Tíminn - 04.11.1918, Page 4

Tíminn - 04.11.1918, Page 4
228 T I MI N N og 340 gr. meltanl. reiknuð kolvetni. (En »reiknuð kolvetni« nefni eg kolvetni fóðursins -j- fitan X 2). Síldarmjöl. Fóðurlilraunir hafa verið gerðar á landbúnaðarháskólanum í Nor- egi með síldarmjöl. Þar rejmdist það jafn-gilda góðum olíukökum. — Hér á landi hafa þeir félagar Andrés í Síðumúla og Bjarni á Leifslöðum reynt það á móti rnaís, og reyndist að eins betra. Þessum tilraunum ber þá vel saman og sýna, að gott síldarmjöl er ágælt fóður. Samkvæmt efna- rannsókn ætli i bezta síldarmjöli að vera um 800 gr. meltanl. í einu kg. eða helmingi betra en góð taða. En eftir innlendu tilraununum ætli síldarmjöl að hafa talsvert meira gildi. Þykir mér sennilegt, að svo sé líka, þegar síldarmjöl er gefið með beit og lakara heyi, þvi þá notist fóðrið — tréefnið í heyinu — betur. Sennilega ber mest á þessu, þeg- ar fremur lítið er geíið af kraft- fóðrinu. Pá er það sem fóðarbœtir. En sé mikið gefið af kraftfóðrinu, svo það verði talsverður hluti fóð- ursins, fóðuraaki, spari það ekki hlutfalslega eins mikið hey. Væri gaman að vita hvort nokk- ur hefði veitt þessu eftirtekt. Annars er þetta stór-merkilegt atriði fyrir okkur, og þyrfti að rannsakasí sem fyrst. Gott síldarmjöl á að vera ljóst á litinn, alveg þurt, fínt sem hveiti og með þægilegri, óskemdri íisk- lykt. Sé það dökt á litinn með fúlli brækjuljrkt, er það lítt hæft til fóðurs og ætti ekki að kaupast. Skepnur læra fljótt að eta gotl síldarmjöl, en nálega aldrei þegar það er skemt, og sízt tómt. Bezt mun það vera harida mjólkurkúm, og vegna þess það er mjög köfn- unarefnisríkt ætti að mega gefa með því úthey að einhverju leyli og spara þá töðuna. Ekki mun ráðlegt að gefa kúm meira en I lil mesta Jagt 2 kg. á dag, eigi að nota mjólkina í smjör, skyr og osta. Hestum mun vera óhætt að gefa 1—l1/2 kg. á dag vg sauðfé V» kg. eða jafnvel ögn meira. Hvað skepnan þoiir að éta mest af góðu síldarmjöli, veit eg ekki, kviðfylli verður skepnan þó alt af að hafa. Og rétt er það á- valt að fara varlega, byrja með lítið og smá bœta svo við, þegar um mengt og einhæft fóður er að ræða. Allar meiri háttar fóðurbreyt- ingar þurfa að standa yfir viku- tíma minst. Sildarmjölið mun vera bezt að gefa stórgripum afmælt og þurt í döllum. Éinnig má lika bleyta það jafnóðum og gefið er. Séu jötur eða garðar góðir, — steyptir, úr tré eða hörðum leir — mundi eg jafnvel blanda mjölinu sem bezt saman við heyið í jötuna, einkum handa sauðfé. Eta skepnur þá ná- lega alt sem fj'rir þær er borið. Söltuð síld. í vetur mun söltuð sild verða aðalfóðurbætirinn hjá fjöldanum og er því leitt að geta ekki gefið fullnægjandi upplýsingar um liana. Fóðurrannsóknir á síld eru eng- ar lil svo eg viti, hvorki innlendar né útlendar, og dómar manna hér á landi mjög mismunandi. Sumir hefja hana til skýjanna. Meta hana til fóðurs sem þrí- og fjórfalda við töðu, aðrir álíta hana lítið betri en töðu, og þann ílokkinn fylli eg. Minsta kosli er varlegra i óviss- unni að meta hana heldur of lágt en of hátt, því það góða svíkur ekki. Hvað segir efnarannsóknin? Til eru allmargar efnarannsóknir á saltaðri sild, innlendar og útlend- ar. Þeim ber aldrei samau. Tvær hefi eg nýfengið lrá Efnarannsókn- arstofu landsins. t*ar er þurefnið 53°/o með 40.?