Tíminn - 06.12.1919, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.12.1919, Blaðsíða 4
f 360 TIMIN N Einar hefir numið tign úr tindun- um, en Guðmundur úr fossum afl. — Húseigendurnir eiga heiður skil- inn fyrir það hve mikinn hug þeir hafa á að skreyta hus sitt, og ekki síður fyrir það, að þeir hafa stutt efnilegan mann fyrstu sporin á braut listarinnar. Vinnan, sem þeir hafa veitt, hefir mótað Guð- mund. Það er glögg framför frá fyrstu myndunum til hinna siðari. Það er ekki hið mikilsverðasta, að þessar myndir eru til orðnar, heldur hitt, að fram er kominn efnilegur, ungur listamaður, sem útlit er fyrir, að verði sjálfum sér og þjóð sinni til rnikils sóma. Ásg. Ásg. Þakkarorð. Innilegt þakklæti votta eg öllum þeim, bæði fjær og nær, er sýndu mér hluttekningu og hjálpsemi í veikindum konn minnar síðast- liðið sumar. Sérstaklega til eg mér skylt að þakka hjónunum á Hvíts- stöðum, þeim Illuga Björnssyni og Guðmundínu Sigurðardóttir, sem á allan hátt reyndust mér og heimili mínu mjög vel, bæði í einu og öðru. Bið eg góðan guð að launa öllu þessu fólki, er því liggur mest á. Háhóli 29. nóv. 1919. Guðmundur Sigurðsson. Danðki sendiherrann kom al- kominn með fjölskyldu sína, með Islandi á sunnudaginn var. Forsætisráðherra er sagður væntanlegur heim með Botníu um miðjan mánuðinn. Kötlusj ódur. Frá Hlutafélaginu Framtíðin á Seyðisfirði .... 1000.00 kr. Frá Þórarni Árna- syni i Herdísarvík . 100.00 — Frá Sigurði Ólafs- syni í Kaldaðarnesi . 200.00 — Frá Guðmundi P. Ásmundss. Storfossen í Noregi............. 75.00 — Frá Sláturfélagi A.- Húnavatnssýslu . . 1000.00 — Samtals 2375.00 kr. Áður innkomið, sbr. skilagrein .... 28019.69 — Alls 30394.69 kr, Er nú þessum samskotum lokið. Reykjavík 1. des. 1919. Einar Helgason. Fréttir. Tíðiu er enn hin besta, frost- leysur og hagleysur. Jólagjöfin III, er komin út á forlag Steindórs Gunnarssonar prentsmiðjustjóra, snotur bók að öllum frágangi og verður mörgum til ánægju. 1. de8. var skólum Iokað og fánar dregnir á stöng hér í bæn- um í minningu fullveldisins. Verðlann úr sjóði Kristjáns kon- ungs niunda, hafa þeir fengið að þessu sinni: Magnús bóndi Frið- riksson á Staðarfelli í Dalasýslu og Magnús bóndi Sigurðsson í Hvammi undir Eyjafjöllum. 201 ferð. Aasberg skipstjóri á »íslandi« er flestum þeim íslend- ingum kunnur, sem eitthvað hafa ferðast að ráði á sjó, og mun elskaður og virtur af þeim öllum. Pað var 201. ferðin sem hann fer milli íslands og Danmerkur, sem hann fór nú með íslandi síðast og auk þess hefir hann farið marg- ar ferðir milli íslands og Vestur- heims. Hefir skipi hans aldrei hlekst á. Börnin frá Austurríki. Stjórnar- ráðið skipaði níu manna nefnd til þess að gera nauðsynlegar ráð- stafanir til að koma börnunum fyrir. Eru í henni: Kristján Jóns- son dómstjóri, formaður, Knútur Zimsen borgarstjóri, ritari, Thor Jensen stórkaupmaður, Sighvatur Bjarnason bankastjóri, L. Kaaber bankastjóri, Halldór Hansen læknir, frú Kristín Jacobson, Ingibjörg H. Bjarnason skólastjóri og Inga L. Lárusdóttir ritstjóri. Nefndin skor- ar á menn »að skjóta saman fé til fararkostnaðar, fatnaðar og annara útgjalda, sem leiði af flutn- ingi barnanna hingað«. — Tilboð munu vera komin til nefndar- innar um að taka um 150 börn og var gengið út frá því, að þau væru á aldrinum 3—8 ára flest. Nú hefir frést, að börnin séu flest eldri en 10—14 ára og að þau muni eiga að fara aftur eftir tveggja ára dvöl, eða svo. Búið er að skjóta saman um 11 þúsund krón- um í þessu skyni. Veikindi eru mikil í Reykjavík um þessar mundir. Taugaveiki stingur sér niður allvíða og er sumstaðar mjög illkynjuð. Kíghósti er dálítið að breiðast út og er sömuleiðis á Akureyri. Ritar Guðm. Hannesson hvatningar- og leið- beiningarorð til manna um að verjast því að hann breiðist út um landið. Loks hefir borið tölu- vert á skarlatssótt upp á síðkastið. Hefir kvennaskólanum t. d. verið Tapast hefir á veginum frá Galtárholti í Mýrasýslu snemma í júlí brúnn foli tveggja vetra, mark: biti aftan hægra, tvær fjaðrir aftan vinstra; brennimark: D. I. á fram- fótarhófum. Finnandi láti mig vita. Olafur Br. Gunnlaugsson Vííilsdal. Dalasýslu. lokað í vikutíma til varúðar og til þess að sótthreinsa húsið, þar eð nokkur skarlatssóttar tilfelli komu þar fram samtímis. En veik- in er sögð mjög væg og hefir eng- inn dáið úr henni. Sjaldgæft slys bar við hér í bænum mánudaginn 