Haukur - 19.09.1898, Síða 3

Haukur - 19.09.1898, Síða 3
II. I.—2. HAtmtrR. 5 Yaha-Hajo, höfðingi semínólanna. (Frásaga eftir J. Grundmann.) — «0» — Fylkið Flórída (þ. e. blómland) er skagi einn suöaustan til í Bandarikjunum í Vesturheimi. Það hefir lengi verið, og er enn, eitthvert fegursta og bezta ríkið af öllum Bandarikjunum. Þegar þeir at- burðir gerðust, sem hjer eru í letur færðir, en það var á fyrsta fjórðungi aldar þeirrar, sem nú er að líða, þá áttu Spánverjar skaga þennan. Þá var hjer um bil eins fjöimennt af Indiönum í Flórída, eins og af hvítum mönnum. Þó höfðu þeir kofa sina út af fyrir sig, en bjuggu ekki innan um hvítu mennina. Maður einn hjet Ringwood; heimili hans og land- eign iá annars vegar að fljóti nokkru allmiklu. Kringum íbúðarhúsið stóðu úthýsin og kofar þræl- anra, og há girðing var umhverfis allar byggingarn- ar. Eúsin stóðu á lítilli hæð, og láu skrautlegir aldingarðar með lítlum tjörnum alla ieið frá þeim og ofan á fljótsbakkann. Hins vegar við húsin voru akrar Ringwoods, og bak við þá stór, grasi vaxin sijetta, umkringd á þrjá vegu af þjettu grátviðar- kjarri, og náði það á einn veginn nærri því heim að húsinu. Akrarnir voru einkum notaðir til þess, að rækta i þeim indigó, en af maís, kartöflum og öðrum ávöxtum var ekki ræktað meira en það, er þurfti til heimilisnotkuuar. A sljettunni bak við akrana höfðu hestar og múlasnar ágæta haga; hirtir og kalkúns- hænsi voru þar og hópum saman. Ringwood átti tvö uppkomin börn, átján vetra dóttur, er Virginía bjet, og son einn um tvitugt, er hjet Randölfur. Randólíur var veiðimaður mikill, og voru hjártdýraveiðar hans mesta yndi, eins og margra annara ungra manna í suðurfylkjunum, er lítið höfðu að gera. Faðir hans hafði keypt og geflð honum tvo mjóhunda, er voru afbragðs veiðihundar. Hann hafði mjög gaman af því, að fara með þá inn í skóg- arþykknið, þar sem það var næst heimilinu, liggja þar fyrir hjörtunum og kalkúnshænsunum, og reka þau út á sljettuna. Morgun einn lagði hann af stað, eins og venja var til, hjeit inn í skógarjaðarinn, klifraðist þar upp á allháa klöpp, er var flöt að ofan, og lagðist svo fyrir á klöppinni. Þetta var árla morguns, og á sljett- anni sást ekki eitt einasta dýr af neinu tagi. Rand- ólfur varð gramur í geði yflr því, að sjá ekkert dýr, því að hann hafði lofað móður sinni dýrasteik til miödegisverðar; hún átti sem sje von á gestum þenn- an dag. Hirtirnir voru annars ætíð vanir að koma fram á sljettuna um þetta leyti morgunsins, til þess að seðja sig á hiuu safamikla sJjettugrasi. En nú gatu þeir ekki komið. Það leit helzt út fyrir, að ein- hver hefði verið þar á ferð á undan Randólfi, og fælt villidýrin á brott. Ef til viil hafði Hickmann gamli krókódílaveiðari verið á ferðinni; hann átti kofa sinn spölkorn inni í grátviðarkjarrinu; máske líka einhver Indíaninn handan yfir fljótið. Sljettan var ónumið land, og höfðu þar allir jafnan veiðirjett. Hún var almenningur, sem enginn nærliggjandi búgarður átti úeitt sjerstakt tilkall til — stjórnarland, sem enginn kaupandi hafði enn þá fengizt að. Randólfur ætlaði einmitt að fara að leggja af stað lengra inn í skóginn, til þess að vita, hvort hann ræki sig þar ekki á einhver villidýr, en þá kom hann allt í einu auga á stóran hóp af hjörtum, sem komu fram í skógarjaðarinn. Hirtirnir hlupu, eins og þeir væru að flýja