Tíminn - 07.06.1919, Side 4
200
TÍMINN
griða var að vænta, ef straumur-
inn hefði legið þar að landi.
Skal nú fyrst skj'rt frá veður-
áttunni á fyrsta mánuði á"rsins.
Janúar 1919.
Árið byrjaði með liægri austan-
átt. Ýmist þýðviðri eða væg frost
á láglendi og með ströndum fram.
Fram til fjórða janúar var 2—3
stiga hiti í Færeyjum, á Austur-
landi og á suðurstönd landsins.
Á Norðurlandi var veður þá stilt
og bjart, frost kæli nokkurt, en þó
mild veður. En á Grímstöðum var
frostið að aukast 3. janúar, þá
orðið 10 stig, og hækkaði fremur
næstu daga. Tveim dögum síðar
var 2 stiga frost í Færeyjum og
norðanátt. 6. jan. var grátt í lofti
og þungbúið á Akureyri. Undir
kvöld var byrjað að hríða á öllu
Norðurlandi. Næsta dag var mikil
hríð nyrðra og kuldinn 4—5 stig.
En á Suðurlandi var þá heiðríkt, og
öllu frostmeira, nema í Vestm.eyj.
Á Grímsstöðum var frostið 16 stig
þennan hríðardag, og lækkaði að
eins lítið eitt tvo næstu daga. En
þá var þó þessu hreti slotað.
Næsta hitabylgja byrjar í Fær-
eyjum 9 janúar. Var þá þar hér-
umbil 5 stiga hiti daglega í því
nær viku, eða til hins 18. s. m.
Alla þá daga var þar sunnanátt
eða austan. Fyrri hluta þessarar
viku var vægt frost og hæg norð-
anátt allstaðar á íslandi. En 13.
jan. en hlákan komin til Suður-
lands um morguninn með hérum-
bil 2 stiga hita og frostið á Gríms-
stöðum fallið úr 8 niður i 3 stig
frá því daginn áður. Sama kvöldið
náði þíðvindið til Norðurlands og
hélst í fjóra daga.
Hinn 18. var því nær frostlaust
í Færeyjum en logn bæði þar og
víðast hvar á íslandi, nema á
Grímsstöðum. Þar var 9 stiga frost,
og jöklagola sunnan af öræfunum.
En þann dag var meira en 2 stiga
hiti i Vestmannaeyjum. Ekki varð
meira úr því hretinu.
Nú byrjaði nýtt góðviðristímabil
sem stóð frá 20. til 25. jan. Stöð-
ug hlýindi og sunnanátt. í Færeyj-
um varð hitinn aldrei meira en 7
stig þessa daga, en á Seyðisfirði
rúmlega 11 gráður þegar heitast
var. En daginn eftir, 23. jan. var
komið frost á Grímstöðum en þíð-
vindi hélst annarstaðar á landinu;
hlýrra á Norðurlandi heldur en
sunnan öræfanna.
Sunnudaginn 26. janúar var
kominn norðanátt, hörku-stórhríð
bæði hvöss og köld. Stóð sá bilur
i rúman sólarhring. Næstu daga
var hæg norðangola f Færeyjum
og rétt við frostmark en 7—9 stiga
frost í sveitum á íslandi. En á
þriðja degi eftir að hretið byrjaði
hafði sunnanáttin aftur náð yfir-
tökunum og skiftust á blíðviðri og
mildir frostdagar það sem eftir var
mánaðarins, nema á Grimsstöðum.
Þar var frostið jafnan 5—8 stig
þessa daga.
Póstpnpriar m DalasjÉ.
í 18. tölublaði »Tímans« þ. á.
er stuttlega skýrt frá því, að póst-
leið frá Borgarnesi til ísafjarðar
breytist. Þar með er lögð niður
póstleið um endilanga Dalasýslu, en
í þess stað farið vestur Strandir.
Eg sem Dalasýslubúi get ekki
látið ómótmælta þessa ráðstöfun
póststjórnarinnar, það ranglæti sem
vér sýslubúar erum beittir, og þá
afturför sem í þessu liggur. Þessi
gagngera breyting hefir komið
mönnum hér mjög á óvart, því
að um þetta mál hefir ekki heyrst
neitt fyr en að það var ákvarðað.
Nokkrum hefir farið líkt og Njáli,
er hann frá að Fórður Leysingason
hefði víg vegið. Það hefir orðið
að lesa þeim þrisvar fréttina, svo
ótrúleg virtist hún.
