Haukur - 01.03.1910, Síða 4

Haukur - 01.03.1910, Síða 4
H A U K U R . wÞað þykir hennar hátign víst gaman að heyra«. »Já, henni þykir innilega vænt um það, þegar lánið er með mjer á einn eða annan hátt«, svaraði keisarinn. »Ja, og nú í seinni tíð virðist lánið einkum hafa verið yðar hátign fylgispakt«. »Já, guði sje lof varð sigurinn mín inegin«. »En hverjum skrifaði yðar hátign hitt brjefið?« »Nú, svo að skilja. Þjer eruð dálítið forvitin, fagra frú«. »Það er nú einmitt einn af breyskleikum okk- ar kvenfólksins«. »Það var til hennar kjördóttur minnar litlu, hennar Eleónóru«. »Svo — já, til ungu, fallegu stúlkunnar, sem er lagsmær drottningarinnar? Þjónninn minn heíir sagt mjer, að hún sje stödd hjerna í Parísarborg«. »Hún Eleónóra?« svaraði keisarinn hlæjandi. »Nei, hún fer ekki burt af Rússlandi án míns leyfis«. Allt í einu breytti frúin bæði umræðuefni og málrómi, og mælti með byrstri röddu: »Yðar hátign hefir þó víst ekki gleyml í sigurkætinni loforði því, sem þjer gáfuð mjer einu sinni?« »Hvaða loforð var það?« »Að þjer skylduð giftast mjer og gera mig að drottningu, ef jeg fæddi yður ríkiserfingja«. Keisarinn starði á hana náfölur og óttasleginn. Hafði hann máske gleymt því, sem frúin hafði látið hann heita sjer, og látið hann staðfesta með dýrum eiði? Það var litla stund kyrt og hljótt í herberg- inu. En því næst mælti frúin með lágri röddu: »Það liggur við borð að jeg verði móðir«. Keisarinn starði á hana með óltaþrungnu augnaráði. »Sýnið þá, Alexander, að þjer hafið verið verð- ur ástar minnar«. SL 25. kapítnli. Eldraunin. Þegar Jeromy læknir vitjaði Wilmers daginn eftir, mælti Wilmer: »Það var allra þægilegasti og skemmtilegasti maður, þessi læknir, sem þjer senduð til mín í gær í staðinn yðar«. »Mjer þykir vænt um að heyra það, að þjer voruð ánægður með hann«, svaraði læknirinn. »Já, hann var svo blátt áfram og alúðlegur, að jeg lijelt nærri því að hann ætlaði að kyssa hana Maríu«. »Hvað ertu að segja, faðir minn!« mælti María. »Nú, maður verður að segja eitthvað að gamni sínu í þessum leiðinda heimi...........Hvað heitir hann?« »Alexander Rudin«. »Sama nafni og keisarinn ykkar«. »Já.........Hann kemur ef til vill oftar til yðar í staðinn minn. Jeg er svo ákaflega önnum kafinn«. »Hann er ætíð velkominn...........En það er eitt, sem jeg vildi gjarnan minnast á við yður, eða rjettara sagt spyrja yður um«. »Segið það, sem yður býr í brjósti, herra Wilmer«. »Veit hann um þetta — ef jeg má svo að orði komast — ólán, sem dóttur minni heíir borið að höndum?« »Já«. »Það er gott. Jeg var sem sje liræddur um, að þetta væri máske ungur og staðfestulítill mað- ur, sem ef til vill kynni að hlaupa í gönur«. »Mjög ungur getur maður ekki beinlínis sagt að hann sje«, mælti læknirinn. »Hann er einn af þeim, sem ekki er svo auð- velt að dæma um eftir útliti«. Wilmer var í raun og veru stórhrifinn af þess- um nýja lækni. Hann lá allan daginn og hugsaði um það, hversu gott það hefði verið, að eiga slík- an tengdason, og varð honum það þá, að óska Jóni Halifax þangað, sem sagt er að hitinn sje nógur. Alexander keisari hugsaði líka mikið uro þessa nýju kunningja sína. Augu hans voru smám saman farin að opnasl fyrir því, að frú Nischinkin var undirförul og slæg kona, og grunur var vaknaður hjá honum um það, að ósk hennar myndi að öllum líkindum verða sjer ærið dýrkeypt. Til Maríu bar hann hreina vináttu og ann- að ekki. Hann hafði ánægju af því, að tala við þessa ungu konu, sem var alveg eins og barn enn þá, þrátt fyrir mótlæti það, er hún hafði orðið að reyna. Sjerstaklega hafði hann gaman af því, að tala við hana um sjálfan sig, og heyra álit henn- ar á »hinum mikla Alexander keisara«. »Haldið þjer, að þjer hefðuð ekki gaman af að kynnast honum?« spurði hann hana einu sinni- »Keisaranum?« spurði María forviða. »Já. Haldið þjer að yður langaði ekki til þess, að sjá hann og tala við hann?« »Jú, að sjá hann, en ekki að tala við hann«, svaraði María. »Og hvers vegna ekki?« »Vegna þess að jeg hefði ekki liugmynd um það, hverju jeg ætti að svara slíkum manni«. »Það var skrítin ályktun, ungfrú María. Ef hann nú t. d. talaði við yður blátt áfram eins og jeg? Hvað segið þjer um það, herra Wilmer, haldið þjer að keisarinn sje meira en blátt áfraro maður?« »Nei, það er hann reyndar ekki. En sarot sem áður er eitthvað, sem veldur því, að maður tal- ar ekki við hann eins og yður eða yðar líka. Jeg myndi svei mjer verða hálf-ráðþrota líka, ef jeg stæði augliti til auglitis við hann«. »Þetta er heimskuleg ímyndun, sem jeg skal reyna að lækna bráðlega«. Wilmer hristi höfuðið efablandinn. (Framh.). - 31 — — 32 —

x

Haukur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.