Tíminn - 07.07.1917, Blaðsíða 3

Tíminn - 07.07.1917, Blaðsíða 3
TÍMINN 67 fara fram á fjárveitingar er nema 291.000 kr. Kvað íjármálaráðlierra eklci hægt að segja nákvæmlega um fjárhag- inn eins og stendur vegna þess, að ýmsar fjárhæðir væru ókomnar til reiknings, bæði tekju og gjalda megin. En þyrði þó að fullyrða að um engan verulegan tekjuhalla yrði að ræða siðustu þrjú árin. Hins vegar mætti ekki treysta á neinn tekjuafgang frá þessum ár- um. Varlega þyrfti að fara í fjár- veitingum, því að viðlagasjóður stæði að mestu fastur í útlánum, en stjórnin hinsvegar lagt ýms lög fyrir þingið sem bökuðu landssjóði útgjöld, yrðu þau samþykt. Eftirfarandi yfirlit gaf hann um eignir og skuldir landssjóðs: Eignir. Verðbréfaeign lanndsins S1/i2’16. Kgl. ríkissk.bréf . . kr. 315000,00 Bankavaxtabréf . . — 110000,00 Skuldabr. f. lánum . — 1435726,00 Bankav.br. 3. fl. vd. — 1011300,00 kr. 2872026,00 Hlutir í Eimskfél. . — 100000,00 Eignarhl. Landsb. . — 300000,00 Samtals lcr. 3272026,00 Skuldir: Lán tekið 1908 — — 1909 — — 1912 — — 1912 — — 1913 — — 1916 kr. 266666,00 — 1125000,00 — 220833,00 — 366666,00 — 474496,00 — 100000,00 kr. 2553661,00 718365,00 mismunur um fram skuldir auk ýmsra sjóða sem landið á. Taldi ráðherrann þetta mundu talinn góðan fjárhag á friðartímum, en eins og nú stæðu sakir, yrði að telja hann valtan. Lánstraustið að- allega í útlöndum, en peningar vorir hinsvegar aðallega seðlar. ^kólamál á Norður- og Austurlandi. Þrátt fyrir harðindin og siglinga- vandræðin hafa sum framtíðarmál- in, og það þau sem mestu skifta eins og uppeldi æskulýðsins, verið ofarlega á baugi í vetur. Velvildar- menn gagnfræðaskólans á Akur- eyri hafa slungið upp á að stækka hann, og endurskapa á Akureyri Hólaskóla hinn forna. Skyldi það vera mentaskóli fyrir Norðurland. Hugmynd þessari hefir verið allvel tekið, og er litlum vafa bundið að draumur forgöngumannanna mun rætast, þótt síðar verði, ef til vill með öðrum liætti, en þeir gera nú ráð fyrir. T. d. væri hugsanlegt að menn vildu að hinn endurreisti Hólaskóli stæði ekki á Akureyri, heldur í sveit, og að fyrirkomulag hans yrði sniðið eftir heppilegri fyrirmyndum, heldur en menta- skólanum í Reykjavík. Annað áhugamál Norðlendinga er liússtjórnarskóli, en þar greinir menn á um leiðirnar. Konur á Ak- ureyri og ef til vill víðar í Eyja- firði, vilja að skólinn standi á Ak- ureyri. Aflur á móti munu lang- llestar sveitakonur á Norðurlandi óska þess eindregið að skólinn verði i sveil. Liggja nú fyrir þinginu fjölmargar áskoranir til stuðnings sveitaskólahugmyndinni. Ivrafa lcvenfólksins um hússtjórn- arskóla, byggist á því, að störf kvenna séu engu þýðingar- eða vandaminni en karlmanna. Þær þurfi líka sérmentun eins og þeir. Og það sé þjóðinni lífsnauðsyn að slík sérmentun sé fáanleg í land- inu. Þær krefjast í þessu efni jafn- réttis við karlmenn. Þær vilja fá húsmæðraskóla, sem í engu séu óveglegri en bændaskólarnir. Og að líkindum halda þær því fram, að þær byrjunartilraunir sem gerðar hafa verið á þessu sviði, verði al- gerlega ófullnægjandi til frambúðar. Ekki verður annað séð, en að þetta sé fylsta snnngirniskrafa. Húsmæðraskólarnir ættu þá að minsta kosti að vera tveir, og byrja í þeim fjórðungnum, þar sem á- huginn vaknar fyrst. En deilumálið um