Hvað veldur þessum ráðstöfun-
um póststjórnar? Mér kemur ekki
í hug önnur úrlausn en sú, en að
það eigi að spara fé fyrir póstsjóð.
Virðist mér það þó efunarmál.
Póstur frá Stað til ísafjarðar mundi
síst þurfa minna endurgjald en sá
póstur hefir sem nú fer milli
Búðardals og Isafjarðar. Þá kæmi
til sparnaðar nokkuð af því gjaldi
er póstur frá Borgarnesi til Búðar-
dals hefir nú, en töluvert yrði
af því tekið, þá búið er að greiða
fyrir Dalasýslupóst norður að Stað
og þaðan aftur til Búðardals, svo
fjársparnaður virðist mjög lítill eða
enginn.
Það sýnist heldur ekki góð til-
högun, að póstur vestan úr Stykkis-
hólmi hafi hestakost þaðan til þess
einungis, að flytja Dalasýslupóst
til Búðardals frá Stað, sem svarar
þriðjungi af leiðinni. Með öðrum
orðum fari með hestana lausa alla
leið norður og tvo þriðjunga af
baka leið. Hvernig sem á þetta er
litið, virðist það vera varhugaverð
ráðstöfun.
f*essi póstleið, sem nú er verið
að leggja niður, að nokkru leyti,
mun vera með elstu póstleiðum á
landinu, liggur um þéttbýl og fjöl-
farin héruð og er sú leiðin, sem
er beinust. Ólíkum mun lengri sú
Ieið, sem nú er tekin, illa veguð
og strjálbygðari héruð. Auðvitað
þurfa þau héruð engu síður sam-
göngubóta, en því þá ekki að bæta
við póstleið um Strandasýslu og láta
póstleiðina hér standa. Pað ætti
betur við nú á tímum, en að taka
svo stóra afturkippi í samgöngu-
bótum eins og hér er áformað.
Póstleiðinni um endilanga Dala-
sýslu á að kippa af okkur alt í einu
án þess nokkuð komi í staðinn.
Eftir verða að eins aukapóstar,
sem fara um lítinn hluta héraðsins.
Vér gætum alt eins búist við, að
þeir verði látnir hætta með vetri
komanda og yrðum litlu óánægð-
ari en nú.
Eins og póststjórn er eflaust
kunnugt, er vatnaleið hingað lok-
uð öllum vetrum vegna ís og illra
hafna, svo að það er mjög sjald-
gæft, að bátaferðir séu á Hvamms- I
Raflýsfng lijá bændum. —
Mæling á vatni, upplýsingar um
kostnað og annað er lýtur að raf-
stöðvum stórum og smáum önn-
umst við.
Skrifið okkur og biðjið um upp-
lýsingar. Við svörum tafarlaust.
H.jf. Rafmagnsfélagið Hiti og Ijós.
Vonarstræti 8. Reykjavík.
fjörð og Gilsfjörð frá því snemma
í desember til aprílloka, og munu
fá héruð landsins vera öllu ver
sett með þær samgöngur en vér
Dalasýslubúar. Ekki getur póst-
stjórn borið þær samgöngur fyrir,
sér til málsbóta.
Örðugar finst mér samgöngurnar
hafa verið, en þó tekur nú svo út
yfir, að vér getum ekki svarað
bréfseðji til annara landshluta fyr
en eftir mánuð.
Virðist liggja næst, að Dalasýslu-
búar verði sjálfir að annast um
sínar eigin póstgöngur, til þess að
verða ekki útitokaðir frá öðrum
landshlutum.
Pví um líkar eru fyrstu ráðstaf-
anir póststjórnarinnar, eftir að Is-
land er orðið sjálfstætt og full-
valda ríki.
Erum vér skyldir, að þola þær
ráðstafanir?
J(iðdœlingur.
Döinm 19. maí.
Vorið að koma með gróður;
miðar þó hægt. Hlýjast nú síðustu
dagana. Skepnur ganga misjafnlega
undan, og er mest kent um vondu
fóðri. Kemur lítið undir ærnar,
víða, og því óvíst uiij lambahöld,
nema með því betri tíð.
ís lá á Hvammsfirði til 10. maí,
þá tók hann burtu, að kalla í
einni svipan.
í snjóflóðinu á Leikskálum fórst
110 fjár (helmingur fjárins á bæn-
um). Húsin hrundu alveg og viðir
brotnuðu, nærfelt helmingur af
túninu stórskemdist af grjóti og
leðju, sem var í flóðinu.
