Haukur - 01.05.1911, Page 2

Haukur - 01.05.1911, Page 2
H AUKUR. urnar skiljum ekki rödd stjórnvísindanna . . . . við þekkjum einungis rödd hjartans .... þess vegna grátbæni jeg yður um það, að hlifa drotln- ingu yðar við þeirri þyngstu sorg, sem nokkra konu getur hent. Jeg bið guð að líkna þeirri konu, sem ætti að þola allt það, sem jeg hefi orðið að þola. Þegar lýðurinn — eða ráðu- nautar yðar — hvísla því að yður, hvað yður beri að gera vegna landsins yðar — vegna rúss- nesku þjóðarinnar, og bendir yður á Napóleon til fyrirmyndar — manninn, sem Ijet skilja sig við konu sína, til þess að geta eignast ríkiserf- ingja — þá munið eftir litla húsinu í Fontaine- blau, og bæn þeirri, sem Jósefína bar upp fyrir yður á banasæng sinni.........ó, að þjer viss- uð — og skilduð, hvað jeg hefi orðið að þola! Meðan gæfan brosir við þeim, sem við unnum af öllu hjarta — meðan við vitum að honum leikur allt í ljmdi, þá er söknuðurinn tiltölu- lega ljettbær — nokkurn kjark þarf þó til þess að bera hann. — En þegar gæfan snýr við honum bakinu — þegar mæðudagana ber að höndum, þá er það margfalt meiri raun fyrir okkur, margfalt meira kvalræði, að geta ekki beinlínis tekið þátt í áhyggjum hans og sorgum .... Jeg get ekki óskað neinum þeirra harm- kvæla, sem jeg hefi orðið að þola, og — þess vegna bið jeg fyrir Elísabet«. Keisarinn starði hrærður í huga á hína deyjandi konu. »Þorir Alexander keisari ekki að heita mjer þvi, að dauðinn einn skuli skilja hann við konu hans?« »Jú!« svaraði keisarinn með áherzlu, og rjetti henni hönd sína. Hann reyndi að sjmast rólegur, en í raun og veru var hann í ákafri geðshræringu. »Látið hana ætíð vera dýrmætustu eign hjarta yðar«, mælti drottningin, og hneig ör- magna aftur á bak. — — — — — — — Fáum dögum síðar var fyrri kona Napó- leons keisara borin til grafar. Undarleg eru oft og tiðum örlög mannanna barna. Þegar Jósefina drottning var í hlóma lífsins og mestum dýrðarljóma, þá hefði hún sjálfsagt brosað að hverjum þeim, sem spáð hefði því fyrir, að aðeins sárfáir menn mundu verða staddir við jarðarför hennar, en að einn þeirra yrði þó — Rússlandskeisari. K - 99 — 3 0. knpttnli. Dóttir. Alexander keisari hjelt nú aftur heim tií bústaðar síns. Hann var dapur í bragði og mjög hugsandi. Þegar hann kom heim til sín, kom her- bergisþjónn hans inn til hans og mælti: »Maður, sem fyrir alla muni vill fá að tala við yðar hátign, hefir beðið hjer í einar þrjár klukkustundir«. »Hvaða maður er það?« »Hann heitir Jón Halifax«. »Jeg þekki hann ekki«. »Hann segir, að það sje mjög áríðandi mál- efni, sem hann þurfi að tala um við yðar há- tign«. »Eitthvert málefni, sem að líkindum endar á því, að biðja um peningahjálp. Jeg er ekki upplagður til þess, nú í svipinn, að tala við þess konar menn. Gefðu honum einhverja dá- litla peningaupphæð, og láttu hann svo fara«. Pjónninn fór, en kom aftur að vörmu spori. »Hann segir, að það sje um mjög á- riðandi málefni að ræða, sem snerti yðai* hátign«. »Nú, það er þá líklega bezt að láta hann koma inn, fyrst honum er svo annt um að ónáða mig«. Litilli stundu sið- ar kom Jón HalifaX inn. Skegg hans hafði vaxið, svo að útlit hans var næsta villi' mannlegt, og að minnsta kosti ekki geðslegra, en það hafði áður verið. »Jeg er bæði fantur og þrælmenni, yðar há- tign«, mælti Jón, er hann hafði lotið keisaran- Um. »f>að eru nú satt að segja lítil meðmæli«* svaraði keisarinn brosandi. »Ó, jú. í augum frú Nischinkin . . . .« »Hvað eigið þjer við?« spurði keisarinn snöggur í bragði. »Hún hefir látið mig verða áskynja uOT óttalegt leyndarmál — svik, svo níðingsleg, að engum gætu komið þau til hugar, nema jafn illri sál og hennar«. »Talið þjer, maður, segið mjer allt!« mælti keisarinn óþolinmóður. ★ A ¥ Þegar frú Nischinkin rak rýtinginn í hrjóst Ariberts, mætti hann þar fyrirstöðu, sem hún hafði ekki húizt við. Arihert bar sem sje á brjósti sjer mynd Elínar, drifna sillurmynd, og hún varð til þess, að bera at honum lagið. — 100 — »Jeg er bæði fantur og þrælmenni, yðar hátign«.

x

Haukur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.