Haukur - 01.06.1912, Síða 10

Haukur - 01.06.1912, Síða 10
II A U Iv U II. Kvöidró við Mississippi. Og sennilega verða ýmsar breytingar, því að Joschihito er enn þá hrifnari af nýtízku-hugsjónum Norðurálfumanna, held- ur en faðir hans var nokkurn tíma, Auk þess er haldið að hann muni bráðlega taka upp tímatal Norðurálfumanna, og að hann muni berjast móti fleirkvæni. Nú eiga allir efnaðir Japanar eina eða fleiri eiginkonur, og oft margar hjákonur. Mut- suhito faðir hans, var giftur japanskri að- alsmannsdóttur, en eignaðist engin börn með henni. Joschihito keisari er sonur einnar hjákonu hans. Hann er fæddur 31. ágúst 1879, kvæntist árið 1900 Sadaiko prinsessu, dóttur Kuju fursta, og á ekki nema hana eina. Þau eiga þrjú börn. Hið elzta þeirra, Hirohito, núverandi krón- prins, er nú 11 ára gamall, og kvað vera mjög gáfaður drengur. Keisarahjónin ganga bæði klædd að Norðurálfusið, og börn þeirra sömuleiðis. Kennarar barn- anna eru sumir japanskir en sumir frá Norðurálfunni. Gpiðhelgur grjótveggur. Eng- lendingar eru eflaust íhaldssamasta þjóð heimsins, og ferðamaðurinn, sem þangað kemur, rekur sig hvarvetna á æfargamla siði og háttu, sem goðgá þykir að brjóta á móti. Til dæmis er á einum stað í Lundúnum, skammt frá gamla aftökustaðn- um á Tower-Hill, grjótveggur einn gamall, og hefir það við- gengizt frá alda öðli, að hver sá Englendingur, sem stigið hefir upp á vegg þennan, hefir haft leyfi til að segja hvern þremilinn, sem honum hefir dottið í hug — meðan hann hefir verið þar uppi. Rjett- vísin lætur sem hún hvorki heyri það nje sjái. Nú í sumar gerðu 95,000 hafnarverka- menn í Lundúnum verkfall, og kröfðust þess, að allir, sem ekki væru í lögbundn- um fjelagsskap þeirra, væru útilokaðir frá vinnu. En vinnuveitendur ljetu ekki und- an. Þegar verkfallið hafði staðið um hríð, og hungrið var tekið að sverfa að verk- fallsmönnum, hjeldu þeir afarfjölmennan fund á Tower-Hill. Einn ræðumaðurinn, Ben Tillet, talaði þá af grjótvegg þeim, sem áður er nefndur. Sakaði hann fof- ingja vinnuveitenda, Devonport lávarð, um að hafa ráðið körlum, konum og börnum bana með hallæri, og skoraði á fundar- menn, að taka undir bæn sína, er hann bæði guð að drepa Devonport þegar í stað. Og svo bað hann hárri röddu: „Oh God! strike Lord Devonport dead!“ (Ó, guð! ljósta þú Devonport lávarð á augabragði til bana!). Meiri hluti verkmannaforingja þeirra, sem á þingi sitja, hefir þó vítt mjög þessar aðfarir. Og nokkrum dögum síðar rjeð aðalforingi verkfallsmanna, Harry Gosling, þeim til þess að taka aftur til vinnu. Hafði þá Bangkok í hátíðaskrúöi. St. Anthony-fossinn í Mississippi. verkfallið kostað verkmannafjelögin um 50 miljónir króna. Wiiliam Booth, stofnandi og foringi Hjálpræðishers- ins andaðist 20. ágúst síðasth, rúmlega 83 ára að aldri. Hann var fæddur 10. ágúst 1829. Var hann fyrst prestur í meþódistakirkjunni, en sagði af sjer embættinu i86r, til þess að gefa sig við trúboði og líknarstarfsemi meðal lægstu stjetta mannfjelagsins. Árið 1865 stofnaði hann í Lundúuum „Kristilegt trú- boðsfjelag", er var fyrsti vísir til Hjálp' ræðishersins, sem þó er ekki talinn stofn- aður fyr en 1878. Booth hefir verið hers- höfðingi Hjálpræðishersins alla tíð síðan hann var stofnaður, og sístarfandi fy1'r hann. Hefir nú fjelagsskapur þessi deildif í flestum eða öllum löndum heimsins, og um 100,000 meðlimi. Herinn hefir haft mikla mannúðarstarfsemi með höndum, stofnað björgunarheimili, vinnuheimihi barnaheimili o. s. frv., og komið miklu góðu til vegar. Og Booth hefir að mak- legleikum verið talinn einhver einkennileg' asti og mesti maður síðustu ára. Við hershöíðingjastöðunni er nú tekinn sonut hans, William Bramwell Booth. — 91 — 92 —

x

Haukur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.