24. þ. m. Eru mörg hús í smíðum í Skóla- vörðuholtinu og höfðu verið reistir gaflar á einu þeirra á laugardag- inn 32. En á mánudagsmorguninn var hér ofsastormur og þoldi vegg- urinn ekki, enda var hann hlað- inn úr holsteini. Féll nokkur hluti veggjarins niður og varð einn verkamaður undir og beið þegar bana. Hann hét Sveinn Sveinsson, bróðir Ólafs heitins Sveinssonar gullsmiðs hér i bæ. Bruni. Um síðustu helgi brann verslunarhús í Ólafsvík, sem Garð- ar Gíslason stórkaupmaður átti. Er óvíst um uppkomu eldsins. Sextug8afmæli á Einar H. Kvar- an skáld í dag. AV! Hafið þér gerst kaupandi að Eimreiðinni? Ritstjóri: Tryggyi PórhBUsgoB Laufási. Simi 91. Prentsmiöjan Gntenberg. sóttu ritstjórnar. Lét hann þá vatnið fara sömu Ieið og fyrirvarann. Að lokum brosti hamingjusólin við Einari. Miljónafjórðungurinn tók hann í sátt, og byrjaði hann nú vegsemd sina með því að fylla Mbl. með ósannindum og blekk- ingum um alla þá menn í land- inu, sem ástæða var til að halda að beittu sér á móti kjötkatla- stefnunni. Eins og að likindum ræður fengu Tímans menn obbann af þessari óírægilegu uppskeru. Verður vikið að þeirri hlið í loka- þáttum þessarar greinar. Einar var í fyrstu launritstjóri blaðsins, en um síðir kom þó þar, að nafn hans tók að standa á því. En í stað þess að vera aðalritsljóri, var nafni hans tylt með smáletri, undir nafn Finsens þess, sem minstur var fyrir sér af öllum gömlu ritstjórunum. Þótti þá lítið leggjast fyrir Einar, er hann hafði ekki meiri metnað, en að sætta sig við að vera undirtylla gamla Morgunblaðs ritstjórans. Með þessari ráðabreytni hefði Einar brugðist sjálfum sér á eftir- minnilegan hátt. Hans fyrsta verk, næst því að ófrægja Tímans menn, var að bregðast trausti þeirra manna, sem hann átti að vinna fyrir, og eyðileggja með einu hand- taki það sem yfirmenn hans höfðu verið að byggja upp á mörgum missirum. X. Svo sem kunnugt er höfðu margir helstu menn úr Heima- stjórnar og Sjálfstæðisflokknum brætt sig saman og myndað félag það er þeir nefndu Sjálfstjórn. Mbl. mátti að vissu Ieyti álítast málgagn þessa félags. Rétt um þetta leyti hafði félag þetta tilnefnt sem frambjóðendur sína þá Jón Magnússon og Svein Björnsson. Það vár vitanlega skylda Einars að styðja báða þessa menn. En í stað þess var auðséð að allur hans hugur var á að koma að almesta andstæðingi annars þeirra, Möller ritstjóra, sem allir vissu að upp- runalega bauð sig fram fyrst og fremst i því augnamiði að fella Jón. Eftir kosningarnar kom í ljós að fjölmargir af vinum Sveins höfðu fylgt Einari að þessu máli. Þarf síst að undra þó að fylgis- menn Jóns kynnu því illa. Er það skemst frá að segja, að Einari tókst á hálfum mánuði að sprengja Sjálfstjórn, svo að hún er ekki líkleg til að bera sitt bar framar. Sömuleiðis eru margir af helstu eigendum blaðsins honum afar reiðir, og mun hann þar eiga kaldra griða að vænta. í þriðja lagi hefir öll þessi lævísi orðið Sveini Björnssyni til hins mesta ófarnaðar, því sennilegt er að þingmenn Heimastjórnarinnar taki upp þykkjuna fyrir foringja sinn, engu síður en flokksmenn utan þings. Hefir Einar með þessum hætti komið inn klofningi hinum mesta, bæði meðal húsbænda sinna, blaðeigandanna, og gert Sjálfstjórn óverkfæra um ófyrirsjáanlegan tíma. Mun það flestra manna mál, sem til þekkja hér á landi, að fáir menn hafi frá því að sögur hófust, haft jafn dásamlegt lag á eins og Einar að gera alt að engu, sem honum er fengið í hendur. Það er ofboð sennileg sú saga, sem gengur nú um bæinn síðustu dagana, að húsbændur Einars muni ætla að gefa honum langt frí, æfilangt meir að segja, og að hann muni nú mest langa íil þess að komast aftur í sinn gamla sess, bæði á Iaun og eftirlaun. Væntan- lega hefir hann Iíka trygt sér eftir- laun frá eigendum Morgunblaðsins. í næsta kafla verður sýnt fram á hvers vegna byrjunarafskifti Einars af stefnu og starfi Tímans, gerðu óhjákvæmilegt, að venja hann af mesta stráksskapnum og ósvífn- inni, með því að veita honura nokkra innsýn í sinn eigin barm. (Frh.) Hæstiréttur. Verið er að breyta efri hæð hegningarhússins, enda á hinn nýji hæstiréttur að setjast þar að. Hafa nú þeir Lárus H. Bjarnason prófessor og Páll Ein- arsson borgarstjóri á Akureyri ver- ið skipaðir hæstaréttardómarar á- samt dómurunum í yfirrétti og Björn Þórðarson aðstoðarmaður verður hæstaréttarritari.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.