Tíminn - 30.05.1918, Page 4
128
T í M I N N
HeiDilisiIiaðarfélag íslaaðs
heitir 100 króna verðlaunum fyrir þá ritgerð er be/t verður samin
um heimilisiðnað, og þá sérstaklega um það, sem vinna má úr inn-
lendum efnum. — Ritgerðin sé eigi yfir tvær arkir að lengd og
sendist stjórn Heiinilisiðnaðarfélagsins i Rej'kjavik með nafni höfund-
arins í lokuðu umslagi fyrir 1. janúar 1919.
Reykjavík í apríl 1918.
Inga L. Lárusdóitir Laufey Vilhjálmsdóttir
(pt. formaður fél.). (pt. ritari).
embætti var stofnað, enda er það
starfsemi blaða þeirra bræðra að
þakka, liversu Bretar bera af öðr-
um í lofthernaði. Nú er skj'rt frá
því í nýkomnum enskum blöðum,
að ráðherra þessi hafi beiðst lausn-
ar frá embætti sínu sakir heilsu-
brests. Sá heitir Sir William Weir,
er tekur við af honum.
Pi*á alþiugi.
Tillaga kom fram í Nd. um að
skipa fimm manna nefnd til þess
að athuga verzlunarframkvæmdir
landsins út á við og inn á við og
ráðstafanir allar sem gerðar hafa
verið og hér að lúta.
Urðu nokkrar umræður um lil-
löguna, vildu sumir vísa málinu til
bjargráðanefndar. Hitt varð ofan á,
að kjósa sérstaka nefnd og hlutu
kosning: Matt. Ól., Einar Árnason,
Björn R. Stefánsson, Bjarni frá
Vogi og Einar Arnórsson.
Samhliða tillögunni um að selja
ekki Olafsvelli, fluttu þingmenn
Árn. samskonar tillögu um að
seija ekki Gaulverjabæ. Var tillög-
unni vísað til stjórnarinnar með
ósk um að jörðin verði ekki seld
fyrst um sinn.
TiIIögu ílytja Þorl. J., G. Sv., og
Jón Jónsson um úthlutun matvöru
og sykurseðla. Hljóðar um það, að
þau héruð, þar sem aðdrættir eru
erfiðir, fái úlhlutað lil 9 mánaða.
Var vísað til stjórnarinnar með
rökstuddri dagskrá.
Frumvarp um einkarétt til verzl-
unar með sinjör og tólg flytur
Sigurjón Friðjónsson. Eandsstjórn
heimilaður einkaréttur til verzlun-
ar með smjör og tólg meðan stríð-
ið stendur. Bó er það smjör und-
a*nþegið sem framleiðandi selur
beint til neytanda. Uinsjónarmenn
smjörverzlunar séu í sveitum og
smjcrmatsmenn í bæjum. Hámarks-
verð á smjöri í innkaupi kr. 4,50
og kr. 4,00, en landsverzlunarstjórn
ákveður útsöluverð, enn fremur
hámarksverð á tólg. Smjör sem
selt er beint frá framleiðanda til
neytanda er undanþegið hámarks-
verði. Frumvarpið var felt. Frá-
færnafrumv. stjórnarinnar var sömu-
leiðis felt.
Frumvarp um skipamiðlara flytur
Magnús Kristjánsson. Skipamiðl-
arar séu löggiltir með sérstökum
skilyrðum.
Þingmenn Árnesinga ílytja frum-
varp unr heimild handa landsstjórn-
inni til þess að verja fé úr lands-
sjóði til viðhalds Ölfusárbrúnni.
Jörundur Brynjólfsson flytur
frumvarp um hafnsögu í Reykja-
vík. — Mentamálanefnd kemurfram
með nýjar breytingar á fræðslulög-
unum og fara þær skemra en frum-
varp stjórnarinnar. Sama nefnd
flytur frumvarp um veðurathugana-
stöð í Reykjavik. Stjórnin flylur
tvö tekjuaukafrumvörp: Um stimp-
il gjald og um hækkun á vöru-
tolli.
