Tíminn - 29.03.1919, Side 2
82
TI M I N N
Alþýðuskólinn á Eiðura.
Þeir sem ætia sér að stunda nám við hann skólaárið 1919—1920,
sendi mér að Eiðuin skriflegar eiginhandar umsóknir fyrir 15. júlí.
Skal þess gelið jafnframt, hvort umsækjandi vill taka þátt i náms-
skeiði i búnaði eða heimilisiðnaði áður en skólaárið byrjar. Nám-
skeiðið hefst 29. sept. en skólinn þegar að því loknu, 20. okt., og
stendur til 10. mai.
Inntökuskilyrði eru þessi:
1. Að umsækjandi sé fullra 17 ára áð aldri. Þó getur skólastjóri
veitt undanþágu frá því, ef honum þykir ástæða til og umsækjandi
er ekki yngri en 16 ára.
2. Að hann sé ekki haldinn af neinum næmum sjúkdómi eða öðr-
um likamskvilla, sem geti orðið hinum nemendunum skaðvænn.
3. Að siðferði hans sé óspilt.
4. Að hann hafi hlotið mentun þá, sem heimtast til fullnaðarprófs
í lögum 22. nóv. 1907 um fræðslu barna.
Vottorð um þessi atriði, frá presti um aldur og siðferði og iækni
um heilbrigði, fylgi umsókninni, enn fremur yfirlýsing frá manni, er
skólastjóri telur gildan, um það, að hann gangi í ábyigð fyrir öllum
skuldbindingum umsækjanda við skólann.
Nemendur fá ókeypis: keuslu, ljós og hita. Að öðru leyti verða þeir
að kosta sig sjálfir, m. a. að leggja sér til rúmföt. Þess er vænst, að
matarfélag geti þegar komist á.
Kenslugreinar verða: íslenska, saga, stærðfræði, náttúrufræði, nátt-
úrusaga, landafræði, íélagsfræði, bókhald, teikning, handavinna, leik-
fimi og söngur. Eun fremur geta rnenn átt kost á tilsögn í ensku og
dönsku.
Að öðru leyti er hér vísað til reglugerðar skójans, sem kemur út
um þessar mundir í B-deild stjórnartiðindanna.
Stykkishólmi 15. mars 1919.
A.smundur Quðnnnidsson.
að þakka, takist að berja hann
niður, það væri með öllu vonlaust
án þeirra.
Að ætla sér að stofna sjóði fyrir
verkalýðinn, í trássi við verkalýðs-
félögin, væri glapræði. Þvi fé væri
ver en á glæ kastað. Því gæti orðið
varið til þess að styrkja þá menn
sem ekki vilja vera með í heil-
brigðum félagsskap stéttar sinnar.
Verkalýðsféiögin erp hinn eini
og rétti aðili um að stjórna og
ráða skipulagi þessara sjóða.
iiriiíairii e r lii.
Það er gamall og góður siður,
þá er einhverju háu marki er náð,
að reisa minnismerki. Voru til forna
ristar á þau rúnir, er sögðu frá at-
burðinum. Margur sögufróðleikur
hefir varðveist síðari tiinum vegna
þessa góða siðar.
Við íslendingar höfum náð háu
marki, sem við höfum kept að um
ianga hríð. Eftir nálega þriggja
mannsaldra baráttu böfum við náð
viðurkenning um frelsi og fullveldi.
Það kemur mörgum í hug að
reisa minnismerki á áfangastaðnum.
Mönnum dettur margt i hug.
Einum það að stofna islenskar
orður og titla.
Öðrum annar enn fánýtari og
dýrari hégómi.
En fyrirmyndin er til frá forfeðr-
unum. Það er skrásetning viðburð-
arins, saga baráttunnar um að ná
markinu.
