Tíminn - 14.06.1919, Síða 2

Tíminn - 14.06.1919, Síða 2
206 TÍMIN N skipa- eða geymslu-vínanda. Og þá var lögunum fullnægt. Þá hefir yfirdómurinn komist að þeirri nið- urstöðu, að löglegt sé að versla með »smyglavín« hér á landi. Sekt- ir fyrir launverslun með áfengi eru svo lágar, að þær gera atvinnu- veginn hættulítinn. Smyglavín kvað hafa lækkað einna fyrst í vérði af »nauðsynjum« íslendinga. þjóðarviljinn með bannlögunum er svo eindreginn, að nú um mörg ár hefir enginn stjórnmálamaður, sem nokkur áhrif hefir, treyst sér til að fara opinberlega fram á að bannlögin væru numin úr gildi. Hins vegar hefir andbanningum tekist að lauma inn í bannlögin furðu mörgum fleygum, sem mjög hafa dregið úr gildi þeirra, og að minsta kosti orðið landinu til mink- unar út á við. Takmark bannmanna hlýtur að vera það, að sníða smátt og smátt af lögunum, þá ágalla sem and- stæðingarnir hafa komið í þau. Gera lögin að veruleika. »í*urka landið« af áfengisnautn. Eins og nú er komið málum, virðast þrjú atriði í framkvæmd bannlaganna vera einna þýðingar- mest. 1. Að hindra ofdrykkju á almannafæri. 2. Að læknar, lyfja- búðir og iðnaðarmenn hætti að misnota umráð yfir vínanda. 3. Að þeir sem flytja inn og versla með vin í hagnaðarskyni (smyglar- ar og knæpueigendur) verði fyrir svo þungum sektum, að atvinnan verði bæði völt og litið gróðavæn- leg. Um eina af þessum umbótum er fengin reynsla. í lögreglusam- þykt Reykjavíkur var nýlega sett það ákvæði, að sekta mætti um 50 kr. mann sem væri ölvaður á almannafæri í bænum. Það er ekki spurt um hvort bannlögin hafi verið brotin, heldur um alment velsæmi. Um sama leyti var lög- reglumönnum Qölgað. Þetta ein- falda ákvæði hefir haft afarmikil áhrif. Áður kom það töluvert oft fyrir að menn voru druknir á götum úti. Og lögreglan gat ekkert að því gert. Eins og það var löglegt að sumir menn áttu vín, svo var það og lögum samkvæmt að vera ölv- aður, bæði inni i húsum og á göt- um úti, eftir því hvar eiganda víns- ins þóknaðist að láta sitt ljós skina. Síðan sést varla drukkinn maður úti. Allmargir menn hafa verið sektaðir, Það hefir hrifið. Vínmenn- jrnir kæra sig nú orðið ekki um að verða fyrir barðinu á lögregl- unni í Reykjavík. Hafnarfjörður hefir lögleitt sömu ákvæði fyrir þann kaupstað. Og ef að líkind- lætur, verður þetta ákvæði fyr en varir komið inn í lögreglusam- þyktir allra kauptúna á landinu. Má segja um þetta, að betra er seint en aldrei, þvi að slik sam- þykt hefði átt að vera á komin bætur og til tryggingar tóku Þjóð- verjar Kiaoehau af Kínverjum. Höfðu Þjóðverjar búið um sig á- gætlega í borginni, þá er stríðið hófst. Borgin var prýðilega viggirt og næsta þýðingarmikil verslunar- borg. í*á er stríðið hófst gerðu Jap- anar kost á þvi, að berjast gegn Þjóðverjum, á þann hátt, að vinna eyjar þeirra í Kyrrahafi og Kiao- chau, enda var Japönum það hinn mesti þyrnir í auga, að þjóðverjar áttu þessa fótfestu í Kína. En þeir vildu vitanlega hafa eitthvað fyrir snúð sinn. Þeir gerðu þann leynisamning við Frakka og Englendinga, að ef þeir gengu í stríðið með þeim og ynnu Kiao- chau, þá fengju þeir að halda borg- inni