Snjóflóð hefir ekki komið þarna
að ráði, í manna minnum, fyr en
nú. Það er ekki rétt, sem Tíminn
segir, að þetta sé fyrsta snjóflóð i
Dölum, 14. nóv. 1884 féll flóð á
bæinn Hlíðartún (í Sökkólfsdal) í
Miðdölum og fórust þar 5 manns,
en nokkrir komust lífs af.
Óánægja mikil og undrun er
hér manna á meðal út af póstleiða-
breytingunni. Mætti langt mál rita
um það, hvílík fjarstæða það er,
að láta póstinn ganga um Stranda-
sýslu til ísafjarðar, en sleppa hinni
ágætu póstleið um Dalasýslu. —
Þessi ráðstöfun er eitthvert hið ein-
kennilegasta fyrirbrigði í samgöngu-
málunum nú á seinni tímum.
Uppboð nokkur hafa verið haldin
hér. Verð á kúnni þar 500—600
krónur; sumar enn dýrari. — Ær
seldar á 65—80 kr. hver, og stöku
dýrari.
Baldvin Einarsson
a'rtýílj asmiður.
Laugaveg 67. Reykjavík. Sími: 648 A.
»
Nýkomin Harmonium-musik
í Hljóðí'æraliús Beykjavíknr,
send gegn póstkröfu um land alt.
Úrvalslög eftir Grieg I. II. III. hefti á
2,00. The harmoniumplayers recrea-
tionsbook 198 úrvalslög I. II. III. hefti
á 3,25. Harmoniumalbum með 150 Iög-
um, safnað eftir Eyv. Alnæs, I. II. III.
hefti á 3,25. Hjemmets Bog 4 hefti 100
lög fyrir harmonium kr. 2, áður komið
út 1. 2. 3. hefti á 1,90. Otto Malling:
Kirkeaarets Festdage 12 orgelpostludier
fyrir harmonium kr. 2,75. Sama fyrir
orgel og Pedal 1., 2. hefti á 2,50. Gade:
Festlig Præludium yfir: »LoIið vorn
drottin«, fyrir orgel og harmonium kr.
1,40. Walthers Album fyrir Normal
harmonium (viðskrifuðu registri) kr. 2.
Sarna, otte danske Melodier for Nor-
mal harmonium kr. 1,85. Joh. S. Svend-
sen: Andante funebre for orgel kr. 1,10.
Hartmann: Sorgemarch (Thorvaldsens)
kr. 1,20. Barnekor 50 Præludier kr. 2.
Jung: 40 orgelstykker for harmoniura
kr. 2,10. H. Amberg: Ni smaa orgelstykk-
er kr. 1,30. Ch. B. Hansen: 15 smaa
Melodiske Etuder for harmonium eller
orgel kr. 1,75. Gebauer-Attrup: Lætte
orgelpræludier til alle Son- & Hellig-
dage kr. 2,75. Attrup: 40 Præludier kr.
1.75. Sami: 20 nye Præludier kr. 1,50.
Sami: Modulationer for orgel eller
Piano kr. 2,75. Federhof-Mollers orgel-
harmoniumskole fyrir byrjendur kr.
2,35. Walthers harmoniumskole med
Dvelsestykker kr. 2,85. Album með 11
nýustu danslög fyrir harmonium kr. 3.
Mu8Ífeteori (hljómfræði) eftir Julius
Foss organista (í sterku bandi) kr.
3.75. 1. flofefes Piano, Guitarar,
Fiðlur »á lager«.
Harmonium af ýmsum stærðum
»á Iager« frá hinum velþektu verlc-
smiðjum Petersen & Steenstrups í
Höfn. — Öllum fyrirspurnum
svarað um hæl.
Sími 656. Símn.: Hljóðfæraliás.
Ritföng:
í bókaverslun undirritaðs eru og
verða framvegis ávalt fyrirliggj-
andi nægar birgðir af allskonar
ritföngum, (allsk. pappírteguudnra,
umslögnm, bleki o. þ. h.)
Alt selt lægsta verði sem mögu-
Iegt verður, og hvergi ódýrara.
Virðingarfylst
Pétur Jóhannson
Breiðabliknm. Seyðislirði.
Bsekwr og ritföng
kaupa menn í
Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar
Ritstjóri:
Tryggvl Pórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Gutentóerg