Tíminn - 07.07.1917, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.07.1917, Blaðsíða 4
68 Tí M INN plógar o. s. frv.). Stutt skyldi að því að slík tæki kæmust sem fyrst í gagnið hér á landi. Hefði Bún- aðarfélagið sjálft ekki fjármagn til þess að koma því lil vegar, skyldi um það hlutast við landsstjórnina, að heimilað yrði, að nokkru af vöxtum Ræktunarsjóðsins yrði var- ið til þess að kaupa fyrir slikar vélar. Kijnbœlur sauðfjár. Samþykt að Búnaðarfjelagið veitti Jóni Þor- bergssyni 1000 kr. hvort árið 1917 og 1918, til þess að koma upp sauðfjárkynbótabúi á Bessastöðum. Skeiða-áveitan. Félagsstjórninni falið að fara þess á leit við alþingi, að það heimili landsstjórninni að greiða úr landssjóði styrk til Skeiða- áveitunnar er nemi % kostnaðar við verkið. Fóðurtrygging. Til þess að tryggja landinu nægar fóðurbirgðir á haust- nóttum handa öllum peningi fram úr, livernig sem viðrar, felur Bún- aðarþingið félagsstjórninni að gang- ast fyrir því, að komið verði á fót öílugum og tryggilegum fóður- birgðafélagsskap um land alt, og séu hreppsbúnaðarfélögin i sam- vinnu við sveitarstjórnirnar eða sveitarfélögin sjálf frumdeildir þessa allsherjar félagsskapar. Jafnframt felur þingið stjórninni að hlutast til um að styrkveitingar til bún- aðarfélaga verði bundnar því skil- yrði, að þau búnaðarfélög ein fái styrk, er komið hafa á hjá sér föstu skipulagi um fóðurbirgðir og fóðurtryggingar samkvæmt reglum er landsbúnaðarfélagið semur. Pá telur búnaðarþingið bráð- nauðsynlegt, að landsstjórnin sjái um, að svo miklu leyti sem unt er, að nægar fóðurbirgðir verði hér til með haustinu, að minsta kosti á þeim höfnum sem lokast geta af ís, þegar fram á veturinn kemur. Um þetta efni var ennfremur samþykt svohljóðandi tillaga: Búnaðarþingið beinir þeirri ósk til alþingis og landsstjórnar, að í haust verði haft öflugt eftirlit með heyásetningi, svo að ekki sé lagt í neina tvísýnu með það, að nóg fóður sé til í harðasta vetri handa skepnum þeim, sem á verða settar. Forseti Búnaðarfélagsins, Guðm. Helgason, beiddist undan endur- kosningu. Var í hans stað kosinn Eggert Briem bóndi í Viðey. Stjórnarnefndarmenn endurkosn- ir, þeir Eggert Briem yfirdómari og Guðm. Hannesson prófessor. í fundarlok þakkaði búnaðar- þingið fráfarandi forseta fyrir gott starf og af alúð unnið ÖII árin. Stjörnarjrumvörpin. Þau eru 21 alls, frumvörpin sem landsstjórnin leggur fyrir þingið að þessu sinni; og fer hér á eftir skrá yfir þau: 1. Frv. til fjáraukalaga 1914 og 1915. 2. Frv. til fjáraukalaga 1916 og 1917. 3. Frv. til fjárlaga fyrir árin 1918 og 1919. 4. Frv. til laga um breyting á lögum nr. 17, 9. júlí 1909, um almennan ellistyrk. 5. Frv. til laga um einkasölu- heimild landsstjórnarinnar á steinolíu. 6. Frv. til laga um fiskiveiða- samþyktir og lendingasjóði. 7. Frv. til laga um viðauka við lög nr. 24, 9. júlí 1909 um samþyktir um kornforðabúr til skepnufóðurs. 