Tíminn - 06.10.1917, Side 3

Tíminn - 06.10.1917, Side 3
T1 MIN N 119 bezta tegund. Þelta fyrirkomulag Tar hið bezta, eins og sakir stóðu. í sumar og haust hefir þetta farið á annan veg. Einstakir menn i Reykjavík tóku sér fyrir hendur, að »spekúlera« með Akraness- kartöflur. Með lagi náðu þeir undir sig mjög miklu af framleiðslunni, gáfu fyrir tunnuna um 30 kr., og t ætla sér svo að seljá fyrir 50—60 kr. Vegna örðugleika tímanna virð- ist hér vera um allálitlegan gróða- veg að ræða. það má telja víst að lítið flytjist inn í landið af útlend- um kartöflum, en framleiðslan of lítil innanlands. Neyðin er bezti vinur »spekúlantanna«. Ressar aðfarir þættu ekki sérleg- um tíðindum sæta í útlöndum. Þar eru þær daglegt brauð. Ein- okunarhringir eru um margar vöruteguudir og einstakir menn kaupa framleiðsluna og geyma, til þess að varan stigi. Vitanlega eru slík félög og slíkir menn ekkert annað en sníkjudýr á þjóðarlíkam- anum. Pessar aðfarir eru taldar bera vott um mikið verzlunar- hyggjuvit. Þær eru afkvæmi hinnar frjálsu samkepni. Á íslandi er þetta lílt þekt enn þá, en er ef til vill fyrirboði þess sem stendur fyrir dyrum. Svona gæti farið um ýmsar aðrar afurðir. Hér gæti myndast ný stélt manna, sem hefði það fyrir atvinnuveg að vera milliliðir innanlands og taka i sinn vasa 50 af hundraði, fyrir lítilsháttar fyrirhöfn og áhættu. I3ess vegna má þessi kartöflu- saga af Akranesi teljast hættulegt fordæmi. í*ess vegna á að halda henni á lofti til viðvörunar og sömuleiðis að segja liana sem lif- andi mynd af því, með hverjum hætti milliliðir i verzlun geta notað sér kringumstæðurnar. Hefðu Ak- urnesingar haft samvinnufélagsskap um kartöfluræktina og neytendur i Reykjavik kaupféíag sem keypti af því, þá hefði þetta aldrei komið fyrir. Nú mega bæði neytendur og framleiðendur illa við una. Verðlagsnefndin hefir tekið í taumana og sett hámarksverð á kartöflur: tunnan.á 30 kr. En það gelur vel verið að sú ráðstöfun bæti ekki úr skák. Það má telja vist að kartöfluekla verði í vetur og vor. Geymi nú »spekúlantarnir« kartöflurnar, þá er síst fyrir að synja að einstaklingar vilji vinna það til að kaupa kartöflurnar okur- verðinu til matar og útsæðis og hjálpi þannig til að fara í kring- um hámarksverðið. Það er full ástæða lil þess að taka til ihugunar hvort ekki væri rétt að rannsaka þetta kartöflumál sérstaklega, og komi það á daginn að svo sé í garðinn búið sem af er látið, að landsstjórnin tæki þá kartöflurnar eignarnámi með há- marksverði, léti það af þeim þegar falt sem ekki er hæft til útsæðis, en geymdi hitt til vors og léti þá falt til útsæðis, einkum þeim hér- uðum sem vilja auka kartöílurækt- ina. Eru ólíkt meiri hyggindi að eiga slíkar byrgðir útsæðiskartaflna, en útlendar. Stórhýsi. Öll hlutföll fara stækkandi hér heima, vélskip koma í stað róðr- arbáta, botnvörpungar í stað þil- skipa, bifreiðar byrjaðar að taka að sér mannflutninga í stað hest- anna þar sem því verður komið við, og húsagerðinni vex nú óðum fiskur um hrygg. Er nú verið að leggja síðustu hönd að heita má á vandaðasta stórhýsið sem einstakir menn hafa látið reisa hér á landi, stórhýsi þeirra Nathan & Olsen. Stendur húsið við Austurstræti og Pósthússtræti, á einni af dýrustu lóðum bæjarins, þar sem hús Pét- urs biskups var áður og verzlunin Godthaab hafði aðsetur silt þegar það brann í brunanum mikla 1915. Nýja húsið er fjórlyft steinsteypu- hús með turnbj'ggingu