Eina sjálfsagða minnismerkið
um það að hafa unnið í sjálfstæð-
isbaráttunni er það, að láta hæfan
mann rannsaka og rita rækilega
sögu sjálfstæðisbaráttunnar, til 1.
des. 1918. Það væri um leið saga
Jóns Sigurðssonar, enda snerist
allur fyrri hluti sögunnar um hann.
Auk þess sem þetta væri hið
eina rétta og sjálfsagða minnis-
merki, yrði það þjóðinni vafalaust
mjög holt að fá skráða sögu sína
siðuslu öldina.
Er þessari tillögu skotið fram til
umræðu, og alþingi í sumar ætti
að veita fé til undirbúnings og
framkvæmda.
\
Færeyingar eru að slofna innlent
eimskipaféiag. Forgöngumaður fé-
lagsins, Andreas Ziska, dvelst hér
nú i bænum, miili Botníuferða og
kynnir sér starfsemi Eimskipaíé-
lags íslands.
Hafnarfjarðarbryggjuna liefir
keypt Ólafur Davíðsson útvegs-
maður i HafnaIfirði., Kaupverðið
550 þús. kr.
Kaflýsing hfá bændurn. —
Mæling á vatni, upplýsingar um
kostnað og annað er lýtur að raf-
stöðvum stórum og smáum önu-
umst við.
Skrifið okkur og biðjið um upp-
lýsingar. Við svörum tafarlaust.
H.jf. Rafmagnsfélagið Hiii og Ijós.
Vonarstræti 8. Reykjavík.
Xaip/élag jjorg/irSmga.
Kaupfélag Borgfirðinga hefif ný-
lega haldið aðal-fuud sinn. Þar
var skýrt frá starfi þess síðastliðið
ár, lagðir fram reikningar þess
endurskoðnðir, rætt um næsta árs
framkvæmdir o. s. frv.
Eg hef alla tíð litið svo á, að
ekkert væri heppilegra fyrir gott
málefni en að verða þekt. Mótþrói
móti stefnum og straumuin í þjóð-
lífi okkar, stafar oft og eiriatt hvað
helst af því, að þeir sfem standa
móti, hafa ekki kynt sér inálefnið
til hlitar. Þetta á ekki hvað síst
við um kaupfélagsskapinn. Fyrir
því ætla eg nú að senda þér, Tírni
góður, ofurlitla skýrslu um kaup-
félag Borgfirðinga, svo menn geti
af henni séð hinn sannverulega
árangur af starfi þess siðastliðið
ár.
Eg er að vona að aðrir sendi
þér líkt, frá öðrum féiögum, og
þá ættu þær skýrslur, frekar mörgu
öðru, að geta sýnt mönnum
árangurinn af starfi íélaganna.
Árið 1918 séldi K. B. útlenda
vöru fyrir .........lcr. 621548,78
og er það sú lang-mesta umsetn-
ing, sem félagið hefir haft.
Þessar vörur voru ekki allar
keyptar af félagsmönnum, og því
skiftist ágóði ekki á þær allar,
heldur einungis þann liluta þeirra,
sem félagsmenn hafa keypt og borgað
á árinu.
XJtan úi* lieimi.
Kússland.
Bolschevickar létu nýlega taka
af lífi fjóra rússneska stórhertoga
og um 170 aðra pólitiska fanga.
Var þetta talin hefnd fyrir það,
að Kósakkar höíðu tekið af lífi
Krylenko hershöfðingja Bolsche-
vicka. Hann hafði laumast inn í
her Kósakka í von um, að hafa
áhrif á skoðanir þeirra. Stórher-
togarnir urðu allir vel við dauða
sinum. Einn þeirra var sjúkur og
kominn að fótum fram. Létu
Bolschevickar bera hann á hand-
böiuin inn á aftökustaðinn og
skjóta hann liggjandi.
Pólverji nokkur komst vestur á
bóginn úr Rússlandi í febrúar.