að sigri loknum. Komið er að skiftum og Japan- ar herma loforðið upp á Frakka og Englendinga. En Kínverjar mót- mæla hástöfum, sem líklegt er. Borgin er í Kina og ekkert jap- anskt við hana. þjóðernisrétturinn heimtar að hún verði eign Kína. En Wilson setur ekki hnefann í borðið. Það er ákveðið að Japan fái Kiaochau. Það er harla merkilegt að bera þessi tvö dæmi saman. Fiume og Kiaochau. Kinverjar eiga binn sama rétt til Kiaochau, eða enn sterkari, en Suður-Slafar til Fiume. Hvað veldur því að svo ólikt er úr málunum skorið? það verður varla bent á annað en að það sé máttarmunur og ekkert annað. Bandamenn þurftu ekkert að óttast, þótt Ítalía risi upp á afturfótunum út af sínu mótlæti. Ítalía gat það ekki. Ítalía er svo fjárhagslega lömuð eftir stríðið að hún er bandamönnum háð. Ítalía kemst ekki af án þess að fá mat- vöru og ýmiskonar hráefni frá Ameríku. ítalia verðúr að beygja sig. t*að gerir engan baggamun hvoru megin hún hallar sér, eða þótt hún stykki úr alþjóðabanda- laginu. Gagnfræðaskólinn í Flensborg, Hafnarfirði. Þeir, sem ætla sér að ganga í gagnfræðaskólann í Flensborg næsta haust verða að hafa sótt um skólavist til undirritaðs fyrir 10. sept. þ. á. Inntökuskilyrði: að nemandinn sé 14 ára, hafi lært það sem heimtað er í fræðslulögunum á þeim aldri, hafi vottorð um góða hegðun og einnig læknisvottorð. Vilji einhverjir, sem eigi hafa lokið bekkjarprófi, setjast í 2. eða 3. bekk, verða þeir að taka próf að haustinu og sýna að þeir séu hæfir til að flytjast upp. Skólinn er settur 1. okt., eiga þá allir nemendur að vera komnir. Inntökupróf 2. 3. og 4. okt., skólinn stendur til 30. apríl og er um- sókn bundin við allan skólatímann. Stúlkur jafnt og piltar eiga að- gang að skólanum. Kenslan er ókeypis. í ráði er að taka upp heima- vistir næsta haust við skólann og skal það tekið fram, að þeir sem vilja njóta þeirra, verða að sýna tryggingu fyrir greiðslu fæðispeninga í matarsamlagið. Allir utanbæjarnemendur verða að sjá sér fyrir rúmfötum. * Hafnarfirði 10. júní 1919. Ögmundur Sigurðsson. töluvert löngú á undan bannlög- unum. Um lækna, lyfjabúðir og iðnað- armenn gildir hið sama. Pað væri öfgafult að svifta þessa aðila um- ráðum áfengis tik nauðsynlegra hluta, eins og lækninga og iðnað- ar. Sumir misnota leyfið og gera sinni stétt og þjóðinni minkun. Hinir eru fleiri, sem vel fara með heimildina. Allur vandinn er þá sá, að skilja sauðina frá höfrun- um. Finna á auðveldan hátt hverjir eru brotlegir, láta þá verða fyrir aðhaldi laganna, og frelsa þá sem saklausir eru frá því að bera af- leiðingarnar af syndum annara. Einfaldasta ráðið við alla þessa aðila, er það, að prenta í opin- berum skýrslum um hver áramót, hversu mikið hver einstök lyfja- búð, læknir, eða iðnaðarmaður hefir notað af vínanda á árinu. Jafnframt væri rétt að geta hversu marga lyfseðla hver læknir hefir gefið á árinu. Pá myndu þeir manna- og dýralæknar, sem sjald- an er vitjað af öðrum en þeim, sem þurfa að fá brennivínslyfseðla, íljótt þekkjast úr hópnum. Sumir af helstu bókbindurum landsins t. d. Ársæll Árnason nota engan eða því nær engan vínanda við iðn sína, en