Tíminn - 23.06.1917, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.06.1917, Blaðsíða 4
60 Tí M INN því varla hafði skáldið sest niður aftur fyr en ungfrú Ingibjörg Bene- diktsdóttir stóð upp og kvað sér hljóðs, og þakkaði skáldinu kvæði hans, bæði þetta og önnur er hann hefði ort til kvenna, sérstaklega vegna þess, að þau væru eigi í sama anda og ílest skáld yrkja í, og álíta sig koma sér bezt í mjúk- inn hjá konum með. Eitt atriði á skemtiskrá dagsins er enn ótalið. Er það barnasjón- leikur, undurfagur, um smaladreng sem hlýtur konungsdótturina og ríkið alt, sem laun þess, hve hann var góður og hjálpfús. Um daginn i heild sinni má segja, að liann tækist vel, og að konur sýndu, að þær geta eins vel og karlmenn haldið reglu og stjórn á fjölmennum útihátíðum. Og ræð- ur þær er konur íluttu við þetta tækifæri sýndu, að þær fundu eigi að eins til gleði yfir réttindum þeim, er þær hafa öðlast. Sú meta- skálin sem skyldurnar, er hin nýja afstaða þeirra til þjóðfélagsins hvila í, virtist þyngri í höndum þeirra þennan dag — og vér vitum að þar fylgir hugur máli. Landsspítalasjóðnum varð dagur þessi eflaust að mikilli lekjugrein, auk þess sem hann festi það mál enn betur í minni allra þeirra er þátt tóku i hátíðahaldinu. Eflaust gæti það orðið til góðs, ef íleiri héruð landsins, og þá einkum kaupstaðirnir, verðu einum degi á ári, á einhvern hagfeldan hált, til söfnunar i þennan sjóð. Tilgangur hans er svo fagur og nauðsynlegur að allir ættu að telja sér skylt að lilynna að honum. Minni kvenna. Flutt landspítalasjóðsdag 1917. Mörg eru verkin vandafull — til vona bregðast kynni, að vera ei kjörið kvenna-gull en kveða þeirra minni! Því er það ei, brúðir, ærið hart því einvalasta að hrósa og eiga bæði um blátt og svart og bjart og dökt að kjósa? Því augu dökk og augu blá eg aldrei greindi sundur, og mig gat hrifið há og lág — og hverjum finst það undur? Þó svipir tækju sinn hvern blæ var seiðurinn jafn í öllum og blíður, eins og blámi á sæ, og birtan yfir (jöllum. Við, sveinar, gleymdum sumu því, sem segja ykkur hugðumst, og koma því fyrir öðru í en ástakvæðum brugðumst. En þó í liúsi hreyfðuð rokk og hrifu út’ um völlinn, þið áttuð víðan vöggustokk, með vængi yfir fjöllin. Og mörg er sagan sönn um það — þó sé hún hvergi bókuð —: þá dygð sem fáa álti að í ástarfóstur tókuð. Og oft hefði kaldlynd karla-þjóð á klakann ýmsu fargað og borið út fegurð, frelsi og ljóð, sem fleyttuð þið til bjargar. Sú ein var stoð, sem aldrei brást við ofurkapp og þrefið, að vita það í ykkar ást, sem okkur bezt var gefið. Og æska, vertu vitni manns með vonir hæstu sínar, sem leggur frjálsa framtíð lands, þú fljóð, í hendur þinar. En fremst eru þær af freyjum lands og fegurst þeirra minni, sem góðum ástum göfugs manns ei glötuðu nokkru sinni, þó hárið yrði hvíta-gull og héla á kinnum rjóðum, með frjálsan hug og hjörtu full af hlýjum vögguljóðum. Stephan G. Stephansson. €imskipajélagið. Eimskipafélag íslands liélt aðal- fund í gær. Reikningur félagsins fyrir