ánorðurenda, gnæfir það yfir öll önnur hús í miðbænum og úr turni þess er hið fegursta útsýni yfir Reykjavík og nágrenni. Guðjón Samúelsson húsgerðar- meistari hefir gert uppdráttinn, Jens Eyjólfsson annast um tré- smíðina, en Kristinn Sigurðsson urn steypuna. Tíminn fór til hr. Guðjóns Samúelssonar og bað hann um að segja sér hið helzta um húsið, og fara hér á eftir upplýsingar hans: Ytra útlit hússins reyndi ég að sníða dálítið eftir kringumstæðun- um. Mér var það strax ljóst, að sérstaklega varð að taka mikið til- lit til þeirrar byggingar sem reist yrði á hinni svonefndu Vöruhúss- lóð. Og þar eð ég álít að að sú ein bygging, sem gæti litið laglega út á þeirri lóð, því hún er svo mjó, væri einskonar turnbygging, fanst mér sjálfsagt að setja turn á hús Nathan & Olsen’s, til að fá sem mesta samræmi í hornin, og þar er ég álít fallegast, að fá sem mestan þunga á þessi horn, hafði ég turninn svo lágan sem hægt var. Annað atriði vakti líka eftir- tekt mína, að þegar fólk kemur inn í bæinn frá höfninni, verða þessi horn einna fyrst fyrir því, og álít ég þvi mjög fallegt, að þarna myndist einskonar »Portal«, sem sér i lagi mynda njóta sín mjög vel, ef hátt hús yrði reist fyrir endann á Póslhússtræli. Sömuleiðis hef ég sett einskonar turn á báða enda hússins Póst- hússtræti og Austurstræti af þeirri ástæðu, að ég geng út frá því, að þetta hús komi til að standa nokkur ár áður en bygt verður við það í sömu hæð og það er, og var því um að gera að fá það sem rnest sjálfstæða lieild, og fékst það bezt á þann hátt, að setja slika turna sem endamörk hússins á báðar hliðar, því ef þessir turnar væru ekki, myndi húsið alls ekki njóla sin fyr en bygt yrði við það í sömu hæð og það er. Húsið er ekki bygt í neinum sérstökum stíl, þó má segja að svolítið beri á »klassik« og mið- aldastíl. Hvað innra skipulagi viðvíkur, vildi ég taka það fram, að því er háttað sem i flestum skrifstofu- byggingum; á þeim tveimur hæð- um, sem leigðar eru út, er gangur eftir öllu húsinu, svo komast má í hvert herbergi frá honum. Á þeirri hæð sem Natlian »& Olsen sjálfir nota, er enginn gangur, en úr aðalskrifstofu þeirra, sem hefir inngang frá báðum stigunum, má komast inn á allar einkaskrifstof- urnar. í stofuhæðinni, sem Lands- bankinn leigir, hefir verið tekið tillit til þess, að ekki yrði alt of erfitt að breyta því í búðir þegar bankinn flytur þaðan. Annars hefir fyrirkomulaginu á þeirri hæð verið mest hagað eftir ósk bankastjórn- arinnar. Efstu hæðina hafa Frímúrarar leigða og er samkomusalur þeirra að stærð 6XH metra og verður hann hafður í »Klassisk-Renæs- sance stíl«. Húsið mun vera lang dýrasta hús sem hér hefir bygt verið, bæði sökum þess hvað húsið er afar- stórt, eftir þvi sem hér tiðkast, og sömuleiðis hefir verið borið tölu- vert meira í það en gert hefir verið í hús hér áður, og svo hafa auðvitað þessir afar erfiðu tímar gert húsið margfalt dýrara heldur en ef það yrði bygt t. d. fyrir stríðið. Húsið er alt steypt nema þakið, og hefir landsverkfræðingur G. G. Zoéga reiknað alt hurðarall hússins. Húsið hefir sjálfstæða rafurmagnsstöð, og verður alt upp- lýst með rafurmagni, sömuleiðis verður fólkslyfta frá kjallara upp á efsta loft. Eins og gefur að skilja eru margar vistarverurnar í slíku húsi sem þessu. Landsbankinn hefir alla neðstu hæðina og 2 herbergi á næstu hæð, hin sex herbergin hafa húseigendurnir sjálfir. Á 2. lofti hefir Guðm. Pétursson 1 herbergi, Samábyrgðin 1 (skift i tvent), Vitamálaskrifstofan 1, Ravnkilde tannlæknir 3, Ljóslækningastofa Gunnlaugs Claessens 3. Á þriðja lofti hefir Gunnar Sigurðsson lög- maður 1 herbergi, Samband ísl. samvinnufélaga 1, Ólafur Benja- minsson kaupm. 