Fyrirspurnum hefir ringt niður
til stjórnarinnar og mjög mikið af
tírna þingsins verið varið í umræður
um þær. Hina fyrstu flutti Halldór
Steinssen í Ed. út af seðlareglu-
gerðinni frá 23. jan. Notaði hann
tækifærið um leið og hann rök-
sluddi fyrirspurnina, til þess að
ráðast á landsverzlunina og prent-
aði Lögrétta þá ræðu, en lnín fer
þvert fyrir stefnu stjórnarinnar og
er töluð mjög út í hött. í Nd.
flutti G. Sv. o. fl. fyrirspurn um
framkvæmdir fossanefndarinnar.
Er hennar áður getið og var vísað
til stjórnarinnar. —' Bjarni Jóns-
son ílutti fj'rirspurn um úthlutun
kola og urðu um litlar umræður.
Einar Arnórsson o. fl. íluttu fyrir-
spurn um sykurhækkunina. Ber
Einar af öðrum stjórnarandstæð-
ingum um slillilega og kurteislega
framkomu og er þess vert að geta
honum til hróss og öðrum til á-
mælis. Um fyrirspurnina urðu litl-
ar umræður, enda er sykurmálið
dautt mál og hlaut enginn tjón af
hækkuninni.
ÞingsSlyktunarlillögur liafa marg-
ar verið á ferðinni: Um að tryggja
að til séu sauðfjárbaðlyf og eftir-
lil haft með böðunum. Um að sjá
um að til sé útsæði um alt land
og tryggilega geymt og gefin út
leiðarvísir um það. Um rannsókn
mómýra. Um kolanám í Gunnars-
staðagróf við Steingrimsfjörð, að
heimilað sé að styrkja kolanám
þar með 10 kr. á smálest not-
hæfra kola. Um aukinn styrk og
lánsheimild til flóabáta. Um heim-
ild til að greiða Gísla Guðmunds-
syni meiri laun en heimilað er í
fjárlögunum. Um biðlaun handa
Metúsalem Slefánssyni skólastjóra
á Eiðum.
Frumvarp er komið fram frá
stjórninni um dýrtíðar og gróða-
skatt og nái einnig til ársins 1917.
Má búasl við miklu þjarki um
það a. m. k. hefir ísafold tekið
því þunglega og sömuleiðis sumir
þingmenn.
Fjárveitinganefnd flytur lillögu
um að heimila landsstjórninni að
veita upphót á námsstyrk og húsa-
leigustyrk stúdenta og minni hluti
nefndarinnar flytur tillögu um
harðærisuppbót lianda orðabókar-
höfundum.
Frumvarp var feit um það að
hækka iæknataxtann um 100°/o.
Annað er komið fram uin að
hækka laun lækna um 1000 kr.
Úr þessu má búast við endan-
legum svörum Dana um sendimenn
hingað, því að ríkisþingið mun
hafa verið kvalt saman 28. þ. m.
Fréttir.
Tíðin er ávalt hin ákjósanleg- j
asta hér syðra. Kartöflur farnar að
koma upp í görðum. Á norður
og vesturlandi er kvarlað um hita
og þurka.
Skipaferðir. S t e r 1 i n g fór vest-
ur iim land í strandferð á annan
í hvítasunnu með fjölda farþega og
fullfermi af vörum. oFrances
H y d e« kom daginn eftir með
sement og 1000 steinolíutunuur.
Hafði skipstjórinn andast í hafi 5
dögum áður en skipið kom hing-
að. Hét hann Nelson, norskur að
ætl, og var jarðsunginiy hér í
Rvík. Botnía kom 21. með yfir
70 farþega, fór aflur 23. þ. m.
með um 50. Sænskt seglskip kom
hingað á dögunum með pappírs-
efni sem flytja átti til Spánar, var
það orðið vistalausl. Finskt segl-
skip nýkomið til Hafnarfjarðar
með kol til Aug. Flygenrings. —
Lagarfoss kom hingað frá Dan-
mörk 23. þ. m. B o r g komin
til Noregs en þaðan á hún að fara
til Englands eftir vörum sem flytj-
ast eiga hingað. Skip er á leiðinni
frá Ameríku með steinolíu.
