Tíminn - 25.10.1919, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.10.1919, Blaðsíða 3
TIMINN 335 gamlaðir og með elliglöpum, en tveir eru í bestu stælingu, gunn- reifir og fullir fjörs og áhuga. Þið eigið að fela mönnunum hag ykk- ar, og aðrir eru með fortiðina en hinir með nútíðina og framtíðina. Til jlngnmasnsins. Þér haldið áfam níðgreinum yðar í Morgunblaðinu. Þá er þér hafið borið níð á bændastéttina og einkum marga þeirra bænda, sem starfað hafa með yður, þá snúið þér j'ður, á þriðjudaginn var, sérstak- lega að mér og reynið að mann- skemma mig eftir föngum. En þótt þér séuð flugumaður, sem fús eruð að vinna hvaða verk sem er fyrir fé, £ótt þér viljið fara huldu höfði og rita niðgreinar i skjóli manna sem hvorki gætu né vildu notað pennann til svo ófag- urrar iðju — þá veit eg samt með vissu hver þér eruð, öll Reykjavík veit það og alt ísland veit það, eða mun fá að vita það. Þér eruð sami fluguma^urinn sem ritaði hið illræmda níðrit um Kristján dómstjóra Jónsson, þá- verandi ráðherra. Þér eruð sami flugumaðurinn sem ritaði hið jafn illræmda nið- rit um Jón Þorláksson verkfræðing. Þér eruð sami flugumaðurinn sem ritaði hið jafn illræmda níðrit um Björn heitinn Jónsson ritstjóra. Eru þau níðrit e.instök í sinni röð, einstök af því að enginn hefði getað ritað þau nema þér. Það eru ekki til í öðrum íslending en }rður slíkir hæfileikar og slíkur vilji til að skrifa níðrit. Og þér haíið skrifað mörg önn- ur níðrit um marga fleiri af mæt- ustu mönnum þjóðarinnar, sem of langt yrði upp að telja. ur frá, því að án járnbrautar gel- ur slik iðja ekki hafist. Hver á að stofna til þeirra stór- ræða? Þeir eru til sem vilja láta landið gera það. Þeir eru til sem vilja láta landið taka margra mil- jóna kióna lán til þess að leggja járnbraut austur, virkja einhverja ána og spekúiera í stóriðju. En hinir munu vera miklu fleiri sem hrýs hugur við að hleypa landinu i þá skuldasúpu, sem vilja láta landið brjóta isinn um svo stórfelt fvrirtæki, þar sein svo af- armikið er komið undir þekkingu og samviskusemi þeirra manna sem slíku ættu að koma í verk og stjórna, en su þekking er varla iil hjá innlendnm mönnum. Þess vegna var það niðurstaða Þingvallafundar, einróma samþykki allra fundarmanna, að gefa því auðléiagi sem best kjör byði kost á takmarkadri virkjun, og leyfa ekki nema eina virkjun. Með því móli: að fá járiibraut austur landinu að kostnaðarlillu, að lá ísinn brotinn um stóriðju, Mér kemur það því ekki kynlega fyrir þótt það sé níðborið og ó- þvegið sem þér berið á mig, úr því eg er mótstöðumaður yðar. Engum kemur það kynlega íyrir, úr því það kemur frá yður. Mér er það ekki til neinnar skammar né vansæmdar, að hljóta níð á bakið úr yðar penna. Eg tel mér það til liróss að fá níð úr penn- anum, af því að það eruð þér sem haldið á honum. Enginn maður sem komist hefir í svo háa stöðu og þér, hefir opin- berlega fengið eins mikið og opin- bert vantraust alþjóðar. Enginn maður sem við opinber mál fæst á þessu landi á eins al- mennum óvinsældum að mæta og þér, og að verðleikum. Þess vegna er mér það líka gleði að vita af yður sem eitruðum mótstöðumanni mínum. Enn á ný liefir þjóðin sýnt van- traust sitt á yður, og það sá hluti sem þekkir yður best, þar sem það er ekki einu sinni viðlit fyrir }Tður að leita aftur á náðir hennar. Þér vitið það sjálfur að hvert eina^ta orð er satt af þeim sem eg nú hefi sagt. Þess vegna þorið þér ekki að koma opinberlega frain. Þess vegna eruð þér flugumaður. En það er algerlega unnið fyrir gíg hjá yður að reyna að felast í myrkrinu. Þjóðin veil hver þér eruð. Hún veit það líka að það er hvert einasta orð satt sem eg hefi sagt. Trgggvi Pórhallsson. Doktorar. í dag ver Páll E. Ólason doktorsritgerð sína um Jón Arason, hérna við háskólann. Við sama tækifæri á að gera Jón Aðils að heiðursdoktor. að gerð yrði tilraun sem væri viðráðanleg af landsins hálfu og sjá mætti af reynslunni hver áhrif hefði á atvinnuvegina, að félagið lyti landslögum að öllu leyti og gyldi skatta sem hver annar borgari. Samhliða tæki landið eignar- námi besta vatnsaflið, Sogið, til þess að geta hvenær sem er tekið sjálft til starfa. Og samhliða legði landið áherslu á, að hlynna sem mest að smærri virkjunum, af hálfu einstaklinga og sveilarfélaga, til Ijósa, hitunar og smáiðju. Þetta er rélta Jeiðin í málinu. Landið sjálft gengst fyrir því að þjóðin fari að nota rafmagnið til daglegra þæginda og smáiðju, trygg- ir sér besta vatnsaílið til stóriðju, en hættir sér ekki út í það að stofna lil slíkra stórræða fyrst um sinn. Með því að leyfa eitt sérleyfi lil takmarkaðrar stóriðju, aflar það sér þeirrar