Alþýðublaðið - 22.12.1939, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 22.12.1939, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 22. DES, 1939. ALÞYÐUBLAÐIÐ 62) Þrjátíu og þrisvar sinnum söng hann sama lagið og samt þreyttist hann ekki. Fólkið vildi gjarnan heyra til hans oftar, en k'eisarinn vildi, að hinn raunverulegi næturgali syngi ofur- lítið líka. En hvað var nú orðið af honum? Enginn hafði orðið var við, að hann hafði flogið út um opinn gluggann og út í skóginn. 63) En hvernig stendur á þessu, sagði keisarinn. Og allir sögðu, að næturgalinn væri mjög vanþakklátur, 64) En við höfum þó betri fuglinn, sagði hirðfólkið. Og nú varð gervi- fuglirin að syngja í 34. skiptið. Og söngmeistarinn hældi gervi- fuglinum á hvert reipi. 65) Því að sjáið þið til, sagði hann — maður veit aldrei, hvað kemur næst, þegar hinn raunverulegi nætttrgali syngur. En þegar gervifuglinn syngur, veit maður fyrirfram, hvað kemur næst. Litlu Braffida-jól Gott og mikið úrval af áskurði á brduð, fuglum, kjöti, kjöt- vörum og grænmeti á jólaborð- ið. G^kaupfélaqiá Kjötbúðirnar. Boðíjerinn heitir blað, sem kennarar bamaskólans á Akureyri gefa út. Efni: Snorri Sigfússon: Safnast þegar saman kemur, Kristbjiörg Jónatansdóttir: Klæðið börnin í ullarföt, Hannes J. Magnússon: Fyrsta boðorðið, Eirikur Sigurðs- son: Hvaða bækur lesa börnin, Kristján Sigurðsson: Hegðunar- reglur barna, Marinó L. Stefáns- son: Tóbaksnautn barna, Snorri Sigfússon: Skóunauðsynjar, Hann es J. Magnússon: Öþrifin koma víða við, Svafa Stefánsidóttir: Nokkur orð um lestrarnám barna. Bækur. Jónathan Swift: Ferðir Gúllivers (Gúlliver í Puta- landi). Cooper: Síðasti Móhíkan- inn. Kipling: Litli Fílasmalinn. Allt bókaútgáfan Heim- dallur. —o— Þetta eru barnabækur, og af þeim verður sjaldan nóg. Börn- in þurfa í raun og veru miklu betri andlega fæðu en við hinir, sem farnir erum að reskjast, vegna þess, að þau taka skil- málalaust við því, sem að þeim er rétt, en við hinir kunnum dá- lítið að spyrna frá okkur. Það sem gildir, er að örfa hug- myndaflug barnanna, en sízt af öllu að leggja á það hemlur. — Það á fyrst að gera á síðustu uppvaxtarárunum, þá er það sem á að kenna unglingunum að nota á sjálfa sig hemilinn. Af þeim bókum, sem hér er um talað, hefi ég í æsku lesið tvær hinar fyrstu, og myndi fyrir enga fjármuni vilja hafa misst af þeim, auðvitað óra- kenndu áhrifum, sem þær höfðu á mig. Mamma sáluga las þær fyrir mig á dönsku, því bækurnar, sem ég átti, voru á því máli, en pabbi sálugi las þær á íslenzku upp af sömu bókunum, og botnaði ég ekkert í, hyernig það mátti verða; ég skildi þá ekki, að hann þýddi jafnóðum og hann las, en hann var svo þjóðrækinn, að hann lét sér ekki detta í hug að lesa á dönsku fyrir strákinn sinn. Ég hefi núna aftur lesið þessar tvær bækur í íslenzku þýðing- unni, og það er eins og gamall draumur hafi lifnað fyrir mér aftur, og svo keypti ég báðar bækurnar handa börnum, sem ég þurfti að sjá fyrir jólagjöf- um. Það er óhætt að láta þau lesa þær. Þriðju bókina hefi ég lesið sem fullorðinn. Hún er nú næst mínu skapi, en ég finn það bein- línis á mér, að hún sé ekki síður að skapi barna, eða þó öllu heldur stálpaðra barna. Ef ég á satt að segja, þá held ég, að þessar þrjár bækur fullnægi öll- um sanngjörnum kröfum til verulega góðra barnabóka, en á þeim aldri, sem ég er á nú, treysti ég mér ekki fullkomlega til að gera grein fyrir hver