árið 1916 ber með sér að arður af rekstri félagsins nemur kr. 331,483,58, auk þess er gróðinn af vátryggingu Goðafoss að því leyti sem hún fór fram úr bókuðu eignarverði skipsins kr. 349,865,78. Allur arðurinn sem fyrir lá til ráð- stöfunar því samtals kr. 681,349,36. Af þessu fé hefir stjórnin ákveðið að draga frá bókuðu eignarverði félagsins kr. 503,162,56, (450 þús. kr. af Lagarfossi einum). Kr. 178,- 186,80 sem þá eru eftir skiftast þannig samkvæmt samþykt aðal- fundar: í endurnýjunar- og vara- sjóð leggiast kr. 122,999,69. Stjórn- endum félagsins greidd ómakslaun kr. 4,500,00. Endurskoðendum kr. 1,000,00. Hluthöfum greiðist í arð 7°/0 af hlutafé er nemur kr. 824,- 101,53 og rétt hefir til arðs og verða það kr. 57,687,11. Útgerðar- stjóra greidd ágóðaþóknun kr. 2,000,00. Til stofnunar Eftirlauna- sjóðs Eimskipafélagsins kr. 10 þús. Flutningsgjöld og fargjöld með báðum skipunum árið sem leið námu kr. 915,935,33. Vátryggingar- gjöld kr. 175,691,24. Kolaeyðsla kr. 139,987,29. — Félagsstjórnin hafði haft með sér 53 fundi milli aðal- funda. í skýrslu stjórnarinnar er marg- víslegur fróðleikur, þótt eigi sé hans getið hér að þessu sinni. Þó skal frá því sagt strax, að þrátt fyrir tveggja mánaða töf Gullfoss í Kaupmannahöfn, standast á að heita má tekjur skipsins og gjöld fyrsta ársfjórðung þessa árs. Útgerðarstjórinn er ráðinn til næstu fimm ára, en upphaflegur samningur við hann var útrunninn 30. júní þ. á. Fundurinn ákvað að veita stjórn- inni heimild til þess að auka hluta- féð upp í 3 miljónir króna. Þá var stjórninni ennfremur heimilað að láta byggja eða kaupa 1 eða 2 millilandaskip, auk strand- ferðaskipa þeirra sem heimilað var á stofnfundi að láta byggja eða kaupa. Úr stjórninni áttu að ganga for- maðurinn Sveinn Björnsson, Jón Gunnarsson og Ólafur Johnson. Hinn síðastnefndi skoraðist undan endurkosningu. Sveinn og Jón voru endurkosnir. Þá lilaut Jón J. Bíld- fell kosningu sem fulltrúi Vestur- íslendinga í stjórnina. Endurskoðendur voru kosnir Þórður Sveinsson endurskoðandi landsverzlunarinnar og Halldór Eiríksson fyrverandi bókari Eim- skipafélagsins. Fréttir. Tíðin. Þjóðhátíðardaginn 17. júní var sólskin og blíða, en norðan- stormur kominn á mánudag og stóð fram á hádegi á þriðjudag, kvennadaginn, en þá lygndi og gerði bezta veður, og svo hefir verið síðan, kuldalaust sumarveður en sólarlitlir dagar með vætuskúr- um öðru hvoru. Skipaferðir. Gullfoss kom frá Ameríku á laugardag hlaðinn vör- um meir en nokkru sinni. Far- þegar um 30, flest fólk er sezt hér að. Meðal farþega voru Stephan G. Stephansson og Árni Eggertsson fulltrúi Vestur-íslendinga á Eim- skipafélagsfund. — ísland fór til Vesturheims á vegum landstjórn- arinnar um miðja vikuna. Eskon- dito og Flóra fóru bæði norður um land, en Botnía er á leiö hingað að norðan og með henni Sigurður Jónsson ráðherra og margt þingmanna. Enska verðlagið. Thor Jensen og einn af sonum hans hafa ný- verið farið til Englands, að sögn til að fá breytt enska verðlaginu. Þegar eitthvað