aðrir menn sömu séttar, og síst færari í iðninni, þurfa ár- lega á vínbirgðum að halda. Þeg- ar opinber skýrsla kemur fyrir almennings sjónir, er auðvelt að gera samanburð, og fara furðu nærri um það hverjir misnota að- stöðu sína. Þetta ætti að vera einkar kærkomin breyting öllum þeim sem ekki hafa til saka unn- ið. Löghlýðni þeirra væri þá sönn- uð, að þessu leyti, og yrði ekki véfengd. Sömuleiðis eru margir menn svo veiklyndir og undanláts- samir, að þeir útvega öðrum vín í sinu nafni, annað hvort með lyf- seðli eða áfengisbók. Ef skýrsla væri birt um útlát vínfanga í land- inu, yrði aðstaða þessara inanna betri. Drykkjumönnum yrði erfið- ara um vik að biðja um greiða, sem gæti haft verulegan álitshnekki í för með sér, fyrir þann sem veitti hjálpina. Þá eru eftir þeir einir sem selja vín eða lyfseðla sér til fjár, samkvæmt heimild lyfjabúða, lækna og iðnaðarmanna. Þeim væri mein an breytingunni. Þeir myndu vafa- laust hægja á sér um lögbrotin, heldur en standa sannir að sök frami fyrir dómstóli almennings- álitsins. Og þá væri tilganginum náð, þannig að allir væru betur farnir. Jafnvel forhertir brotamenn væru með þessu frelsaðir frá sjálf- um sér. Síðasta atriðið eru smyglararnir. Ágirndin knýr þá fram. Þeir hætta þá fyrst, þegar »iðnin« fer að verða óarðvænleg. Slíka menn þarf að typta með gifurlegum sektum. Þar mætti koma við einskonar Fiume - Kiaochau. Borgin Fiume liggur við Adría- haf og laut Austurriki fyrir stríðið. íbúar borgarinnar eru flestir ítalir, en i landinu sem að liggur búa nálega eingöngu Suður-Slafar. Þá er ítalir geúgu í lið með bandamönnum í stríðinu, urðu bandamenn að heita þeim ýmsum friðindum á móti. Voru gerðir um það leynisamningar, milli Frakka og Englendinga annarsvegar og ítala hins vegar. Var Fiume og héraðið i kring eitt meðal annars, sem ítalir áttu að fá að launum, að unnum sigri. Nú er sigurinn unninn og sest að skiftum. En Bandaríkin hafa bæst í hópinn síðan leynisamn- ingurinn var gerður. Og Wilson forseti heldur fram kröfunni um þjóðernisréttinn. Þá er ítalir kröfðust að fá Fiume, samkvæmt leynisamningnura, reis Wilson öndverður á móti. Kvað samninginn að engu hafandi, þar eð með honum væri brotinn þjóð- ernisrétturinn. Héraðið sem fylgdi Fiume ætti skilyrðislaust að fylgja hinu nýja Suður-Slafneska ríki, sem nú verð- ur stofnað. Og óhugsandi væri að skilja borgina frá þvi. Þar eð svo margir ítalir væru í borginni yrði að grípa til þess ráðs, að setja hana undir umsjón alþjóðabanda- lagsins. Frakkar og Englendingar virð- ast hafa setið hjá, þá er Wilson setti hnefacn í borðið um þetta. En forsætisráðherra ítala stökk burt af fundinum, til þess að sækja styrk heim til ítaliu. Leit allófriðlega út. En helst verð ur svo á að lita, að hann hafi orðið að beygja sig. Þó mun vart víst að málinu sé fullráðið til lykta. — K^aochau er borg nefnd og liggur í Kina. Þá er sú öld hófst í Þýskalandi, að afla nýlenda, varð það fljótt efst á baugi, að reyna ná fótfestu i Kína. Gaíst tilefni til þess árið 1897. Þá drápu Kínverjar tvo þýska trúboða. Og í skaða i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.