skólastæðið, kaupstað eða sveit, er ekki eins ílókið og af er látið. Báðir máls- aðilar hafa á réttu að standa, og eiga að fá góða rétlingu sinna mála. Efnakonur á Akureyri eiga að fá sinn skóla hjá sér, og sniða hann eftir þeirra lífskjörum. Þar ætti að búa dætur þeirra undir hið tízku- fágaða smákauptúnalíf eins og það gerist hér á landi. Myndi sann- gjörnum þörfum vera fullnægt til frambúðar, ef tvær slíkar stofnan- ir væru til hér á landi, önnur í Reykjavík, hin á Akureyri. En jafn sjálfsagt er hitt að bún- aðarskóli sveitakvenna sé í sveit. Hann á að búa ungar konur und- ir harða lífsbaráttu í sveitunum. Þar þarf ekki að kenna að sjóða síld í mjólk eða að »grillera lamba- hausa« eins og Gröndal sagði. Líf sveitakonunnar nú á dögum er ekki samfeldur leikur eftir mjúkum teppurn úr spilagildi í drykkjnboð. Það er heldur enginn táradalur. En það er samfeld barátta þar sem enginn sigrar nema sá, sem sýnir festu og ráðdeild. Þá eiginleika verða búnaðarskólar kvenna að eíla og styrkja. Og þar eiga fátæk- ar kauptúnakonur og sveitakonur yfirleitt, fullkomna samleið. Skól- inn þeirra þarf að vera fyrir mynd- ar lieimili, þar sem allir vinna á réttan hátt og eftir réttum reglum. Skóli efnaðra kaupstaðakvenna á að vera fyrirmyndar tízkulieimili, þar sem allir læra að njóta æfinn- innar samkvæmt stöðulögum fé- lagslífsins. Á Austurlandi er Eiðamálið uppi á teningnum. Múlasýslur vilja gefa landinu alla eignina gegn því að landið haldi uppi skóla fyrir Aust- urland, annaðhvort búnaðar- eða alþýðuskóla, sem veiti almenna fræðslu. Þingið í sumar á að skera úr, hver leiðin er valin. Frá almennu sjónarmiði virðist enginn vafi geta leikið á þvi að á Eiðum eigi ekki að vera búnaðar- skóli. Reynslan er búin að fella þar sinn dóm. Margir mjög mætir menn hafa starfað við skólann fyr og síðar, og skulu þó sízt undan- teknir núverandi starfsmenn hans. Samt liefir aðsóknin altaf verið dauf. Og ástæðurnar til þess eru tvær. Skólajörðin er óheppileg fyrir nútíma fyrirmyndar bú. Fyrrum græddu bændur á Eiðum á þeim tímum þegar gróði var að því að eiga gamla sauði, sem sjaldan komu í hús. Til þess búskapar var jörðin prýðilega fallin. En nú er sá bú- skapur úr sögunni. Nú er tún- og engjarækt aðalatriðin í búnaðar- framförunum. En á báðum þeim sviðum er erfitt mjög um fram- kvæmdir á Eiðum. Náttúruskilj'rð- in standa þar í vegi. Einmitt þess vegna verður ekki kveikt nýtt líf í búnaðarskóla á Eiðum, þó að land- ið taki við honum. Annað sem stórum heíir bagað Eiðaskólann er það,' að sjávar- menn á Austurlandi liafa aldrei talið hann vera sinn skóla. Af því var sprottin hin magnaða mótstaða Suðurfjarðanna, sem nú er lands- kunn orðin. Ekki verður hjá því komist að taka til greina þá and- stöðu. Hún myndi há búnaðar- skóla á Eiðum framvegis eins og að undanförnu. En á hinum grundvellinum geta allir Austfirðingar samið frið. Fjórð- unginn vantar myndarlegan al- þýðuskóla, og fyrir slíkan skóla eru Eiðar allvel fallnir. Þar má búa en ekki fyrirmyndarbúi. Þar er húsrúm mikið, sem ekki má standa ónotað. Úr sveitinni flykkist unga fólkið í kauptúnin á hauslin, eink- um í kvöldskólana, sem því mið- ur eru ílestir af vanefnum gerðir. Sama mun raunin vera á Austur- landi. Með því að breyta formi Eiðaskólans, gætu Austfirðingar breytt