Haukur - 01.03.1910, Qupperneq 12

Haukur - 01.03.1910, Qupperneq 12
HAUKUR. leg sjón. Á torginu niðri við Casamicciola, ætl- uðum við varla að komast áíram fyrir fólksþyrp- ingunni, og meðan farið var með Francesco ofan á spítalann »/a misericordia«, til þess að láta binda sár hans, barst sagan af San Asinone og Beppinu eins og eldur í sinu um alla eyjuna, og það með slíkum feiknahraða, að Giovanni gamli vissi miklu meira um þetta, heldur en jeg, þegar jeg loksins komst, löðusveittur og slit-uppgefinn, alla leið ofan að la piccola sentinella. Á borðinu í herberginu mínu lá þrílitt bjef, sem angaði af rósa-ilm — það var frá frú Zschu- kowskij. Nú kom ráðningin á gátunni. Jeg fjekk mjer sæti i forsælunni undir bogsvölunum, hagræddi mjer þar svo vel sem jeg gat, braut brjefið upp, og tók að lesa það. Það var þrungið af örvilnun, þrá og von, öllu í senn. Það var eins og mig hafði grunað. Drengurinn hennar lá hættulega sjúkur í illkynjaðri hitasótt. Allt hugsanlegt hafði verið reynt, en allt reyndist ár- angurslaust. Svo hafði vinkona hennar ein sagt henni frá kynjalækning þeirri, sem austurríska stúlkan hafði orðið aðnjótandi i Ítalíuför sinni, sagt henni, að henni hefði batnað samskonar veiki af seyði af Jóhannesarblöðum, þegar allir læknar voru frá gegnir, og hún hafði lika sagt henni, hvar þessi heilögu blöð fengjust. Og nú trúði móðirin á þau, þau og ekkert annað. Hún hafði sagt drengnum sínum frá hinum guðhrædda einsetumanni á hinu heilaga fjalli, sagt honum frá kynjablöðunum, sem heilagur Nicola hafði haft heim með sjer írá eyjunni Naxos, og nú trúði drengurinn líka á þau, og beið þeirra með brennheitri þrá. Og hún skrifaði um það, hve óþol- inmóð hún væri að biða þeirra. Hún kvaðsf öf- unda mig mjög af því, að hafast við þarna »mitt í yfirnáttúrlegleikanum, og mega koma inn í hinn heilaga garð hins heilaga Nicola, þar sem hið heilaga kynjatrje vex og breiðir út blöð sin«. Hún sagðist hugsa sjer göngu mína upp á fjallið, og bað mig að lýsa fyrir sjer hinni heilögu kapellu, og hinum guðhrædda, æruverða ibúa hennar, og lofaði að launa honum og kirkjunni rikulega, ef barninu hennar batnaði. Og þegar hún því næst tór að skrifa um bæn og föstu, um kvöldklukkna- hljóm og sálmasöng, um marmarasúlnaraðir kap- ellunnar og reykelsisilminn, þá varð mjer það á, að bera þessar skáldlegu hugmyndir hennar sam- an við óhjúpaðan verulegleikann — óþrifalega þorparann í dimmmu asnastíunni, fátæklegu, ó- hreinu hellisskúta-kappelluna, og veslings Fran- cesco lúbarinn og blóðugan. Og þegar hún svo lauk máli sínu með því, að hin heilaga jómfrú myndi oft og tiðum birtast hinum æruverða ein- búa í húmi næturinnar, þá datt mjer ósjálfrátt í hug Beppina og »móðursystir« hennar, og gat jeg þá ekki að mjer gert, að reka upp skelli- hlátur — jeg hló svo hátt og dátt að einfeldni kvenfólskins og heimsku mannanna, að hláturinn bergmálaði i hvelfingunni. wÞjer hlægið svo dátt, að jeg get stór-öfund- að yður«, mælti baðlæknirinn, sem kom reik- andi eftir súlnagöngunum. »Það er auðheyrt, að þjer eruð ekki læknir«. »Jú, víst er jeg læknir — það er einmitt það, sem jeg er«, svaraði jeg. »Og þetta, sem jeg var að hlægja að, er einmitt brjef frá sjúklingi einuni. Þarna getið þjer sjeð það«. Jeg fjekk honum brjefið. (Framh.) SRríííur. MÁSKE bESS VEGNA. »Hvers vegna ert þú svona lítill drengur minn?« »Jeg veit ekkí. Ætli þaö geti ekki stafað af því, að jeg er bara hálfbróðir?« • í BARNASKÓLANUM. Kennarinn: »Hvað hefir hesturinn margafætur?« Jón litli (sonur húsgagnasmiðs): »Fjóra — sinti undir hverju horni. • ÚR STÍLABÓK JÓNS LITLA. »Jeg sá ljómandi fallega spegilmynd niður við tjörn. Á bakkanum sat stúlka og mjólkaði kú, og í tjörninni sá jeg það gagnstæða«. EINA HUGGUNIN. Ekkjan (situr grátandi við gröf manns síns): »Nú er það eina huggunin mín, að nú veit jeg þó, hvar hann er á kvöldin«. SVO AÐ SKIL.TA. Óli: »Veiztu hvað jeg sá i gær? Hugsaðu þjer bara, jeg sá snjótitling standa á höfði«. Geiri: »Hvaða óttalegt bull!« Óli: »fetta er alveg satt. Hann stóð á höfðinu á Thorvaldsensmyndinnk. FAÐ VAR HANN LÍKA. Dyrabjöllunni á geðveikrahælinu var hringt hib miðja nótt. Vökukona ein stakk höfðinu út um glugg8 og spurði: »Hvað gengur á?« »Er ekki hægt að ná í lækninn? Húsbóndi minn er allt í einu orðinn geggjaður«. »Hvað þá, núna um hánótt! Hann hlýtur að verd vitlaus /« • Pað sýnist svo. Pjetur: »Hvar er páfagaukurinn, semjeggaf þjer i fyrra?« Hannes: »Jeg hefi slátrað honum og jetið hann. En hann var skolli seigur«. Pjetur: »Hvað segirðu, maður? Hefirðu slátr- að þessum inndæla dýrindis-fugli, sem gat talað eins og maður«. Hannes: »Hvaða skollans vandræði! ■ En pa^ he/ðí hann átt að geta sagt mjcr sjálfur«. • Oli (scm móðir hans er nýbúín að flengja, segir við systur sína): »Já, Stína, sá maður, sem giftist þjer’ þegar þú ert orðin stór, hann verður ekki öfundsverðuf af tengdamóðurinni. • A. : »Heimskan er nú á dögum engin tálmun þesS< að komast áfram í heiminum. B. : »Nei, og maður má vera feginn, meðan húö er ekki beint skilyrði fyrir því«. Ritstjóri: STEFÁN RUNÓLFSSON, Regkjavík. Prentsmiðjan Gutenberg. — 1910.

x

Haukur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.