileinkaðan þeirrá stétt mannla,
sem vinnur erfiðusitu og hættui-
legustu störfin — og afkioma1
þ'jóðarinnar veltur að mestu á.
Vantar stað fyrir op-
inbera hijömlistar-
starfsemi.
Athðgasemd frá Óskari Jóns-
syni í Hljómsveit Reykjavikur
um baun bæjarstjórnar.
Herra ritstjóri!
Ur a fummælum í blaði yðar
sl. fimtud. sögð af síðasta
fundi bæjarstj. langar mig til
að biðja yður fyrir eftirfarandi
athugasemd:
Ummælin eru þau, að á fund-
inum hafi komið fram raddir
um, að „banna lúðrasveitinni
að spila á Austurvelli.11 Síðan
girðingin var tekin af Austur-
velli hefir lúðrasveitin aldrei
leikið þar af eigin hvötum, því
að hún var, löngu á undan bæj-
arstjórninni, búin að sjá að völl
urinn myndi eyðileggjast með
því að hafa þar mannfundi. —
Hinsvegar hefir hún leikið þar
nokkrum sinnum síðan, eftir
beiðni félaga, sem að minsta
kosti hefir ekki verið bannað að
vera þar, og þá vitanlega verið
á þeirra ábyrgð. Bæjarstjórnin
getur því sparað þetta „bann.“
Annars hafði ég ekki búizt
við að þetta mál mundi koma
fram í „bann“-formi. En nei-
kvæðu viðhorfin og „bann“ við
öllum hlutum virðist flestum
sjálfsagðasta leið til úrbóta.
Eðlilegra hefði veriði að raddir
hefðu heyrst um það, að þar
sem lúðrasveitin ekki gæti
lengur spilað á Austurvelli, þá
teldi bæjarstjórnin nauðsynlegt
að sjá henni fyrir öðrum stað,
þar sem hún gæti leikið fyrir
almenning. Eins og nú er komið,
er enginn staður, þar sem hægt
er að flytja söng eða hljóðfæra-
slátt, án þess að krakkar og
unglingar þyrpist að þeim sem
flytja, af forvitni og hugsunar-
leysi en ekki illvilja, en slíkt
er mjög óþægilegt og hefir trufl
andi áhrif. Stundum hefir sveit-
in farið inn á lóðir opinberra
eða hálfopinberra stofnana, svo
svo sem Menntaskólans, en síð-
ast þegar hún kom til þess að
spila þar, (að fengnu leyfi) trufl-
aði hún kennslu í skólanum, og
verða slíkir árekstrar, þótt ó-
viljandi séu, öllum til leiðinda,
bæði sveitinni sjálfri og þeim,
sem fyrir ónæðinu verða.
Hér í bænum eru starfandi á-
gætir kórar, sem næstum aldrei
láta til sín heyra þar sem allur
almenningur getur notið þeirra.
Þeirra aðstaða er líka ennþá
verri, til þess, heldur en lúðra-
sveitarinnar. Þeir þola ekki
gandreiðaumferð á allar hliðar
og óp og öskur. Þeir kjósa því
heldur að þegja, og það er má-
ske bezt. En þeir sem starfa að
tónlistarmálum hér í bæ gera
það ekki eingöngu sjálfum sér
til ánægju. Þeir kjósa ekkert
fremur en að geta gert aðra
þátttakandi í því sem þeir hafa
að bjóða. Ég veit því að bæði
kórarnir og lúðrasveitin yrðu
bæjarstjórninni verulega þakk-
lát, ef hún sæi sér fært að koma
upp einhverjum stað, þar sem
hægt væri að flytja söng og
hljóðfæraslátt án þess að verða
fyrir aðkasti eða hafa um sig
sterkan lögregluvörð og þar sem
almenningur gæti í friði notið
þess sem flutt væri. En slíkt er
ekki hægt með því að „banna“
þetta eða hitt, það mundi þurfa
að gera eitthvað.
Með þökk fyrir birtinguna.
3. júní 1938.
Óskar Jónsson.
Það kom einnig fram við um-
ræðurnar á bæjarstjórnarfund-
inum, að sjálfsagt væri að á-
kveða staði fyrir lúðrasveitina
til að leika fyrir almenning,
enda eru allir sammála um, að
ekki megi missa þá ánægju, sem
Lúðrasveit Reykjavíkur veiti
bæjarbúum.
UPPLESTR AK V ÖLD.
Poul Reumert.
„En Idealist44
eftir Kaj Munk, fimtudaginn þ. 9. júní kl. 6V2 í
Gamla Bíó.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag hjá K. Viðar,
verð kr. 3,00.
AÐEINS ÞETTA EINA SINN!
í fjarveru minni
til 14. þ. m. gegnir hr. læknir Óskar Þórðarson heimilis-
læknisstörfum mínum. Viðtalstími hans er kl. 1—2 í Póst-
hússtræti 7. — Framvegis verður viðtalstími minn kl. 10
—12 á laugard., en ekki kl. 1—3 eins og aðra daga.
Bjarni Bjarnason
læknir.
Norðurferðir
Alla: Mánudaga — priðjudaga — og
fimtndaga.
Frá Akureyri sðma daga.
Akranes — ffiorgarnes — Hvalfjðrður.
Afgreiðsla á Akureyri Bifreiðastðð
Oddeyrar.
Til brúðargjafa:
Handskorinn Kristall í miklu úrvali. Schramberger
heimsfræga Kúnst-Keramik í afarmiklu úrvali.
Schramberger Keramik ber af öðru Keramik, sem
gull af eir
K. Efnarsson & Bjðrnsson.