Tíminn - 23.07.1919, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.07.1919, Blaðsíða 3
TlMINN 243 síðartöldu sjálfir sök á þvi, bæði með þvi, sem þeir hafa vangert, og með hinu, sem þeir hafa látið ógert. í næsta blaði verður sýnt fram á afstöðu Tímans til fossamálsins, frá því blaðið hóf göngu sína. J. J. Vonum »Kauptu sál og sannfæring«. Filippus konungur í Makedoníu lét svo um mælt, að það væri í lófa lagið að vinna hverja þá borg sem hefði hefði svo víð borgarhlið, að koma mætti asna, klyfjuðum gulli, í gegnum þau. Svartsýnir menn um staðfestu og siðferðisþroska íslendinga hafa látið svo um mælt að hér væru allir hlutir falir; ef einungis væri boðið nógu mikið, myndu tslend- ingar yfirleitt vera fúsir til að selja sig. Komið er nú annað á daginn, í einstöku tilfelli að vísu, en má þó af ráða nokkuð. Eigendum ísafoldar og Morgun- blaðsins hefir ekki tekist að fá rit- stjóra að þeim blöðum nema til bráðabirgða. Það hefir ekki skort fé. Það hafa verið boðin miklu hærri laun handa þeim manni en hér tíðkast, tvöföld ráðherralaun, ef til vill meira. Því að maðurinn þarf að fást. Það hefir verið lagt fast að ein- um og öðrum, það hefir verið rent ofan í þá gullönglum, en þeir hafa ekki viljað takast á hendur að verða verkfæri auðvaldsins, hvað sem í boði væri — ekki enn. Þegar á herðir, þegar það á að gerast opinderlega fyrir augum al- þjóðar, þá verðúr slíkur frestur á setta eign i sina umsjá oghirttekj- ur af henni þar til skuld er lokið, eða látið selja eignina til lúkning- ar skuldinni; sömuleiðis ef lántak- andi brýtur verulega skuldbinding- ar sínar að einhverju leyti. Bank- inn veitti áður lán sín í veðvaxta- bréfum, en er hættur því og veitir nú lán í peningum, og selur veð- vaxtabréf sín sjálfur. Bréf í um- ferð rnega ekki vera meiri en upp- hæð hlutafjár bankans margfölduð með 20. Bréfin eru af fjórum teg- undum: 1. flokkur fyrir löng fast- eignaveðslán. 2. flokkur fyrir lán til stjórnardeilda, sveitafélaga og opinberra stofnana o. s. frv., 3. flokkur fyrir veðlán til fárra ára (upp að 10 árum) og 4. flokkur fyrir lán til stórfenglegra' jarðabóta. Bréfin eru gefin út í serium, eftir því sem með þarf, venjulega ekki minna en 250 milljónir franka í einu, en gæta verður þess að hafa aldrei minna í umferð en nemur útistandandi lánum. Bréfin hafa engan ákveðinn innlausnartíma, en bréf til innlausnar eru dregin út með blutkesti. — Bréfin geta bæði Raflýsing fyrir kanpstaði. Yið tökum að okkur að gera mælingar á vatni, áætla og byggja rafstöðvar fyrir kaupstaði, hvort heldur með vatns- eða mótor-afli. Sé ekki um vatnsafl að ræða, mælum við með Diesel-mótorum, sem eru olíusparastir allra olíuvéla. Skrifið eftir tilboðum og upplýsingum, sem veitast öllum ókeypis. Hf. Hafmagnsfél. Hiti & Ljós Sfmi 176 B. Yonarstræti 8. Pósthólf 383. um að menn vilji forskrifa sig. Enn er ekki útlit fyrir að takast muni að fá mann, nema til bráða- birgða. Og þó er stórfé í boði. Þau eru þröng enn borgarhliðin íslensku, vonum fremur þröng. Það ósannar — enn — fullyrðingar svartsýnu mannanna um að alt sé falt á íslandi. IJr samvinnu-heiminum. ii. Það er sagt, að býsna mörgum mönnum hér á landi sé meinilla við samvinnustefnuna, og að stofna eigi heila hersingu af blöðum sér- staklega í því skyni, að vinna henni tjón. Líklega er þessu svo varið, að mennirnir vita ekki hvað þeir eru að gera. Þeir vita ekkert um málið, nema það, að samvinnustefnan skapar kaupfélög, og þau draga töluvert af versluninni undan gróða- yfirráðum kaupmanna. Þetta mun vera dauða-syndin. En þeir vita ekkert annað um málið, og langar víst ekki til að vita ngeira. Þeim er alveg hulið, að samvinnustefnan kemur fram á ótal sviðum, og að verslunar- starfsemin er ekki nema einn þátt- urinn. Viðfangsefnunum er alt af að fjölga. Samvinnan er alt af að reka sig á ný verkefni, sem hún getur glímt við betur en nokkur annar. Menn vita hvað samvinnan gerir í verslun. Hún hyrjar venjulega með því, að spara þeim sem hana kunna að nota fjórða hlut af út- gjöldunum. Svo reyndist það í Englandi, og síðar hér á landi, í hinum fyrstu kaupfélögum. Smám saman neyðast kaupmenn til að draga saman seglin. Nú er milli- liðagróðinn sjaldan svona hár, nema þar sem stríðs-vandkvæðin skapa neyð. En samvinnan kemur víðar við. Hún kennir framleiðendunum að bœta vörur sínar, og það verður drjúgur búbætir. Dönsk samvinnu- félög hafa algerlega bjargað bænda- stétt landsins, gert fátækan vel efnaðan. Hér á landi hefir sam- vinnan algcrlega