reynslu sem nauðsyn- leg er um áhrif stóriðjunnar, enda séu fastar reglur settar um inn- flutning verkalýðs, eftir ákveðinn árafjölda falli iðjutækin og vatns- Bakkus og bannlögin. Úr bréfi. »Veislu mikla héldu þeir hér í kauptúninu. Voru að kveðja mikil- hæfan félagsmann. En böggull fylgdi skammrifinu að veislunni. Bakkusi var boðið, og hann hafði sig mjög frammi«. Aðra leið hefir frést hverjir at- kvæðamenn og stórmenni hafi setið að veislunni. Meðal annara voru þar 2 alþingismenn, 2 þjónandi preslar í þjóðkirkjunni, 3 hrepp- stjórar og einn héraðslæknir. Út af þessum fréttum er ástæða til að spyrja: Var vín haft um hönd í veislunni? Hafi vínið verið haft um hönd, var það löglega fengið og veitt? Eða var hér verið að brjóla landslögin — og fótum troða bann- lögin og alt velsæmi í sambandi við þau? Er það staðreynd, að einbættis- menn þjóðarinnar gangi á undan í því, að brjóta bannlögin? Sé svo, þá er hér um að ræða voðalega spillingu með þjóðinni, ef embætt- ismenn hennar og aðrir háttsettir starfsmenn hika ekki við á al- mennum samkomum og frammi fyrir alþjóð manna að svívirða og fótum troða landslögin. Er þjóðin svo illa stödd, að hún geti ekki skipað embættin og önnur þjóðnytjastörf löghlýðnum mönnum, samviskusömum og heið- virðum? Siðgæði og menning þjóðarinnar er komin undir því hvernig fram- antöldum spurningum verður rétti- lega svarað. Óla/ur Eggertsson, aflið aftur undir landið og þegar á næstu árum verði járnbraut Iögð austur landinu að kostnaðarlitlu. Þangað til full reynsla er fengin um áhrif stóriðjunnar, sé alls ekki veitt nema þetta eina sérleyfi til stóriðju, enda sé leyfi því sam- þykki bundið, að tvö þing sam- þykki og kosningar fari fram á milli þeirra þinga. Með þessu móti er hitt á hinn gullna meðalveg milli »innilokun- ar« og »opingáttar«. Hafist handa um beislun fossaflsins með aðfluttu vinnuafli, en í svo takmörkuðum stýl, að fullviðráðanlegt er og at- vinnuvegum og þjóðerni hættulaust. Bankarnir auglýsa að vextir og forvextir af víxlum og lánum öðr- um en veðdeildarlánum hækki úr 6V2 °/o upp i 7°/o auk framleng- ingargjaldsins sem er V* %. Skagaflrði xl/io. »Tíðin hefir yfir- leitt verið ágæt i sumar og hey- skapur góður, en féð er lélt og illa mörvað«. Skekkjan mikla. Morgunblaðið ryfjar nýlega upp gamalt mál, ádeilu Tímans á Landssreikninginn 1914—’15, þar sem skakkaði hundruðum þúsunda i viðskiftum landssjóðs og lands- verslunar. Tíminn vítti einn allra blaða þessa óreiðu og krafðist þess, að rannsókn færi fram á því, hvernig í misfellum þessum lægi. Það fekst ekki fram. En engin sönnun er það fyrir því, að rann- sóknar hafi ekki verið þörf. Voru misfellur þessar ískyggilegri fyrir það, að hið megnasta ólag var á öllu skipulagi landsverslun- arinnar undir stjórn E. A., bók- haldið í molum það sem það náði, á engan vissan stað að róa með greiðslur til verslunarinnar, og muu hafa verið tekið við fé (sams- konar greiðslum) á eigi minna en þrem stöðum, en ekkert heildar- yfirlit til yfir viðskiftin né heldur að nokkurntíma færi fram vöru- talning hjá versluninni undir stjórn Einars. Voru þetta aðal ástæðurnar sem Tíminn hafði við að styðjast er hann vítti óreiðuna og krafðist rannsóknarinnar, en auk þess vit- anlega hið persónulega vantraust hans á E. A. Hinsvegar hefir Tíminn aldrei borið það á E. A. að hann hafi »dregið sér« eða »stolið« þessari hálfu miljón sem skekkjan nam. En E. A. og málsvörum hans mun þykja heillaráð að orða þetta þannig, til þess að draga athygl- ina frá aðal atriði þessa máls, glundroðanum sem sjállur lands- reikningurinn bar með sér að væri á viðskiftum landssjóðs og landsverslunar meðan Einar var ráðherra, glundroðanum sem Tím- inn krafðist rannsóknarinnar á. En þótt rannsóknin hefðist ekki fram, þá hefir Tíminn þó ekki til einskis hafist hér handa. Aðfinsl- um hans er það að þakka, að nú befir verið fenginn maður til yfir- stjórnar á stjórnarskrifstofu þeirri, sem um mál þessi fjallar, sem allir kunnugir bera hið besta traust til og telja munu vera starfa sínum vaxinn. Og er blaðinu kunnugt um það, að nú er vel á veg kom- ið fullkomnu bókhaldi í stað hins alóhæfa sem áður var, bókhaldi, sem sýni á hverjum tíma hvernig hagur landsins sé í raun og veru, og er það ósmá breyting frá því sem áður var, þegar ókleift mátti heita að ráða í það, hið eina skifti á ári, þegar síðasta hönd hafði verið lögð á landsreikninginn. Skekkjan mikla er nú út úr heiminum, hana er ekki að finna í landsreikningnum 1916—17.En ekki sést þar til hlýtar hver rök liggja til. Reykjavík 23. okt. 1919. Guöbrandur Magnússon.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.