Sagði hann, að Trotsky gæfi sig
því nær eingöngu við að koma
skipulagi á herinn. Hann ber ein-
kennisbúning hermanna, ferðast
mikið, en sést lítið á almannafæri,
nema þegar hann ávarpar fjöl-
niennar samkomur við og við, eða
þýtur um strætin í Moskva í hrað-
fara bifreið. Um Lenin er sagt,
að hann sé orðinn trúdaufur á
framtíð byltingarinnar. Geri jafn-
vel ráð fyrir, að annað skipulag
muni komast á í Rússlandi innan
skamms. Byltingarmenn hafi gert til-
raun, sem hugsanlegt sé að mishepn-
ist. Keisarastjórnin hafi arfleitt bylt-
inguna að mörgum sérfræðingum,
sem múgurinn verði að taka i sína
þjónustu. Myndir og listaverk hafa
verið flutt úr Petrograd til Moskva
og litlu eða engu spilt.
Sneinma i þessuin mánuði var
ailsherjar fundur rússneskra bylt-
ingarmanna í Pétursborg. Trotsky
hélt þar ræðu og sýndi fram á,
að út á við væri nú mesta hættan
um garð gengin. Bandamenn treyst-
ust ekki til að senda her inn í
Rússland. I stað þess sendu þeir
verkamanna-fulltrúa á jafnaðár-
mannafundinn í Bern, til að semja
við Bolschevicka. — Hershöfðingi
noklcur sagði á þeim fundi, að
fjögur verk biðu hersins: 1. Að
kasta bandamanna-hernum út á
skip sín við Hvítahafið. 2. Finna
Svartahafslöndin. 3. Reka óvinina
austur yfir Uralfjöll og 4. Skapa
aftur hin fornu landamæri milli
Rússlands og Þýskalands. Þetla
skyldi takast, hvað sem það kostaði.
Um sama leyti voru kvaddir í
herinn 47 ára hermenn og yngri,
en herforingjar alt að 55 ára.
PóHand.
Kosningar fóru fram í febrúar.
Þar voru þrír flokkar: Þjóðræðis-
menn, jafnaðarmenn og Gyðingar.
Um styrkleika flokkanna í bórg-
unum má gera sér hugmynd af
kosningunni í Varsjá. — Atkvæði
greiddu 287,000 manna. Þjóðræðis-
menn hlutu 150,000, jafnaðarmenn
42,000 og Gyðingar 74,000. ísveit-
unum hafa Þjóðræðismenn alger-
lega yfirhönd, og eru þess vegna
langsamlega i meiri hluta í þinginu.
Foringi þeirra heitir P.aderewski,
snillingur mikill og óeigingjarn.
Búist við, að hann inuni verða
forseti Pólverja. Ekki una Þjóð-
verjar því vel, er Pólverjar leggja
undir sig austurhlula landsins, og
reka svo fornra harma. Barátta
hefir staðið um hertogadæmið Posen.
Hafa Pólverjar náð undir sig fjór-
urn timtu hlulurn héraðsins, en
hinu halda Þjóðverjar, enda mun
það hafa verið orðið al-þýskt. —
Friðarfundurinn ráðgerir, að Pól-
verjar skuli fá höfn nokkra við
Eystrasall, þó líklega ekki Dauzig.
PýHkaland.
Eitt af slórblöðunutn í Berlín
hefir komið á ílugpóstferðum milli
helstu borga á Þýskalandi. Sendir
ílugmenn með blaðið i allar áttir
snemma- morguns svo að kaup-
endur í borgunum fái blaðið með
morgundrykknum. Þjóðþingið í
Weimar liefir samið við flugféiag
eilt, að draga að því blöð hvaðan-
æva úr landinu. Hefir félagið fjöl-
rnarga flugmenn í sinni þjónustu
og sinna þeir engu nenin þessum
dagblaðaflutningi.
Á þinginu í Weimar var Ebert
kosinn forseti. En mjög er vald
hans á völtum fótum. Skömmn
siðar byrjuðu verkföli mikil meðal
kolnámumanna og járnbrautar-