Tíminn - 05.03.1919, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.03.1919, Blaðsíða 3
T í M 1 N N 59 auðugan garð að gresja — í þessu efni — og úlbreiða þá félags- kyggju hér. Eg veit, að bændur eiga við ýnisa örðugleika að etja t. d. með láns- heimildir til stærri fyrirtækja. — En það o. fl. eiga þeir að lagfæra sjálfir, og þvi er lífs-spursmálið fyrir þá að vakna, hugsa sjálfir og framkvæma. Pað heimtar hinn nýi tími. 15. jan. 1919- Jön H. Porbergsson. ^amgöngur' Mttir Jón Á. Guðinund8son. III. Heildar strandferða-kerfi getur verið á margan hitt fyrirkomið, og sennilegt að reynslan ein geti skorið úr því hvernig það verður haganlegast. Mín hugmynd er þessi: 1. Að allri strandlengiunni sé skift á milli 7-9 flóabáta, sem ann- ist allan flutning á þessum svæðum, út frá aðalhöfnum þar sem strandskipin koina við. Stærð þeirra sé beinlinis miðuð við flutningsmagn hvers svæðis. Þeir séu vel úlbúnir til flutn- ings á allmörgum farþegum, og séu í stöðugum flutningum mestan hiuta ársins. Af því að flutningsþöríiri er mjög misjöfn, séu haust og vor sem mest beinar ferðir út frá aðalböfn- inni til einstakra hafna, en þess á milli strandferðir með mörg- um viðkomustöðum. Áætlun flóabálanna sé sniðin eftir ferð um strandskipanna, þannig að þeir inættu þeim á aðal höfn- unum. — Auk þess mætist flóa- bátarnir tveir og tveir á enda- hötnum sínum. 2. Að auk »Sterling« verði fengið annað skip að svipaðri stærð tit strandfeiðanna. Það sé hrað- skreilt og með stóru farþegarúmi. Þau fari hringferðir hvort á móti öðru, á hverjum 14 dög- um með viðdvöi í Reykjavík, og snúi þar við í hverri íerð. Sterling komi að eins á eina liöfn á hverju flóabáta-svæði til vöru- og fólksflutninga, en auk ’ þess á ísatjörð, Akureyri og Seyðisfjörð aðallega til fólks- flutninga, og hafi þar því mjög lilla viðdvöl. Hkt skipið haíi nokkuð fleiri viðkomustaði, sem svari þvi sem það er hraðskreið- ara, og hefir fljótari afgreiðsiu sökum minni vöruflutninga. 3. Hafnir þær, sem verða viðkomu- staðir standskipanna séu valdar með það fyrir augum: a) Að þar sé trygg höfn og greið innsigling, svo skipin eigi sem minst á hættu að teppast vegna óveðurs. b) Að þar sé greitt um upp- og útskipun. c) Að þangað sé til- tölulega mest flntningsþörfin. d) Að þangað sé sem minstur krókur fyrir strandskipin. e) Að höfnin sé sein næst miðju svæði llóabátanna, svo ílutningar með þeim verði sem stystir, því að sama skapi mega þeir bátar vera minni. Þó mun réttast, ef því verður við komið, að skifta á um fleiri hafnir, þó án þess að *samræinið við flóabátana raskist. 4. Að millilandaskipin, að minsta- kosti meðan þau eru ekki stærri en nú gerist, koini og öðru hvoru til ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar, svo að þangað þyrfti lítið að flytja af vörum frá Reykja vík. 5. Að fullnægja flutningsþörfinni vor og haust með því að strand- skipin fari þá 3—4 ferðir hvert með nokkuð færri viðkomu- stöðum. Á þennan hátt mun strandferð- unum komið í gott horf, og flutn- ingstækin nægiieg, að minsta kosti lyrst um sinn. Framlag landssjóðs þyrfti í rauninni ekki miklu meira það sem nú er, því eins og kunnugt er, hefir Slerling ekki flutt nema nokkuru hluta vörumagnsins. En eins og sannað er hér að framan, verða flutningarnir ódýrari ef við- komustöðum er fækkað, og flutn- irigur með flóabátunum miklu ó- dýrari milli