Haukur - 19.09.1898, Qupperneq 7

Haukur - 19.09.1898, Qupperneq 7
II. 1.—4. tÍAtj KÚR. 7 þeirra rætist. En hvernig ætla yrði umhorfs í heim- inum, þegar svo stórt landflæmi, og svo margir menn lytu einum valdsherra, sem hefði nógan mátt til þess að koma fram vilia sínum í hverju sem væri? Vjer þurfum ekki annað, en að kynna oss hina rússnesku verzlunar- og atvinnu pólitík, til þess að ganga úr skugga um það, að Kússar myndu þá kremja til ó- lífis hverja þá þjóð, er vildi reyna að bæta kjör sín eða keppa við þá. Og það myndi þá ekki fara betur fyrir Banda- ríkjunum, heldur en hinu brezka riki, því að heims- veldi Breta er aðalskilyrði fyrir vexti og viðgangi Bandaríkjanna. Eins og nú er ástatt, bafa Bandarik- in tilefni til að auðgast að löndum og taka framför- um í verzlunarmálum o. fl. En hinar núverandi kringumstæður eru að öllu byggðar á hinu engilsax- neska heimsveldi, og ef Tyrkland, Persía, Indíaland og Kína ieggst undir Rússland, þá mun ástandið breytast gersamiega, einnig að því er Ameríku snertir. Þegar Rússland hefði fengið yflrráðin yflr Indihafi og náð undir sig allri verzlun í Asíu, þá myndu þeir að sjálfsögðu verða öllu ráðandi sjóríki. Hafið mikla (kyrrahaflð) yrði þá Rússneskt stöðuvatn, og austur- takmörk Rússaveldis yrðu í raun og veru vesturströnd Norðurameríku. íbúar hinna brezku eyja myndu fækka, þar til þeir stæðu í rjettu hlutfalli við fram færslumagn eyjanna sjálfra. í hinu Brezka ríki gæti ekki lengur orðið neinn markaður fyrir kornútflutn- ing frá Ameríku, og bólfestufarirnar írá Evrópu til Ameríku myndu algerlega hætta. Rússland myndi vaxa óðum að auðlegð og mannfjölda, en ekkert land á vestanverðum hnettinum myndi geta tekið neinum framförum, því að heimsmarkaðurinn yrði þá í hönd- um þess ríkis, er nota myndi ofurefli sitt til þess, að draga mátt úr verzlun allra annara ríkja. Bandaríkin geta því í raun og veru ekki lengur verið óháð með öllu, eða sjálfráð um, hvað þau gera. Forlög þeirra og framtíð er teDgd út í æsar við kyn- flokk þann, sem þau heyra til. Þau eru tengd hinu brezka ríki, ekki að eins með böndum frændseminn- ar, heldur einnig með sameign sinni, að því er allar framfarir snertir, og þessi tvö riki hljóta þvi að lokunum að koma fram sem ein þjóð, þegar um hin miklu alheimsmál er að ræða. Hið sama afl, sem veitt gæti Rússum yfirráðin yflr hinu brezka ríki, myndi einnig á ótrúlega skömm- Um tima koma Ameríku, Suðurafríku og Ástraliu úndir áhrif Rússa. Engilsaxneski kynflokkurinn hefði þá rýmt sæti sitt fyrir hinum slafneska kynflokki. Stríðið er því ekki að eins milli Englands og Rúss- lands, heldur er það milli alls hins engilsaxneska kynflokks og hins slafneska kynflokks í heild sinni. Yelferð alls heimeins er komin undir bandalagi allra Engilsaxa. England og Bandaríkin ættu því að varast, að taka Juda og Efraim sjer til fyrirmyndar. Hiki þessi ættu að muna eftir því, að þau eiu bæði komin af sama kynflokki, og hljóta því að hafa sömu ^hugaefni, muna eftir því, að þau þurfa að taka sam- an höndum, til þess að vernda forustu sína, því að henni ættu þau að halda, meðan forsjónin vill svo yera láta, eða með öðrum orðum, meðan þau breyta Samkvæmt boðum sannleikans og rjettlætisins við all- ar þær þjóðir og alla þá kynflokka, sem eru minni ^úáttar en þau. Guð skapaði ekki konuna fyr en hann var búinn að sJá svo um, að hún hefði einhvern til þess að daðra við. Hann hafði aldrei verið veikur. Það var um borð i ameríska gufuskipinu »Nantucket« Skipstjórinn, hr. Phinney, spurði einn af farþegunum, hvort hann vildi ekki fá sjer í staupinu. »Nei, þakka yður fyrir«, svaraði farþeginn; »jeg hefi enga ánægju af slíku«. »Enga ánægju af sliku — hvað meinið þjermeðþví?