fréttist um árangur, og tildrög sendifararinnar, svo og hvort gert er ráð fyrir að landbún- aðar verðlagið standi óbreytt, mun þessi ráðstöfun verða gerð að um- talsefni hér í blaðinu. Par á Heygum heitir ungur og efnilegur Færeyingur, sem hingað kom með Flóru á dögunum. Und- anfarin þrjú ár hefir hann stundað búnaðarnám á skólum í Noregi, og hafði síðan hlotið styrk til þess að dvelja 1 Skotlandi og kynna sér fjárrækt þar. En af ófriðar- ástæðum gat hann ekki komist þangað. Sótti hann þá um að mega nota styrkinn til íslandsfarar í sömu erindum, og fékk það. Hefir hann í samráði við formann Bún- aðarfélagsins ákveðið að dvelja austur í Hreppum fram í ágúst- mánuð, fer síðan upp á Hvann- eyri og mun hafa viðdvöl þar, en heldur svo landveg norður, kemur við bjá Jóni ostagerðamanni í ÓI- afsdal á þeirri ferð, en slæst í för með Jóni fjárræktarmunni Þor- bergssyni þegar kemur norður í Hrosshár. Kaupfélag Borgarfjarðar kaupir taglhár, faxhár og búkhár, og sé þetta hvert í sínu lagi. og blöð í hana ávalt fyrirliggjandi hjá Kaupfélagi Borgarfjarðar. Er hér ekki um neinar eftirlíkingar að ræða. Þingeyjarsýslu og nýtur leiðbein- inga hjá honum. Ferðast þeir sam- an um Þingeyjar- og Múlasýslur. Færi vel á því, að samneyti ykist milli Færeyinga og íslendinga; er eins og hingað til hafi gætt helzt til litillar frændrækni með þessum náskyldu nágrönnum. Ferðalög Stephans G. Stephans- sonar um landið hafa nú verið bollalögð af heimboðsnefndinni í samráði við skáldið. Er ráðgert að hann fari héðan með Botníu 3. júlí til Reyðarfjarðar, þaðan upp i Fljótsdalshérað og síðan landveg alla leið um Norðurland og vestur til ísafjarðar. Frá ísafirði sjóveg til Stykkishólms, en þaðan aftur land- veg í Borgarnes. Engin tímaákvörð- un tekin um viðdvöl á hverjum stað, en séð um að þeir er skáldið gistir fái jafnan að vita það með nokkurum fyrirvara. Þegar hingað keraur er í ráði ferð til Þingvalla, Geysis og Gullfoss, niður Biskups- tungur, Grímsnes og heim um Hellisheiði, og er það eins um þá ferð og hina, að hún er að engu dagsett og eigi óhugsandi útúr- krókar, ef tími og aðrar ástæður leyfa. Bókmentafélagið hélt aðalfund sinn 18. þ. m. Ivaus félagið skáldin Stephan G. Stephansson og Hannes Hafstein lieiðursfélaga. Á þessu ári gefur félagið út: eitt hefti afForn- bréfasafni, safni til sögu íslands, íslandssögu Boga Tli. Melsted og 1. hefti þriðja bindis af íslands- lýsing Þorvaldar Thoroddsen. Auk þessa er Skírnir. Slys. Rútur Þorsteinsson á Hrúta- felli undir Eyjafjöllum varð undir moldarvegg og beið bana af. Var hann við þriðja mann að koma fyrir undirstöðusteini í hlöðu þeirri er ofan af fauk á Hrútafelli í páska- veðrinu mikla, var sjálfur næst moldargaílaðinu er eftir stóð þegar grjólhleðslan að innanverðu hafði verið rifin upp til endurbyggingar; hina mennina sakaði ekki. Rútur var meðal fremstu efnismanna í sinni sveit, 32 ára gamall. Ritstjóri: Gnðbrandnr Mag-misson. Hótel ísland 27. Simi 367. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.