Haukur - 01.05.1911, Qupperneq 8
H AUKUR.
Þegar Hunter vaknaði úr dvalanum, kvaðst
hann einnig sannfærður um, að ókunni maður-
inn hefði haft þennan klút um hálsinn. Einn-
ig þóttist hann alveg viss um það, að ókunni
maðurinn hefði stráð sveíndufti í karrisósuna
sína, meðan hann stóð við gluggann, og á þann
hátt gert hesthúsið varðarlaust.
Um horfna hestinn kom það i Ijós, að hann
hafði einmitt verið þarna niðri i dældinni, því
að þar sáust greinileg för eftir hann í moldinni,
er öll var útspörkuð. En hesturinn var ger-
samlega horfinn. Og þótt háum fundarlaunum
hafi verið heitið, og allir Tatarar þeir, sem um
þetta leyti hjeldu til á heiðinni, væru beðnir að
leita hans, þá hefir ekkert til hans spurzt.
Loks hafa og leifarnar af kvöldmat drengsins
verið rannsakaðar elnafræðislega, og það komið
í ljós, að i þeim var töluvert af ópiumsdufti,
jafnvel þótt heimafólkið hefði borðað sama mat
þetta kvöld, og ekki fundið að hann hefði nein
svæfandi áhrif.
Þetta eru nú míkilvægustu staðreyndirnar,
lausar við allar tilgátur, og hefi jeg skýrt frá
þeim blátt áfram og alveg öfgalaust. Og nú
skal jeg skýra yður frá því, hvað lögreglan hefir
aðhafzt i máli þessu.
Gregory leynilögreglu-umsjónarmaður, sem
tekið hefir að sjer að rannsaka málið, er mjög
duglegur lögreglumaður. Ef hann bara væri
gæddur litið eitt meira hugsjóna-afli, þá gæti
hann með tímanum orðið ágætur leynilögreglu-
maður. Undir eins og hann tók til starfa, fann
hann og handsamaði mann þann, sem grunur-
inn hafði eðlilega fallið á. Það var nú reyndar
ósköp auðvelt að finna hann, þvi að hann er
alþekktur um þessar slóðir. Hann heitir Fitzroy
Simpson; hann er af góðum ættum, og hefir
notið góðs uppeldis, en hann hefir farið með
allan auð sinn við veðreiðarnar, og hefir á síð-
kastið átt mjög erfitt uppdráttar. Þegar farið
var að athuga bækur hans, kom það í ljós, að
hann hefir veðjað 5000 sterlings pundum móti
Silfur-Blesa.
Þegar hann var handsamaður, kannaðist
hann undir eins við það, að hann hefði farið til
Dartmoor í þeirri von, að fá þar ýmiskonar
vitneskju um Kings Pylands hestana, og sömu-
leiðis um Desborough, hinn aðal-gæðinginn, sem
Silas Brown hefir undir höndum, og geymdur
er í Capleton hesthúsunum. Hann bar alls ekki
á móti því, að hann hefði kvöldið áður hagað
sjer eins og drengurinn og vinnukonan segja, en
hann neitar því fastlega, að hann hafi haft nokk-
uð glæpsamlegt í huga — segist blátt áfram hafa
viljað reyna að ná í áreiðanlega fræðslu um
hestana. Þegar honum var sýndur hálsklútur-
inn, varð hann náfölur, og kvaðst enga grein
geta gert fyrir þvi, hvernig hann hefði komizt í
hendur myrta mannsins. Föt hans voru vot,
og sýndu það, að hann hafði verið úti í regn-
inu um nótlina, og göngustafur hans, er var
gildur og sterkur, var með þungum blýhún í
handfangsstað, og gat hann vel hafa notað hann
— 111 —
til þess að lama hauskúpuna á vesiings hesta-
þjálfanum.
En á hinn hóginn fannst ekki nokkurt sár
á manninum, og virtist þó hnífur Strakers bera
vott um, að ofbeldismaðurinn, eða einhver þeirra
ef fleiri voru, hlvti að bera menjar hans. Svona
er nú sagan í stuttu máli sögð, Watson, og ef
þjer getið varpað einhverju ljósi yfir hana, þá
skal jeg vera yður mjög þakklátur fyrir það«.
Jeg hafði hlustað með mesta athygli á þessa
stuttu en glöggu skýrslu Sherlock Holmes, og
jafnvel þótt flest aðalatriðin væru mjer áður
kunn af blöðunum, þá skildi jeg nú, að jeg
hafði ekki áður metið gildi sumra þeirra rjetti-
lega, og ekki sett þau í rjett samband hvert við
annað.
»Er það ekki hugsanlegt«, mælti jeg, »að
Straker hafi veitt sjer áverkann sjálfur með
hnífnum sínum, um leið og hann fjell, eða í
krampaumbrotum, sem vel gátu verið samfara
heilahristingi?«
»Það er ekki einungis hugsanlegt, heldur
sennilegt«, svaraði Holmes. »En ef svo er, þá
ónýtist alveg það atriðið, sem hinum ákærða
var mest til málsbóta«.
»Samt sem áður skil jeg ekki enn þá, hvaða
tilgátur lögreglan kann að hafa lcomið með sem
þær líklegustu«, mælti jeg.
»Jeg er hræddur um, að hægt sje að hreyfa
mörgum og mikilvægum mótmælum gegn hverri
einni og einustu tilgátu, sem komið er með«,
mælti sambýlismaður minn. Samt sem áður tel
jeg vist, að lögreglan áliti, að Fitzroy Simpson
hafi stráð svefndufti i mat drengsins, og síðan
opnað hesthúsið mað fölskum lykli, sem hann
hafi á einhvern hátt náð sjer í, og farið burt
með hestinn, bersýnilega í þeiin tilgangi, að
stela honum. Beizli hans vantar, svo að Simp'
son hlýtur að hafa lagt það við hann. Hann
hefir skilið dyrnar eftir opnar, og síðan lagt af
stað og te}rmt hestinn áleiðis yfir heiðina, en
þar hefir svo Straker annað hvort mætt honuni
eða náð í hann. Þeim hefir þá eðlilega lent
saman, og Simpson molað hauskúpuna á Strak-
er, án þess að verða sjálfur fyrir nokkrum á-
verka af hnif þeim, sem Straker reyndi að verja
sig með. Því næst hefir þjófurinn annað hvort
farið með hestinn í eitthvert öruggt fylgsni, eða
hesturinn hefir lilaupið frá þeim, meðan þeii*
voru að fljúgast á, og leynist þá enn þá ein-
hverstaðar á heiðinni.
Þetta er álit lögreglunnar á málinu, og hversu
ósennilegt sem það er, að viðburðaröðin hat1
í raun og veru verið þessi, þá eru þó allar aðrai’
skýringar á málinu enn þá ósennilegri. En nú
komum við bráðum á staðinn, þar sem athurð-
ir þessir gerðust, og mun jeg þá athuga allt frá
rótum, en meðan það er ógert, get jeg ekki sjeð,
að við getum komizt nær sannleikanum, envið
þegar höfum gert«.
(Framh.)
— 112 —