smáhafnanna, heldur en allir þeir krókar yrðu strand- skipunum. Og svo þegar þess er gætt, að að eins nokkur hluti af vör- um þyrfti að umskipast. Að sjálf- sögðu gæti ekki þetta íyrirkomu- lag staðist alt árið, að minsta kosti ekki kringuin alt land, og því nauðsynlegt að haga flutning- uin og ferðum nokkuð eftir því, þó þeim væri hagað eitthvað í líkingu við tillögur mínar, þann hluta ársins sem venjulega er ís- laust. Sökum þess að ekkert hérað vili veiða fyrir því að borga tvöfld farmgjöld, er það eðlilegt að þessu fyrirkomulagi verði illa tekið, þó það í rauninni sé það ódýrasta fyrir heildina. Með áskorunuin og allskonar gauragangi reynir hvert hérað að toga strandskipin til sin, og þeir, sem ekki eiga þess kost, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir reyna að fara fram hjá flóabátunurn og aukakostnaði þeirra, með því að leigja sérstök skip, sem fara beina leið. En það dregur frá flóabát- unum svo að heildarílutningarnir verað dýrari. En er það líka ekki ranglátt að einstaka héruð skuli þurfa að boiga tvötalt eða þrefalt farmgjald á vörum sínum, þegar önnur fá þær allar með einföldu farmgjaldi? Og þegar grundvöllurinn fyrir þessu ranglæti, er kerfi, sem mið- ar til að gera heildaiflutninginn sem ódýrastan, er það augljóst að- farmgjöld og fargjöld eiga að vera jatn há fyrir það þó skift sé um skip. Að eins upp- og útskipunar- kostnaður á umskipunarstaðnum má bætast við farmgjöldin. Fyrirkomulagið yrði þá þannig að öll jarm- og fargjöld grða borg- uð á þeim stað, sem ferðin byrjaði, en þaa skip, sem tœkja við til á- /ramhaldandi flutnings fengja ekkert af flatningsgjaldinn. Til þess að koma þessu hagan- lega fyrir væri best að öll skipin væru landssjóðs eign, eða leigð af honum. Þau munu líka krefjast töluverðs landssjóðsstyi ks, og þá beinast að landið kosti þau að öllu leyti. Einstakir menn vilja eins og eðlilegt er fá ágóða af rekstri sin- uin, og því óheppilegt að þeir kosti slrandferðir sem þurta landssjóðs- styrk. Nokkuð af styrknutn verður þá sem ágóði rekslursins, en slík- an ágóða þarf landsjóður engan. Það er þá alls ekki óframkvæm- anlegt, að fella burtu aukafarm- gjöldin, þó nokkuð af flóabátunum sé t. d. gert út af af eislaka hér- uðnm. Mætti með þetta fyrir aug- um hækka styrkinn, og setja setn skilyrði, að báturinn yrði að fara eftir fastri áætlun sem stjórnarráðið semdi, og flytja ókeypis bæði fólk og farm, sem hann tæki við af slrand- skipunum eða öðrum flóabátum, en aítur á móti hefði hann full flutningsgjöld, fyrir það, sem hann flytti af stað, hvert sem það ætti að fara innanlands. Einnig mætti í stað þess borga flóabátunum ákveðiun hluta af öllum farm- og fargjöldum innan- lands — miðað við þann flutuing sem þeir hefðu flutt. Hér er eingöngu ált við innan- landsflutningsgjöld. því eins og nú í raun og veru fengið einveldi. Og hún beitti valdi sinu óspart. Óteljandi tilskipanir voru gefnar út, og hver nefndin á fætur annari sett á stofn. — Reyndist þetta all- misjafnt og sögðu sljórnar-andstæð- ingar, að enginn gæti Iengur áttað sig á öllum þessum tilskipana-graut stjórnarinnar, og að svo væri komið, að skifta mætti þjóðinni í tvo flokka, þá sem sljórnin hefði settínefndir °g þá, sem enn þá væru utan við þær, og innan skamms myndu flokkarnir verða álíka fjölmennir! Hér skal enginn dómur lagður á dýrtíðar-pólitík stjórnarinnar, en eitt