1, Georg Copland kaupm. 3, Þorkell Clementz 1, Steinunn Guðmundsdóttir nudd- læknir 1 og Páll Ólafsson tann- læknir 1. Á fjórða lofti eru 12 herbergi og hafa frímúrarar þau öll á leigu. Kjallari er undir öllu húsinu, þar er miðstöðvarhitun og geymsla þeirra Nathan & Olsen. Vatnssalerni eru á hverri hæð og baðklefar fyrir leigjendur á þriðja lofti. Rafmagnsstöðinni er skift i tvö stór herbergi og er hún aust- ur og suður af aðalbyggingunni. Utanáskriftir kaupenda Tímans verða prentaðar fyrir áramót. Nýir kaupendur segi til sín og þeir er hafa fengið blaðið sent og enn hafa eigi sagt til um kaupin. Bankamálsræða Björns Kristjánssonar. Undirskriftirnar. Öll sú lokleysa sem B. Kr. flytur um það að eigi verði hægt að undirskrifa löglega frá hálfu banka- stjórnar, þegar bankastj. eru orðn- ir þrír, er næsta spaugileg. Það hefir sem sé enginn maður orðið var við það, að eigi væri jafnan hægt að fá löglegar undir- skriftir i bankanum, nema þegar B. Kr. sjálfur hefir setið á alþingi, og vanrœkt að gegna embœtti sínu sem hann tekur 500 króna laun á mánuði fgrir að gegna. Þá kvað alloít hafa staðið á undirskiftum, sem eðlilegt er, því allir viðskifta- menn bankans vita að bankastjór- arnir, (þar á meðal B. Kr.) hafa álitið gæzlustjórana svo mikið núll, að eigi kæmi til mála að láta þá skrifa undir neinar lánveitingar jafnvel hvað smáar upphæðir sem um er að ræða. Af þessum ástæðum hafa menn orðið að bíða lengi eftir svari, eða undirskrift, bæði eg aðrir, og svo einnig af þvi, að þeir nafnarnir, virtust alls eigi geta ákveðið, á margra daga fresti hvort þeir ættu að veita lán eða ekki, og það stundum þó í hlut æltu þekktir og efnaðir menn. Það hlýtur því að verða mikil bót að því í þessu efni, að banka- stjóra með fult vald og fulla ábyrgð gjörða sinna, sé bætt við, því séu tveir bankastjórarnir við, þá ættu menn ekki að þurfa að bíða lengi eftir svari eða undir- skrift þó að B. Kr. héldi áfram þingsetu. Og þó að fyrir kæmi að tveir bankastjórar væru forfallaðir i senn, þá er ekki meiri þraut að fá settan bankastj. en að »ganga inn í kaffihús«, þó B. Ivr. vaxi þessi þraut í augum. Galdurinn við þessu er ekki annar en sá, að fara uppi stjórn- arráð, sem er nær hankanum en nokkurt kaffihúsið, og tilkynna þar að setja þurfi bankastjóra. Stjórn- arráðið skrifar bréf sem er 4—5 linur á lengd, og getur sent dyra- vörðinn með það samstundis til hins selta bankastjóra; sé sá setti nú einn af starfsmönnum bankans sem œtti að vera (því sá ósiður ætli að leggjast niður að sækja al- óvana menn bankastörfum út í bæ, en ganga fram hjá vönum banka- mönnum þegar setja þarf banka- stjóra). Þá er hann ekki neinn ei- lífðartíma að hafa sætaskifti í bankanum. Eg er sannfærður um að þetta þarf ekki að taka lengri tima en ef B. Kr. færi inn á kafíi- hús og fengi sér kaffibolla. Annars er gaman að sjá hvað hugsanagangur B. Kr. er á reiki í sambandi við þetta undirskrifta- mál, og fálmar út í loftið. í öðru orðinu segir hann að verið sé að fœkka í bankastjórninni, en í hinu orðinu að verið sé að fjölga í henni. (Sbr. orðin: »Og hvernig stendur þá á því, að þetta þing 'er

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.