% meltanl. eggja- hvíta og 14.5°/o meltanl. fita. Þetta samsvarar í lkg.af sallaðri síld: 216 gr. meltanl. eggjahvíta og 77 gr. meltanl. íitu, eða 216 -j- (77 X 2) — 370 gr. af nmeltanl. lcolvetnuma. Ekki er þetta álitlegt. Nær ekki töðunni með 400 gr. Nú vil eg þó meta I kg af síld 5—600 gr. meltanl. Rk. Eftir þvi ættí 1 síldarslrokkur (100 kg síld) eklci að jafngilda meiru en 125 kg af góðri töðu. Rollufóður í meðalvetri hjá góðum fjármanni. — Eg tel víst að líkt megi segja um síldina og síldarmjölið, að sé litið gefið af henni, þá kryddi hún fóðrið, skerpi meltinguna og jafni næringarhlutföllin, svo beit og lak- ara hey étist meir og notist betur. En eigi að gefast mikið af henni, svo hún beint komi í fóður slað til muna, megi menn vara sig að ælla hana tnikið betri en góða töðu. Síld er ekld eius skemlileg lil meðferðar og síldarmjöl, og oft verður að afvatna hana, til þess að kýr og jafnvel aðrar skepnur éti hana með lyst. En þá gengur það venjulega vel. Afvatnið má nota saman við sinu, ryk- og mygluhey. Síld er vafalaust ágælt fóður handa sauðfé og hrossum, sérstak- lega með beit og iélegu heyi, eins og nú er víða. — Vafalaust væri heillaráð að byrja snemma að gefa hestum 2—3 sildar á dag með beilinni. Mundu þeir lengi bala með það. Ánum okkar gefum við xji—Vs og inest V2 síld á dag með beitinni og svipað með inni- stöðu. Sumir hæla því mjög að sjóða síldina í graut og hella soði og síldarmauki yfir heyið i garðan- um. Geri þá síldin sömu verkan, vegna fitunnar og lýsi, i hart og myglað hej\ En það koslar eldivið. Eg heíi heyrt getið um mann, sem átti að gefa kúnni sinni 30 síldar á dag! Eg hefi gefið kú um lengri tíma 8 síldar á dag. En mundi mega gefa öllum kúnum í fjósinu svo mikla síld, ef strokka ætti rjómann? Eg efast um það. Eigum við að segja 4 — 5 síldar á dag. Þá erum við búnir að fá 100—130 gr. af íilu í viðbót við fituna í heyinu eða liinu fóðrinu, og þá munu kýrnar tæplega melta svo mikla fitu, eftir því sem Kellner segir: »0.5—0.7 gr. handa fullorðnum skepnum og 1 gr. mest handa ungviðum, er melta fituna betur, fyrir hvert kg af lifandi þunga skepnunnar«. En er nú nokkurt vit í þvi að kaupa síld, fáist golt síldarmjöl? Eg held tæplega. í einum síldar- strokk er 100 kg af síld. Þessi sild sem við nú höfuin er fremur smá. Þarf 4 í kg, er því nærri 400 í stroknum. Annars 300 af vænni hafsíld. Auk þess eru 25 kg vatn og 5 kg salt. Utan um þetta er svo ca. 30 kg af lélegu timbri. (Ný og þur síidartunna vegur 16 kg). Svo er nú venjulega helmingur af síldinni vatn, undir 70°/oinýrri sild. í siidarmjöli venjulega að eins 8—14°/o, en að vísu minna af fitu. Það keinur þá upp úr dúrnum, að við erurn að velta og baxa með margfaldan þunga af síldarmjöli í vatni salti og timbri. Þokkalegar aðfarir dýrtíðarárið 1918, í öðrum eins samgöngu- og flutningavandræðum. Það er svipað og með smala- strákinn hjá Molbúum. Hann var of stórfættur til þess að reka úr túninu. En þá var ráðið, að