er víst, að hún hefir kostað Óhemju fjár, og því fer fjarri, að það sé mestmegnis stjórninni að þakka, að Danniörk hefir verið betur birg af matvaelum, en önnur Norðurlönd. Orsökin er miklu fremur sú, að Danmörk er að heita má öll einn akur, og meiri hluti þjóðarinnar vinnur að því, að fram- leiða matvæli. — Það er ekki að undra, þó akrarnjr dönsku gæfu meiri mat, en fjöllin og skógarnir í Sviþjóð og Noregi. Guðsfriðurinn stóð ekki lengi. Árásir hófust á stjórnina úr ýms- um áttum. Henni var borið á brýn, að hún drægi taum borgaranna, en legði allar byrðirnar á bænd- urna. Mun nokkuð vera hæft í því, þótt ef til vill hafi full-mikið verið gert úr þessu. Enn fremur var stjórnin áfeld fyrir, að hún gæfi sínum stuðningsmönnum tækifæri til þess, að græða óhindrað offjár, stnndum á miður heppilegan hátt. Það var sagt, að hún setti alt of seint hámarksverð á ýmsar nauð- synjavörur, og leyfði of lengi okur á þeim. Svo þegar hámarksverðið loksins kæmi, þá hyrfi varanjaln- an af markaðinum. Mörgum Dönuin þóttu Gvðing- arnir ráða of miklu, og að stjórnin hlynti að þeim á allar lundir. — Sömuleiðis komu hér kirkjumál nokkuð til greina. Margir af belstu mönnum »radíkala«-flokksins eru ákveðnir vantrúarmenn, en danska þjóðin er í heild sinni fremur trúuð og kirkjurækin, einkum bændurnir. Tvent var það þó, sem öðru frem- ur veikti álit stjórnarinnar. Hún, eða helstu merin hennar, höfðu í tíma og ótíma prédikað frelsi og þjóðræði. Og svo varð hún neydd til þess, að gefu út hver þvingun- arlögin á fætur öðrum. Sljórn Zahles síðustu árin hefði í rauninui verið algerð harðstjórn, og hún hefir skert einstaklings-frelsið, meira en nokkur önnur dönsk stjórn hefir gert, síðan þingstjórn var innleidd í Danmörku. Hitt inálið var friðarstarfsemi »radíkala«-flokksins. Hann hafði ahnenna afvopnun framarlega á stefnuskrá sinni. En nú varð ráðu- neyti flokksins knúð til að byggja víggirðingar og skotgrafir og halda mikluin hlut hersins undir vopnum Sjállur friðarpostulinn Peter Munch varð að láta bæta og stækka virkin í kringum Kaupmannahöfn á allar lundir, og hann hafði þó oft áður sagt, að þau væru einskis virði og ættu að leggjast niður. Svo undarlegt var háð forlaganna, að einmitt Munch, sem mest og best hafði talað á móti fjárveitingu til herbúnaðar, varð til þess að eyða meira fé í herkostnað, en nokkur annar danskur hermálaráðherra á síðari tíinum. Síðastliðið vor fóru fram kosn- ingar til danska þingsins. Var þá all-mikið kapp i mönnum, en svo fóru leikar, að stjórnin fékk 72 af 140 sætum í Fólksþinginu, en það svarar til neðri deildar Alþingis hér. Þó var þessi sigur stjórnarinnar því að þakka, að hennar ilokkur og jafnaðarmenn gengu lil kosu- inga saman og studdu hvor annan, en hægri- og vinstrimenn gengu til kosninga hvor í sinu lagi, og keptu hvorir við aðra. — í Lands- þinginu fengu stjórriar-andstæðingar öílugan meiri hluta, sem mest var því að þakka, að það er kosið með nokkuð öðruvisi tilbögun en Fóiksþingið. Annars má vart í milli sjá um styrkleik flokkanna. Stjórnin þurfti of fjár til her- varna og dýrtiðar-ráðstafana, og hefir því rikið danska orðið að taka stórkostleg lán. Stjórnar-andstæð- ingar voru óánægðir með margar af ráðstöfunum stjórnarinnar, og^ þegar hún nú um nýársleytið krafð- ist heimildar til þess, að taka 100

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.