Haukur - 01.06.1912, Page 6

Haukur - 01.06.1912, Page 6
H A U K U R . arm, eins og djöfulinn ájálfan. Maður veit aldrei hvaðann hann kemur eða hvert liann fer. Síðast þegar jeg sá hann, var sagt að hann kæmi frá Þýzkalandi«. »Nú, já, jeg endurtek það — — varið yður á honum!« Áður en lögreglumaðurinn fór út, virti hann nákvæmlega fyrir sjer gesti þá, sem inni voru. Svo sneri hann sjer að Breddubeiti, og mælti kumpánlega: »Ert þú þarna, þrjóturinn þinn? Það er langt síðan maður heíir nokkuð orðið var við þig. Slæstu aldrei upp á neina nú? Ertu nú loksins farinn að verða dálítið skynsamur?« »Jeg er orðinn töluvert skynsamur, herra Borel. Þjer vitið, að jeg rota aldrei neinn, nema hann gefi tilefni til þess«. »Já, það vantaði nú ekkert annað, en að þú, heljarmennið, færir að egna aðra móti þjer«. »Lítið þjer á, hjerna hefi jeg fundið meistara minn í barsmíðinni«, mælti Breddubeitir, og lagði höndina á öxl Búdólfs. »Það er svo. Hann þekki jeg ekki«, mælti lögreglumaðurinn og virti Rúdólf nákvæmlega fyr- ir sjer. »Og við skulum alls ekki kjmnast hvor öðr- nm, lagsmaður«, svaraði Rúdólf. »Þess vil jeg óska þín vegna, drengur minn«, mælti lögreglumaðurinn. Svo sneri hann sjer að krárkerlingunni: »Góða nótt, móðir Ponissa! Hvin er regluleg músagildra, þessi krá yðar. Þetta er þriðji morð- inginn, sem jeg hefi sótt liingað«. »Já, og jeg vona, að það verði ekki sá síðasti, herra Borel. Jeg er ætíð yðar þjenustu reiðubú- in!« mælti krárkerlingin og hneigði sig auð- mjúklega. Þegar lögreglumaðurinn var farinn, tróð ungi, fölleiti maðurinn aftur í pípu sína, og mælti með hásri röddu við Breddubeiti: »Þekktuð þjer ekki manninn með grísku húf- una? Hann heitir Velú. Þegar jeg sá lögreglu- þjóninn koma inn, þá sagði jeg einmitt við sjálfan mig: Það hlýlur að búa eitthvað undir því, að Velú heldur ætíð liendinni undir borðinu«. (Framh.). • (£>vO» # -0<3Ng)- Smásögur um nafnkunna menn. Liulvig Fulda, þýzka stórskáldið nafnkunna, sagði einu sinni: »Til þess að ná verulegu áliti sem skáld eða rithöfundur í Berlín, verður maður annað hvort að vera dauður, spilltur eða útlend- ingur. Bezt er auðvitað að vera dáinn, spilltur útlendingur«. • Wrangel hersliöfðingi (1613 — 1676) var einu sinni sem oftar í veizlu hjá Svíakonungi, og sat þá ung prinsessa við hliðina á honum. Hann vissi að það var kurteisisskylda í samkvæmum, að slá stúikunum gullhainra, og fer því að dást að því, hve hendurnar á henni sjeu mjúkar og fallegar. »Já, jeg hefi líka lagt mikla rækt við það, að hirða vel húðina«, svaraði prinsessan. »Jeg geng t. d. ætíð með hjartarskinnshanzka«. »Það er einkennilegt«, mælti Wrangel, »jeg hefi í meira en þrjátíu ár verið í hjartarskinns- brókum, en þó er sitjandinn á mjer alveg eins og hákarlsskrápur«. © Demidov fursti, (1813—1870) rússneski auð- maðurinn nafnkunni, sendiherra í Flórens, var einu sinni í samkvæmi í París að ræða við ungan spjátrung, sem ætíð var að rjála með annari hend- inni við andlitið á sjer, auðsæilega af ásettu ráði. Loksins skildi furstinn hver tilgangur hans var, og mælti: »Hvaða ljómandi halið þjer þarna fallegan stein í hringnum yðar!« »Já, það lieíði jeg haldið! Lítið þjer bara a liann, það er ekta malakitsteinn!« »Já, jeg kannast við þann stein. Á búgarði mínum heima í Úral, hefi jeg látið gera mjer tvo ofna úr þessu efni«. Alexander v. Humbolt, þýzki náttúrufræðingur' inn heimsfrægi (1769- 1859), átti einu sinni tal við hirðkonu eina um borðdans, sem hún hafðr heyrt að tekizt hefði vel á öndungasamkomu þa skömmu áður, og sagði hún, að sjer þætti slík fyrirbrigði næsta ótrúleg. »Jeg álít það aftur á móti mjög sennilegt«r mælti Humbolt. »Eða hvers vegna ætti borðið ekki að hafa fært sig — þjer vitið, að sá hyggn' ari lætur ætíð undan«. • Sarah Bernhardt, frakkneska leikkonan nafn- fræga, er svo mögur og grannvaxin að til þess er tekið. Blöð þau í. París, sem eru lienni miður góðviljuð, hafa oft hent gaman að þessu. Eitt stórblaðið ílytur t. d. fyrir skömmu svohljóðandi frjettaklausu: »Tómur vagn brunaði fyrir liornið, nam staðar við dyrnar á leikhúsinu, og út úr honum kom — Sarah Bernhardt!« Iíarl Thierseh, nafnfrægur þýzkur handlæknir (1822—1895), prófessor við háskólann í Erlangen og síðar við háskólann í Leipzig, sat einu sinni * viðtökustofu sinni, og kom þá sjúklingur einn in» til hans. »Heimilislæknirinn minn segir, að jeg verði að láta gera á mjer holskurð, og vegna þess að jeg horfi ekkert í kostnaðinn, þá hefi jeg hugsað mjer að fara til Parísar, og vildi gjarnan biðja yður, herra prófessor, að ráðleggja mjer, dl hvers jeg ætti helzt að snúa mjer þar«. »Fortakslaust til Doyens prófessors«. »Væri ekki gott, að jeg hefði með mjer með- mælabrjef frá yður?« »Það er hreinasti óþarfi. Þjer farið bara beint inn lil hans, og segið honum hvað að yður gangi- Svo spyr hann yður, hvaðan þjer sjeuð, og þjer segið: »Frá Leipzig«. — »Frá Leipzig«, endur- tekur Doyen prófessor, »þá eruð þjer ljóti bölvað- ur asninn, að þjer skuluð ekki láta Thiersch prO' fessor skera yður!« Verið þjer sælir!« — 83 84 —

x

Haukur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.