Tíminn - 17.09.1919, Page 1

Tíminn - 17.09.1919, Page 1
TÍMINN aó minsta kosti 80 blöð á ári, kostar 5 krónur árgangurinn. AFGREIÐSLA í Reykjavík Laugaveg 18, simi 286, út um land i Laufási, sími 91. III. *r. Hikasta M i heími Bandaríkjamenn eru nú ^orðnir auðugasta þjóðin undir sólunni. Ekkert eitt land heiir meiri nátt- úrugæði heldur en Bandaríkin. Og engin þjóð hefir unnið með meiri atorku að því, að beygja náttúru- öflin undir mannshöndina, heldur en sú, sem ræður yfir þessu góða landi. Svo kom stríðið. Og meðan allar aðrar stórþjóðir heimsins breyttu eignum sínum og starfs- afrakstri í sprengikúlur og skot- færa-reyk — á meðan sátu Banda- ríkin bjá árum saman og seldu stríðsþjóðunum kynstrin öll af flestu því sem þarf til að viðhalda mannslífi, og til að stytta það. Hvortveggja var jafn nauðsynlegt Evrópuþjóðunum eins og þá stóð á. Og fyr en varði voru Banda- rikin komin fram úr öllum öðr- um bæði í framleiðslu, iðnaði og verslun. Og samt er eitthvað að líka í þessu ríka og góða landi. Og þar gerast mörg þau fyrirbrigði, sem ískyggileg má telja og síst eftir- breytnisverð fyrir smærri þjóðir. Eitt af þeim er það, að kjör almennings versna að mörgu leyti að sama skapi og þjóðarauðufinn og heimsvaldið vex. Bandaríkin framieiða nú til útflutnings marga hluti svo ódýra, að aðrar þjóðir geta varla við þá kept. Eitt af því eru steinkol, en af því leiðir vitan- lega aðstöðu-hagræði í margskonar iðn-framleiðslu. En þrátt fyrir þetta vex dýrtíðin heima fyrir, og laun bæði verkamanna og starfsmanna ríkisins hækka hvergi nærri í hlut- föllum við vöruverðið innanlands. — Leyndardómurinn í framsókn Bandaríkjanna er sá, að þeir sigra aðrar þjóðir í samkepni um verð- lag út á við, og auka með því veldi sitt. En sá skuggi fylgir, að afkoma miljónanna, sem vinna að því, að skapa þessi auðæfi, verður verri með ári hverju. Má segja, að tvær ástæður valdi hér mestu um. Fyrst er það, að vinnuaflið í Bandaríkjunupa er mun ódýrara en í vesturlöndum Norðurálfu. Far i landi eru 10 miljónir svertingja, sem í raun og veru eru ánauðugir þrælar, nema á pappírnum. Þeir sæta yfirleitt hinni verstu meðferð, og eru notaðir eins og Jifandi vinnu- vélar. Litlu betri eru kjör nýkom- inna, ómentaðra innflytjenda t. d. ítala, Serba, Pólverja og Rússa. Meðan þeir eru mállausir og ó- kunnugir nota framleiðendur sér neyð þeirra og láta þá vinna mikið fyrir lítið kaup. Ódýra starfsaflið í landinu er þess vegna önnur Reybjavík, 17. september 1919. 69. Mað. höfuð-ástæðan lil þess, að fram- leiðslan gelur í raun og veru verið ódýr. Hin ásíæðan er vitanlega hin mikla notkun véla og gott skipu- lag á vinnubrögðunum. En sam- hliða ódýru framleiðslunni vex dýrtíðin heima fyrir. Þar er versl- uninni um að kenna. Auðmenn- irnir mynda með sér stór félög til að halda uppi óeðlilega háu verði á lífsnauðsynjum. Pað eru hring- arnir frægu. í Chicago eru t. d. 5 kjötkaupmenn, sem ráða gersam- lega kjötverðinu bæði i Bandaríkj- unum og Englandi. Þeir eiga milj- ónir punda af kjöti í ishiisum í stórborgunum, en halda því í svo háu verði, að ekki geta keypt það nema stórefnaðir menn. Og sama er sagan um flestar aðrar fæðu- tegundir og lífsnauðsynjar. Það er þess vegna ólagið á versluninni, sem mest tjón gerir Bandaríkja- þjóðinni. Frjálsa samkepnin er orðin að kúgunar-samtökum auð- mannanna. Samvinnu-félagsskapur er lítill í landinu. Þess vegna fer sem fer. Vöntun hans er mesta mein þjóðarinnar. meiri Iiluta íossanetndar. I. Fyrsta atkvæðagreiðslan um eignarréttinn á vatnsafli fór fram í neðri deild í gær og lauk með fullkomnum ósigri meiri hluta fossanefndarinnar. Fossanefndin á þingi skilaði ekki áliti sínu fyr en 12. þ. m., enda komu ekki öll kurl til grafar frá meiri hluta milliþinganefndarinnar fyr en fyrir nokkrum dögum. Nefndin sá sér ekki fært að af- greiða nema lítinn hluta málsins. Kemur meiri hlut hennar fram með sérleyfislög og tvær þingsályktun- artillögur: Um rétt ríkisins til vatnsorku í almenningum og af- réttum, sem enginn ágreiningur varð um í milliþinganefndinni og um að ríkið nemi vatnsorku í Sogi. Pað er í þessari síðastnefndu tillögu sem ágreiningsmálið kemur fram um eignarrétt á vatnsafli. Meiri hluti þingnefndarinnar leggur sem sé til: »Til þess að dómsúrskurður fáist uin hvort rikið eða einstaklingar eigi vatnsorku landsins — að slá eign sinni á alla vatns- orku í Soginu, alt frá upptökum þess og þar til er það fellur í Hvítá, án þess þess að neinar bætur komi fyrir til einstaklinga eða félaga, sem talið hafa sér eignarrétt á henni. Taka þessi skal þó eigi ná til þess af vatninu, sem býlum verður metið nauðsynlegt til heim- ilis og búsþarfa«. Er þetta mergurinn málsins í tillögunni, og er alveg rangt hjá nefndinni, að vera að tala um að þetta sé gert til þess að fá dóms- úrskurð. Þegar menn »slá eign sinni á eitthvað« þá er það ekki gert til þess að fá dómsúrskurð, heldur til þess að auðga sig. En sá sem fyrir því verður, að eign hans er tekin, hann leitar úr- skurðar dómstólanna. Vildi nefndin láta landsstjórnina fremja þetta verk. Lýsti forsætisráðherra því yfir skýrt og skorinort, að hann væri öldungis ósammála meiri hluta milliþinganefndarinnar um eignar- rétt ríkisins á vatni. Það væri eng- in réttaróvissa um það, að land- eigendur ættu vatnsréttindin. Kæmi það því ekki til nokkurra mála að skipa landsstjórninni að gera það sem hún áliti beinlínis rangt. Fjármálaráðherra lýsti hinu sama yfir. Sveinn Ólafsson, Sig. Sigurðsson og Jörundur Brynjólfsson töluðu og á móti nefndinni. En með til- lögunni töluðu Gísli Sveinsson og Bjarni frá Vogi. Atkvæði féllu svo, að tillaga nefndarinnar var feld með 16 atkv. gegn 9. Þessir greiddu atkvæði á móti: Benedikt Sveinsson, Björn Stef- Framtiöaríandiö, Undarlegt er ísland ef enginn réttir pess stétt. Skáldin yrkja oft um framtíðina, hversu fögur hún muni verða, hverjum framförum þjóðirnar eigi að íaka o. s. frv. Er það næsta þarf verk, því að þaðmiðartií þess að hvetja menn og gera þá von- djarfari og fagurt markmið fram- undan er æ góð hvöt og heilia- vænleg. Hér verður brugðið upp annari mynd og það er enginn skálda- draumur. Það er myndin af ís- Iandi eins og ýmsir helstu leiðtogar þjóðarinnar, sem nú virðast ætla að sölsa öll völd undir sig, vilja láta hana verða á næstu árum. Hafa þær íillögur þeirra komið fram undanfarið, en enginn hefir fest trúnað á að reynt yrði í al- vöru að hrinda í framkvæmd, fyr en nú síðuslu dagana. Það verður ljót mynd i augum þess er þetta ritar, en vafalaust ánsson, Einar Árnason, Einar Jóns- son, Hákon Kristófersson, Jörundur Brynjólfsson, Matthías Ólafsson, Ólafur Briem, Pétur Jónsson, Pétur Ottesen, Pétur Þórðarson, Sigurður Sigurðsson, Stefán Stefánsson, Þor- steinn Jónsson og Þórarinn Jónsson. Þessir greiddu atkvæði með: Bjarni Jónsson, Björn Kristjáns- son, Einar Anórsson, Gísli Sveins- son, Jón Jónsson, Magnús Guð- mundsson, Magnús Pétursson, Sig- urður Stefánsson og Þorleifur Jónsson. Tveir af þessum þingm. tóku það fram, að þeir greiddu málinu einungis atkvæði til annarar um- ræðu, þeir M. G. og Sig. St. Forsætisráðherra greiddi ekki at- kvæði, þar eð um var að ræða áskorun til stjórnarinnár. Er það eftirtektavert að allir langsummennirnir greiða atkvæði með tillögunni til annarar umræðu, og einungis einn framsóknarflokks- maður og einn þversummaður. Með þessari atkvæðagreiðslu má telja það víst að a. m. k. þetta þing er algerlega mótfallið kenn- ingum meiri hluta fossanefndar, um að svifta einstaklingana eignar- rétti á vatnsafli. í raun og veru eru einir sjö þingmenn í neðri deil^ með tillögu nefndarinnar, en 19 á móti. Mun það vera eitthvert almesta fylgis- leysi, sem meiri hluti milliþinga- nefndar og meiri hluti þingnefndar hefir hlotið. fögur í þeirra manna augum er hana vilja nú skapa í sinni mynd. Það er eigi síður nauðsynlegt að sýna hið illa til varúðar, en að sýna hið góða til fyrirmyndar. Framtíðarlandið íslenska, þegar sumir núverandi þingskörungar hafa fengið að ráða verður nú sýnt í sex myndum. 1. mynd. Vínið inn í landið. Um það leyti sem ekkert eða sein ekkert vín er lengur til í sveitum landsins, um það leyti sem allar fátækari stéttir landsins hafa sem alveg hætt að nejda áfengra drykkja, en fyrirfólkið, fína fólkið, brýlur landslög og drekkur í laumi, það áfengi sem læknar selja þvi og lögreglustjórar loka augunum fyrir — um það leyti gerast preslur og læknir af Vesturiandi aðal hvata- menn þess að víninu verði aftur veitt inn í landið. Og ekki nóg með það. Ríkið er sjálft gert að vínsala. Fjárhagvandræðum ríkisins á að bæta úr með ábatavænlegri vínsölu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.