8. Frv. til laga um laun hrepp- stjóra og aukatekjur m. m. 9. Frv. til laga um fyrirhleðslu fyrir Þverá og Markarfljót. 10. Frv. til laga um breyting á lögum frá 22. nóv. 1902 um vegi. 11. Frv. til laga um breyting á lögum um sjúkrasamlög. 12. 'Frv: til laga um Iögræði. 13. Frv. til laga um frestun á fram- kvæmd laga um sölu þjóð- jarða og kirkjujarða. 14. Frv. til laga um þóknun til þeirra manna, er bera vitni fyrir rétti. 15. Frv. til laga um mæli og vigt- artæki. 16. Frv. til laga um dýrtíðarupp- bót handa embættis- og sýsl- unarmönnum landssjóðs. 17. Frv. til laga um slysatrygging sjómanna. 18. Frv. til laga um húsaleigu í Reykjavík. 19. Frv. til laga um breyting og viðauka við lög um heimild fyrir landsstjórnina til ýmsra ráðstafana út af Norðurálfu- ófriðnum. 20. Frv. til Iaga um framkvæmd eignarnáms. 21. Frv. til laga um samþykt á landsreikningunum fyrir árin 1914 og 1915. þingmannajrumvörp. 1. Frv. til laga um sölu á 7 hndr. að fornu mati í kirkjujörðinni Tungu ásámt skógarítaki. 2. Frv. til laga um sameining ísa- fjarðar og Eyrarhrepps. 3. Frv. til laga um breyting á lögum um eignarnámsheimild fyrir bæjarstjórn ísafjarðar á lóð og mannvirkjum undir hafn- arbryggju. 4. Frv. til laga um stækkun verzl- unarlóðar ísafjarðar. 5. Frv. til laga um bæjarstjórn ísafjarðar. Flutningsm. þessara fimm frv. er Magnús Torfason. 6. Frv. til laga um áveitu á Fló- ann. Flutnm. S. S. og E. A. 7. Frv. til heimildarlaga fyrir landsstjórnina til þess að selja ýmsar nauðsynjar undir verði, og að gjalda verðhækkunina eftir því sem lögin greina. Flutnm. Jör. Brynj. Xaapjélag |orgjirðinga. Úr skýrslu 1916. I. Ársviðski/ti félagsins. A. Innkomið. 1. Vöruleifar frá f. á. afhendingarverð kr. 32.500.00 2. Keyptar vörur á árinu, afhending- arverð............— 337.797.21 Samtals kr. 370.297.21 Af þessu selt á árinu kr. 305.523.26 Vöruleifar til næsta árs...............— 64.773.95 Samtals kr.'370.297.21 B. Látið úti. 1. Utflutlar innl. vörur, með reikn- ingsverði: a. Ull, 600 ballar vorull.........kr. 120.082.46 b. Ull, 77 ballar haustull.......— 10.846.14 c. Rjúpur........— 5.312.80 2. ísl. vörur seldar innanlands .... — 4.300.00 Samt. lcr. 140.541.40 II. Astœður félagsins við reikningslok. A. Eignir. 1. Húseignir (sann- virði) ............kr. 30.332.44 2. Verzlunaráhöld, bryggjur, bátaro.íl.— 1.809.08 3. Hlutir í Eimskipa- fél. ísl.............— 2.000.00 4. Eftirstöðvar að- keyptrar vöru 20%..................— 51.819.10 5. Eftirstöðvar gjald- eyrisvöru............— 4.948.12 6. Ýmsir skuldunaut- ar ..................— 26.774.y3 7. Peningar í sjóði . — 6.193.88 Samtals kr. 123.877.61 B. Skuldir. 