láta 6 menn rogast með stráksa! (Niðurl.) Halldór Vilhjálmsson. Fréttir. Nýjar bæknr. Má öllu verjast, dýrtiðinni ekki síður en öðru, og bókaútgéfendurnir hafa nú aftur fylst áræði og verður bókaútgáfa í haust sízt minni en í meðalári, og haft er það á orði, að bóka- markaðurinn hafi aidrei verið jafn- góður og nú. Var njdega getið for- lagsbóka Sigurðar Kristjánssonar og verður þeirra nánar getið. Auk þess hafa Tímanum verið sendar þessar bækur: Hrœður /., eftir Sig- urð Heiðdal, útgefandi félagið Hljm- ur, Tvœr sögur, eflir Hnldu, bóka- verzlun Arinbj. Sveinbjarnarsonar gefur út, og loks ný kvæðabók: Undir Ijú/nm lögum, eftir Gest, og hefir dr. Alexander Jóhannesson búið undir prentun, en Þorsteinn Gíslason er kostnaðarmaður. Er það merkasta bókin, hin prýðileg- asta að öllum frágangi og girnileg ílits. Verður þessara bóka allra getið nánara jafnóðum og rúm leyfir. — Fjórða bókin hefir hinn lengsta titil, sem til mun vera á íslenzkri bók, en fyrsta orðið er r>Bónorðsbréf«, og Jætur hvorki höf- undur né kostnaðarmaður nafns getið, en kennir sig við Kolbein unga. Frágangur er mjög »dýrtíð- arlegur« og innihald sem titill er í húsi Natan & Olsen Rej'kjavík, herbergi 21, Sími 27 A. Annast hún sjó- og sttíðsvá- tryggingar (aðalumboð á íslandi fyrir Dansk Merkur. Grön&Witzke) eldsvoðatrj’gging á húsum, bús- hlutum, vörum, fénaði og skipum (umboð fyrir brunabótafélagið National), enn fremur líftryggingar. Símið eða skrifið Vátryggingar- skrifstofunni í hvert sinn er þér þuríið að tryggja. Virðingarfylst. Guðbrandur Magnússon. vísar. »Úr ástabáli fyr sálast« kvað Jónas, og er hér á ferðum »for- inálabók« á því sviði, sem vera má að einhverjum »stýri priks« spari fjörtjón. Fossanef’ndin. Eftir tillögum fossanefndar hefir stjórnarráðið skipað Einar prófessor Arnórsson nefndinni til aðstoðar. »Vits es þörf þeims víða ratar«. tír bréfi, úr Rangárvallasýslu 21. þ. m.: Feikna rigning síðastliðna nótt og fram undir kvöld i dag. Askan alveg skoluð af grasinu, en víðast húð í rót, og bót hefir það verið í máli, að töluvert hefir blás- ið úr þúfum áður en vætti. Hér eru því ekki enn teljandi skemdir af öskufallinu. Er því góð von um að menn þurfi ekki að farga hér i neðanverðri sýslunni, vegna ösku- fallsins, nema meira bætist við. Aukafnndur Eimskipafélags ís- lands var haldinn 26. þ. m. Var bæði fásóttur og ómerkilegur. Meira eh hinir. Er það ekki oft svo fyrir lönd- um þeim er nám stunda, hvort það er verklegt eða vísindalegt, að markið er frekast það bara að vita og geta ögn ineira en hinir; þeir er komið geta til greina sem keppi- nautar, en skeyta minna um að öðlast þá kunnáttu og þroska er þarf til þess að geta heitið full- numa í sinni grein. Háir það mjög framkvæmdum og gerir alt smástígara, er þéir sem forgöngu hafa vaka frekar yfir því að enginn standi þei'm framar, í stað þess að leitast við að fá alla þá kunnáttu og aðstoð sem frekast er unnt, til þess að komast »áfram, lengra, ofar, hærra«, eins og Indriði á FjalIL kvað. Ritstjóri: Tryggvt Þórlmllsson Laufási. Sími 91. Prentsmiðjau Gutenberg.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.