F.nskf, lierskip kom hingað 27.
þ. m. og flutti enska ræðismann-
inn Mr. Cable og einn af erendrek-
unum til Englands, Eggert Briem
frá Viðey. Hinir tveir munu hafa
farið til Norðurlanda frá Englandi.
Ennfremur komu með skipinu þrír
Englendingar í verzlunarerindum
fyrir stjórn sína.
»
Fisksala til Englands. Botn-
vörpungurinn Njörður hefir farið
þrjár ferðir til Englands með is-
fisk og selt farmana afarverði, sið-
asta fyrir 8500 pund sterl. En tveir
Kveldúlfsbotnvörpungar hafa ný-
lega selt fyrir 1400 og 700 pund.
Er þetta mikill munur og siðari
salan langt undir sannvirði.
70 ára afmæli átti præp. hon.
Sigurður Gunnarsson frá Stykkis-
hólmi síðastliðinn laugardag. Er
hann enn hinn hraustasti og rösk-
leggsti á velli og nýtur þar vænt-
anlega íþróttaiðkana og glímu-
fræknleika í æsku. Rómurinn einn
er bilaður. Síra Sigurður á von-
andi enn langt og gott starf fj'rir
lröndum. Hann ær og hefir verið
formaður bannvinafélagsins í
Reykjavík og er sístarfandi að
andlegum málum; t. d. birtist ný-
lega þýðing eftir hann í Skírni á
sögu Gunnars skálds bróðursonar
hans, og var sú þýðing prýðilega
af hendi leyst.
Síra Lárus Halldórsson frá
Breiðabólstað á Skógarströnd er
nú alfluttur til Reykjavíkur. Er og
hér hinn rétti staður fyrir hann,
því að hann er hinn mesti lista-
maður á skrift og ættu söfnin að
njóta krafta hans óskiítra til þess
að bæla galla á skjölum og bók-
um. Skrautritari er hann og prýði-
legur, tók við af Gröndal í gamla
daga að skrautrila ávarp alþingis
til konungs.
Eítirlaun B. Kr. bankastjóra.
Nefndin í Ed. sem fékk frumvarp-
ið til meðferðar hefir haft tal af
hr. B. Iír. um málið. Segir svo í
nefndarálitinu. »Lýsti hann (B. Kr.)
yfir því að frumvarp það sem hér
liggur fyrir, væri borið fram eftir
ósk sinni og að það væri ósk sín
og vilji, að fara úr bankastjórninni
sem fyrsl, lielzt 1. júlí næstk.
Liggja alvik svo að, að heilsa hans
er í veði, ef ha4n nej'ðist til að
vera lengur við bankann.« —
Nefndin telur eftirlaunin ekki of
há, en, vill binda eftirlaunarétlinn
við ákveðið tímatakmark sem sé
1. júlí næstk.
Við þessi málalok myndu allir
vel una.
•
Látinn er nýlega Bjarni bóndi
IJórðarson frá Reykhólum. Var
hann um langt skeið einhver sköru-
legasti bóndi vestra. Af börnum
hans má nefna séra Böðvar á Rafns-
eyri og IJórð kaupmann í Reykja-
vík.
Eidíimálid.
Út 'af grein um það mál hér í
blaðinu ekki alls fyrir löngu, hefir
hr. Jón Jónsson alþm. á Hvanná
slokkið upp á nef sér og ritað grein
í ísafold, sem er mjög ósæinileg á-
rás á fyrverandi samflokksmenn
hans Svein Ólafsson og Þorstein
Jónsson. Sagði Jón sig úr Fram-
sóknarflokknum — og þakkaði um
leið fyrir góða samvinnu! — áður
en greinin kom, út og er nú í frá-
sögur færl að hann sé genginn í
lið með langsum-mönnum. Má telja
vist að grein Jóns og framkoma
öll verði mjög til þess að spilla
álili hans ej'stra.
Botnvörpungurinn Rán er far-
! inn til Vesturheims og stundar
þar veiðar.
Ritstjóri:
Tryg'gvi Þórlmllssoii
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Gutenberg.