1. Innstæða varasj. . kr. 16.200.00 2. Innstæða stofnsj. . — 25.820.00 3. Stofnbréf óuppfylt — 2.320,52 4. Innstæða vorullar- reiknings...... — 1.363.95 5. Ýmsir lánardrotnar— 48.529.98 6. Óúthlutaður verzl- unarágóði og fjár- hæðir til sjóðauka — 29.643.16 Samtals kr. 123.877.61 Verðlagi á vörum Kaupfélags BorgarQarðar er viðbrugðið fyrir hve lágt það er. — Verðlækkun af útteknum vörum í pöntun, var gefin sem nam 5°/o. í varasjóð lagðar kr. 3.472.00. Þá var 5% skift á skuldlaus viðskifti í pönt- og verzlun. Upphætur: 24 aurar á hvert kg. vorullar, 20 a. á haust- ullarkílóið, 10 a. á hverja rjúpu. Á stofnbréf voru færð 5°/o og vor- ullarágóðinn eða alls 27 þús. kr. Rjúpu- og haustullarágóði útborg- aður, og nam það hvorttveggja 1.171.90. Á aðalfundi samþykti fé- lagið að gefa 1000 kr. til brúar- gerðar yfir Hvítá lijá Ferjukoti. F'réttir. Tíðin er nú brugðin til batnað- ar, sólskin, logn og hitar síðari hluta vikunnar. Siglingar. C e r e s komin tii Fleetwood og í s 1 a n d til Halifax fyrir miðja vikuna. Lagarfossá heimleið samkvæmt skeyti. E d i n a nýkominn til Siglufjarðar með salt og tunnur. Saltskip í Hafnafjörð með 200 smál. Francis Hyde, þrímastrað seglskip með hjálparvél, eign Jolmsons og Kaabers og Ólafs Davíðssonar, nýkomið frá Ame- ríku með 1050 smál. af vörum. B o t n í a fór i hringferð 3. þ. m. og Vesta til Seyðisfjarðar 5., en þaðan fer liún til Englands á veg- um landsstjórnar eftir kolum. Auk þessara siglinga eru 5rms mótorskip í förum víðsvegar með ströndum landsins. Mannalát. Aðfaranótt 3. þ. m. andaðist hér í bænum Jónas Jóns- son þinghúsvörður liátt á sjötugs- aldri, merkur maður fyrir ýmsra hluta sakir, landkunnur undir skop- skáldanafninu Plausor. Nýlega er látin að Yztaskála und- ir Eyjafjöllum Björg Guðbrands- dóttir, kona Jóns Sveinbjörns- sonar áður bónda á Ásólfsskála. Myndar og rausnarkona. —■ Úá er og nýdáin Ingibjörg Samúelsdóttir að Neðradal í sömu sveit, móðir Auðuns Ingvarssonar kaupmanns í Dalseli. Drubnanir. Nýlega druknaði 7 ára gamalt drengur á Akureyrapolli, Sveinn Vilhjálmsson að nafni. Voru tveir saman drengir á bát, og féll þessi útbyrðis. — Um síðastliðna helgi druknaði unglingspiltur við laxveiðar í Ölfusá. Var hann frá Stekk í Flóa. Héðinn Valdimarsson hefir ný- lega lokið hagfræðisprófi við Hafn- arháskóla með óvenjulega hárri einkunn, hlaut 194 stig. Stúdentar urðu 40 frá menta- skólanum að þessu sinni og hafa aldei jafnmargir »útskrifast« í senn. Excondito sokt. Stjórnarráðinu barst skeyti um það 2. þ. m. að Excondito hefði verið sökt skamt frá Orkneyjum, en að menn allir hefðu bjargast. Var skipið á veg- um landsstjórnar, átti að sækja kol til Englands, en fullfermt var það síld héðan.' Sláttuvélar, um 30 talsins, hafa komið með einhverju Amerríku- skipinu og eiga allar að fara til Norðurlands. Eru slíkt góðir að- drættir og þarfir. Fiskiþingið hófst hér í bænum 27. júní og stóð yíir til 3. júlí. Fulltrúar 11 á því þingi. Ritstjóri: Giudbrandur Magnússon. Hótel ísland 27. Sími 367. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.