bókin hæfi hverju þroskaskeiði bezt. Það veit ég þó. að það er óhætt að fá þær hverjum ung- lingi. Guðbrandur Jónsson. Nf bók. J. E. Esslemont: Bahá- u’lláh og nýi tíminn. — Hólmfriður Ámadóttir þýddi. FÁGÆT BÓK er Bahá’u’lláh og nýi tíminn eftir J. E. Esslemont, M. B. Ch. B. F. B. E. A. Hólmfríðux Árnadóttir, kennslu- kioina, sneri bókinni á íslenzka tungú- Efni bókarinnar er skipt í,XV. kafla, og fer hér á eftir yfirskrift kaflanna: „1. Fagnaðarboðskap- urinn, 2. Báb, fyrirrennarinn, 3. Babá’uTIáh: Ljómi Guðs dýrðar, 4. Ábdu’l-bahá, þjónn Bahá, 5. Hva.ð er Babáfyligiismaður? 6. Bænin, 7. Heilsa og lækning, 8. Trúarbragðaeindnig, 9- sönn menn- itng, 10. Leiðin til friðar, 11. Fyr- irskipanir og kenningar, 12. Trú iog vísindi, Í3. Bahá’í-hreyfingin uppfyllir spádóma, 14. Spádómar Bahá’u’lláh og Ábdu’Í-Bahá og 15. Baksýn og framsýn.” Menn geta ráðið í efni bókar- iinnar af því, sem að framan er skráð, og er ekki óliklegt, að les- endur telji það bæði lærdóms- ríkt og fagurt, þegar þeir hafa lesið alla kaflana með athygli. H. J. Danskur guðfræðingur af íslenzkum ættum, Finn T.uli- nius, hefir ritaö bók um Árnia biskup Helgason í Görðum, og er hún nýlega komin út hjá Gads fókaforl. í Kaupmannahiöfn. FO. ViBsœlasta jólagjðfin þin verðnr Ritsafn Trausta. I Prjðnatöt frá Malin er jeianlðf sem allir áska eftir. Sauðfjárböðun. Samkvæmt fyrirmælum laga nr. 58, 30. nóv. 1914, ber að framkvæma þrifaböðun á öllu sauðfé hér í lögsagnar- umdæminu. Út af þessu ber öllum sauðfjáreigendum liér í bænum að snúa sér NÚ ÞEGAR til eftirlitsmannsins með sauðfjárböðunum, herra lögregluþjóns Sigurðar Gíslason- ar. Símar 3679 og 3944. Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. desember 1939. Pétur Halldórsson. Hentugar jólagjafir: Kaffidúkar, kvenundirföt, hanzkar, slæður, herra- klútar, snyrtivörukassar handa körlum og konum — og margt fleira. LÍTIÐ INN í Snót, Vesturgðtu 17. 6nðmuaduf ThoroddseH: LæknaljöO. NÝLEGA er komin á bóka- markaðmn mjög nýstárleg bók, Læknaljóð, eftir Guðmund Thonoddsen prófessor. Guðmundur Thoroddsen hefir lítið flíkað Ijóðagerð sinni, en kunnugir vis.su þó, að hann átti ‘það til að stíga í ístaðið á Piegaso og sveifia sér Iéttilega á bak. Eins og nafn bókarinnar bendir til, eru kvæðin flest um lækna og lækningastörf, og hefir höfundur- inn flutt þau á samkvæmum fækna undanfarin ár. Öll eru kvæðin skemmitileg, beztu samkvæm.iskvæði, og vei ort. Er ekki hægt á þeim að sjá, að þau séu ort af manmi, sem vanarx er að handleika hníf en penna. Búast má viÖ, að bókin verði vinsælust meðal lækna, enda er upplagið iangt kómið, en allir, sem hafa gaman af skemmtileg- Um og vel ortum kvæðum, munu líka hiafa gaman af henni. Baðhús Reykjiavíbur tilkynnir á öðrurn stað í blað- inu á hvaða tímum það verður opii'ð yfir hátíðisdaigana, og er fóiki vissast að hafa fyrra fallið á með að fara í baðhúsið. JOHN. DICKSON CARR: Norðia í vaxmyndasafninu. 