« spurði Phinney. »Þrð skal jeg segja yður. Jeg á við það, að jeg hefi aldrei bragðað hvorki brennivin eða romm eða konjakk eða vín eða öl eða nokkurn annan áfengan drykk«. »En hamingjan hjálpi mjer, bvað drekkið þjer þá?« spurði skipstjórinn. »Vatn«, »Nei, jeg er að spyrja, hvað þjer drekkið með mál- tiðunum, með morgunmatnum til dæmis«. »Kalt vatn«. >En með miðdegismatnum þá ?< »Kalt vatn«. »Og með kvöldmatnum ?« »Kalt vatn«. >En þegar þjer nú verðið veikur, hvað drekkið þjer þá ?« »Jeg hefi aldrei verið veikur«, svaraði farþeginn. Fróðleiks-molar. Stærð Lundúnabo rgar. Allir vita, að Lundúna- borg er stærsta borg í heimi. Hún hefir svo marga ibúa, að vjer Islendingar erum alls og alls ekki nema eins og að eins einn sjötugasti og niundi hluti þeirra manna sem byggja þá einu borg. Svæði það, sem borgin nær yfir, er þrjár og hálf míla. Á ári hverju eru byggð það mörg ný hús, að leggja verður að meðaltali fimm mílur samtals af nýjum strætum á ári. * , * * I slökkviliði Lundúnaborgar eru að eins 700 menn, og má það gegna furðu, að jafn fámennt slökkvilið skuli nægja í svo afarstórri borg. En það er líka að eins því að þakka, að útbúnaður allur, bæði til þess að ná slökkviliðinu saman, og slökkva, er hæði hagkvæmur og nógur i alla staði. Til slökkvitólanna hefir ekkert verið sparað. Þar eru 68 slökkvivjelar, sem hreifðar eru með gufuafli, 100 handslökkvivjelar, og 135 björgunarstigar, björgunarsekkir og ÖDnur áhöld. Hjer við bætast 5 gufuafls-slökkvivjelar, nokkurs konar skip, sem höíð eru á floti á ánni Tems, til þess að nota, ef kvikna skyldi i húsum þeim, sem næst eru ánni. * # * Alkóhólið og manndauðinn. íbúarnir i borginni Kasan á Rússlandi eru tvennskonar: Tattarar, sem eru Múhameðstrúar, og Rússar, er hafa hina einu sönnu og sáluhjálplegu kaþólsku trú. Báðir þessir trúflokkar stunda sams konar atvinnugreinar, og lif'a hvorir innan um aðra við alveg sams konar kringumstæður, en þó er manndauðinn hlutfallslega mjög ólíkur meðal þeirra. Af hverju þúsundi Tattara deyja að meðaltali á ári hverju 21, en af hverju þúsundi Rússa ekki færri en 40. Orsökin til þessa er sú, að Tattararnir breyta eítir boðum Kóransins, og bragða aldrei átenga drykki, en hinir kristnu Rússar drekka drjúgum. Þessi staðreynd er góð sönnun fyrir skaðsemi áfengisnautnarinnar. * * * Búningur slökk vi liðsi ns f Berlín. Slökkvi- liðið i Berlín er í vatnsheldum treyjum með tvöföldu fóðri, og má fylla rúmið milli fóðranna með vatni. Þegar nógu mikið vatn er í treyjunni, og eitthvað er komið við hana, gýs vatnið út um gat á hjálminum, og streymir ofan um búninginn utan verðan, og verndar hann þannig enn þá betur gegn eldinum. Reykhjálmarnir, sem slökkvi- liðið á Þýzkalandi, Austurriki, Hollandi og Italiu notar, gera það gagn, að sá sem hefir slíkan hjálm á höfðinu,

x

Haukur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.