straumnum, úr sjóþorpun- um í sveitina. Nú er krafanorðin: Minni barnaskóla, meiri unglinga- fræðslu. Breyting á Eiðum væri spor í rétta átt. Eiða ætti að gera að Hólastól Austurlands, ekki með búnaðarskóla því að það er ekki hægt, heldur með heilbrigðum al- þýðuskóla, þar sem stefnt er að því að búa menn undir lífsbaráttuna, eins og hún er hér á landi. Garðar Gíslason er enn að í ísafold, en sækisl seinna fyrir það að Isafold skýtur grein hans undan öðru hvoru. Hins- vegar var það ætlun Tímans að svara ekki þessari grein Garðars fyr en hún væri alsköpuð. Þó skal þess getið strax, að varlega skyldu menn treysta Garðari þar sem hann fer með tölur í þessu sam- bandi, tilhneigingin rík um að gera það sér í hag, og skal það sann- að á sínum tíma. pnaf!arj>m(|i£. Það hófst 28. júní og stóð yfir í viku. Þessir voru fulltrúar á þing- inu: Ágúst Helgason, Ásgeir Bjarna- son, Benedikt Blöndal, Björn Bjarn- arson, Eggert Briem, Guðjón Guð- laugsson, Guðm. Helgason, Jón H. Þorbergsson, Jón Jónatansson.Metú- salem Stefánsson, Ólafur Briem og Stefán Stefánsson. Þessi voru helztu málin,' sem þingið tók ákvarðanir um: Gróðurtilraunir. Út af erindi frá Einari garðyrkjufræðingi Helgasyni um að fá innan skamms mann, sem annaðhvort yrði aðstoðarmað- ur eða sjálfstæður forstöðumaður við fóðurjurtatilraunir, sem gerðar yrðu í Gróðrarstöðinni í Rvík, eða í sambandi við hana, var samþykt, að félagsstjórnin beittist fyrir þvi, að valinn maður byggi sig undir þennan starfa. Um verðtag. Lagt til að skipuð yrði sérstök verðlagsnefnd er verð- leggi innlendar vörur, og úlnefni Búnaðarfélagið tvo menn í þá nefnd og Fiskifélagið aðra tvo, en hag- stofustjóri sé formaður. Innflutningur sauðfjár. Felags- stjórninni falið að skora á lands- stjórnina að leyfa innflutning á sauðfé til blöndunartilrauna til framleiðslu sláturlamba undir eft- irliti og með ráði dýralækna. Jafn- frafnt, að landssjóður beri þann kostnað, er sóttkvíunin hefir í för með sér. Garnormaveiki. Að Búnaðarfé- lagsstjórnin hlutist til um að dýra- læknar rannsaki til hlitar, hver ráð muni helst til þess að verjast garn- ormaveiki í sauðfé. Verkjœri. 1) Að afla sem beztra upplýsinga um verkefni véla og verktæra hér á landi til búnaðar- starfa, og verkfæraþörf bænda al- ment, og gefa bændum kost á sem beztum leiðbeiningum í þeim efn- um. 2) Að útvega til reynslu hér þau erlend landbúnaðarverkfæri, sem likur eru til að hér megi að gagni verði, láti reyna þau ræki- lega og beiti sér fyrir því að fá gerðar á þeim þær breytingar, sem nauðsynlegar kynnu að þykja til þess að gera þau nothæf hér. 3) Að greiða fyrir útbreiðslu þeirra verkfæra sem vel reynast og kenna mönnum að nota þau, og neyti félagið til þess aðstoðar búnaðarsambandanna. 4) Að fengin verði, svo fljótt sem ástæður leyfa, sérstakur mað- ur í þjónustu l’élagsins, sem hefir þekkingu og reynslu í jarðrækt, ber slcyn á verkfæri og hefir verk- lega æfingu á jarðræktarvinnu hér á landi. 5) Búnaðarfélagið felur stjórn- inni að hlutast til um það við landsverkfræðinginn, að hann geri sitt ítrasta til að útvega hjá fjár- veitingavaldinu fé, til þess að kaupa handa landinu skurðgraftarvél, huntuga við stórfeldan skurða- gröft. Drátlarvélar til jarðyrkju (mótor-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.