14. eririe Galant, Avenue Montaigne. Hann bjó í sömu götu og ég, en þar bjuggu menn, sem höfðu allgóðar tekjur. Durrand lögregluumsjónarmaður þekkti hann. Hverskonar maður er þessi Etienne Galant? spurði ég. Bencolin gretti sig: — Etienne er mjög hættulegur mað- ur. Ég get ekki skýrt þér nánar frá því núna, en hann er mjög við næturævintýri riðinn. Hann ýtti frá sér glasinu. Hann var þögull stundarkorn. Sölnað lauf flögraði um gang- stéttina. Það var mjög kalt. Við verðum að láta foreldra ungfrú Martels vita, hvernig komið er, sagði Bencolin. — Ég veit það, sagði Chaumont. — Það er bezt að hringja. — Nei, það er betra að bíða þangað til í fyrramálið. Það er orðið of framorðið til þess að hægt sé að koma þessari fregn í morgunblöðin. Ég þekki föður hennar, svo að ég get sparað yður ómakið, ef þér viljið. Þetta er mjög undarlegt. Báðar hinar myrtu eru af háum stigum. — Hvað eigið þér við? spurði Chaumont. — Mig vantar upplýsingar. Segið mér eitthvað um þessar stúlkur. Gefið mér allar þær upplýsingar, sem þér getið um unnustu yðar og Claudine Martel. — Hvað viljið þér fá að vita? — Allt. sem þér vitið. Chaumont rétti úr sér. — Odette, sagði hann lágt, var ákaflega yndisleg — — — Það varðar mig fjandann ekki um, sagði Bencolin ó- þolinmóðlega. — Hverja umgekkst hún? Hverjir voru kunn- ingjar hennar? Chaumont horfði ruglaður kringum sig. — Hún bjó hjá móður sinni. Móðir hennar var ekkja. Henni þótti mjög vænt um heimili sitt, húsið og garðinn. Henni þótti ákaflega gam- an að söng. Og hún las mikið. Henni geðjaðist vel að því, að ég yrði hermaður. — Einmitt það, sagði Bencolin. — En hverjir voru vinir hennar? — Hún fór sjaldan út, sagði Chaumont. — Henni geðjaðist ekki af því. Hún átti tvær vinkonur. Þær voru alltaf þrjár saman, Odette, Claudine Martel og ......... — Haldið þér áfram. — Óg Gina Prévost. Þær höfðu verið saman í klausturskól- anum. En þær voru ekki eins oft saman upp á síðkastið, eins og áður fyr. En ég er sjaldan hér heima í París og Odette sagði mér aldrei frá því í bréfum sínum, hverja hún um- gengizt. —■ Þá þekkið þér ekki ungfrú Martel? — Nei, mér geðjaðist ekki að henni. Hann yppti öxlum. — Hún var hæðin í tali. En hún er dáin og Odette geðjaðist að henni. — Einmitt. En hvers konar manneskja er þessi ungfrú Prévost? Hann var að taka upp glasið sitt, en lagði það frá sér aftur. — Gina? Já, hún vildi verða leikkona, en fékk það ekki fyrir foreldrum sínum. Hún er lagleg, ljóshærð, fremur há vexti: Það varð þögn. Bencolin drap fingrunum á borðið. — Nei, sagði hann, — ég býst ekki við, að þér getið gefið okkur neinar upplýsingar um vinkonurnar tvær. Jæja, ef þið eruð tilbúnir, þá getum við lagt af stað. Parísarbúar fara snemma að hátta. Göturnar voru mann- auðar. Bencolin beygði ofan í miðborgina, þar sem ljósin voru bjartari. Við sátum allir í framsæti bílsins og Bencolin ók á fimmtíu kílómetra hraða. Þegar hann þeytti bílhornið berg- málaði ömurlega í rue Royale. Því næst snérum við inn á Champs Elysées. Nærri því daglega hafði ég farið fram hjá númer 645, því að ég bjó þar örskammt frá. Þetta var hátt, gamalt hús og framhlið þess var grá. Bencolin þrýsti á dyrabjölluna. Fljót- lega var ein hurðin opnuð. Ég heyrði Bencolin eiga orðaskipti við einhvern og við gengum inn. í myrkrinu gat ég ekki séð andlit mannsins, sem tók á móti okkur og leiddi okkur inn. Of- urlitla birtu bar út um opnar dyrnar á húsinu. Loksins hleypti maðurinn í sig kjarki og gekk 1 veg fyrir okkur. — En ég hefi sagt ykkur, að maðurinn er ekki heima. — Hann er víst heima, sagði Bencolin. — Komið fram í birL una, maður minn, svo að ég geti séð, hvort ég þekki yður eða ekki. Maðurinn gekk fram í birtuna, og við sáum fölt andlit. Hár hans var snöggklippt og augun óttaslegin. Einmitt, sagði Ben- colin, þegar hann hafði athugað manninn stundarkorn. — Þér

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.