breytt meðferð framleiðenda á smjöri, kjöti, ull o. fl. vörutegundum. Samt er afar- mikið ógert á þá sviði. Samvinnan kemur til bændanna, sem vantar fé til ábýliskaupa og jarðabóta. Hún kemur til fátækl- ingsins í bæjunum, sem ekki á skýli yfir höfuðiu, og ekki fá pen- inga til að byggja. Hún bendir báðum á sama ráðið, lánsfélögin, hið eina heppilega úrræði, sem enn hefir fundist til að tryggja efna- litlum mönnurn löng, ódýr og hag- kvæm lán. Samvinnan kemur til þeirra mörgu og smáu, sem skortir rekst- ursfé við daglega atvinnu og segir: Þið getið stofnað ykkar eiginn banka, og bjargað ykkur sjálfir. Danskir samvinnumenn efndu tii slíks banka í stríðsbyrjun. Nú ei hann orðinn stórveldi þar í landi með 70 útibúum. Þar sem milliliðirnir eiga skipin sem flytja vörurnar milli landa og misnoia þá aðstöðu, þá kemur samvinnan til sögunnar og skapar holla samkepni og sjálfbjörg eins og í versluninni; byggingunum, fram- leiðslunni og fjármáiunum. Og þó er stærsta atriðið enn ó- talið, sem samvinnan gerir. Hug- sjón hennar stefnir hærra en að fjárhagslegum gróða. Hún vill bæta mennina, stækka sjóndeildarhring- inn, menta þá, gera þá mildari við þá, sem eru minni máttar. Engir ltoma drengilegar fram í stríðs- löndunum gagnvart hinum sigruðu heldur en samvinnumenn. Þeim þykir bölið nógu mikið, þó að hætt sé hefndar-baráttunni, þegar óvinurinn er dauðsærður og varn- arlaus. En því miður ráða þeir ekki enn nógu miklu um aðgerð- irnar. Auðvaldið ræður. Og í nafni þess er stefnt þráðbeint út í nýtt ranglæti og nýja óhamingju. verið handhafabréf og skráð á nafn, og gefa venjulega 3—372°/o vexti. Öll veðvaxtabréf gefin út af »Cre- dit Foncier« eru talin fulltryggileg til ávöxtunar öllum sjóðum og njóta mikilvægra hlunninda, sér- staklega má geta þess, að réttur manna til að gera fjárnám í þeim er mjög takmarkaður að lögum. Eins og áður er getið var aðal- tilgangurinn með stofnun »Credit Foncier« að útvega landbúnaðin- um nægilegt og hentugt lánsfé, en bankinn hefir ekki komið land- búnaðinum að tilætluðum notum, nema að nokkru leyti. Meira en helmingur af útlánuin bankans stendur í húseignum í bæjum og borgum, en eigendur jarðeigna af meðalstærð og þar yfir fá einnig nægilegt lánsfé. En smærri jarð- eignir njóta hjálpar bankans að eins af skornum skamti, og reglu- leg smábýli verða algerlega útund- an. Hefir því verið kent um, að störf bankans væru um of dregin saman á einum stað í höfuðborg- inni, en tilraunir til að ráða bót á þessu hafa orðið árangurslausar, bæði sú að stofna umboðsskrifstof- ur út um land, og önnur tilraun er gerð var 1860, er stofnuð var sérstök deild við bankann, er átti að annast smálán til landbúnaðar út um land alt. Sú deild, (Société du Credit Agricole), mishepnaðist hrapalega, lagði fé í útlend fjár- hættu fyrirtæki og fór á höfuðið 1876, með stór tapi fyrir Credit Foncier. Síðan hefir öllum verið ljóst, að sérstök lánsstofnun yrði að taka við þar sem Credit Fon- eier nær ekki til og sjá alinenn- ingi út um land fyrir lánsfé í smærri uppæðum. Sú lánstofnun er nú komin í gott horf, heilt kerfi landbúnaðar- lánstofnana sem kallast »Credit Agricole Mutuel«, bygt á samvinnu- grundvelli, með öflugri vernd og styrk af hendi ríkisins. Aðallögin um þessar lánstofnanir eru frá 1906. Byrjun þessa lánstofnanakerfis voru samvinnufélög, (Syndikats), stofnuð samkvæmt lögum 1884. Þau lög voru endurbætt 1894 til þess að koma af stað stofnun sam- vinnulánsfélaga, smábanka með samvinnufyrirkomulagi, í þeiin til- gangi að afla lánsfjár til landbún- aðar. 75 slíkir bankar voru stofn- aðir á 2 árum. En útbreiðsla þeirra þótti ekki ganga nógu fljótt og þótti nauðsyn á hjálp ríkisins tií þess að þessi samvinnufyriræki fengi meiri vind í seglin. Til þess þurfti mikið fé, en gott tækifæri til að afla þess gafst 1897, þegar seðlaútgáfuréttur Fakklandsbanka, (Banque de France) átti að renna út. Bankanum var veittur seðlaút- gáfurétturinn aftur til loka ársins 1920, gegn mikluin ljárframlögum, er öll áttu að ganga til landbún- aðarlána. Fyrst og fremst Iagði Banque de France fram sem lán til ríkisins í þessu augnamiði 40 miljónir franka, rentulaust til 1920, og auk þess skyldi bankinn greiða árgjald fyrir seðlaréttinn, reiknað út eftir ákveðnum reglum, miðað við seðlaupphæð í umferð og for- vexti á hverjum tima, er einnig skyldi alt ganga til landbúnaðar. En auk alls þessa undirgekst bank- inn víðtækar skuldbindingar um

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.