undan einhverjum; og þannig var það líka. Rjett á eftir hjörtunum kom maður einn f ljós fram úr skugga trjánna. Það var ekki Hick- mann gamli, eins og Randólfur hjelt i fyrstu, heldur einn af þrælum Ringwoods, Múlatti, sem kallaður var »guli Jack«, til aðgreiningar frá »svarta Jack«, er var Svertingi í báðar ættir. Þótt hinn fyr taldi hefði ljósara hörund, þá bar hinn síðar nefndi samt sem áð- ur betra hjarta í brjósti. Hann hafði ævinlega þjón- að húsbónda sínum með trú og dyggð, en Múlattinn hafði hvað eftir annað gert sig sekan í ýmis konar grimmdarverkum, og var hefnisamur fram úr öllu hófi. Jafnvel þótt Ringwood notaði sjaldan svipuna við þræla sína, og jafnvel þótt hann sjerstaklega sýndi gula Jack einstakt umburðarlyndi, þá voru þó afbrot hans stundum þannig vaxin, að óhjákvæmilegt var, að refsa honum þunglega. Einu sinni hafði Virginía kært hanu fyrir föður sínum; hann hafði sem sje misþyrmt mjög ambátt einni þar á heimilinu, og Ringwood hegndi honum auðvitað fyrir það. Litlu siðar framdi hann svo annað ofbeldisverk, er sýndi ljóslega, hve afskaplega hefnigjarn hann var að nátt- úrufari. Virginía átti rádýr eitt, sem hún hafði alið UPP. °& fylgdi það henni um allt, eins og tryggasti hundur. Rádýr þetta fannst dautt á fljótsbakkanum. Það gat ekki hafa drepist á eðlilegan hátt, því að lítilli stundu áður bafði það sjezt leika sjer þar á fljótsbakkanum. Ekkert sár var á því, svo að ætla mætti, að úlfur eða krókódíll heíðiorðið því að bana. Það leit helzt út fyrir, að hafa verið kyrkt. Þannig var því og í raun og veru varið; guli Jack hafði gert það, og svarti Jack hafði sjeð hann gera það. Fyrir þessa ávirðingu hlaut Múlattinn aftur hegningu. Randólfur varð töluvert forviða, þegar hann sá, að maður sá, sem kom fram úr skóginum, var guli Jack. Hann skildi ekkert í því, hvaða erindi Múl- attinn hefði getað átt út í skóg svo árla morguns. A veiðum gat hann ekki verið, því að hann hafði enga ánægju af sliku starfl, jafnvel þótt hann, vegna skógarveru sinnar — hann var skiðhöggvari — væri manna kunnugastur eðli og eiginlegleikum allra þeirra dýra, er voru þar í grenndinni. Randólfur fór að verða forvitinn. Hann hjelt því enn kyrru fyrir á klöppinni, og veitti þrælnum eftir- tekt. Þegar þrællinn kom út úr skóginum, laumað- ist hann fram með skógarjaðrinum, og fór svo inn í máísakur, er var þar rjett hjá. Hann gekk álútur, lötraði ofur hægt, og teymdi eftir sjer dýr eitt, hvítt að lit og litið vexti. Svo hvarf hann inn 1 hina manuhæðarháu maisrunna. Randólfur leit nú eftir hjörtunum; þeir höfðu numið staðar úti á sljettunni, og voru þar á beit. Þegar honum varð aftur litið við, sá hann ein- hverja veru koma út úr skógarjaðrinum, einmitt á sama stað, sem Jack hafði komið út úr honum. Það var líkast manni, er skiiði áfram á höndunum, og drægi fæturnar eftir sjer. Randólfi flaug fyrst i hug, að þetta væri Indíani, en Indíanar og hvítir menn höfðu þá um langan tíma lifað í friði og samkomulagi, og þess vegna gat Indíani ekki haft neina ástæðu til þess, að elta Múlattann á laun. í sama bili kom sólin upp bak við trjátoppana. Hún dreifði geislum sinum yfir sljettuna, alla leið yfir að skógarjaðrinum. Þessi skrítna og ókiljanleg vera skreiddist nú fram úr skugganum og út í sólskiuið, og það stirndi á

x

Haukur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.